Morgunblaðið - 20.03.2005, Síða 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20. MARS 2005 45
FRÉTTIR
Frá innreið meistarans íJerúsalem er sagt í öll-um guðspjöllunum fjór-um – nánar tiltekið í 21.kafla Matteusarguð-
spjalls, 11. kafla Markúsarguð-
spjalls, 19. kafla Lúkasarguð-
spjalls og 12. kafla Jóhann-
esarguðspjalls. Þær frásagnir
eru dregnar saman í bókinni
„Jesús, maðurinn sem breytti
sögunni“ (1990), í þýðingu Karls
Sigurbjörnssonar biskups, og á
þessa leið:
Jesús vissi að nú var komið að því.
Hann fengi vart meiri tíma til að
kenna og lækna. Hann hélt til Jerúsal-
em til að halda páskahátíðina og mæta
því sem verða vildi...
Jesús hafði undirbúið vandlega komu
sína til borgarinnar. Hann sendi tvo
lærisveina sína á undan til að sækja
asna, sem hann settist svo á bak og
reið inn í borgina. Þegar fólkið, sem
var á leið til borgarinnar, sá að Jesús
var þar á ferð, fór það að syngja: „Lof
sé syni Davíðs! Guð blessi hann sem
kemur í nafni Drottins! Hósíanna í
upphæðum!“ (Hósíanna þýðir: Drott-
inn hjálpaðu.)
Fólkið lagði flíkur sínar á veginn fyrir
framan asnann og veifaði pálmagrein-
um eins og gert var þegar konungar
voru á ferð.
Sumir þeirra sem horfðu á skildu það
sem Jesús var að gera. Með því að
velja asna til reiðar inn í borgina var
Jesús að láta rætast spádóminn
gamla, sem Sakaría talaði um í Gamla
testamentinu:
„Hrópið af gleði, íbúar Jerúsalem!
Sko, konungurinn kemur til ykkar!
Hann er sigurvegari, en þó hógvær og
ríðandi á asna… Konungur þinn mun
koma á friði meðal þjóðanna, og mun
ríkja um allan heim.“ (Sakaría 9:9–10).
Jesús taldi sig greinilega vera kon-
unginn, Massías, sem Sakaría boðaði,
auðmjúkan Messías, sem koma mundi
með friði…
Í vikunni fyrir páska komu æðstu
prestarnir og farísearnir saman. Þeir
voru sammála um að Jesús yrði að
deyja. Það yrði að gerast í kyrrþey, til
þess að valda ekki uppreisn borg-
arbúa. En þá vantaði einhvern úr hópi
vina Jesú til að leiða þá til hans.
Heppnin var með þeim. Júdas Ískaríot
var tilbúinn að aðstoða. Á leynifundi
fékk Júdas greidda 30 silfurpeninga
og lofaði að finna stað þar sem hægt
væri að handtaka Jesú án þess að
mikið bæri á.
En um þetta hefur líka verið
ort. Það gerði t.a.m. eitt helsta
sálmaskáld Íslendinga, fyrr og
síðar, Valdimar Briem, í tveggja
binda ritverki sem nefndist
„Biblíuljóð“ og kom út árið 1897.
En hann var þá prestur að
Stóra-Núpi. Ég ætla að leyfa
þessum rúmlega hundrað ára
gamla texta að segja okkur hvað
gerðist þarna á pálmasunnudegi
fyrir um 2000 árum, með upp-
haflegri stafsetningu. Og þar er
tekið á málinu á dálítið annan
hátt. En ljóðið, sem ber yfir-
skriftina „Innreið Jesú í Jerúsal-
em,“ er svona:
Til Jórsalaborgar þá Jesús er reið,
þá jörðin af fögnuði dundi.
Ó hvern mundi gruna, sú ljómandi leið
að lykta hjá krossinum mundi.
Þá hjuggu menn limið af laufgaðri
stöng,
á leiðina kvistum þeir stráðu;
þar breiddu þeir klæði sín byrjandi
söng,
um blessun og dýrð hans þeir kváðu.
En opt skiptast veður á örskammri
stund
og ótt fyrir sólina dregur.
Og eptir þann dýrlega fagnaðarfund
hve fljótt kom hans hörmunga-vegur.
Hið limaða trje varð þá lausnarans
kross,
þeir ljetu’ á hann háðungarklæði.
Í blessunar stað: „Komi’ hans blóð
yfir oss,“
þeir blindaðir kölluðu í æði.
En krossinn hans breytast mun lífsins
í lund,
á leið vora kvistum hann stráir;
og brúðkaupsklæðin á blessunarstund
oss búa þá englar guðs háir.
Og allt þetta verður svo eg megi ná
til eilífra föður-heimkynna, –
til borgar guðs lifandi hæðum í há,
þar hann mun jeg blessaðan finna.
Þá sje jeg það allt, er guðs almætti
skóp,
í eilífum vor-morgunroða;
og aptur þá fæ jeg minn ástvinahóp
og englanna fylkingar skoða.
Og ilmandi breiða þar eilífðarblóm
guðs englar á mannanna vegu;
og fagnaðar inndælan heyri jeg hljóm
guðs hörpunnar ununarlegu.
Þar hljómar hið dýrðlega hallelúja,
guðs heilagra lofsöngur fagur;
en himnarnir bergmála: hósíanna.
Ó hvílíkur ununardagur!
Megi andi þeirrar viku kirkju-
ársins sem nú er byrjuð ríkja í
hjörtum okkar.
Hósíanna
Með pálmasunnudegi rennur upp helgasta
vika kristindómsins, sem landsmenn flestir nú
á tímum kalla dymbilviku. Sigurður Ægisson
gluggar í bækur og leyfir þeim að endursegja
hina stórmerku atburði fortíðarinnar, sem við
enn minnumst.
sigurdur.aegisson@kirkjan.is
TTT
auglýsingastofa/Ljósm
.S
S
J
Mark
skrifstofustólar
Ótrúlegt verð!
Mark er ný og glæsileg lína skrifstofustóla frá
Á. Guðmundssyni ehf. fyrir vinnustaði og heimili.
Stólarnir eru hannaðir af Pétri B. Lútherssyni.
Hæðarstilling
á baki
Pumpa til að
stilla stuðning
við mjóhrygg
Hæðarstillanlegir
armar
Hallastilling
á baki
Sleði til að færa setu
fram og aftur
Mjúk hjól
Hæðarstilling
á setu og baki
Hægt er að stilla stífleika
setu og baks eftir þyngd
notanda
Veltustilling
á setu og baki
TILBO
Ð
Bæjarlind 8-10 • Sími 510 7300 • www.ag.isHeildarlausnir í skrifstofuhúsgögnum
Mark 30 fullt verð kr. 57.855
Tilboðsverð:Kr.40.900
Mark 10 fullt verð kr. 19.900
Tilboðsverð:Kr.13.930
Mark 20 fullt verð kr. 38.010
Tilboðsverð:Kr.26.976
Afmælisþakkir
Til allra, sem glöddu mig á 90 ára afmælinu
mínu:
Kæru vinir, sem minntust mín og glöddu á
ómælanlegan hátt. Þakka skeyti, gjafir símtöl og
afmælissöng í gegnum síma. Þakka þeim, sem
gátu komið og verið með mér og fjölskyldu
minni og gleðina sem þið komuð með. Þakka
börnum mínum, barnabörnum, tengdabörnum
og öllum þeim, sem gerðu mér þetta kleift.
Ég vona að bláberin verði ykkur hvatning í
sumar, þá er tilganginum náð.
Kveðja,
Gróa Helga Kristjánsdóttir,
Hólmi.
SAMÞYKKT var ályktun á aðal-
fundi Krabbameinsfélags Reykja-
víkur í vikunni þar sem lýst er ein-
dregnum stuðningi við lagafrumvarp
sem nú er til meðferðar á Alþingi um
að reykingar verði ekki leyfðar á
veitingastöðum hérlendis.
Ályktunin er svohljóðandi: „Aðal-
fundur Krabbameinsfélags Reykja-
víkur, haldinn 16. mars 2005, lýsir
eindregnum stuðningi við lagafrum-
varp sem miðar að því að reykingar
verði ekki leyfðar á veitingastöðum
hér á landi.
Mikilvægt er að Ísland dragist
ekki aftur úr í þróuninni á þessu sviði
og verði áfram í fararbroddi í bar-
áttu fyrir hreinu lofti og bættri
heilsu.“
Þá var samþykkt ályktun þar sem
skorað er á bæjarstjórnir Kópavogs,
Seltjarnarness og Mosfellsbæjar að
hætta að bjóða ljósaböð í ljósabekkj-
um í íþróttamannvirkjum á sínum
vegum, líkt og ákveðið hefur verið að
gera í Reykjavík og víðar.
„Tíðni húðkrabbameins hér á
landi hefur tvöfaldast á síðustu tíu
árum og er það meðal annars rakið
til aukinnar ljósabekkjanotkunar.
Því er mikilvægt að opinberir aðilar
grípi til ráðstafana sem í þeirra valdi
standa til að sýna gott fordæmi og
bregðast við ábendingum frá húð-
læknum og öðrum,“ segir m.a. í
þeirri ályktun.
Styðja bann við reyking-
um á veitingastöðum
STJÓRN Skagafjarðarveitna ehf.
hefur sent frá sér ályktun þar sem
lýst er yfir andstöðu við hugmyndir
stjórnvalda um sameiningu Lands-
virkjunar, Orkuveitu Vestfjarða og
RARIK.
Í ályktuninni segir m.a. að meðal
markmiða nýrra orkulaga sé að
koma á samkeppni í raforkumálum
en að fyrirhuguð sameining stefni í
þveröfuga átt. Stjórn Skagafjarðar-
veitna ehf. leggur til við iðnaðarráð-
herra að sveitarstjórnum og orku-
fyrirtækjum verði gefin tækifæri til
að yfirtaka rekstur Orkuveitu Vest-
fjarða og RARIK og efla þannig
starfsemi þeirra á landsbyggðinni.
Á móti
sameiningu
orkuveitna