Morgunblaðið - 13.04.2005, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 13.04.2005, Blaðsíða 46
46 MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ Miðasala opnar kl. 15.003 Sýnd kl. 8 B.i. 14 ára.  K&F X-FM ÓÖH DV WWW.BORGARBIO.IS  ÓÖH DV  ÓÖH DV Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 14 ára. Í fjölskyldu þar sem enginn skilur neinn mun hún smellpassa í hópinn Every family could use a little translation Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30. Sýnd kl. 8 og 10.45. kl. 5.30, 8 og 10.30. F R Á L E I K S T J Ó R A AS GOOD AS IT GETS Sýnd kl. 4 og 6. m. ísl tali Sýnd kl. 4 og 6. m. ensku tali  J.H.H. kvikmyndir.com  SV mblWill Smith er Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30.Sýnd kl. 10.20 S.K. DV  Frá leikstjóra American Pie & About a Boy kemur frábær ný gamanmynd. Hann fær nýjan yfirmann óreyndan strák sem dóttir hans fellur auk þess fyrir  B.B. Sjáðu Popptíví Frá leikstjóra American Pie & About a Boy kemur frábær ný gamanmynd. Hann fær nýjan yfirmann óreyndan strák sem dóttir hans fellur auk þess fyrir  B.B. Sjáðu Popptíví EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINSI I I Sýnd kl. 8 og 10.10.   Sýnd kl. 6 m. ísl. tali, Sýnd kl. 6 m. ensku tali Þ.Þ. FBl  S.V. MBL. SIDEWAYS  JENNIFER Aniston var á dög- unum viðstödd skírn Coco, dóttur Courtney Cox og Davids Arquette. Athöfnin fór fram í Birmingham í Alabama og var Aniston ein guð- mæðra Coco litlu. „Þetta var mikil gleðistund,“ sagði séra Doug Carpenter sem stjórnaði skírnarathöfninni. „Það voru engar myndir teknar meðan á athöfninni stóð en eftir að henni lauk vildu allir fá myndir af sér með stjörnunum,“ sagði hann og bætti við að Cox, Ar- quette og Aniston hefðu ekki virst óánægð með athyglina. Aniston var óörugg með Pitt Í það minnsta er þessi athygli já- kvæðari fyrir Aniston en sú sem hún hefur fengið vegna skilnaðar síns og Brads Pitts. Þau hafa fram að þessu ekki viljað ræða um sambandsslitin við fjölmiðla. Ýmsar tilgátur hafa verið settar fram um orsök skiln- aðarins. Aniston, sem sótti á dög- unum um lögskilnað frá Pitt, hefur hins vegar ákveðið að tjá sig um hin- ar raunverulegu ástæður sam- bandsslitanna. Þar játar hún að hún hafi fundið fyrir óöryggi í hjónabandinu. Friends-stjarnan fyrrverandi, sem er 36 ára gömul, segir að hjóna- bandið hafi vakið hjá sér ýmsar óþægilegar kenndir, svo sem ótta, vantraust, efa og óöryggi. „Brad er yndislegasta manneskja sem ég þekki og algjör dúlla. Hann dregur fram stólinn þinn og opnar dyrnar fyrir þig,“ segir Aniston og bætir við að Brad sé herramaður og hafi tekið henni eins og hún var. Aniston við- urkennir að hún hafi þó ávallt haft minnimáttarkennd gagnvart Pitt og segir að á tímabili hafi samband þeirra verið erfitt. Sá orðrómur hefur verið á kreiki að Aniston hafi fremur kosið að sinna ferli sínum en að stofna til fjöl- skyldu með Pitt. Hún kveðst hins vegar þrá að eignast barn. „Börn eru svo undursamleg að mig langar að eignast að minnsta kosti eitt sjálf.“ AP Hinir sönnu vinir Jennifer Aniston og Courtney Cox koma til skírn- arinnar, sem var á laugardag. Fólk | Sannir vinir Aniston guðmóðir dóttur Cox SUMAR kvikmyndir eru einfaldlega áhugaverðar vegna þess að þær taka á áhugaverðum viðfangsefnum. Þetta er tilfellið með kvikmyndina Kinsey, sem fjallar á vandaðan og lifandi hátt um ævi og feril há- skólaprófessorsins Alberts C. Kins- eys, sem var brautryðjandi á sviði kynfræða og kynfræðslu í Banda- ríkjunum á fyrri hluta 20. ald- arinnar. Kinsey hóf feril sinn sem dýra- fræðingur, en tók að beina athygli sinni að kynhegðun mannsins eftir að hann tók við kennslustöðu við In- diana-háskóla í Bloomington. Eftir að Kinsey hóf að kenna námskeið í kynfræðslu varð honum ljóst hversu lítil þekking lá fyrir um kynhegðun fólks, og tók að beina kröftum sínum að rannsóknum á sviðinu. Honum tókst að afla styrkja til að koma á fót rannsóknarmiðstöð í kynfræðum ár- ið 1942, og hleypti af stokkunum víð- tækri viðtalsrannsókn á kynhegðun Bandaríkjamanna sem tók til yfir átta þúsund einstaklinga. Fyrstu niðurstöður rannsóknarinnar komu út í ritinu Kynhegðun karlmannsins árið 1948, og varð útgáfa bókarinnar eins og sprengja í bandarísku þjóð- lífi. Bókin seldist eins og heitar lummur og olli hneykslan fyrir hisp- urslausa útlistun á fjölbreytilegri háttsemi mannskepnunnar í kyn- ferðismálum, en Kinsey sýndi m.a. fram á að hinn afmarkaði rammi samfélagslega viðsættanlegrar kyn- hegðunar á fimmta og sjötta ára- tugnum var langt frá því að ríma við niðurstöður rannsóknarinnar. Ann- að bindið var helgað kynhegðun kvenna, og olli það jafnvel enn meira fjaðrafoki en fyrsta bindið er það kom út árið 1953. Á meðan lítið var vitað um kynlíf fólks almennt, ríkti jafnvel meiri bannhelgi um kyn- hegðun kvenna, og var það í kjölfar þeirrar útgáfu að Kinsey fór veru- lega að finna fyrir þeirri andúð sem framsæknar rannsóknir hans vöktu. Hin sífellt óræðari skil sem ein- kenndu rannsóknir og einkalíf Kins- eys og samstarfsfólks hans urðu ekki til þess að draga úr mótlætinu. Í dag er litið á rannsóknarstarf Kinseys sem mikilvægt framlag til þekkingarsviðsins er lýtur að kyn- verund fólks sem ruddi m.a. braut- ina fyrir kynlífsbyltingu sjöunda áratugarins. Leikstjórinn Bill Condon fjallar á vandaðan og lifandi hátt um við- fangsefnið og tvinnar þar saman ævi og starfsferli Kinsey. Leitast er við að varpa ljósi á persónuleika Kins- eys, og þá blöndu af vísindalegri elju og persónulegri forvitni sem knúði hið umfangsmikla starf hans og þekkingarleit áfram. Liam Neeson á ekki síður þátt í að koma þessum áhugaverða og stundum kómíska persónuleika til skila, þessum virðu- lega háskólaprófessor sem ræddi við nemendur sína af sama hispursleysi um kynhegðun fólks og lifn- aðarhætti trjávespa. Laura Linney er ekki síðri en Neeson í hlutverki eiginkonu Kinseys, sem gegnir mik- ilvægu hlutverki í sögunni. Gallar myndarinnar í heild koma einna helst í ljós þegar líður á myndina, er staðlaðar venjur ævisöguformsins gera vart við sig, og hinn létti og op- inskái tónn myndarinnar víkur fyrir tilraunum til þess að tjá drama og niðurlægingartímabil í lífi aðalsögu- hetjunnar. Á heildina litið er Kinsey engu að síður lifandi og vönduð kvik- mynd um forvitnilegt viðfangsefni. Prófessorinn hispurslausi Reuters Linney og Neeson sýna mjög góðan leik í hlutverkum Kinsey-hjónanna. KVIKMYNDIR Regnboginn: IIFF Leikstjórn: Bill Condon. Aðalhlutverk: Liam Neeson, Laura Linney, Peter Saars- gard og Chris O’Donnel. Bandaríkin/ Þýskaland, 118 mín. Kinsey  Heiða Jóhannsdóttir Í umsögn Heiðu Jóhannsdóttur um kvikmynd- ina I Heart Huckabees, frá því í blaðinu í gær, láðist að láta stjörnugjöfina fylgja með. I Heart Huckabees fær:  FYRRUM Kryddpían Mel C ætlar ekki að láta deigan síga þótt Virgin-útgáfufyrirtækið hafi látið hana róa. Hún ákvað að stofna sitt eigið útgáfufyrirtæki, sem heitir Red Girl, og ætlar að gefa sjálf út nýja plötu sína. En það mun kosta hana væna fúlgu og er fullyrt í bresku pressunni að hún sé með því að leggja allt sitt undir að henni takist að endurvinna fyrri vinsældir. Platan mun heita Beautiful Intentions og hún hefur viðurkennt að hún sé ansi stress- uð yfir því að þurfa að veðja svo stórt. „Þetta er stór áhætta en ég er tilbúin að taka hana,“ segir hún. „Ef vel gengur þá verður fjár- hagslegi ávinningurinn líka þeim mun meiri fyrir mig“. Og til þess að tryggja það að hún fái athygli gulu pressunnar þá hefur Mel C verið óvenju berorð síðustu daga. Hún segir t.d. það hafaverið lygi hjá Robbie Williams er hann sagð- ist hafa sængað hjá fjórum Kryddpíum af fimm – hún væri búin að ræða við þær allar og hefði komist að því að tvær þeirra hafi aldrei farið uppí til hans. Og svo segir hún Britney Spears allt- of frakka og druslulega. Ætli Mel C virkilega vinsæl ennþá? Mel C þarf sjálf að borga fyrir nýja plötu PARIS Hilton hefur komið víða við á stuttum og viðburðaríkum „ferli“ sínum sem frægðarfljóð. Hún hefur reynt fyrir sér á sviði kvikmynda- leiks, sjónvarpsþáttagerðar, fyr- irsætustarfa, almannatengsla og heimaleikfimi með eftirtekt- arverðum árangri. Færri vita að hún býr einnig til aðdáunarverða skart- gripi fyrir hunda, að hennar eigin sögn. Hún á hund sem heitir Skellibjalla og segir að margir dáist að því hvernig hún skreytir hann. „Ég held að margir dáist að stíl Skellibjöllu, eins og þeir dást að mínum stíl, og því hef ég ákveðið að hafa hundakraga í nýju línunni minni. Kraginn verður eins og hálsmen og mun kosta um tíu dollara eða um 600 krónur. Á honum er einföld keðja og lítið men í laginu eins og bein.“ Fólk | Paris Hilton er margt til lista lagt Hannar hunda- skartgripi Skellibjöllur tvær, saman í stíl: Hilton og hundurinn hennar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.