Morgunblaðið - 13.04.2005, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 13.04.2005, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2005 39 DAGBÓK Samtök íslenskra ólympíufara eru stofnuðað erlendri fyrirmynd en hliðstæðumsamtökum hefur verið komið á fót víðaum heim og þau hafa meðal annars ver- ið stofnuð í rúmlega 30 Evrópulöndum. Helstu markmið þeirra eru að þróa gildi ólympíu- hreyfingarinnar á Íslandi, hvetja til samskipta meðlima þeirra og fræða ólympíuþátttakendur um hlutverk þeirra sem fyrirmyndir í þjóðfélag- inu. Þá er gert ráð fyrir að samtökin standi fyrir ýmsum viðburðum í þágu félagsmanna. Íris Grönfeldt, stjórnarmaður og tvöfaldur ól- ympíufari, sagði við Morgunblaðið að megintil- gangurinn með stofnun þessara samtaka erlend- is hefði verið aðstoð við íþróttafólkið þegar keppnisferli væri lokið og sá þáttur yrði einnig veigamikill í starfi þeirra hér á landi. „Það myndast oft tómarúm hjá íþróttafólki þegar það hættir keppni. Samtökin eiga að vera bakland fyrir það og vera því til aðstoðar þannig að fólk geti miðlað af reynslu sinni hvert til annars og veitt hvert öðru stuðning. Liz Ferris, varafor- maður Alþjóðasamtaka ólympíufara, mætti á stofnfundinn og var mjög hrifin af því að við skyldum vera með alla íslenska ólympíufara á skrá og geta náð til allra sem eru á lífi og á land- inu. Þegar Bretar stofnuðu sín samtök var gíf- urleg vinna fólgin í því að hafa upp á öllum fyrr- um ólympíuförum. Auðvitað hjálpar smæð þjóðarinnar okkur í þessum efnum.“ Samtals hafa 275 Íslendingar tekið þátt í Ól- ympíuleikum frá upphafi. Af þeim eru 52 látnir og 42 eru búsettir erlendis. Á fundinn mættu ná- lægt 80 ólympíufarar á ýmsum aldri, elstur þeirra Stefán H. Jónsson, sem er 87 ára og ann- ar tveggja sem enn eru á lífi af þeim Íslend- ingum sem kepptu á ólympíuleikunum í Berlín árið 1936. „Það var góð aldursdreifing á fundinum og stjórnin endurspeglar hana ágætlega, allt frá Guðmundi Gíslasyni sem keppti á leikunum frá 1960 til 1972, til Kolbrúnar Ýrar Kristjánsdóttur sem keppti í Aþenu á síðasta ári. Margir höfðu ekki hist lengi, þarna hitti ég til dæmis Guðrúnu Femu Ágústsdóttur sundkonu, sem var herberg- isfélagi minn í Los Angeles árið 1984, en við höf- um ekki sést síðan. Það voru sannkallaðir fagn- aðarfundir.“ Íris segir að undirbúningurinn að stofnun samtakanna hafi farið af stað síðasta haust. „Kristján Arason fór á fund alþjóðasamtakanna í haust og fræddist um uppbyggingu þeirra og síðan höfum við hist á nokkrum fundum í vetur. Við erum ennþá nokkurn veginn á byrjunarreit, það er búið að setja upp ákveðin markmið en stjórnin kemur saman fljótlega til að móta starf- ið enn frekar.“ Íþróttir | SÍÓ Samtök íslenskra ólympíufara Bakland fyrir íþróttafólkið  Íris Grönfeldt er í stjórn nýrra Samtaka íslenskra ólympíufara sem voru stofnuð síð- asta föstudag. Hún er eina konan sem keppt hefur fyrir Íslands hönd í spjótkasti á Ól- ympíuleikum, fyrst í Los Angeles árið 1984 og síðan í Seoul árið 1988. Kristján Arason er formaður samtakanna og í stjórn eru einnig þau Guðmundur Gíslason, Kolbrún Ýr Krist- jánsdóttir og Steinunn Sæmundsdóttir. Vara- menn eru þeir Broddi Kristjánsson og Daníel Jakobsson. Ótrúlegt, en satt. Norður ♠KG ♥KD2 ♦K52 ♣ÁG875 Vestur Austur ♠D ♠98432 ♥985 ♥Á63 ♦DG10843 ♦96 ♣1032 ♣964 Suður ♠Á10765 ♥G1074 ♦Á7 ♣KD Suður spilar sex spaða og fær út tíguldrottningu. Er einhver von í þessari legu? Barry Rigal segir frá þessu spili í mótsblaði Pittsburgh-vorleikanna og það er á honum að skilja að hann hafi fundið vinningsleiðina eftir á, en ekki við borðið. Og honum er svo sem vor- kunn, því það er ekki augljóst hvernig hægt er að forðast að gefa slag á tromp. En vinningsleiðin er þessi: Sagn- hafi tekur fyrsta slaginn á tígulás og spilar hjarta. Austur græðir ekkert á því að dúkka tvisvar (þá fara tvö hjörtu niður í frílauf), svo hann drep- ur og spilar til dæmis tígli um hæl. Sagnhafi tekur með kóng, fer heim á lauf og spilar spaða að KG. Drottn- ingin kemur þá stök og kóngurinn á slaginn. Trompið er nú látið eiga sig og slagirnir til hliðar teknir og endað í borði í fjögurra spila endastöðu: Blindur á trompgosann blankan, einn tígul og tvö lauf. Heima er sagnhafi með Á1076 í trompi, en austur á 9843. Sagnhafi spilar laufi eða tígli og aust- ur verður að trompa með áttu. Suður yfirtrompar, spilar trompi á gosann (austur undirtrompar) og tekur síð- ustu trompin tvö með trompbragði – austur á 94, en suður Á7. Þessi leið byggist á því að spila hjarta áður en farið er í trompið, sem er síður en svo sjálfgefið, svo Rigal er sannarlega vorkunn að hafa tapað slemmunni. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is 1. e4 d6 2. d4 Rf6 3. Rc3 g6 4. Be3 c6 5. Rf3 Bg7 6. Dd2 0–0 7. h3 b5 8. Bd3 a6 9. Bh6 c5 10. Bxg7 Kxg7 11. e5 Rfd7 12. Be4 Ha7 13. 0–0 dxe5 14. dxc5 b4 15. Ra4 Da5 16. a3 Dxa4 17. axb4 Db5 18. Hfe1 Rc6 19. c4 Dxb4 20. Bxc6 Dxc5 21. Ba4 f6 22. b4 Dxc4 23. Hac1 Df7 24. De3 Hb7 25. Hed1 e6 26. Hd6 Rb8 27. Hc4 Hc7 28. Hh4 De7 29. Dd2 Bb7 30. Bb3 Bd5 31. Dh6+ Kh8 32. Bxd5 Dxd6 33. Bxe6 Hg7 34. Bb3 Rc6 35. Hc4 Rxb4 36. Rh4 a5 37. Hg4 g5Meistaramót Dan- merkur fór að þessu sinni fram með útsláttarfyrirkomulagi í Køge. 16 skákmenn hófu keppni og til úrslita tefldu Sune Berg Hansen (2.553) og Curt Hansen (2.633). Kapparnir unnu hvor sína kappskákina og var þá gripið til tveggja atskáka. Jafn- tefli varð í þeirri fyrri en Curt hafði í þeirri síðari tryggt sér gjörunnið tafl og hefði andstæðingurinn sjálfsagt gefist upp bráðlega ef hann hefði leikið 37. … f5 í stað 37. … g5?? Sune Berg greip tækifærið fegins hendi og náði að tryggja sér meistaratitilinn eftir 38. Dxg7+! Kxg7 39. Rf5+ Kg6 40. Rxd6 f5 41. Hc4 Hd8 42. Rb7 Hd2 43. Rxa5 Rd3 44. Hc6+ Kg7 45. Rc4 He2 46. Hc7+ Kf6 47. Hc6+ Kg7 48. Rd6 Hxf2 49. Hc7+ Kf6 50. Hf7+ Kg6 51. Be6 e4 52. Bxf5+ Hxf5 53. Hxf5 e3 54. Kf1 og svartur gafst upp. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is Hvítur á leik. Neyðarástand á Esso, Ártúnshöfða ÉG legg oft leið mína seint um kvöld inn um dyr stærstu bens- ínstöðvar landsins: Esso, Ártúns- höfða, og kaupi mér þar bensín og eitthvað í gogginn. Ég hef orðið þess var að á nótt- unni er oft mikið að gera og aðeins tveir starfsmenn að vinna inni á bensínstöðinni. Um helgar sé ég stundum þriðja einstaklinginn sem tjáði mér það eitt sinn að hún ynni aðeins frá miðnætti til fjögur um hverja helgi, annars væru það ein- ungis tveir starfsmenn sem rækju stöðina yfir nóttina eftir klukkan fjögur og öll önnur kvöld. Í síðastliðinni viku voru það tvær ungar stúlkur sem unnu þar og hef ég þurft að horfa upp á þær hörmu- legu aðstæður sem þessar ungu stúlkur þurfa að þola í vinnunni. Síðasta föstudagskvöld kom þar inn maður sem ruddist fram fyrir röð- ina að kassanum og heimtaði sígar- ettur, þegar honum var tjáð að hann þyrfti að bíða uns röðin kæmi að honum tók hann slíkt æðiskast sem ég hef aldrei áður séð og jós blóts- yrðum og svívirðingum yfir aum- ingja stúlkuna. Gott og vel, alltaf getur þetta komið fyrir í hvaða vinnu sem er að einhver ólánsmaður geti sett blett á annars ánægjulega nótt í vinnunni. En síðan næstu nótt, laugardags- nótt, legg ég aftur leið mína inn í Esso, Ártúnshöfða, og sé þar að slagsmál hafa brotist út, maður dró upp hníf, annar var skorinn í andliti og blóðslettur yfir öll gólf. Lög- reglan var kölluð á staðinn en á meðan var það undir þrem stúlkum komið að vinsamlegast sitja við og vona að þær yrðu ekki lamdar, stungnar eða eitthvað verra. Þetta er ekkert einsdæmi á Esso, Ártúnshöfða, að þrjár, oftast tvær ungar stúlkur sem borgað er fyrir að sinna þjónustustörfum á bens- ínstöð eru neyddar til þess að ganga í starf dyravarða og útkastara þegar ölvað fólk úr miðbænum leggur leið sína þangað áður en það fer heim. Ef ég fer hins vegar á Select- stöðina í Breiðholtinu sem rekin er af Shell sé ég þar mann sem aug- ljóslega er ráðinn til að halda friðinn þar inni, öryggisvörð. Ég veit ekki hvort yfirmenn Esso hafa litið inn á Ártúnshöfðann á föstudags- eða laugardagsnóttum, en ef svo er get ég ekki ímyndað mér að þeim myndi líka það sem þeir sæju. Ég trúi því og treysti að stjórnendur Esso muni nú sjá sér fært að ráða öryggisvörð inn á þessa stöð um helgar, ef ekki vegna öryggis starfsmanna sinna, þá vegna öryggis viðskiptavina sinna sem hafa nú margir þurft að horfa upp á hryllilegar uppákomur eins og þessar sem áttu sér stað um helgina. Arnar Elísson. Grein sem allir ættu að lesa ÉG var að lesa Viðhorfsgrein á bls. 24 í Morgunblaðinu sl. mánudag eft- ir Agnesi Bragadóttur með fyr- irsögninni Halló! halló! Vaknið Ís- lendingar! Ég tel þetta ákaflega þarfa grein og vil þakka Agnesi fyrir hana og um leið vekja athygli fólks á þessari grein. Þetta er lesning sem allir ættu að lesa. Gylfi Þór. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Opið mán.-fim. frá kl. 9–18, fös. frá kl. 9-17 Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033 Ægir Breiðfjörð löggiltur fasteignasali Einbýlishús, ca 172 fm, með glæsilegu útsýni yfir Fossvogsdalinn. Íbúðin er að mestu á einni hæð, þó er bílskúr og geymslur á neðri hæð. Húsið, sem upphaflega er teiknað af Sigvalda Thordarsyni, er á miðju endurnýjunar- stigi og er án allra innréttinga. Borgir sýna húsið. 6610 LAUFBREKKA - KÓPAVOGI SKIPTU VIÐ FAGMENN - ÞAÐ BORGAR SIG FASTEIGNASALAN GIMLI GRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810 Traust þjónusta í 20 ár Mikið endurnýjað einbýli á þremur hæðum, kjallari og tvær hæðir. Grunnflötur hússins er um 35 fm. Þrjár íbúðir eru í húsinu. Sérinngang- ur er í hverja íbúð fyrir sig. Húsið selst í einu lagi. Allar íbúðir í útleigu. Húsið hefur fengið gott og reglulegt viðhald í gegnum árin. Búið er að endurnýja skolplögn, rafmagn, vatnslagnir, ofna og innréttingar. Verð 22,5 m. HÚSIÐ ER LAUST TIL AFHENDINGAR STRAX OG VERÐ- UR TIL SÝNIS Í DAG FRÁ KL. 14-16. NÝLENDUGATA - EINBÝLI - ÞRJÁR ÍBÚÐIR Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasali www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli VINAFÉLAG Sinfóníuhljómsveitar Íslands býður til samverustundar í Sunnusal Hótels Sögu á morgun kl. 18.00. Þar mun Árni Heimir Ing- ólfsson tónlistar- fræðingur fjalla um verk sem leikin verða á tónleikum Sin- fóníunnar síðar um kvöldið, en á efnisskránni eru m.a. óbókonsert Richards Strauss og sinfónía nr. 1 eftir Johannes Brahms. Verð er kr. 1000 og er súpa, brauð og kaffi innifalið. Allir eru vel- komnir, en áhugasamir eru beðnir um að skrá sig með því að senda tölvubréf á netfangið vina- felag@sinfonia.is eða hringja í síma 545 2500. Vinafélag Sinfóníuhljómsveit- arinnar var stofnað árið 2002. Markmið þess er að efla áhuga á starfi Sinfóníuhljómsveitar Íslands og mynda tengsl við þá sem bera hag hennar fyrir brjósti. Vinafélag Sinfóníuhljómsveitarinnar styrkir fjárhagslega ákveðin verkefni tengd hljómsveitinni. Á þessu starfsári naut gerð heimildamyndar um tónleikaferð Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands til Þýskalands í des- ember 2003 stuðnings úr sjóðum fé- lagsins. Allir geta orðið meðlimir í Vina- félaginu og hægt er að skrá sig með því að senda vefpóst á vina- felag@sinfonia.is og þarf þá að gefa upp nafn, netfang, kennitölu og heimilisfang. Einnig er hægt að skrá sig í síma 545 2500 og á skrifstofu Sinfóníu- hljómsveitarinnar. Árgjald Vinafélagsins er 1.500 krónur. Fjallað um verk á sinfóníutónleikum Brahms Strauss AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.