Morgunblaðið - 13.04.2005, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 98 . TBL. 93. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Vinna saman
og veiða saman
Fjórir tannlæknar og tannfræð-
ingur í sömu fjölskyldu | 20
Íþróttir | Eiður aftur í undanúrslit Eyjastúlkur mörðu Stjörnuna
Úr verinu | Hvíla mennina en ekki stálið Lágur sjávarhiti ógnar
humarvertíð Ætla að rækta 800 tonn af kræklingi á ári
Ferskleiki
og gæði
íslenskrar
matvöru
gerir hana
að úrvals kosti
fyrir heimilin
í landinu.
Vestmannaeyjum | Mikil fiskigengd er í kant-
inum suðaustur af Eyjum og hefur hún ekki
verið meiri í 30 til 40 ár að mati Bergvins
Oddssonar, skip-
stjóra á netabátnum
Glófaxa VE. Hann
var að taka upp netin
í gær enda búinn
með kvótann.
„Ég er búinn að
róa frá Vest-
mannaeyjum síðan
fyrir 1970 og ég hef
aldrei séð eins mik-
inn fisk í kantinum
og núna,“ sagði
Bergvin. „Ég var
með þrjár trossur í gær og var lítið eftir af
netunum nema teinarnir en samt komu þær
með tíu tonn af fiski. Ef við hefðum verið
með ný net hefðum við ekki getað dregið þau
í gegnum rúlluna og þurft að snörla þetta inn
á bómunni.
Fiskurinn virðist vera að aukast því nú er
ekki miður apríl og vertíð á að standa sem
hæst. Þetta segir manni að þetta er alveg
óhemjuganga sem er á ferðinni,“ segir hann.
Bergvin sagði að það hefði einhvern tím-
ann þótt saga til næsta bæjar að Glófaxi væri
eini netabáturinn austan við Eyjar. „Og núna
er ég búinn með kvótann nema hvað ég verð
að skilja eftir nokkur tonn til að eiga með
humrinum sem er næst á dagkránni hjá okk-
ur. Það er svakalegt að þurfa að hætta því
síðustu 15 til 17 daga hefur aflinn verið allt
upp í 30 tonn á dag.
Það er sama að segja um aðra báta frá Eyj-
um, þeir eru komnir í vandræði vegna kvót-
ans og þetta er mín stysta vetrarvertíð. Þetta
er stór og góður þorskur, fimm til sjö kíló, og
ef það hefur einhvern tímann verið ástæða til
að bæta við kvótann er það núna,“ segir
hann.
„Ég hélt að þetta fiskveiðistjórnunarkerfi
hefði verið sett á til að vernda fiskinn en
heimildirnar virðast bara mega fara niður á
við. Það er aldrei talað við menn sem stunda
þetta og þeir vita þetta alltaf betur sitjandi á
bak við skrifborð í Reykjavík. Í venjulegu ári
hefði kvótinn dugað langt fram í maí og mað-
ur er alltaf með sama fjölda af netum en ég
hef aldrei séð annað eins af fiski og núna og
það er hundfúlt að neyðast til að hætta,“
sagði Bergvin að lokum.
„Aldrei séð
eins mik-
inn fisk í
kantinum“
Bergvin Oddsson
Eftir Sigursvein Þórðarson
HIN 38 ára Helle Thorning-
Schmidt var í gær kjörin nýr for-
maður Jafnaðarmannaflokksins í
Danmörku og er hún fyrsta konan
sem gegnir embættinu í 134 ára
sögu flokksins. Hlaut hún 53% at-
kvæða en Frank Jensen, sem einn-
ig bauð sig fram, fékk 47%. Thorn-
ing-Schmidt hét því eftir sigurinn
að sameina flokksmenn og berjast
af alefli gegn miðju-hægristjórn
Anders Fogh Rasmussen og koma
jafnaðarmönnum aftur til valda.
Thorning-Schmidt er frá Kaup-
mannahöfn, hún er gift Stephen
Kinnock, syni breska stjórnmála-
mannsins Neils Kinnocks og eiga
þau tvær dætur. Hún var þing-
maður á Evrópuþinginu 1999–
2004 en var kjörin á danska þingið
í þingkosningunum í febrúar síð-
astliðnum.
Um 88,4% af alls 52 þúsund fé-
lögum flokksins tóku þátt í at-
kvæðagreiðslunni sem að hluta fór
fram á Netinu. Thorning-Schmidt
sagði kjörið verða upphaf nýrra
tíma fyrir jafnaðarmenn, vörn yrði
snúið í sókn. „Frá deginum í dag
standa jafnaðarmenn saman og
allir eru velkomnir. Þeir sem ekki
vilja vera með verða að sitja
heima,“ sagði Thorning-Schmidt á
fundi er sigurinn var í höfn og var
ákaft fagnað. Hún sagðist vera
þakklát fyrir traustið og hét að
leggja sig alla fram.
Thorning-Schmidt var lítt þekkt
áður en hún bauð sig fram til emb-
ættisins. Stuðningur Poul Nyrup
Rasmussen, fyrrverandi forsætis-
ráðherra og leiðtoga flokksins, við
Thorning-Schmidt er talinn hafa
haft veruleg áhrif á niðurstöðuna.
Nýi leiðtoginn er, eins og Nyrup,
talinn vera nær miðju í pólitíska
litrófinu en Jensen sem er 46 ára
og fyrrverandi dómsmálaráð-
herra. Hann hefur lagt áherslu á
hefðbundin vinstrigildi, að sögn
blaðsins Berlingske Tidende.
Jensen sagðist fyrir kjörið
myndu segja af sér þingmennsku
ef hann tapaði en hann kemur úr
armi fráfarandi formanns, Mogens
Lykketoft. Hann sagði af sér eftir
að jafnaðarmenn biðu mikinn ósig-
ur í þingkosningunum í febrúar sl.
Thorning-Schmidt sagðist í gær
stefna að því að bæta hlut jafnað-
armanna í næstu kosningum en
hún myndi ekki segja af sér þótt
flokkurinn myndaði ekki næstu
stjórn.
Thorning-Schmidt
sigraði naumlega
Fyrst kvenna
til að verða leið-
togi danskra
jafnaðarmanna
Reuters
Helle Thorning-Schmidt
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
STUÐNINGSMENN ítalska knattspyrnuliðs-
ins Inter frá Mílanó köstuðu blysum og vatns-
flöskum inn á San Síró leikvanginn í gær og
sáu til þess að ekki var hægt að ljúka Mílanó-
slagnum gegn AC Milan þar sem markvörður
AC Milan fékk flugeld í bakið. / Íþróttir
Reuters
Ólæti í grannaslagnum í Mílanó
YFIRDEILD Mannréttindadóm-
stóls Evrópu hefur hafnað beiðni ís-
lenska ríkisins um að taka fyrir bóta-
þáttinn í dómi sínum í máli Kjartans
Ásmundssonar, fyrrverandi sjó-
manns, gegn ríkinu.
Björg Thorarensen, prófessor við
Háskóla Íslands, umboðsmaður ís-
lenska ríkisins hjá Mannréttindadóm-
stólnum, segir að dómurinn sé nú orð-
inn endanlegur og gerir hún ráð fyrir
að Kjartani verði greiddar bætur
samkvæmt dóminum.
Kjartan er afar ánægður með
málalokin. „Þetta er fullnaðarsigur,
ætli það sé ekki rétt að orða það þann-
ig,“ sagði hann í gær. Lilja Jónasdótt-
ir, lögmaður Kjartans, segir að vissu-
lega geti dómurinn í máli Kjartans
verið fordæmisgefandi í málum
þeirra 53 sem eru í sömu stöðu gagn-
vart Lífeyrissjóði sjómanna.
Að sögn Bjargar fylgir ekki rök-
stuðningur með niðurstöðu yfirdeild-
ar Mannréttindadómstólsins. „Nefnd
fimm dómara tekur þetta fyrir og
metur hvort málið er þannig vaxið að
það komist í gegnum þessa síu sem er
nokkuð ströng. Það er lítið brot mála
sem fer þarna í gegn en það þótti rétt
að láta reyna á það,“ sagði hún.
Fær greiddar bætur
Endanlegur dómur/9
Yfirdeild Mannréttindadómstólsins hafnaði áfrýjun ríkisins
Madrid. AP. | Spænska stjórnin íhug-
ar að leysa húsnæðisvanda ungs
fólks með því að láta byggja sam-
stæður af litlum, 25–30 fermetra
íbúðareiningum sem hægt væri að
stafla hverri ofan á aðra. Íbúarnir
myndu deila með sér þvottavélum,
geymslum og öðrum þægindum.
Líkön af einingasamstæðunum
voru kynnt á vörusýningu í Madrid
á mánudag.
Óvíða í Evrópu býr ungt fólk
jafnlengi í foreldrahúsum og á
Spáni og hefur stjórn sósíalista
heitið að byggja 200.000 íbúðir til
að leysa vandann. Opinber könnun í
desember benti til þess að 38%
Spánverja á aldrinum 25–34 ára
byggju enn hjá foreldrunum, hjá
18–25 ára fólki var hlutfallið 93%.
Talsmaður stjórnarandstæðinga
í Þjóðarfylkingunni í málum ungs
fólks, Ana Belen Vazquez, for-
dæmdi hugmyndina. „Enda þótt við
séum ung viljum við húsnæði þar
sem við getum lifað með sæmd,“
sagði hún.
Ráðherra húsnæðismála, Maria
Antonia Trujillo, sagði að húsnæði
af áðurnefndu tagi væri algengt í
Norður-Evrópu og ekki væri um að
ræða „skref aftur á bak“ fyrir
Spánverja.
Smáíbúðir
fyrir unga
fólkið
Úr verinu og Íþróttir í dag