Morgunblaðið - 20.03.2005, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 20.03.2005, Blaðsíða 52
52 SUNNUDAGUR 20. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ ALDARMINNING 100 ár eru í dag síð- an Sigurbjörg Jóns- dóttir fæddist í Smá- dalakoti í Flóa 20. mars 1905. Foreldrar hennar voru hjónin Guðbjörg Jónsdóttir frá Einkofa á Eyrar- bakka og Jón Hall- dórsson frá Ósabakka á Skeiðum sem bjuggu í Haugakoti í Flóa (nú Ljónsstöð- um) og stunduðu bú- skap þar, en auk þess stundaði Jón sjóróðra frá Eyrarbakka á ver- tíðum. Hún ólst upp ásamt bræðr- unum sínum Kristjáni og Guðjóni Benjamín hjá foreldrum sínum til 11 ára aldurs í Haugakoti í Flóa en 1916 missti hún móður sína í hörmulegu slysi er heyskúti féll of- an á hana þegar hún var við gegn- ingar, þá ein með börnin þar sem Jón var á sjó. Eftir þennan hörmulega atburð var börnunum þremur komið fyrir hjá vinum og ættingjum og fór Sigurbjörg að Ósabakka á Skeið- um til föðurfólks síns en Guðjón bróðir hennar var kyrr í Hauga- koti hjá næstu ábúendum þar og Kristján fór að Syðra-Langholti en varð skammlífur, dó hann þar 21 árs gamall. Eftir lát Guðbjargar varð Jónína Margrét Jónsdóttir frá Hæðar- garði. í Landbroti sambýliskona Jóns. Byrjuðu þau búskap sinn í Arnarstaðakoti í Hraungerðis- hreppi og var Sigurbjörg hjá þeim þar og fermd í Laugardælakirkju, sem hún kallaði alltaf kirkjuna sína. Árið 1923 fá þau jörðina Fram- nes í Ásahreppi til ábúðar. Höfðu þau þá eignast soninn Guðbjörn Ingvar. Urðu þau eigendur jarð- arinnar síðar og byggði Guðbjörn allt upp með glæsibrag og bætti á allan hátt. Var hann orðlagður fyr- ir dugnað og myndarskap. Kærleikur var góður á milli þeirra allra sem hefur haldist alla tíð. Sigurbjörg var bæði greind og minnug, ekki varð þó skólagangan löng, kannski vegna allra að- stæðna. Hún fluttist til Reykjavík- ur fyrir tvítugt og eins og margar aðrar stúlkur byrjaði starfsferill- inn á að fara í vistir sem voru mis- jafnlega góðar. Átti hún þó ævi- langa vináttu við ein hjónin. Einnig vann hún í fiski bæði í Keflavík og eins í Melshúsum á Seltjarnarnesi. Var það oft erfitt að rífa sig upp á vetrum til að fara í fiskinn og byrja á því að brjóta klakann af körunum áður en hægt var að byrja að verka hann. Þær voru ekki öfundsverðar konurnar í þá daga af þeirri vinnu sem í of- análag var illa borguð. Um 25 ára aldur hitti hún Helga Jóhannsson Hafliðason, ungan mann af Snæfellsnesi. Giftu þau sig 26. sept. 1931. Hann var sonur hjónanna Helgu Jónsdóttur frá Fáskrúðarbakka og Hafliða Jóh. Jóhannssonar, skipstjóra frá Búð- um í Eyrarsveit, sem ættaður var frá Bjólu í Djúpárhreppi. Það fóru erfiðir tímar í hönd hjá nýgiftum hjónum. Atvinnuleysi var mikið en Helgi komst í vinnu í Héðni sem varð til þess að hann fór í nám þar og lauk prófi í járn- smíði og koparsmíði. Síðar byrjaði hann að vinna á bílaverkstæði Páls Stefánssonar við Kolasund og þar lærði hann bifvélavirkjun og lauk náminu með meistaraprófi. Hann var alla tíð eftirsóttur í vinnu fyrir hversu handlaginn og lipur hann var. Áður en þau eignuðust húsið á Hverfisgötu 92a eignuðust þau fyrstu fjögur börnin, allt stúlkur, Guðbjörgu, Hafdísi, Kristínu og Huldu, en síðan fæddust þrír drengir, Ómar, Hafþór og Helgi. Á stríðsárunum þótti best að koma börnum í sveit á sumrin vegna hættuástandsins og þá tók Helgi sig til ásamt Jóhanni Dal- berg sem var hjá okkur á þeim tíma og smíðuðu þeir sumarbústað á lóðinni við húsið. Var hann í átta pörtum og partarnir boltaðir sam- an og þakið líka svo úr varð her- bergi og eldhús og var hægt að setja hann upp á vörubílspall í pörtum og flytja hann hvert sem var. Fyrsta sumarið var hann í Framnesi, tvö til þrjú sumur í Smálöndunum. Var hann síðast settur niður á Valhúsahæð á Sel- tjarnarnesinu. Elsta dóttirin Guðbjörg giftist ung til Danmerkur, og var uggur í foreldrunum um framtíð hennar. Það birti þó yfir þegar Sigurbjörg fór sína fyrstu utanlandsferð með Gullfossi til að heimsækja hana, og naut hún þess svo mjög að fleiri ferðir voru farnar á komandi ár- um. Fór nú í hönd besta æviskeið þeirra hjóna, yngstu börnin komin vel á legg og heimilið að léttast. Helgi rak eigið verkstæði á Lindargötu 30, hjá Valdimar Egilssyni rennismið, og vann hann við bílaviðgerðir þar fram að því að hann kenndi lasleika sem síðar varð hans banamein. Lést hann í febrúarbyrjun 1965 á besta aldri, 57 ára gamall. Sigurbjörg vann á ýmsum stöð- um í Reykjavík svo sem í Dósa- verksmiðjunni og í Lýsi h/f, Granda h/f og Sláturfélagi Suður- lands. Fleiri áföll gekk hún í gegnum því að á afmælisdeginum hennar 1981 fórst dóttursonur hennar Víðir Þór Ragnarsson með mb. Þernu ÁR 22 ásamt skipstjóra sín- um Þorsteini Jónssyni, rétt orðinn 16 ára. Ekki er að undra að þetta var mikið áfall þar sem drengurinn hafði verið náinn ömmu sinni og alist að hluta til upp hjá henni ásamt systkinum sínum. Og haustið eftir ferst Hafþór sonur hennar með flugvél sinni í miklu óveðri er gekk yfir Vestfirði, en hann var kaupfélagsstjóri á Ísa- firði í þann tíma. Og máltækið segir að öll él birti upp um síðir, og allt er þá þrennt er. Og voru það orð að sönnu. Sigurbjörg var mikið fyrir söng og dans og dansaði hún gömlu dansana fram á síðustu ár, enda ávallt geðgóð og glaðsinna. Sein- ustu árin sótti hún félagsskap á Vesturgötu 7 þar sem gott fólk gerði henni ellina góða. Var henni haldin vegleg veisla á 90 ára af- mæli hennar og mættu þar flestir ættingjar og vinir sem varð henni til mikillar gleði og bjó hún að því lengi. Stuttu seinna bilaði heilsa henn- ar svo hún varð að dvelja á Hvíta- bandinu og lést þar 27. janúar 1997. Kristín og Hulda Helgadætur. SIGURBJÖRG JÓNSDÓTTIR OG HELGI HAFLIÐASON FRÉTTIR Í ÁLYKTUN frá stjórn Bandalags starfsmanna ríkis og bæja (BSRB) kemur fram að samtökin lýsa yfir fullum stuðningi við kröfu Starfs- mannasamtaka Ríkisútvarpsins um að útvarpsstjóri endurskoði ákvörðun sína um ráðningu frétta- stjóra fréttastofu Útvarps. „Umsækjendum er sýnd vanvirða með því að láta í veðri vaka að ráðningarferli verði byggt á fag- legum grundvelli, menn kallaðir í viðtal, látnir gera grein fyrir menntun og starfsreynslu en allt slíkt síðan að engu haft við ráðn- inguna,“ segir í ályktuninni. „Fimm af tíu umsækjendum voru taldir hæfastir til að gegna starfinu samkvæmt óhlutdrægu og faglegu mati. Það voru allt starfsmenn Rík- isútvarpsins, þar af fjórir starfs- menn fréttastofu RÚV. Þeir voru allir með margra ára reynslu af fréttamennsku og eiga ásamt öðru starfsfólki fréttastofunnar heiður- inn af því að hafa byggt upp traust stofnunarinnar út á við. Þau vinnu- brögð sem hér hafa verið viðhöfð af meirihluta útvarpsráðs og útvarps- stjóra eru móðgun við umsækj- endur, starfsfólk og þjóðina alla,“ segir í ályktuninni. BSRB styður Starfsmanna- samtök RÚV Pera vikunnar: Flatarmál hálfhrings er 25,12 cm². Finndu ummál þessa sama hálfhrings. Skrifaðu svarið með námundun upp á 1:10 Lausnum skal skilað í síðasta lagi kl. 13 föstudaginn 1. apríl. Lausnir þarf að senda á vef skólans, www.digranesskoli.kopavogur.is Ný þraut birtist þar fyrir kl. 18 sama dag ásamt lausn þessarar og nöfnum vinningshafanna. Stærðfræðiþraut Digranesskóla og Morgunblaðsins THORVALDSENFÉLAGIÐ gaf nýlega tvo UVB-ljósalampa til húð- og kynsjúkdómadeildar. Annar þeirra verður á legudeildinni í Kópa- vogi og hinn á göngudeildinni í Þver- holti. Lamparnir eru notaðir til með- höndlunar á psoriasis og exemi á höndum og fótum. Deildin átti fyrir gamla lampa sem nýju lamparnir leysa af hólmi. Formaður Thorvald- sensfélagsins afhenti lampana, ásamt nokkrum félagsmönnum. Myndin er tekin þegar lamparnir voru afhentir. Á mynd eru: Jón Hjaltalín Ólafsson yfirlæknir, Emma Björg Magnúsdóttir deildar- stjóri, Sigríður Sigurbergsdóttir, formaður Thorvaldsensfélagsins, Hugrún Þorsteinsdóttir, Anton Örn Bjarnason, Ása Jónsdóttir félags- maður, Edda Steingrímsdóttir, Kristín Ólafsdóttir félagsmaður, Inga Þorbjörg Steindórsdóttir og Jenný Guðmundsdóttir. Ljósmynd/Sigurður Jónas Eggertsson Húðlækningardeild LSH fær ljósalampa að gjöf KRAKKARNIR í 7.H.S. í Fellaskóla hafa verið að glugga í dagblöð og vinna verkefni tengd blöðunum og er það hluti af verkefninu Dagblöð í skólum sem hefur verið í gangi und- anfarin ár. Markmiðið er að kynna þennan miðil fyrir börnunum og nota blöðin sem kennsluefni. Krakkarnir fá svokallaðan blaðapassa sem inniheldur verkefni sem þau þurfa að leysa, svo sem að finna mikilvægustu fyrirsögnina í blaðinu, kanna á hvaða síðu hvaða efni sé að finna, o.fl., segir Halldór J. Sigurðsson, kennari í Fellaskóla. Krakkarnir voru ekki í vandræðum með að finna mikilvægustu fyrir- sögnina í Morgunblaðinu og sögðu langflestir að sú mikilvægasta væri stærsta fyrirsögnin á forsíðunni. Einnig áttu þau að finna einhvern í blaðinu sem þeir vildu tala við og útbúa þrjár spurningar til að leggja fyrir hann. Halldór segir að nemendur hafi helst viljað tala við köttinn Gretti og spyrja hann hvers vegna hann sé svona feitur, hvers vegna hann sé svona latur, og hvar hann hafi eiginlega lært að tala. Morgunblaðið/Kristinn Vildu spyrja Gretti hvar hann lærði að tala FERÐASKRIFSTOFAN Prima Embla stendur á morgun fyrir stofnun Balkanfélagsins á Íslandi. Í fréttatilkynningu segir að Balk- anfélagið sé áhugafélag um málefni Balkanskagans, náttúru, sögu og menningu þeirra þjóða sem þar búa. Félögum mun gefast kostur á að taka þátt í vönduðum sérferðum um svæðið. Einnig er ætlunin að halda námskeið, t.d. í matargerð og vínsmökkun. Í tilefni stofnfundar- ins mun Örjan Sturesjö, lektor í Austur-evrópskum fræðum við há- skólann í Uppsölum, halda fyrir- lestur og segja frá ferð sem farin verður til Serbíu, Svartfjallalands og Albaníu í maí. Stofnfundurinn verður haldinn 21. mars, kl. 20, í húsakynnum ferðaskrifstofunnar að Stangarhyl 1 í Reykjavík. Stofna Balkan- félag á morgun INGER Björk Ragnarsdóttir, 17 ára nemandi við Menntaskólann í Reykjavík, er fyrsti farþeginn sem fer frítt í fríið með Iceland Express í sumar. Hún fær farmiðann sinn endurgreiddan að fullu og hundrað þúsund krónur í farareyri að auki. „Inger Björk var valin af handahófi úr hópi þeirra sem keypt hafa miða með Iceland Express á tímabilinu 15. maí til 15. september og hafa skráð sig í leikinn „Frítt í fríið“ á vef Iceland Express, segir í frétta- tilkynningu. Fer í frí með Iceland Express
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.