Morgunblaðið - 13.04.2005, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 13.04.2005, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2005 23 DAGLEGT LÍF kaffitímanum um miðjan daginn og svo er kvöldverður um áttaleytið. Þetta er í föstum skorðum alla daga. Þegar við opnum útidyrnar þegar við komum heim í hádeginu, þá leggur kryddilminn af matnum um allt hús og við getum því fundið á lyktinni hvað er í matinn hjá mömmu. Hvaða krydd og hvaða ávexti við borðum hverju sinni, fer eftir því hvaða árstími er. Allt á sinn besta tíma og þá borðum við það á þeim tíma.“ Mustapha seg- ist vera gefinn fyrir mat en stund- um verði hann þreyttur á að elda allan liðlangan daginn og þá langi hann til þess að aðrir eldi fyrir hann. Og hann vill kjarngóðan mat, segist ekki vera mikið fyrir sætindi. Lamb couscous 600 g lambakjöt, leggbitar 500 g couscous 1 laukur 2–3 gulrætur 1 dolla kjúklingabaunir 1 kúrbítur 1 tsk paprikuduft 1 tsk pipar ½ tsk kúmen 1 tsk kanil 2 tsk salt negull 2 msk tómatpúrra 1 msk ólífuolía Saxa laukinn og setja í pott með olíu ásamt lambakjötsbitunum. Steikja í einar 15 mínútur. Bæta kryddi út í. Hella þá hálfum lítra af vatni yfir ásamt tómatpúrru og sjóða í 30 mín. Bæta gulrótarsneiðum og kjúklingabaunum í og sjóða með í 15 mínútur. Í lokin er kúrbítsneiðum bætt út í og soðið í 2–3 mínútur. Sjóða vatn með salti og olíu. Setja couscous í fat og hella soðnu vatninu yfir þannig að það nái yfir couscous- ið. Hylja með plastfilmu og láta standa í 5–10 mín. Losa couscous-ið með gaffli áður en það er borið fram. Kjúklinga-tagine (pottréttur) 1 heill kjúklingur 2 stórar gulrætur 200 g svartar ólívur 2 stórir laukar Marinering: 1 tsk salt 1 tsk pipar 2 hvítlauksrif ½ tsk kanill ½ tsk saffran ½ tsk kúmmín Fersk steinselja Ferskur kóríander Ólívuolía. Skerið kjúklinginn í fjóra bita og lát- ið hann liggja í marineringunni í 40 mínútur. Steikið laukinn og kjúklinginn í olíu í 15 mínútur, þar til það verður brúnt. Bætið 500 ml af vatni út á, ólívum og gulrótum blandið saman og bætt út á og látið sjóða í 40–50 mínútur á lágum hita. khk@mbl.is DÖNSK rannsókn hefur leitt í ljós að maður getur fengið exem vegna rotvarnarefna í sjampói, að því er kemur fram á vef Berlingske Tid- ende. Rannsóknin var gerð á veg- um danska umhverfisráðuneyt- isins. Um er að ræða efnið Methyldi- bromo glutaronitrile (MG) og er það talið geta valdið exemi í and- liti, hársverði og höndum. Notkun efnisins í krem hefur lengi verið bönnuð því þekkt er að það getur valdið exemi. Það kom vís- indamönnunum hins vegar á óvart hve efnið getur haft mikil áhrif þrátt fyrir að vera svo stuttan tíma í snertingu við hársvörðinn eins og þegar um sjampó er að ræða. Í Berlingske kemur fram að nið- urstöðurnar muni líklega leiða til þess að ESB muni banna notkun rotvarnarefnisins alfarið en það er eitt af þeim mest notuðu í snyrti- vöruiðnaði.  HEILSA Exem af sjampó- notkun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.