Morgunblaðið - 13.04.2005, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 13.04.2005, Blaðsíða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Tónlist Gaukur á Stöng | Í dag kemur út annar geisladiskur Bacon; Jenny. Hljómsveitin mun fagna útkomu á Gauki á Stöng þá um kvöldið kl. 22. Fram kemur auk Bacon hljómsveitin Malneirophrenia, en einnig mun Dean Ferrell kontrabassaleikari flytja verk eftir David Hume. Aðgangur er ókeyp- is. Café Rosenberg | South River Band heldur tónleika kl. 21:30. Hljómsveitin, sem hefur starfað síðan haustið 2000, leikur alþýð- lega heimstónlist auk eigin tónsmíða og texta. South River Band hefur sent frá sér 2 geisladiska og er með þann þriðja í und- irbúningi en stefnt er í vinnubúðir og tón- leikahald á heimaslóðum í Ólafsfirði og Ak- ureyri 6.-9. maí. Hljómsveitina skipa Einar Sigurðsson, kontrabassa, Gunnar Reynir Þorsteinsson, slagverk, Helgi Þór Ingason, harmónika, Kormákur Bragason, gítar, Mattías Stefánsson, fiðla og gítar, Ólafur Sigurðsson, mandólín og Ólafur Þórð- arsson gítar. Allir syngja þeir félagar meira eða minna. Myndlist Árbæjarsafn | Í hlutanna eðli – stefnumót lista og minja. Energia | Málverkasýning aprílmánaðar. Ólöf Björg. FUGL, Félag um gagnrýna myndlist | Anna Hallin – Hugarfóstur – kort af samtali. Gallerí Sævars Karls | Regína sýnir olíu- málverk máluð á striga. Gallery Terpentine | Halldór Ásgeirsson. Gel gallerí | Guðbrandur kaupmaður sýnir verk sín. Gerðuberg | María Jónsdóttir – Gullþræðir. Klippimyndir, verk úr muldu grjóti, olíu- málverk og fleira í Boganum. Ljósberahópurinn – Hratt og hömlulaust. Grensáskirkja | Guðbjörg Hákonardóttir (Gugga) sýnir málverk í forsal. Hafnarborg | Jóhannes Dagsson – „End- urheimt“ Á sýningunni eru verk unnin með blandaðri tækni. Í samvinnu við Sophienholm í Kaupmanna- höfn og Hafnarborg hefur Johannes Lar- sen-safnið sett saman stóra sýningu um danska og íslenska listamenn og túlkun þeirra á íslenskri náttúru á 150 ára tímabili. Þema sýningarinnar er „List og náttúra með augum Norðurlandabúans“. Hallgrímskirkja | Vignir Jóhannsson – Sól- stafir. Kaffi Sólon | Birgir Breiðdal – eitt verk, ekkert upphaf né endir. Listasafn ASÍ | Helgi Þorgils Friðjónsson. Listasafnið á Akureyri | Erró. Stendur til 6. maí. Listasafn Íslands | Íslensk myndlist 1930- 45. Rúrí, Archive Endangered Waters. Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Fjórar glerlistasýningar. Listasafn Reykjanesbæjar | Erlingur Jónsson og samtímamenn. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Nían – Myndasögumessa. Brynhildur Þorgeirs- dóttir – Myndheimur/Visual World. Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Markmið XI. Hörður Ágústsson, yfirlitssýn- ing. Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn | Yfirlitssýning á verkum Ásmundar. Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Bára ljós- myndari – Heitir reitir. Norræna húsið | Farfuglarnir, sýning sex norrænna myndlistarmanna frá Finnlandi, Danmörku og Íslandi. Sigurður Þórólfsson, Vorvindar. Sýning á silfurmunum. ReykjavíkurAkademían | Íslenskir mál- arar. Safn, Laugavegi | Ingólfur Arnarsson. Listamenn frá Pierogi-galleríinu. Saltfisksetur Íslands | Nú stendur yfir sýning Fríðu Rögnvaldsdóttur, sýninguna nefnir hún „Fiskar og fólk“. Allar mynd- irnar eru unnar með steypu á striga. Þjóðminjasafn Íslands | Ljósmyndasýning- arnar Í Vesturheimi 1955 – ljósmyndir Guðna Þórðarsonar og Íslendingar í Ricc- ione – ljósmyndir úr fórum Man- fronibræðra. Listasýning Gel gallerí | Ég veit ekki why. Guðbrandur kaupmaður sýnir verk sín í Gel galleríi, Hverfisgötu 37. Ráðhús Reykjavíkur | Dropar af regni – Amnesty International á Íslandi í 30 ár. Sýningin gefur ágrip af þeim fjölda ein- staklinga sem félagar Íslandsdeildar Amn- esty International hafa átt þátt í að frelsa. Dans Breiðfirðingafélagið | Vorfagnaður Breið- firðingafélagsins verður í Breiðfirðingabúð laugardaginn 16. apríl. Hljómsveitin Mið- aldamenn frá Siglufirði leikur fyrir dansi frá kl. 22–3. Söfn Þjóðmenningarhúsið | Hallgrímur Pét- ursson (1614–1674) er skáld mánaðarins. Þjóðminjasafn Íslands | Grunnsýning Þjóðminjasafnsins, Þjóð verður til – menn- ing og samfélag í 1200 ár. Ómur – Landið og þjóðin í íslenskri hönnun. Ljós- myndasýningarnar Í vesturheimi 1955, ljósmyndir Guðna Þórðarsonar, og Íslend- ingar í Riccione, ljósmyndir úr fórum Man- froni-bræðra. Opið kl. 11–17. Mannfagnaður Ólsaragleði | Ólsaragleði verður haldin laugardaginn 23. apríl í Gullhömrum, Graf- arholti. Dagskrá hefst kl. 20 með borð- haldi, ræðumaður, skemmtiatriði og Klaka- bandið leikur fyrir dansi. Miðaverð er kr. 4.800 og eru miðar seldir til 17. apríl. Miða- sala og nánari upplýsingar: Nína s. 691 1771, Sjöfn s. 897 1411, Þórheiður s. 820 4468. Fréttir Blóðbankinn | Blóðbankabíllinn verður við Reykjaneshöllina í dag kl. 10–17. Allir vel- komnir. Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur | Matar- og fataúthlutun í dag kl. 14–17. Svarað í síma þri.–fim. kl. 11–16. Tekið við fatnaði og öðrum gjöfum þri. og mið. kl. 11–16. Netf. mnefnd@mi.is. Fundir Afríka2020 | Afríka2020, félag áhuga- fólks um Afríku sunnan Sahara, heldur op- inn fræðslufund í Alþjóðahúsinu, Hverf- isgötu 18, í dag kl. 20. Þar mun Sjöfn Vilhelmsdóttir, fræðslustjóri Þróunarsam- vinnustofnunar Íslands (ÞSSÍ), flytja erindi sem nefnist „Opinber þróunaraðstoð Ís- lands til Afríku“. Á eftir erindinu verða opnar umræður. Boðið verður upp á veit- ingar. Allir velkomnir. Sjá nánari upplýs- ingar á www.africa.is. Grand hótel | Hádegisverðarfundur Lög- fræðingafélags Íslands verður haldinn á Grand hóteli á morgun, 14. apríl. Davíð Þór Björgvinsson verður með framsöguerindi. Skráning í síma 568-0887 fyrir miðviku- daginn 13. apríl. Nánari upplýsingar á www.logfr.is. GSA á Íslandi | GSA-fundir eru haldnir öll fimmtudagskvöld kl. 20.30 í Tjarnargötu 20. GSA-samtökin eru hópur fólks sem hefur leyst vandamál sín tengd mat. Nán- ari upplýsingar á www.gsa.is. Háskólinn á Akureyri | Í borgaspjalli auð- lindadeildar HA föstudaginn 15. apríl kl. 12.30 flytur Guðjón Atli Auðunsson erindið: Rýnt í gögn um aðskotaefni í vistkerfi sjáv- ar. Spjallið fer fram á 2. hæð (við kaffiteríu) í rannsóknarhúsinu Borgum. Héðinshús | Al-Anon-fundir eru alla mið- vikudaga kl. 21. Al-Anon-fjölskyldudeild- irnar hafa aðeins einn tilgang: Að hjálpa fjölskyldum og vinum alkóhólista. Til þess að gerast félagi þarf aðeins eitt; að ættingi eða vinur hafi átt eða eigi í vanda vegna alkóhólisma. Krabbameinsfélagið | Ný rödd heldur fund í húsi Krabbameinsfélagsins Skógarhlíð 8 í Reykjavík, 4. hæð, í dag kl. 20. Á dagskrá er: Norræn ráðstefna barkakýlislausra í Danmörku í sumar. Medic alert. Samvinna stuðningshópa KÍ um þjónustumiðstöð. Önnur mál. Allir velkomnir. Krabbameinsfélagið | Krabbameinsfélag Borgfirðinga heldur opinn fund 14. apríl kl. 20 í Alþýðuhúsinu Borgarnesi. Gestur fundarins, Þórarinn Guðjónsson, sérfræð- ingur í sameinda- og frumulíffræði hjá KÍ og læknadeild HÍ, ræðir um stofnfrumur og krabbamein og um myndun og lækningu krabbameina. Allir velkomnir. Samtökin FAS | Samtök foreldra og að- standenda samkynhneigðra funda í kvöld kl. 20 í félagsmiðstöð Samtakanna ’78, Laugavegi 3, 4.h. Ef einhver hefur þörf fyr- ir rólega stund og spjall fyrir fundinn er alltaf einhver til staðar frá kl. 20 Nýir fé- lagar velkomnir í hópinn. Skógræktarfélag Reykjavíkur | Aðal- fundur Skógræktarfélags Reykjavíkur verður haldinn í kvöld kl. 20 í sal Orkuveit- unnar, Bæjarhálsi 1. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf auk þess sem Herdís Frið- riksdóttir, verkefnastjóri félagsins, segir ferðasögu starfsmanna félagsins til Dan- merkur og tengir hana nýjum fram- kvæmdum á vegum félagsins. Vesturbæjarskóli | Sniðganga feður skól- ann eða eru þeir sniðgengnir af skólanum? Hverju þarf að breyta til að karlkyns- aðstandendur sinni skólagöngu barna meira? Fundur verður 14. apríl kl. 20 í Vest- urbæjarskóla, þar munu foreldrar og kenn- arar glíma við spurninguna um ábyrgð karlkynsaðstandenda á skólagöngu barna. Fyrirlestrar Kennaraháskóli Íslands | Skóli fyrir alla – Egla fyrir alla – fyrirlestur í Skriðu, fyr- irlestrarsal, á vegum Rannsóknarstofn- unar Kennaraháskóla Íslands í dag kl. 14. Fyrirlesarar eru Guðmundur B. Krist- mundsson og Þórður Helgason, dósentar í íslensku. Allir velkomnir. Málþing Grand hótel Reykjavík | Tannlæknafélag Íslands efnir til málþings laugardaginn 16. apríl kl. 9.30–13 um reykingar og tann- heilsu. Málþingið er öllum opið og aðgang- ur ókeypis. Þátttaka tilkynnist í síðasta lagi á hádegi föstudaginn 15. apríl, í síma 575 0500 eða á netfangið tannsi@- tannsi.is. Sjá á tannlaeknar.is. Háskólinn á Akureyri | Á málþingi fé- lagsvísindadeildar HA í dag kl. 12.15–16 munu nokkrir helstu forystumenn ís- lenskra fjölmiðla reifa hugmyndir sínar og framtíðarsýn um stöðu íslenskrar fjölmiðl- unar. Tekið hefur verið upp í fyrsta sinn á Íslandi nám til BA-prófs í fjölmiðlafræðum. Námsbrautin er við Háskólann á Akureyri. Norræna húsið | Málþing um akstur utan vega verður laugardaginn 16. apríl kl. 13– 16.45 á vegum Umhverfisstofnunar og Landverndar í Norræna húsinu í Reykjavík. Boðið verður upp á kaffiveitingar. Að- gangseyrir er 500 kr. Námskeið Alþjóðahúsið | Amal Tamimi, fé- lagsfræðingur frá Palestínu, heldur nám- skeið um konur og Islam 18. og 20. apríl kl. 20–22 báða dagana. Hvaða áhrif hefur Is- lam á líf kvenna í löndum múslima? Hvað segir Kóraninn og hver er raunveruleikinn? Verð er 5.000 kr. og skráning í síma 530- 9300 og á amal@ahus.is. Félag íslenskra heilsunuddara | Félag ís- lenskra heilsunuddara verður með nám- skeið 13.–16. apríl fyrir byrjendur, í vöðva- og hreyfifræði, TFH 1 og 2 . Fjallað verður um streitu, orkubrautir og fæðuóþol. Einn- ig verður framhaldsnámskeið um andlega uppbyggingu 18.–21. apríl, 1 og 2. Kennari Jarle Tamsen í Rósinni, Bolholti 4. Nánari upplýsingar og skráning á www.nudd- felag.is og í síma: 694-2830, 690-7437. Útivist Ferðafélagið Útivist | Farið er kl. 18 frá bílastæði við austurenda göngubrúarinnar yfir Kringlumýrarbraut í Fossvogi og geng- ið vestur með Öskjuhlíð, um Nauthólsvík og út í Skerjafjörð. Allir velkomnir, ekkert þátttökugjald. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Ekki láta ákefð vinahópsins glepja þig til að styðja hugmyndir sem eru þér mót- fallnar innst inni. Það er auðvelt að láta sannfærast í dag. Naut (20. apríl - 20. maí)  Nautið áttar sig ekki fyllilega á því til hvers er ætlast af því í dag. Þú ert ekki viss hvort yfirmaðurinn er argur út í þig eða ánægður. Hafðu ráðvendnina að leiðarljósi í dag. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Haltu þig frá æsingafólki og leynilegum markmiðum þess í dag. Nú er auðvelt að láta plata sig eða sannfærast. Vertu á varðbergi. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Ekki afsala þér öllu í dag. Einhver gæti tekið upp á því að nýta sér góðmennsku þína. Dómgreind þín er ekki upp á marga fiska núna. Farðu varlega. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Samræður við maka og aðra valda þér heilabrotum í dag. Þú veist ekki hvort þú ert að koma eða fara, eða hvort best er að hrökkva eða stökkva. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Ekki láta villa um fyrir þér í vinnunni í dag. Þú ert ekki viss um hvers málstað þú átt að taka. Á því eru meiri líkur en minni að einhver reyni að slá ryki í augu meyjunnar. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þér hættir til að lifa í sjálfsblekkingu varðandi ástarsamband. Reyndar lifir sjálfsblekkingin bestu lífi í málefnum hjartans, svo mikið er víst. Þú ert ekki sú eina. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Ekki leggja of mikið á þig á heimilinu í dag. Farðu vel með þig. Auðvitað er rétt að leggja fjölskyldunni lið, en láttu ekki gabbast af krókódílatárum. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Bogmanninum hættir til þess að missa móðinn í dag. Einhverra hluta vegna er hann ekki vel á verði núna og hefur glat- að trúnni á sjálfan sig. Þetta lagast. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Farðu varlega í fjármálum í dag, það gildir bæði um verslun og pen- ingaeyðslu. Dómgreind þín er ekki í fullu lagi. Þar að auki freistar munaðarvarn- ingur þín núna. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Orka þín virðist í lágmarki í dag. Það er í lagi að draga eilítið úr framkvæmdum og slaka á ef þú getur. Hlutirnir ganga bet- ur suma daga en aðra. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Undarlegar tilfinningar bærast hugs- anlega innra með fiskinum í dag. Ekki láta það á þig fá, þetta er tímabundið ástand. Fiskurinn er óvenjuóeigingjarn í dag. Stjörnuspá Frances Drake Hrútur Afmælisbarn dagsins: Þú ert nýstárleg í hugsun og elskar að vera frumkvöðull á hugmyndasviðinu. Þú ert líka opinská persóna, sem og vilja- sterk og djörf. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. 6 8 11 15 22 1 24 12 3 10 17 21 4 9 13 18 23 14 5 19 7 20 2 16 Krossgáta Lárétt | 1 tekur fastan, 8 slitur, 9 láta falla, 10 liggi á hálsi, 11 snjóa, 13 let- urtákn, 15 manns, 18 hugsa um, 21 þáði, 22 frumu, 23 hlutdeild, 24 of- sækir. Lóðrétt | 2 flýtinn, 3 vit- leysa, 4 er minnugur mis- gerða, 5 snaginn, 6 bílífi, 7 brak, 12 nægt, 14 fíngert regn, 15 sæti, 16 borguðu, 17 tími, 18 snjódyngja, 19 synji, 20 bylgja. Lausn síðustu krossgátu Lárétt | 1 sýpur, 4 fella, 7 kokið, 8 losti, 9 arm, 11 aurs, 13 hadd, 14 úldin, 15 selt, 17 étir, 20 sin, 22 álfan, 23 annað, 24 karat, 25 gaupa. Lóðrétt | 1 sækja, 2 pukur, 3 riða, 4 fálm, 5 lesta, 6 aðild, 10 ruddi, 12 sút, 13 hné, 15 skálk, 16 lofar, 18 tunnu, 19 riðla, 20 snót, 21 nagg.  Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is ❖ Opið virka daga 10-18 ❖ Laugardaga 10-16 Nýbýlavegi 12 Kópavogi s. 554 4433 Föt fyrir allar konur GLJÚFRASTEINN – hús skáldsins er opið frá kl. 10–17. Fræðandi hljóðleiðsögn um húsið, margmiðlunarsýning um ævi skáldsins og fallegt umhverfi. Sími 586 8066 netfang: gljufrateinn@gljufrasteinn.is. Morgunblaðið/ÞÖK Gljúfrasteinn opinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.