Morgunblaðið - 20.03.2005, Síða 38
38 SUNNUDAGUR 20. MARS 2005 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Ármúla 15 • sími 515 0500 - fax 515 0509
www.fasteignakaup.is • fasteignakaup@fasteignakaup.is
Höfum fengið í einkasölu þetta frábæra rúmlega eitthundrað ára 146 fm báru-
járnshús á þremur hæðum með sérbílastæði. Húsið er hálf friðað. Lóðin er 216 fm.
Kjallari er 50 fm: Hugguleg 2ja herb. íbúð í kjallara. Hæðin er 68 fm: Forstofa með
parketi. Stór og mikið björt stofa með parketi.
Eldhús með eldri innréttingu og flísum á gólfi.
Útgengi á trépall. Baðherbergi með baðkari.
Ris er 28 fm.: Hol og tvö góð herbergi.
Þetta hús býður upp á mikla möguleika
til endurinnréttingar og stand-setningar
að utan með styrk frá Húsfriðunarnefnd.
Grjótagata - einbýlishús
Þorbjörn
Pálsson,
símar 515 0505,
898 1233.
Sölufulltrúar Fasteignakaupa
Sigríður
Sigmundsdóttir,
símar 515 0506,
848 6071.Erna Valsdóttir, lögg. fast.-, skipa- og fyrirtækjasali.
HELLUBRAUT - HF. - EINBÝLI
Nýkomið í einkasölu mjög gott
einbýli á tveimur hæðum ásamt
innbyggðum bílskúr, samtals um
180 fermetrar, vel staðsett á
einum fallegasta útsýnisstað í
miðbæ Hafnarfjarðar. Eignin
skiptist í forstofu, hol, stofu,
borðstofu, eldhús, búr, geymslu-
loft, gang, 3 herbergi, hjónaher-
bergi og baðherbergi. Á neðri hæð er inngangur, þvottahús, baðherbergi,
geymsla og bílskúr. Stórar suður- og vestursvalir. Einstök staðsetning.
Upplýsingar um eignina eru inni á mbl.is
og hjá sölumönnum Hraunhamars.
STAKKHAMRAR - RVÍK - GLÆSIEIGN
Í einkasölu hjá Hraunhamri fasteignasölu glæsilegt einbýli á einni hæð
ásamt tvöföldum bílskúr, samtals um 205 fermetrar, vel staðsett á frábær-
um stað í Hamrahverfi í Grafarvogi. Eignin skiptist í forstofu, gestasnyrt-
ingu, sjónvarpshol, stofu, borðstofu, sólstofu, eldhús, þvottahús, gang, þrjú
góð barnaherbergi, hjónaherbergi, baðherbergi, góðan bílskúr og geymslu-
loft. Húsið er innréttað á mjög smekklegan hátt með fallegum innréttingum
og vönduðum gólfefnum. Glæsilegur garður með sólpalli, heitum potti og
fallegum gróðri. Útsýni. Eign í algjörum sérflokki. Upplýsingar á Hraun-
hamri.is og mbl.is og hjá sölumönnum.
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
Dæmi úr kaupendaskrá:
Skrifstofu- og lagerpláss í austurborginni óskast
100-200 fm skrifstofu- og lagerpláss (með sýningaraðstöðu)
óskast. Æskileg staðsetning: Höfði eða Flatir. Fleiri staðir koma til
greina. Allar nánari uppl. veitir Sverrir.
Íbúð í Kópavogi óskast
3ja-4ra herb. íbúð óskast í Kópavogi. Æskileg stærð 80-120 fm.
Smára-, Linda- og Hvammahverfi koma einkum til greina. Öruggur
kaupandi. Uppl. veitir Sverrir.
Raðhús eða einbýli í Hæðum í Garðabæ óskast - Staðgreiðsla
Traustur kaupandi óskar eftir 200-250 fm eign á framangreindu
svæði. Góður afhendingarfrestur. Nánari uppl. veitir Sverrir.
Einbýlishús á Seltjarnarnesi óskast - Staðgreiðsla
Traustur kaupandi hefur beðið okkur að útvega 250-350 fm einbýl-
ishús á Seltjarnarnesi. Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir.
Raðhús á Seltjarnarnesi (gjarnan í Kolbeinsstaðamýri) óskast
Traustur kaupandi óskar eftir 180-280 fm húsi á framangreindum
stað. Nánari uppl. veita Magnea og Sverrir.
Íbúð í vesturborginni óskast
Traustur kaupandi óskar eftir 4ra-5 herb. íbúð í vesturborginni. Nán-
ari uppl. veitir Sverrir.
Sérhæð við miðborgina óskast
Fjársterkur kaupandi óskar eftir 150-200 fm hæð sem næst mið-
borginni. Staðgreiðsla. Allar nánari upplýsingar veitir Sverrir.
Sérhæð við Hvassaleiti, Stóragerði eða Háaleitishverfi óskast
Traustur kaupandi óskar eftir sérhæð á ofangeindum svæðum.
Góðar greiðslur í boði. Nánari upplýsingar veita Sverrir og Kjartan.
Hæð í Hlíðunum eða Kleppsholti óskast
Traustur kaupandi óskar eftir 120-140 fm hæð í Hlíðunum. Sverrir
veitir nánari uppl.
„Penthouse“ í miðborginni óskast - Staðgreiðsla
Óskum eftir 200-250 fm „penthouse“-íbúð eða (efstu) sérhæð í mið-
borginni eða í nágrenni hennar. Rétt eign má kosta 40-75 millj.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir.
Íbúð við Kirkjusand óskast
Traustur kaupandi óskar eftir 110-140 fm íbúð við Kirkjusand.
Nánari uppl. veitir Sverrir.
Íbúð við Hæðargarð eða Sólheima óskast
Rýming eftir 1 ár
Traustur kaupandi óskar eftir 3ja-4ra herb. íbúð
við Hæðargarð eða í háhýsi við Sólheima. Stað-
greiðsla í boði. Eignin þarf ekki að losna fyrr en
eftir 1 ár. Nánari uppl. veitir Sverrir.
Hæð í Laugarnesi, Vogum eða Teigum óskast
Óskum eftir 120-140 fm hæð á framangreindu
svæði. Nánari uppl. veitir Sverrir.
Sverrir Kristinsson,
löggiltur fasteignasali.
Vegna mikillar sölu undanfarið vantar okkur
flestar stærðir raðhúsa og einbýlishúsa víðs vegar
á höfuðborgarsvæðinu - Einnig vantar flestar
stærðir og gerðir íbúða - Traustir kaupendur
KAFLASKIL urðu í fjármálum
bæjarsjóðs Hafnarfjarðar árið
1962. Skuldastaðan var þá mjög
slæm og skattar háir.
Nýkjörin bæjarstjórn
hóf strax viðreisn-
arstarf og lagði
grunninn að öflugri
fjármálastjórn sem
stóð til ársins 1986.
Þá var bæjarsjóður
orðinn nær skuldlaus.
Lánin voru innan við
hálfan milljarð króna
á verðlagi í desember
2004 miðað við bygg-
ingavísitölu.
Breytt um
stefnu 1986
Ný bæjarstjórnarforysta breytti
um stefnu 1986 og lagði áherslu á
aukin umsvif á ýmsum sviðum.
Eyðslan jókst fram úr tekjum og
skuldir mynduðust í vaxandi mæli
ár hvert nema árið 1996. Í árslok
2004 má ætla að skuldir verði ekki
undir 8 milljörðum króna. Þær eru
að miklu leyti erlend lán. Þess var
ekki gætt að verkefni sem ráðist
var í skiluðu fjármunum til að
greiða lánin þeirra vegna. Þau
urðu að greiðast af skatttekjum.
Vextir 6 milljarðar
Ætla má að vextir af föstum lán-
um í ársreikningum bæjarsjóðs ár-
in 1986 til 2004 nálgist 5 milljarða
króna uppfærðir með bygginga-
vísitölu til desember 2004.
Þar sem yfirdráttarvextir, víx-
ilvextir og dráttarvextir verða
jafnan miklir við tak-
mörkuð fjárráð má
gera ráð fyrir að
vaxtafjárhæðin sem
hefði mátt spara sé
ekki undir 6 millj-
örðum króna. Það
jafngildir því að þrír
fjórðu lánanna séu
vegna vaxtagreiðslna.
Röng
fjármálastjórn
Þetta sýnir að í dag
hefði bærinn getað átt
nánast sömu fjárfest-
ingar og verið skuldlítill ef hann
hefði látið hraða framkvæmda
fylgja innkomnum tekjum. Lán-
tökur sem skatttekjur fólks eiga
að standa undir ættu að vera
óheimilar. Slík ráðstöfun á tekjum
fram í tímann raskar eðlilegri og
nauðsynlegri festu í fjármálum.
Bæjarstjórn hvers kjörtímabils á
að hafa full umráð yfir tekjum
þess. Nú skuldar Hafnarfjarð-
arbær meira en árstekjur.
Hvað á að gera?
Nauðsynlegt er að gera úttekt á
rekstri bæjarins. Er hægt að losna
við útgjöld án þess að skerða
nauðsynlega þjónustu? Að spara
og skera niður skilar oft sorglega
litlum árangri, þó má aldrei hvika
frá góðu aðhaldi.
Sala þjónustueigna leysir ekki
fjárhagsvanda til frambúðar nema
síður sé.
Skuldbreyting
Ég tel að nú geti verið hag-
kvæmt að taka innlent lán t.d. til
40 ára. Krónan er sterk og hætt er
við að hún haldi ekki styrkleika
sínum til langframa.
Af jafngreiðsluláni að upphæð
10 milljarða króna með núverandi
fasteignalánavöxtum yrði árleg
greiðsla vaxta og afborgana um
500 milljónir króna auk verðbóta.
Skynsamlegt er að lán séu í sama
gjaldmiðli og tekjuöflunin til að
forðast gengisáhættu.
Gott er að taka aðeins stærra
lán til að endurskipuleggja
greiðslustöðuna. Síðan má ekki
taka lán undir neinum kring-
umstæðum nema greiða þau á
sama kjörtímabili. Slík fjár-
málastjórn ætti að tryggja að
stjórn hvers kjörtímabils ráði yfir
sínum tekjum og ekkert umfram
það.
Bæjarstjórar
Sagan hefur kennt okkur að á
tímabilinu 1962 til 1986 blómstr-
uðu fjármálin og bærinn undir
sterkri stjórn þriggja bæjarstjóra
sem allir voru embættismenn. En
á tímabilinu 1986 til 2004 hafa ver-
ið 5 bæjarstjórar, allir jafnframt
bæjarfulltrúar og enginn þeirra
hefur getað stöðvað skuldasöfn-
unina og náð tökum á fjár-
málastjórninni. Það virðist inn-
byggt í slíkt stjórnkerfi.
Samhent
fjármálastjórn
Bæjarstjórn þarf að byggja upp
öfluga fjármálastjórn. Um það
hlýtur að vera samstaða í bæj-
arstjórn. Nauðsynlegt er að leita
ráða góðra ráðgjafa í þeim efnum.
Sterk
fjármálastjórn
Til þess að byggja upp sterka
fjármálastjórn þarf að hafa sterk-
an bakhjarl á meðal bæjarbúa. Þá
dugir ekki naumur meirihluti bæj-
arfulltrúa sem ef til vill er með
minnihluta kjósenda á bak við sig.
Slíkri valdstjórn hlýtur að mistak-
ast. Besta tryggingin fyrir farsæld
í stjórn bæjarmála er að ná sem
víðtækastri samstöðu. Valdbeit-
ingin er æði oft deila um keisarans
skegg. Bærinn verður að treysta á
sjálfan sig í þessu efni.
Ég vona að eitthvað gott sé
hægt að hafa af þessum hugleið-
ingum. Þær eru ekki settar fram
sem ádeila á flokka eða ein-
staklinga heldur byggjast þær á
löngum lífsskóla og væntumþykju
á bænum okkar og bæjarbúum.
Skuldir þjaka Hafnarfjörð
Páll V. Daníelsson fjallar um
skuldsetningu Hafnarfjarðar ’Nauðsynlegt er aðgera úttekt á rekstri
bæjarins. Er hægt að
losna við útgjöld án þess
að skerða nauðsynlega
þjónustu?‘
Páll V. Daníelsson
Höfundur er viðskiptafræðingur.