Morgunblaðið - 13.04.2005, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 13.04.2005, Blaðsíða 37
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2005 37 Félagsstarf Aðalfundur Samvinnufélagsins Hreyfils verður haldinn í Þingsal 1 á Hótel Loftleiðum miðvikudaginn 27. apríl 2005 kl. 13.30. Dagskrá: 1. Athugað lögmæti fundarins. 2. Skýrsla félagsstjórnar. 3. Reikningar ársins 2004. 4. Kosning í stjórn o.fl. 5. Önnur mál. Stjórnin. Fundir/Mannfagnaðir Raðauglýsingar 569 1111 Raðauglýsingar sími 569 1100 UM langt skeið hefur Taflfélag Reykjavíkur (TR) í samstarfi við ÍTR haldið á hverju ári sveita- keppni grunnskóla í Reykjavík. Í ár bættist Skákfélagið Hrókurinn við sem nýr samstarfsaðili og fyrir- komulagi keppninnar var breytt. Í stað þess að hún tæki 2–3 daga fyrir alla keppendur þá voru undanrásir haldnar og fjórar efstu sveitirnar þaðan tryggðu sér rétt til að taka þátt í úrslitakeppni. Alls mættu 22 sveitir til leiks í undanrásirnar sem fram fóru í húsakynnum TR í Faxa- feni 12 sl. föstudag. Eftir að formað- ur TR, Óttar Felix Hauksson, hafði boðið keppendur velkomna, lék Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, fyrsta leiknum á mótinu en hann á dóttur sem teflir skák. Langt er um liðið síðan þátt- taka hefur verið jafn mikil og nú en tefldar voru sjö umferðir og hafði hver keppandi 15 mínútna umhugs- unartíma. A-sveitir Laugalækjar- skóla og Rimaskóla börðust hart um sigurinn sem að lokum féll Laugalækjarskóla í skaut eftir stigaútreikninga. Lokastaðan varð þessi: 1.-2. Laugalækjarskóli a-sveit og Rimaskóli a-sveit 25 vinninga af 28 mögulegum 3.-4. Rimaskóli b-sveit og Laugalækjarskóli b-sveit 17 v. 4.-7. Réttarholtsskóli, Austurbæjarskóli og Háteigsskóli a-sveit 15½ v. 8.-9. Melaskóli og Rimaskóli c-sveit 15 v. 10.-11. Foldaskóli og Borgaskóli 14 v. 12.-13. Foldaskóli b-sveit og Breiðagerð- isskóli 13½ v. 14.-15. Hamrask. og Engjask. a-sveit 13 v. 16.-17. Húsaskóli og Hlíðaskóli 12 v. 18. Engjaskóli d-sveit 10 ½ v. 19. Austurbæjarskóli b-sveit 10 v. 20. Engjaskóli b-sveit 9 v. 21. Engjaskóli c-sveit 8 v. 22. Skóli Ísaks Jónssonar 5 v. Eins og sjá má röðuðu sveitir frá Rimaskóla og Laugalækjarskóla sér í efstu sætin. Athyglisvert er að Engjaskóli hafði flestar sveitirnir eða alls fjórar. Árangur Rimaskóla ætti ekki að koma neinum á óvart en skólinn hefur skarað fram úr í öllum grunnskólakeppnum sem haldnar hafa verið síðustu ár og á öllum aldursstigum, jafnvel þótt skólinn hafi ekki nemendur á ungl- ingastigi. Í úrslitakeppninni var umhugsunartíminn 90 mínútur á 30 leiki og svo 30 mínútur til að klára. Það hentaði a- sveit Laugalækjar- skóla vel því hún veitti keppinautum sínum engin grið og vann allar sínar viðureignir. Lokastaða úrslita- keppninnar varð þessi: 1. Laugalækjarsk. a-sveit 12 vinninga af 12 2. Rimaskóli a-sveit 8 v. 3. Laugalækjarskóli b-sveit 3 v. 4. Rimaskóli b-sveit 1 v. Árangur einstakra meðlima efstu sveitanna í undanrásum og í úrslita- keppninni varð þessi: A-sveit Laugalækjarskóla: 1. borð: Daði Ómarsson 5½ v. af 7 í und- anrásum; 3 v. af 3 í úrslitum 2. borð: Matthías Pétursson 6½ v. af 7 í und- anrásum; 3 af 3 í úrslitum 3. borð: Vilhjálmur Pálmason 7 v. af 7 í und- anrásum; 3 af 3 í úrslitum 4. borð: Einar Sigurðsson 6 v. af 7 í und- anrásum; 3 af 3 í úrslitum A-sveit Rimaskóla: 1. borð: Hjörvar Steinn Grétarsson 6½ v. af 7; 2 af 3 2. borð Ingvar Ásbjörnss. 6½ v. af 7; 2 af 3 3. borð Hörður Aron Hauksson 5½ v. af 7 í undanrásum; Sverrir Ásbjörnsson 2 v. af 3 í úrslitum 4. borð Sverrir Ásbjörnsson 6½ v. af 7 í und- anrásum; Hörður Aron Hauksson 2 v. af 3 í úrslitum B-sveit Laugalækjarskóla: 1. borð Aron Ellert Þorsteinsson 5 v. af 5; 0 v. af 3 2. borð Sigríður Oddsdóttir 3 v. af 7; 1 v. af 3 3. borð Benedikt Sigurleifsson 4½ v. af 7; 1 v. af 3 4. borð Jörgen Már Ágústss. 4½ v. af 7; 1 v. af 3 B-sveit Rimaskóla: 1. borð Júlía Rós Hafþórsd. 5 v. af 7; 1 v. af 3 2. borð Júlía Guðmundsd. 4 v. af 7; 0 v. af 3 3. borð Ingibjörg Ásbjörnsdóttir 4 v. af 7; 0 v. af 3 4. borð Hrund Hauksd. 4 v. af 7; 0 v. af 3 Vegleg verðlaun voru í boði á mótinu en keppt var um eignar – og farandbikar ásamt verðlaunapen- ingum sem ÍTR lagði til. Frá útgáfu- fyrirtækjunum 12 tónum, 21 12, Smekkleysu og Zonet útgáfu fengu keppendur geisladiska en Mynd- form og Dagur group (áður Skífan) gáfu þeim bíómiða á sýningar í Laugarásbíói, Smárabíói og Regn- boganum. Þessir aukavinningar féllu í kramið hjá krökkunum en aðr- ir styrktaraðilar að þessu vel heppn- aða móti voru Vífilfell, Jumbó og Freyja. Ólafur H. Ólafsson sá um skákstjórn ásamt Ásgeiri Tryggva- syni en Ólafur hefur mikla reynslu af umsjón móta af þessu tagi og lof- aði hann taflmennsku keppenda, sérstaklega þeirra sem tefldu fyrir efstu tvær sveitirnar. Soffía Páls- dóttir frá ÍTR, Torfi Leósson frá TR og Máni Hrafnsson frá Hróknum voru af hálfu skipuleggjenda titlaðir mótsstjórar. Laugalækjarskóli Reykjavíkurmeistari SKÁK Félagsheimili TR Sveitakeppni grunnskóla í Reykjavík 8.–10. apríl 2005 A-sveit Laugalækjarskóla á sigurstundu f.v.: Daði Ómarsson, Matthías Pétursson, Vilhjálmur Pálmason og Einar Sigurðsson. Helgi Áss Grétarsson daggi@internet.is MENNTAGÁTT opnaði í febrúar sl. myndasafn á vefnum, menntagatt.is/gallery. Þar hafa allir grunnskólanemendur haft tækifæri til að senda inn myndir til birtingar. Eitt skil- yrði hefur þó verið sett og það er að myndirnar sýni á ein- hvern hátt íslenskan vetur. Myndasafnið er ein- falt í notkun, stafræn- ar myndir eru færðar inn á vefinn, hvort heldur er ljósmyndir eða teikningar. Safn- inu hefur verið skipt í þrjá flokka eftir aldri nemenda. Innsendar myndir birtast á vefn- um um leið og þær hafa verið yfirfarnar af starfsfólki Menntagáttar. Viðfangsefni þeirra ríflega fjögur hundruð mynda sem bor- ist hafa í safnið er fjölbreytt, þar má t.d. sjá landslag, fólk og byggingar. Myndirnar eru einnig af ýmsum toga. Hægt verður að senda áfram inn myndir næstu daga eða fram til 18. apríl en þá mun dómnefnd fara yfir þær myndir sem borist hafa. Síðasta vetrardag, 20. apríl, verður tilkynnt hvaða myndir hafa verið valdar og hljóta höfundar þeirra við- urkenningar. Vefslóð Menntagáttar er menntagatt.is. Vetrarmyndir á Menntagátt FERÐAFÉLAG Íslands stendur fyr- ir myndakvöldi og kynningu á sum- arleyfisferðum í kvöld, miðvikudag 13. apríl, í sal FÍ, Mörkinni 6, kl. 20. Þar kynna ferðir sínar Gísli Gíslason prófessor, Sigþrúður Jónsdóttir og Elísabet Sólbergsdóttir fararstjórar. Látrabjarg, Rauðasandur og Skor nefnist ferð Gísla en hann var í fóstri á Hvallátrum sem barn og unglingur. Sigþrúður Jónsdóttir frá Tröð í Gnúp- verjahreppi verður fararstjóri í ferð í Þjórsárver. Um er að ræða bakpoka- ferð með allan viðlegubúnað þar sem vaða þarf allmargar jökulár. Elísabet Sólbergsdóttir og Úlfar Thoroddsen verða fararstjórar í ferð á slóðum kolanámumanna, presta, skálda, lista- manna, ólánsfólks, garpa og einbúa á suðurfjörðum Vestfjarða, Breiðafirði, Arnarfirði og Dýrafirði. Aðgangseyrir á myndakvöldið er 600 kr. Allir velkomnir. FÍ kynnir sumarferðir FRJÁLSHYGGJUFÉLAGIÐ stendur fyrir málþingi um loka- skýrslu fjölmiðlanefndar á morg- un, fimmtudag, kl. 12 í Iðnó við Vonarstræti 3. Á fundinum mun Ingibjörg Sól- rún Gísladóttir halda tölu um það starf sem fjölmiðlanefnd hefur unnið, skýra út helstu álitamál og þau rök sem liggja að baki ein- stökum atriðum í lokaskýrslunni. Friðbjörn Orri Ketilsson mun fjalla um málið út frá sjónarmiði Frjálshyggjufélagsins. Einnig gefst gestum kostur á að spyrja nánar út í efni ræðu- manna. Málþing um skýrslu fjöl- miðlanefndar AÐALFUNDUR Kvenréttinda- félags Íslands verður haldinn í dag, miðvikudag, í fundarsalnum, Hall- veigarstöðum, Túngötu 14, kl. 20. Fyrir fundinn verður haldið málþing um jafnréttismál. Framsöguerindi flytur Margrét Pála Ólafsdóttir skólastjóri. Aðalfundur Kven- réttindafélagsins „Aldrei of seint“ ÞAU mistök urðu við ritun greinar Páls Gíslasonar „Morgunganga eða meðöl“, sem birtist í Morgunblaðinu í gær, að rangt var farið með dag- setningu á fræðslufundi um lífsstíl þar sem aukin áhersla er lögð á lík- amshreyfingu. Fræðslufundurinn verður haldinn föstudaginn 15. apríl í, Ásgarði, Glæsibæ, kl. 15.30. Félag eldri borgara í Reykjavík LEIÐRÉTT BARNAHEILL – Save the Children á Íslandi, fræðslu- samtök um kynlíf og barneignir, FKB, og samband foreldrafélaga og foreldraráða í grunnskólum Reykjavíkur, SAMFOK, hafa flutt starfsemi sína á Suður- landsbraut 24, 3. hæð, 108 Reykja- vík. Barnaheill hafa einnig skipt um símanúmer, sem er nú 553-5900. Símanúmer SAMFOK er óbreytt, 562-7720, sem og símanúmer FKB, sem er 561- 6061. Nánari upplýsingar um Barna- heill og SAMFOK er hægt að nálg- ast á heimasíðum þeirra, www.barnaheill.is og www.sam- fok.is. Á myndinni eru starfsmenn Barnaheilla, efri röð frá hægri: Kristbjörg Hjaltadóttir, Hrönn Þor- móðsdóttir, Ágústa Marísdóttir og Erla Ósk Hermannsdóttir. Neðri röð frá hægri: Kristín Jónasdóttir hjá Barnaheillum og Bergþóra Valsdóttir hjá SAMFOK. Barnaheill, FKB og SAMFOK flytja ÁSKRIFTARDEILD netfang: askrift@mbl.is, sími 569 1122

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.