Morgunblaðið - 20.03.2005, Page 4

Morgunblaðið - 20.03.2005, Page 4
4 SUNNUDAGUR 20. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR BRAGI Árnason, prófessor í efna- fræði við Háskóla Íslands, sem varð sjötugur hinn 10. mars sl. flutti kveðjufyrirlestur í hátíðarsal Háskóla Íslands sl. föstudag í til- efni af starfslokum við skólann. Í erindi sínu rakti Bragi náms- og starfsferil frá því hann lauk menntaskóla um miðja síðustu öld, námi sínu í Þýskalandi og aðdrag- anda þess að hann ákvað að hætta í doktorsnámi og snúa sér að rann- sóknum á Íslandi. Ekkert lát á heimsóknum Síðustu áratugi hafa rannsóknir Braga einkum snúið að vetni og sagði hann að ekki væri ofsagt að vetnisverkefnið hefði hlotið óskipta athygli vítt og breitt um heiminn. Ekkert lát hefði verið á heimsóknum fréttamanna frá er- lendum fjölmiðlum, sjónvarpi, út- varpi, tímaritum og dagblöðum. Þá hefði legið hingað til lands mikill straumur fræðimanna og stjórn- enda stórfyrirtækja til að fræðast um vetnisáform Íslendinga. Til dæmis hefðu fyrir um ári komið hingað forsvarsmenn stærstu bíla- framleiðenda og stórfyrirtækja í Japan og síðan hefðu hingað komið embættismenn og borgarfulltrúar frá Japan til að kynna sér vetn- ismál Íslendinga. „Ég gerði mér til gamans fyrir nokkru að telja nafnspjöld þeirra erlendu aðila sem hafa komið í heim- sókn, gagngert til að kynna sér vetnisrannsóknir við Háskóla Íslands og vetnisvæð- ingaráform. Nafnspjöldin reyndust 354,“ sagði hann. Virkjun sólarorku næsta skref Bragi sagði ekki óeðlilegt að menn hugsuðu sem svo að Ísland væri augljóslega kjörið tilrauna- land til að hefja vetnisvæðingu heimsins. Tiltölulega lítið mál væri að byggja upp nauðsynlega innviði þar sem hægt yrði að prófa og endurbæta nauðsynlega tækni. Þannig að þegar hagkvæmt yrði að hefja virkjun sólarorku í stórum stíl yrði tiltölulega auðvelt að nýta og yfirfæra reynslu og þekkingu sem aflað hefði verið á Íslandi yfir á stærri samfélög, að mati Braga. Bragi Árnason lætur af störfum Vetnisverkefnið hlot- ið óskipta athygli Bragi Árnason FÆÐINGAR á landinu öllu voru alls 4.187 í fyrra, rúmlega 100 fleiri en árið 2003 þegar þær voru 4.079. Tíðni keisaraskurða lækkar, t.d. í Reykjavík og Akureyri, en hækkar á öðrum stöðum og stendur Akranes upp úr þar sem tíðni keisaraskurða sem hlutfall af fæðingum var 25,44% í fyrra. Séu aðgerðir með sogklukk- um teknar með lætur nærri að þriðja hver kona sem fæðir á Akra- nesi fæði með einhvers konar að- gerð. Andvana fædd börn voru 21 á síð- asta ári, borið saman við sjö börn ár- ið á undan, þar af voru 18 á kvenna- deild LSH, eitt á Akureyri, eitt í Keflavík og eitt á Akranesi. Að sögn Reynis Tómasar Geirs- sonar, yfirlæknis á kvennadeild LSH, geta orsakir andvana fæðinga verið margvíslegar, s.s. sýkingar, fylgjulos, naflastrengsklemmur, sjúkdómar hjá móður og meðfæddir sjúkdómar hjá börnunum. Fjöldi andvana fæddra barna (börn sem deyja í móðurkviði) var hærri á síðasta ári en nokkur síð- ustu þar. Reynir Tómas bendir þó á að fá tilvik hækki hlutfallið umtals- vert og að í einni og sömu vikunni í fyrra hafi t.d. þrjú börn fæðst and- vana á þremur stöðum á landinu af mismunandi orsökum. Mörg þess- ara barna séu miklir fyrirburar og oftast er fátt eða ekkert sem gefi til kynna að barninu sé hætt. Börn sem látin voru fyrstu viku eftir fæðingu voru fjögur á landinu í fyrra, öll fædd á kvennadeild LSH. Árið 2003 voru börn látin á fyrstu viku helm- ingi fleiri, eða átta. Tölurnar sveifl- ast því talsvert milli ára. Reynir Tómas bendir á að engu að síður sé fjöldi barna sem deyja í meðgöngu, fæðingu og á fyrstu vikum eftir fæð- ingu með því lægsta sem gerist í heiminum, einnig á síðasta ári. Dreifing fæðinga á landinu var áþekk í fyrra og árið á undan. Í Reykjavík fæddust 71% allra barna á landinu, á Akureyri var hlutfallið svipað milli ára (9–10%) en Akranes fór upp fyrir Keflavík í fjölda fæð- inga (224 á móti 209) og hefur það ekki gerst síðan 1983. Tíðni keis- araskurða lækkaði á nokkrum stöð- um í fyrra frá árinu á undan, sem fyrr segir. Í Reykjavík var tíðnin rétt rúm 17% í fyrra, en var 19,3% 2003 og hafði þá hækkað nokkuð borið saman við árin þar á undan. Á Akureyri var tíðni keisaraskurða rúm 14,6% í fyrra og hefur lækkað síðustu ár úr rúmum 24%. Í Nes- kaupstað var hlutfall keisaraskurða einnig hátt í fyrra, 22%, og hlutfall keisaraskurða var einnig umtalsvert á öðrum stöðum, 10–13%, s.s. í Vest- mannaeyjum, Selfossi og Ísafirði og hefur hækkað milli ára. Þriðja hver kona á Akra- nesi fæðir með aðgerð                                                                 !!! !!! "" #$#  %   HÉRAÐSDÓMUR Norðurlands hefur dæmt rúmlega fertugan karl- mann í eins árs fangelsi fyrir kyn- ferðisbrot og líkamsárás. Ákærði játaði öll brot. Í dómi héraðsdóms kemur fram að skv. læknaskýrslu, þar sem fram komi ástand brotaþola, megi ráða að árásin hafi verið harkaleg og til þess fallin að vekja verulegan ótta hjá brotaþola. Fram kemur að ákærði eigi saka- feril frá 1984 til 1998. Hann hefur hlotið dóma fyrir hegningarlagabrot, s.s. skjalafals og ýmis auðgunarbrot, auk brota á umferðarlögum. Síðast hlaut ákærði dóm í desember 1998 fyrir hegningarlagabrot. Ákærði hlaut árið 1996 átta mánaða fangels- isdóm fyrir brot á 209. gr. almennra hegningarlaga sem snertir lostugt athæfi sem særi blygðunarsemi manna eða er til opinbers hneykslis. Tekið er fram að til refsilækkunar er gert að líta til þess að ákærði játaði greiðlega brot sitt og samþykkti að greiða bætur, en hann var dæmdur til greiðslu á 500 þúsund krónur ásamt vöxtum til brotaþola. Auk þess er ákærða gert að greiða laun réttargæslumanns, 75 þúsund krón- ur , og allan sakarkostnað, þ.m.t málsvarnarlaun skipaðs verjanda síns, 150 þúsund krónur. Árs fangelsi fyrir kyn- ferðisbrot og líkamsárás HIN fjögurra ára gamla hnáta, Heiðrún Anna, hafði allan varann á þegar hún gaf grágæsunum við Reykjavíkurtjörn. Varlega réttir hún fram brauðbitann og svangar gæsirnar gera sig líklegar til að narta í. Heiðrún er skynsöm, því vitað er um aðgangshörku fuglanna við Tjörnina, ekki síst í mesta kuldanum þegar minna er um fæðu- framboðið. Morgunblaðið/Ómar Gæsunum gefið með varúð SKÓLAYFIRVÖLD í Austurbæjarskóla í Reykjavík hafa skorið upp herör gegn lúsafar- aldri sem herjað hefur á nemendur skólans í vetur, og verður nemendum ekki hleypt inn í skólann eftir páskafrí nema með uppáskrifað vottorð frá foreldrum um að hár þeirra hafi verið kembt. „Við losnum ekki við lúsina, það er stóri verkurinn. Þetta er ekki þannig að hér séu allir grálúsugir, heldur eru alltaf einhver tilfelli sem koma upp. Þegar við teljum okkur vera komin fyrir vind með þetta gýs það upp ein- hversstaðar,“ segir Héðinn Pétursson, aðstoð- arskólastjóri Austurbæjarskóla. Hann segir að áður en farið sé út í svo mikl- ar aðgerðir sé ljóst að búið sé að reyna ým- islegt til þess að vinna á vandanum, en þær að- ferðir hafi einfaldlega ekki borið tilætlaðan árangur, og því þurfi að grípa til svo harka- legra aðgerða. Héðinn segir að reyna eigi að nota páskafrí- ið til þess að losna við lúsina, engin lús sem er í skólanum muni lifa af svo langan tíma án blóðs og því sé mikilvægt að foreldrar byrji strax á fyrsta degi páskafrísins að kemba til þess að komast að því hvort lús eða nit séu í hári barnana. Í bréfi sem sent var út til foreldra eru þeir beðnir um að senda börn sín ekki í skólann fyrr en víst sé að engin lús sé til staðar. Héðinn segist þó ekki eiga von á miklu brottfalli lúsugra nemenda eftir páskafríið þó einhvern tíma geti tekið að losna við þessa óværu, enda hafi fólk allt páskafríið til þess að tryggja að börnin séu lúsarlaus. Skera upp herör gegn lúsafaraldri

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.