Morgunblaðið - 20.03.2005, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. MARS 2005 37
UMRÆÐAN
GREINA þarf hismið frá kjarn-
anum. Það skiptir ekki öllu máli hvort
Jónas Sen hafi orðið að draga í land,
ádeilugrein hans á tónlistarhúsið
haustið 2001 hafi farið framhjá mér
eða hver líkti óperulist-
inni við safn í Silfri Eg-
ils. Aðalatriðið er að við
erum sammála um að
ekki er búið að óp-
erunni eins og hún
bæði þarf og á skilið.
Jónas hefur lagt gott
til umræðunnar og t.d.
tekið undir sjónarmið
mín um sameiningu.
Með sameiningu stofn-
ana má spara stórfé án
þess að rýra listrænt
sjálfstæði þeirra.
Gautaborgaróperan,
þar sem ég starfa m.a. um þessar
mundir, hefur um nokkurra ára skeið
annast flutning söngleikja einnig og
þannig aflað tekna sem hún hefði ekki
fengið ella.
Slíka samnýtingu má hugsa sér í
hinu nýja Tónlistarhúsi beri yfirvöld
gæfu til að hanna hæfilega stóran óp-
erusal inn í það. Leikhús hér rúma
ekki nægilega marga áhorfendur til
að „núllpunktur“ náist í rekstrinum
og mun það t.d. vera ástæða þess að
Þjóðleikhússtjóri aflýsti söngleiknum
Jesus Christ Superstar í vor. Kostn-
aðurinn of hár og áhorfendur sviptir
söngleiknum.
Mig langar til að benda á fáein at-
riði sem mæla með óperusal í Tónlist-
arhúsinu:
Leikhúsatburðir á vegum
Listahátíðar hefðu stærri sal og yrðu
því hagkvæmari.
Hægt væri að sameina rekstur
Sinfóníuhljómsveitarinnar og Óp-
erunnar án þess að sameina listræna
stjórnun.
Halda má flóknar kaupstefnusýn-
ingar án röskunar á starfi Sinfón-
íuhljómsveitarinnar.
Íslenska Óperan
gæti hafið samstarf við
erlend óperuhús (co-
production) og aukið
möguleika á flutningi
sjaldheyrðra verka.
Slíkt samstarf gæti
aukið möguleika á sam-
starfi í flutningi ís-
lenskra óperuverka.
Hagkvæmni hlytist
af sameinaðri markaðs-
setningu og miðasölu og
möguleikar á blandaðri
áskrift.
Finnar hafa á síðustu 30 árum
gjörbreytt ímynd sinni með eflingu
menningar, ekki síst tónlistar. Stjórn-
endur, einleikarar og einsöngvarar
frá Finnlandi heimsækja öll helstu
óperu- og tónleikahús veraldar reglu-
lega sem sendiherrar þjóðar sinnar
og bera út hróður hennar. Þessi stór-
kostlega landkynning þeirra er engin
tilviljun. Hún er árangur vel fram-
kvæmdrar stefnu í menningarmálum.
Danir eru að komast í hóp ríkustu
þjóða heims þrátt fyrir að búa yfir
litlum náttúruauðlindum. Þeir byggja
á mannauði. Öflugt menningarstarf
er uppspretta sem þeir virkja.
Í frábærum pistli Fréttablaðsins
„Skoðun“ 7. mars er talað um kröfur
sem menntað starfsfólk gerir til þjóð-
félagsins sem það lifir í, t.a.m. „gott
menntakerfi og fjölbreytt menning-
ar- og tómstundalíf“. Þarf ekki að
fjölyrða hve óperusalur í Tónlistar-
húsinu yrði sönglífinu á Íslandi mikil
lyftistöng, tónlistaráhugafólki mikið
gleðiefni – og skattgreiðendum mikill
léttir að sjá stefnt að hagkvæmni með
fjölnýtingarhúsi um leið og blásið yrði
til sóknar.
Mér sýnist við Jónas Sen vera sam-
mála um þetta, samherjar í barátt-
unni og bræður í andanum.
Við samherjarnir,
Jónas og ég
Gunnar Guðbjörnsson
fjallar um Tónlistarhús
’Þarf ekki að fjölyrðahve óperusalur í Tón-
listarhúsinu yrði söng-
lífinu á Íslandi mikil
lyftistöng.‘
Gunnar Guðbjörnsson
Höfundur er óperusöngvari.
Úrslitin í ítalska boltanum
beint í símann þinn
Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast.
www.valholl.is
Opið virka daga frá kl. 9-17.30.
Sími 588 4477
Nýkomin í einkasölu falleg og björt og vel skipulögð 130 fm efri
sérhæð með sérinngangi. 4 svefnherbergi í sérsvefnálmu. Þvotta-
herbergi innaf eldhúsi. Suðursvalir, fallegt útsýni. Bílskúrsplata.
Hiti í innkeyrslu. Stutt í skóla, sundlaug og alla þjónustu. Góð
eign sem vert er að skoða. Verð 24,9 m.
Seljendur sína í dag milli kl. 14-17, allir velkomnir.
Borgarholtsbraut 76 - Kópavogi
Opið hús í dag kl. 14-17.
HB FASTEIGNIR
Sími 534 4400 • Hús Verslunarinnar, Kringlan 7, 103 Reykjavík
Hrafnhildur Bridde löggiltur fasteignasali
GLÆSILEG 3JA HERBERGJA NEÐRI SÉRHÆÐ Í GRAFARVOGI -
STARENGI 24 - OPIÐ HÚS Í DAG MILLI KL. 15 OG 16
• Stærð íbúðar er 86 fm.
• Jarðhæð – sérinngangur
– sérgarður.
• Húsið er með viðhaldsfrírri
múrklæðningu.
• Gott skipulag, enginn stigi.
• Sérþvottahús í íbúð.
• Fallegar innréttingar
– parket á gólfum.
• Stutt í alla þjónustu
og skóla.
Teitur Lárusson, sölufulltrúi, sími 894 8090.