Morgunblaðið - 13.04.2005, Blaðsíða 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Í dag er
mi›vikudagur
JÓN Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs,
sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöld að
Barclays, Robert Tchenguiz og Baugur Group
hefðu í sameiningu gert til-
boð í Somerfield verslunar-
keðjuna.
Hann sagði að þessir að-
ilar hefðu komist að þeirri
niðurstöðu að rétt væri að
hafa með sér samstarf um
hvernig standa bæri að yf-
irtöku á Somerfield. Sam-
kvæmt heimildum Morgun-
blaðsins nálgast tilboð
hinna þriggja tilboðsgjafa
210 pens fyrir hvern hlut.
Aðspurður sagði Jón Ásgeir næstu skrefin
verða áreiðanleikakönnun á bókhaldi Somer-
field. „Slík vinna mun taka einhverjar vikur
þannig að ekki liggur ljóst fyrir hver niður-
staðan verður.“
Jón Ásgeir var að lokum spurður hvaða
væntingar hann hefði til framhaldsins eftir að
þetta nýja tilboð þriggja tilboðsgjafa hefur
komið fram. „Væntingarnar eru einfaldar, við
ætlum okkur bara að klára þetta.“
„Ætlum að
klára málið“
Baugur/13
Jón Ásgeir
Jóhannesson
Jón Ásgeir Jóhannesson
AXELSBÚÐ á Akranesi, eða verslun Axels
Sveinbjörnssonar ehf., hefur verið fastur
punktur í tilveru Skagamanna í 63 ár. Þar fæst
flest sem þarf til viðhalds báta og húsa, skjól-
fatnaður, veiðivörur, sælgæti og ótalmargt
fleira. Nú hefur verið ákveðið að leggja versl-
unina niður í sumar. Axel Gústafsson kaup-
maður tók við af afa sínum og stofnanda versl-
unarinnar og hefur staðið vaktina í 30 ár.
lagsmiðstöð og þjónustufyrirtæki. En hvernig
líst þeim á að Axelsbúð verður lokað?
„Það er slæmt,“ sagði Pétur. „Hluti af lífi
manns er að hverfa.“
Guðjón tók í sama streng og taldi mjög
slæmt að Axel skyldi þurfa að loka búðinni.
Þeir voru sammála um að það væri ekki sama
stemning í stóru búðunum og þessari þar sem
fortíðin mettar andrúmsloftið. /11
Meðal viðskiptavina í Axelsbúð í gær voru
þeir Pétur Lárusson, sjómaður á grá-
sleppubátnum Keili AK 4, og Guðjón Pét-
ursson sem gerir út trilluna Pétur AK 92 og
stundar handfæraveiðar.
Þeir tylltu sér á afgreiðsluborðið með
ískalda kók úr snjáðum goskælinum og spjöll-
uðu um aflabrögð og gæftir, eins og tilheyrir í
þessari verslun sem er sambland af fé-
Morgunblaðið/RAX
„Hluti af lífi manns er að hverfa“
BJÖRGÓLFUR Thor Björgólfsson hefur í
samstarfi við pólskt símafyrirtæki lagt fram
tilboð í fjórða GSM-símaleyfið í Póllandi og
einnig í svonefnt UMTS-leyfi, sem er þriðju
kynslóðar flutningskerfi.
Í gær voru opnuð tilboð í þessi símaleyfi í
Póllandi. Meðal þeirra sem sendu inn gilt tilboð
var fyrirtækið Netia Mobile. Það fyrirtæki er
undir forystu Björgólfs Thors Björgólfssonar í
gegnum félag í hans eigu, Novator One L.P., og
pólska símafyrirtækisins Netia S.A., sem er
stærsta fastlínusímafyrirtæki í Póllandi. Sam-
kvæmt frétt á vefmiðli Bloomberg fréttastof-
unnar munu pólsk fjarskiptayfirvöld tilkynna
3,96 milljón pólsk sloty á ári, sem svarar til
tæplega 80 milljóna íslenskra króna. Lág-
marksgjald fyrir þriðju kynslóðartíðni í útboð-
inu er 1,05 milljón sloty, um 20 milljónir króna.
Þrjú fyrirtæki eru á farsímamarkaði í Pól-
landi, en þau eru Era, Plus og Idea. Hvert
þeirra er með um þriðjungs markaðshlutdeild.
Í Póllandi búa um 38 milljónir manna og nær
farsímamarkaðurinn til um 51% þjóðarinnar.
Vöxturinn í þessum geira á milli áranna 2002
og 2003 var um 25%.
Björgólfur Thor á hlut í símafyrirtækjum
bæði í Búlgaríu og Tékklandi. Hann á um 25%
hlut í búlgarska símafyrirtækinu Bulgarian
Telecommunications Company (BTC) og ríf-
lega tvo þriðju hluta í tékkneska símafyrirtæk-
inu Ceske Radiomominikace (Cra).
hinn 9. maí nk. hvaða tilboði verður tekið. Tvö
önnur gild tilboð bárust í bæði GSM-símaleyfið
og í UMTS-leyfi, annars vegar frá pólska far-
símafyrirtækin Era og frá pólska fyrirtækinu
Polkomtel, móðurfélagi pólska farsímafyrir-
tækisins Plus. Þýska símafyrirtækið T-Mobile
er meðal hluthafa í Era en Vodafone á hlut í
Polkomtel.
Þrjú gild tilboð bárust
Þrjú gild tilboð bárust í UMTS-leyfi ein-
göngu, frá fyrirtækinu Hutchison, frá símafyr-
irtækinu Idea og frá Korean Group.
Útboðið í símaleyfin var auglýst í febr-
úarmánuði síðastliðnum. Í frétt Bloomberg
segir að pólsk fjarskiptayfirvöld hafi þá kynnt
að lágmarksgjald fyrir GSM-símatíðni yrði
Björgólfur Thor býður
í farsímaleyfi í Póllandi
Eftir Grétar Júníus Guðmundsson
gretar@mbl.is
SÝSLUMAÐURINN á Seyðisfirði
hefur ákært tvo lettneska starfs-
menn GT verktaka sem hafa unnið
við Kárahnjúka fyrir að starfa hér á
landi án tilskilinna atvinnuleyfa. Að
kröfu sýslumanns voru þeir úrskurð-
aðir í farbann til 29. apríl nk.
Málið verður þingfest á fimmtu-
daginn. Samkvæmt upplýsingum frá
embætti sýslumanns halda Lettarnir
og GT verktakar því fram að Lett-
arnir starfi hér á landi á grundvelli
þjónustusamnings og þurfi því ekki
atvinnuleyfi.
Rannsókn lögreglu sneri í upphafi
að fjórum starfsmönnum verktaka-
fyrirtækisins, einum frá Litháen og
þremur frá Lettlandi, en að sögn
Helga Jenssonar, fulltrúa sýslu-
mannsins á Seyðisfirði, fóru tveir
þeirra af landi brott eftir að rann-
sókn málsins hófst.
Mennirnir komu til landsins í byrj-
un febrúar og skömmu síðar fregn-
aðist af því að þeir hefðu gengið í
störf Íslendinga sem verktakafyrir-
tækið hafði skömmu áður sagt upp.
Vinnumálastofnun lét sýslumanninn
vita af málinu og í kjölfarið hófst lög-
reglurannsókn sem fólst m.a. í yfir-
heyrslum yfir fjórmenningunum,
forsvarsmönnum GT verktaka og
forsvarsmönnum starfsmannaleig-
unnar sem sendi mennina hingað.
Að sögn Helga voru rannsóknar-
gögnin send Vinnumálastofnun með
ósk um álit hennar á réttarstöðu
mannanna í byrjun mars og barst
niðurstaða hennar í lok síðustu viku.
Falla ekki undir samninga
Taldi stofnunin að störf mannanna
féllu ekki undir ákvæði um þjónustu-
samninga og þeir hefðu því ekki leyfi
til að vinna hér á landi. Eftir að þessi
niðurstaða lá fyrir hefði embættið
gefið út ákæru á hendur Lettunum
tveimur sem enn voru hér á landi. Á
mánudag fór lögreglan á starfsstöð
þeirra við Kárahnjúka, handtók þá
og færði þá fyrir dóm þar sem far-
bannskrafan var tekin fyrir.
Að sögn Helga lítur út fyrir að
mennirnir muni neita sök í málinu og
því verði tekist á um það fyrir dómi
hvort ákvæði um þjónustusamninga
eigi við um störf þeirra. Engin dóma-
fordæmi séu fyrir hendi í slíkum
málum og þetta verði fyrsta skipti
sem tekist verði á um mál af þessum
toga fyrir dómstólum.
Aðspurður sagði Helgi að lögregla
liti svo á að Lettarnir hefðu ekki leyfi
til að stunda atvinnu hér á landi með-
an mál þeirra er fyrir dómstólum.
Tveir lettneskir starfsmenn GT verktaka hafa verið úrskurðaðir í farbann
Ákærðir fyrir störf án atvinnuleyfis
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
KARLMAÐUR á fertugsaldri í
Hafnarfirði fékk 25 milljónir
króna í vinning á trompmiða í
útdrætti Happdrættis Háskóla
Íslands í gær. Maðurinn keypti
miðann í janúar sl. Númerið
sem var dregið út með hæsta
vinninginn var 16106. Tveir
miðaeigendur áttu miða með
því númeri. Hinn miðaeigand-
inn er rúmlega þrítugur Kópa-
vogsbúi sem átti einfaldan miða
og fær hann því fimm milljónir
króna í sinn hlut.
Fékk 25
milljónir á
trompmiða
ÍSLENSKRI dægurtónlist síðustu fimmtíu
ára verða gerð góð skil í væntanlegri röð
diska sem ber vinnuheitið Svona var það.
Hver diskur verður tileinkaður einu ári í tón-
listinni og verða á milli ellefu og fimmtán lög
á hverjum diski. Fyrstu fimmtán diskarnir
koma út í júní og verða þeir með lögum frá
árunum 1952–1966. Íslenskir tónar gefa út
og stefnt er á að hver diskur kosti undir þús-
und krónum./47
Umfangsmikil
endurútgáfa
♦♦♦
♦♦♦
LÖGREGLAN í Kópavogi stöðvaði á fjórða tug
ökumanna í gær fyrir hraðakstur. Sá sem hrað-
ast ók var á 140 km hraða á Reykjanesbrautinni
þar sem leyfður hámarkshraði er 70 km á klst.
Varðstjóri lögreglunnar segir ökumenn verða
að hugsa sinn gang nú þegar börn fara að sjást
meira í umferðinni með hækkandi sól.
Í Kópavogi urðu nokkrir árekstrar í gær
fram til kl. 16:30 án þess að slys á fólki hlytust
af.
Lögreglan segir einnig nokkuð um að öku-
menn stingi af eftir árekstur við kyrrstæða bíla.
Þeir sem verða vitni að slíku eru beðnir um að
skrifa hjá sér bílnúmer tjónvalda og láta lög-
regluna vita.
Mikið um hrað-
akstur í Kópavogi