Morgunblaðið - 13.04.2005, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2005 49
Óskarsverðlaunahafinn, Geoffrey Rush er frábær sem Peter Sellers
n myndin fjallar um feril og stormasamt einkalíf eins besta gamanleikara heims.
Kvikmyndir.is
kvikmyndir.is
Hetja.
Þjóðsögn.
Svampur
Svampur Sveinsson og félagar eru
komnir með sína fyrstu bíómynd.
Með íslensku og ensku tali.
Bráðfjörug,
spennandi og
sprenghlægileg
gamanmynd
með
ofurtöffaranum
Vin Diesel í
aðalhlutverki!
Gerið ykkur klár... ... fyrir pelann!
ÁLFABAKKI
BOOGEY MAN kl. 6 - 8 - 10 B.i. 16. ára
SVAMPUR SVEINSSON m/ísl.tali. kl. 4 - 6
SVAMPUR SVEINSSON m/ensku.tali. kl. 4 - 6 - 8-10.10
THE PACIFIER kl. 4 - 6 - 8 - 10.10 / VIP kl. 8 - 10.10
MRS. CONGENIAL. 2 kl. 3.30 - 5.40 - 8 -10.20
LIFE AND DEATH OF PETER SELLERS kl. 8
LIFE AND DEATH OF PETER SELLERS VIP kl. 5.30
RING TWO kl. 10.20 B.i. 16. ára
BANGSÍMON og FRÍLLINN m/ísl.tali. kl. 4
Hringrás óttans hefur náð hámarki
SK
BOOGEY MAN kl. 6 - 8.30 - 10.30 B.i. 16.
SVAMPUR SVEINSSON m/ísl.tali. kl. 6
THE INTERPREDER Fors.kl. 8 (2 fyrir 1 Mastercard)
THE PACIFIER kl. 6 - 10.30
RING TWO kl. 10.30 B.i. 16.
BOOGEY MAN KL. 8 - 10
SVAMPUR SVEINSS KL 6
PACIFIER KL. 6 - 8 -10 B.I. 16
MRS. CONGENIAL.2 KL. 10
THE PACIFIER KL. 8 - 10
MILLION DOLLAR BABY
KL. 8 - 10.30
AKUREYRI KEFLAVÍKKRINGLAN
bransanum en ég og Óttar Felix elt-
um sveitina á röndum á tímabili. Ég
sagði við vini mína: „Einhvern tíma
mun ég komast í Hljóma!“. Og það
varð úr á endanum.
Rúnar hefur ekkert breyst frá því
að ég hitti hann fyrst. Hann er alltaf
jafn hreinn og beinn, alveg ein-
staklega góður drengur og hann er
mér enn fyrirmynd.“
Óskar Þór Arngrímsson
[Óskar er trommari í Lokbrá en
sveitin hefur verið að vinna að tónlist
í Geimsteini að
undanförnu]
„Oddur
bassaleikari er
Keflvíkingur og
þekkir aðeins til
þarna fyrir
sunnan. En við í
hljósmveitinni
erum allir for-
fallnir aðdá-
endur Trúbrots og Hljóma, við dýrk-
um þessar hljómsveitir!
Þegar maður sér gömul myndbrot
með Rúnari heillast maður af þess-
um tryllingi og orku sem af honum
stafar. Hann er líka alltaf jafn „kúl“.
Þegar við vorum að vinna í Geim-
steini kíkti hann við, hlustaði og var
hinn sprækasti. Hann bauð okkur
upp á te og kaffi og sýndi okkur ým-
islegar rokkminjar. Við létum taka
mynd af okkur með honum, eins og
litlir strákar. Við erum alvöru aðdá-
endur!
Annars kom hann fyrir sem vina-
legur töffari. Blíður en líka nettur
táningur í sér. Hann umgekkst okk-
ur eins og jafningja og það var líka
mjög skýrt að þessi maður er í þessu
fyrir tónlistina. Ást hans á henni er
skýjum ofar.“
Guðmundur Kristinn Jónsson
[Guðmundur, eða Kiddi eins og
hann er vanalega kallaður, er gít-
arleikari í Hjálmum og samstarfs-
maður Rúnars í Geimsteini]
„Þegar ég var að byrja í rokkinu
var ég í hljómsveitinni Þusl. Við
ákváðum að fara í túr en áttum af-
skaplega lítið af græjum. Við bönk-
uðum upp á hjá Rúnari og spurðum
hann hvort hann gæti lánað okkur
magnara, bassabox og slíkt. Það var í
góðu lagi en við lentum í því óhappi
að kveikja í box-
unum á túrnum
og komum því
heldur lúpulegir
aftur til Rúnars.
„Ekkert mál,“
sagði Rúnar og
fór með okkur á
næsta bílaverk-
stæði. Þar voru
boxin mössuð
upp á nýjan leik og það var ekki
minnst á þetta einu orði aftur. Þetta
er mjög lýsandi fyrir Rúnar. Það er
aldrei neitt vesen, allt svona er leyst
samstundis.
Geimsteinn hefur í gegnum tíðina
verið eins og félagsmiðstöð tónlistar-
manna í Keflavík og þangað eru allir
velkomnir. Sem útgefandi skiptir
hann sér ekkert af því sem listamað-
urinn vill gera. Það er 100% frelsi í
gangi. Ekki er miklu eytt í auglýs-
ingar, heldur er peningurinn frekar
settur í að gefa meira út.
Sömuleiðis er hann mjög opinn og
til í að prufa hvað sem er. Lagið
„Gott er að gefa“ sem var nú kveikj-
an að þessu Hjálmadæmi var t.d.
upprunalega rokklag. Við stungum
upp á því að prófa það í reggítakti og
það var ekki málið. Og slík varð svo
lendingin. Rúnar er mjög jákvæður
maður en hann er ákveðinn og
fylginn sér. Ef hann er t.d. búinn að
ákveða að það komi út plata á afmæl-
inu hans þá kemur út plata á afmæl-
inu hans.“
Magnús Kjartansson
[Magnús er alinn upp í Keflavík
eins og Rúnar og var með honum í
Trúbroti og
fleiri sveitum]
„Rúnar er
einstaklega
traustur og
dyggur maður,
það vantar ekki.
Hann er Hrútur
og kann því best
við sig í hita
leiksins. Rúnar
er eldri en ég og hann tók mig eig-
inlega í fóstur. Við bjuggum lengi vel
tveir í Keflavík á meðan félagarnir
voru allir á höfuðborgarsvæðinu. Nú
er hann þarna einn með sjálfum sér
og neitar að taka sönsum og flytja í
bæinn!
Ég og Rúnar vorum einu sinni
staddir saman í London á Trúbrots-
árunum. Við vorum vanalega saman í
herbergi og bjuggum á Landakoti en
svo var Regent Palace hótelið kallað
af Íslendingum sem fjölmenntu jafn-
an þangað. Eitt kvöldið vorum við á
heimleið eftir að hafa snætt kvöld-
verð með vini okkar, Chris Squire,
bassaleikara í Yes. Er við komum til
baka var hótelið undirlagt af Skotum
en þennan daginn hafði farið fram
mikilvægur leikur á milli Glasgow
Rangers og einhvers Lundúnaliðs-
ins. Þegar við stígum inn í lyftu
hrúgast þá inn fimm manna fjöl-
skylda sem við gáfum okkur að væru
Skotar. Ég fer þá að tala um það
hvað Skotar væru nú fádæmum ljótt
fólk og illa af Guði gert, með risastór
kónganef og svo frv. Lyftan stoppar
svo á meðan ég er í þessum fílósófer-
ingum miðjum og fólkið labbar út og
býður okkur góða nótt á lýtalausri ís-
lensku. Mér og Rúnari varð þá ljóst
að við værum búnir að eyðileggja
framtíðarplötusölu Trúbrots um
fimm eintök, að minnsta kosti.
Ég var nú frekar kúl á því en Rún-
ar tók þetta alveg ofboðslega nærri
sér. Hann er þannig gerður að hann
vill vera vinur allra og vill hafa alla
með sér í liði. Þetta var enda fram-
hleypni minni að kenna, Rúnar dróst
inn í þetta hálfpartinn nauðugur.
En ég vil nota þetta tækifæri og
óska vini mínum hjartanlega til ham-
ingju með afmælið. Það er gaman að
sjá hvað hann heldur vel velli og
megi hann eiga langa og gæfuríka
framtíð fyrir höndum.“
arnart@mbl.is
„Yfirgengilega við-
kunnanlegur töffari“
látið gera af tilefninu, getur að líta um 70
plötur sem Rúnar hefur tekið þátt í að gera
á ferlinum.
„Á svona tímamótum er við hæfi að líta
yfir farinn veg,“ segir Rúnar. „Maður hefur
nú verið heppinn með það að hver áratugur
hefur átt sín augnablik og ég er mjög sátt-
ur með þetta á heildina litið.“
Í kvöld verður haldin afmælisveisla í
Stapanum Rúnari til heiðurs og um leið
Í DAG kemur út platan Blæbrigði lífsins,
plata sem Rúnar Júlíusson gerði með regg-
ísveitinni Hjálmum vegna sextugsafmælis
síns. Rúnar er einn iðnasti tónlistarmaður
landsins og á veggspjaldi, sem Rúnar hefur
verður plötunni nýju fagnað. Veislan verður
einslags blanda af hefðbundinni samkundu
og tónleikum.
„Ég ætla að spila nokkur lög af plötunni
en svo koma ýmsir sem ég hef unnið með í
gegnum tíðina og taka lagið. KK, Hljómar,
Bjartmar Guðlaugsson og Gylfi Ægisson t.d.
Ég vona að sem flestir mæti, það verða
a.m.k. græjur á staðnum.“
Rúnar segir að plötuvinnslan hafi gengið
snurðulaust fyrir sig, enda hafi hann unnið
hana með „björtustu voninni“ en Hjálmar
voru sæmdir þeirri nafnbót á Íslensku tón-
listarverðlaununum sem fram fóru fyrr á
þessu ári.
„Það er skemmtilegt að ég var um síðustu
helgi að vinna með elsta karlakór landsins,
Heimi í Skagafirði, og er nú að gefa út plötu
með efnilegustu tónlistarmönnunum (hlær).
Það er gaman að prófa svona ólíka hluti.“
Geimsteinshljóðverið og samnefnd útgáfa
sem Rúnar rekur eru orðin einstök fyr-
irbæri í íslenskri tónlistarmenningu, tónlist-
armenn af ýmsum toga eru farnir að sækja í
hljóðverið enda klárt hver tilgangurinn er
með þeim rekstri
„Þeir voru hérna strákarnir í Trabant t.d.
um daginn,“ segir Rúnar. „Við erum með
mikið af gömlum hljóðfærum og græjum
sem fólk sækir í. Útgáfan er svo til þess að
koma tónlist út á meðal fólks fyrst og
fremst. Við auglýsum lítið og látum tónlist-
ina frekar um það. Eins og Hjálmaplatan
t.d., þetta var einfaldlega gott efni sem varð
að koma út. Tónlistin sjálf er það sem skipt-
ir máli fyrst og síðast. Svo einfalt er það
nú.“
Hljómar voru réttnefndir íslensku Bítlarnir. Rúnar er lengst til hægri.
Rúnar hefur rokkað linnulaust í yfir fjörutíu ár. Hér með
Ðe lónlí blú bojs er sú sveit kom saman aftur árið 1990.
Rokk og róleg-
heit í sextíu ár
arnart@mbl.is