Morgunblaðið - 13.04.2005, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 13.04.2005, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2005 29 UMRÆÐAN „SETJUM kallana á ís“. „Veljum konur í staðinn“. Þetta eru skilaboð Kristófers Más Kristinssonar í nýlegri Moggagrein til þess Samfylking- arfólks sem senn þarf að velja á milli tveggja formannsefna. Að lík- indum mundi þorri Samfylkingarfólks vilja vera laus við þá skipulögðu aðför að farsælum og dugmikl- um formanni sem um- rædd formannskosn- ing er. Hreyfing sem boðar réttlæti, vill að fólk sé metið að verðleikum og hefur það að meg- inmarkmiði að bæta leikreglur samfélagsins hlýtur að eiga erfitt með það samvisku sinnar vegna að launa farsælum foringja með rauðu brottvikningarspjaldi að hafa gert nýsameinaða jafn- aðarhreyfinguna á Íslandi að öðr- um stærsta stjórn- málaflokki landsins. Það teldust hvarvetna snautleg málagjöld. En takist að sann- færa nógu marga um mikilvægi þess að „setja kallana á ís“ þá mun sú verða raunin. Þurfum við á slíkum gjásmíðum að halda nú, rétt eftir að fjög- ur stjórnmálaöfl í landinu hafa, eftir áratuga viðleitni, náð að sammælast og verða ein heild? Vilj- um við verða Samfylking femínista sem telur að konur skuli njóta verðleika sinna en karlar skuli „settir á ís“ fyrir það eitt að vera karlmenn? „Ís“-köld kvennaráð Sá sem þetta ritar þekkir mörg dæmi um að kallar hafi verið „settir á ís“ innan Samfylkingar til að rýma fyrir konum. Eru þar nærtækust dæmi af honum sjálfum sem rýmdi sæti sitt eftir prófkjörið 2003, bæði fyrir Ingibjörgu Sólrúnu og Kristrúnu Heimisdóttur og eftir prófkjörið 1999 fyrir Guðrúnu Ög- mundsdóttur, Bryndísi Hlöðvers- dóttur o.fl. Í þeim prófkjörum giltu reyndar allt aðrar leikreglur en Samfylkingin sjálf boðar um að öll atkvæði skuli jafngild í sam- félaginu. Þar vógu 700 atkvæði þyngra en 2700. Sama mætti segja um ótvíræðan sigurvegara og atkvæðakóng síð- asta prófkjörs R-listans, Stefán Jón Hafstein. Þegar kom að vali á borgarstjóra, var Steinunn Valdís auðvitað margfalt meira virði en samanlögð hollusta Stefáns Jóns við þær stallsystur allar sem lagt hafa undir sig Ráðhúsið. Verði það örlög Össurar Skarp- héðinssonar að glata formennsku í Samfylkingunni fyrir það eitt að vera „kall sem þarf að setja á ís“ væri réttast að það 3,8% afl sem Kvennalistinn var við stofnun Samfylkingar fái þar með frjálsar hendur til að endurnefna hreyf- inguna Samfylkingu femínista. Samfylking femínista eða jafnaðarsinna? Jakob Frímann Magnússon fjallar um formannskjör Samfylkingarinnar ’Hreyfing sem boðarréttlæti, vill að fólk sé metið að verðleikum og hefur það að megin- markmiði að bæta leik- reglur samfélagsins.‘ Jabob Frímann Magnússon Höfundur er tónlistarmaður og félagi í Samfylkingunni. ÞEIR sem hefja leik á því að gagnrýna vinnubrögð hljóta að hlíta því að þeirra eigin vinnu- brögð séu sett undir mæliker. Vert er að minna Svanfríði Jón- asdóttur, sem sendi mér tóninn í Morg- unblaðinu 12. þ.m., að það voru Kristrún Heimisdóttir vara- þingmaður og Þórunn Sveinbjarnardóttir al- þingismaður sem hófu umræðu um vinnubrögð formanns Samfylkingarinnar í febrúar síðastliðnum. Enginn vefengdi rétt þeirra til þess að gagnrýna formanninn. Gagnrýnin varð á hinn bóginn tilefni til þess að stuðningsmenn formannsins hafa leitast við að sýna fram á að Samfylkingin hafi verið á réttri leið undir forystu hans og stjórn hans á flokknum hafi verið farsæl og raunsæ. Flokksmenn hafa fengið svigrúm til þess að koma hugmyndum sínum í framkvæmd og hafa áhrif á stefnu flokksins sem hefur verið mótuð á hverju sviðinu á fætur öðru. Á skömmum tíma hef- ur orðið til kraftmikil hreyfing jafnaðar- manna, þar sem flokkadrættir eftir gömlum flokkslínum heyra sögunni til. Gagnrýni mín á störf framtíðarhóps, sem Svanfríður situr í, felst fyrst og fremst í því að hann hafi reist sér hurðarás um öxl. Sumir þeirra sex stefnuhópa sem fóru af stað í fyrri lotu pældu mikið og skiluðu góðu verki. Þar á meðal nefni ég öryggismálahópinn sem Þórunn Sveinbjarnardóttir og Gunnar Karlsson prófessor stýrðu af mikilli alvöru og alúð, og ég kynntist af eigin raun. Næsta skrefið hefði að mínum dómi átt að vera að nýta þá fjármuni og starfskraft sem framtíðarhópur hafði umráð yfir til þess að efna til víðtækrar kynningar og um- ræðu meðal almennra flokksfélaga um framkomin álit. Þar hefur skort á eftirfylgni og umræðan lokast inni í þröngum hópi. Framtíðarhópurinn valdi sjálfur, án þess að nokkur nauður ræki til, að einbeita sér í staðinn að því að setja af stað sjö stefnuhópa til við- bótar hinum sex áður nefndu. Eftir að ljóst var að landsfundi yrði flýtt til vors var deginum ljósara að þeir sjö stefnuhópar sem fóru af stað í síðari lotu og starfað hafa í einrúmi myndu ekki skila öðru en mjög hraðsoðnum álitum. Og til hvers er þá unnið? Hefði ekki verið raunsærra að gefa þeim meiri tíma og leyfa þeim að skila af sér inn í flokksumræðuna þegar þeir hefðu eitthvað til málanna að leggja? Ég hef aldrei skilið störf framtíð- arhópsins á þann veg að hann ætti að skrifa málefnaályktanir lands- fundar. Ég leyfði mér því að álykta sem svo að „skyndibitaframleiðslan“ úr síðari sjö hópunum stjórn- aðist meira af þörfum varafor- mannsins til þess að mæta í for- mannskjör og á landsfund með „nýja“ heildarstefnu fyrir flokk- inn heldur en af flokkslegri nauðsyn eða formlegum kvöðum. Varaformaðurinn sagði í við- tölum við fjölmiðla að farnaður hans í formannskjöri myndi að verulegu leyti ráðast af mati á störfum framtíðarnefndar. Ekki er annað að ráða af tilskrifi Svanfríðar en að þau séu hafin yfir gagnrýni. Yfir gagnrýni hafin Einar Karl Haraldsson svarar grein Svanfríðar Jónasdóttur ’Gagnrýni mín á störfframtíðarhóps felst fyrst og fremst í því að hann hafi reist sér hurð- arás um öxl.‘ Einar Karl Haraldsson Höfundur er fyrsti varaþingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavík suður. Innlausnarverð: 11.332.518 kr. 2.266.504 kr. 226.650 kr. 22.665 kr. 1. flokkur 1991: Innlausnardagur 15. apríl 2005 Nafnverð: 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 3.684.127 kr. 368.413 kr. 36.841 kr. 3. flokkur 1991: Nafnverð: 1.000.000 kr. 500.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 3.278.163 kr. 1.639.081 kr. 327.816 kr. 32.782 kr. 1. flokkur 1992: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 16.143.667 kr. 3.228.733 kr. 322.873 kr. 32.287 kr. 2. flokkur 1992: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. 1. flokkur 1993: Innlausnarverð: 15.890.316 kr. 3.178.063 kr. 317.806 kr. 31.781 kr. Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. 3. flokkur 1993: Innlausnarverð: 14.634.156 kr. 2.926.831 kr. 292.683 kr. 29.268 kr. Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. 1. flokkur 1994: Innlausnarverð: 12.513.153 kr. 2.502.631 kr. 250.263 kr. 25.026 kr. Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. 1. flokkur 1995: Innlausnarverð: 12.019.952 kr. 2.403.990 kr. 240.399 kr. 24.040kr. Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 2.129.579 kr. 212.958 kr. 21.296 kr. 1. 2. og 3. flokkur 1996: Nafnverð: 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð húsbréfa Innlausn húsbréfa fer fram hjá Íbúðalánasjóði, í bönkum, sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum og liggja þar einnig frammi upplýsingar um útdregin húsbréf. Húsbréf Rafrænt 96/2 1 2.12957911 Borgartúni 21 105 Reykjavík Sími 569 6900 Fax 569 6800 www.ils.is FYRIR nýjan þingmann er margt að læra, sjá og heyra á fyrstu árum þingmennsku. Maður verður vitni að góðum vinnubrögðum og slæmum, sigrum og mistökum. Ég hef lengi fylgst með Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur úr fjarlægð en hef síðan átt þess kost að fylgjast með henni að störfum, jafnt inni á Alþingi sem utan. Þar fer mikil afburða- manneskja sem við er- um svo lánsöm að gefur kost á sér til formanns Samfylkingarinnar. Það er eðlilegt fram- hald af kosningabarátt- unni fyrir síðustu kosn- ingar þar sem Ingibjörgu Sólrúnu var falið mik- ilvægt forystuhlutverk. Stuðningsmenn gangi í flokkinn og kjósi Ingibjörgu Ég veit að mjög margir kjósendur Samfylkingarinnar treysta því að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir leiði flokkinn til framtíðar og alla leið í stjórnarráðið. Nú standa málin hins vegar þannig að ef sú ósk á að verða að veru- leika nægir ekki að styðja flokkinn í kosn- ingum heldur þarf að sýna viljann í verki með því að ganga til liðs við hreyfinguna og gefa framtíðinni, með Ingi- björgu Sólrúnu í far- arbroddi, atkvæði í komandi formann- skosningum. Hvert og eitt atkvæði skiptir máli og við getum ekki treyst á að aðrir skili sér ef við gerum það ekki sjálf. Frestur til að komast á kjörskrá er til 15. apríl. Ég skora á stuðningsmenn Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur að ganga til liðs við Samfylkinguna. Nú liggur mikið við. Af hverju Ingi- björgu Sólrúnu? Anna Kristín Gunnarsdóttir fjallar um formannskjör í Samfylkingunni Anna Kristín Gunnarsdóttir ’Hvert atkvæði skiptirmáli í formannskjöri Samfylkingarinnar.‘ Höfundur er alþingismaður í Norðvesturkjördæmi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.