Morgunblaðið - 13.04.2005, Blaðsíða 18
18 MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNSTAÐUR
Til sölu eru tvö orlofshús á Illugastöðum í Fnjóskadal
Húsin eru seld til brottflutnings og þarf kaupandi að losa
þau af undirstöðum og aftengja þau frá lögnum,
og að vera búinn að fjarlægja þau fyrir 20. maí 2005.
Væntanlegir kaupendur skulu lagfæra allt rask sem kann
að verða vegna flutnings húsanna frá Illugastöðum.
Óskað er eftir tilboðum og skal þeim skilað til umsjónarmanns,
Jóns Þ. Óskarssonar, Illugastöðum, 601 Akureyri,
fyrir kl. 15.00 fimmtudaginn 18. apríl 2005.
Tilboðin skulu merkt tilboð í orlofshús nr. 2 eða nr. 13.
Réttur er áskilinn til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Frekari upplýsingar veitir Jón Óskarsson í síma 462 6199.
Til sölu orlofshús
á Illugastöðum
(framlengdur skilafrestur)
Grindavík | Grindavíkurbær hefur
úthlutað lóðum fyrir um 140 íbúðir á
innan við tveimur mánuðum og vænt-
anlega verður tíu til viðbótar úthlut-
að á næstunni. Mikil ásókn hefur ver-
ið í að byggja í hinu nýja Hópshverfi
og þurfti að láta umsækjendur draga
um bestu lóðirnar.
Grindavíkurbær hefur skipulagt
nýtt hverfi norðan við bæinn, það
liggur frá Grindavíkurvegi að hjúkr-
unarheimilinu Víðihlíð. Ólafur Örn
Ólafsson bæjarstjóri segir að ákveðið
hafi verið að skipta uppbyggingu
hverfisins í tvennt. Menn hafi ekki
lagt í að taka allt hverfið fyrir í ljósi
þess að nýlega var lóðum úthlutað í
svokölluðu Lautarhverfi og tók það
töluverðan tíma að koma þeim öllum
út.
Byrjað var á tveimur götum í vest-
urhluta Hópshverfis, Vesturhópi og
Suðurhópi. Í febrúar var úthlutað
lóðum til byggingar um áttatíu íbúða,
í einbýlishúsum, raðhúsum, tvíbýlis-
húsum og blokk og áður hafði verið
úthlutað lóð undir aðra blokk. Sam-
tals verða byggðar þarna um 100
íbúðir. Vinna er að hefjast við gatna-
gerð og á að vera hægt að byrja að
byggja á lóðunum í vor eða fyrrihluta
sumars.
270 umsóknir um 35 lóðir
Ólafur Örn segir að mikil ásókn
hafi verið í lóðirnar og eftirspurnin
haldið áfram. Því hafi verið ákveðið
að halda áfram og ljúka uppbyggingu
hverfisins. Um 270 umsóknir bárust í
35 lóðir í austurhluta hverfisins en
þar verða byggð 32 einbýlishús og
nokkrar íbúðir til viðbótar í raðhús-
um. Göturnar munu heita Austurhóp
og Miðhóp. Umsækjendur eru heldur
færri en þessi tala segir til um því
fólk gat skilað inn tveimur umsókn-
um, um eina lóð og aðra til vara.
Skipulags- og byggingarnefnd út-
hlutaði hluta lóðanna á fundi sínum í
síðustu viku en þar sem margir jafn-
settir umsækjendur voru um fjölda
lóða var spilastokkurinn látinn ráða
og var dregið um þær í gær. Sautján
sóttu um þá lóð sem eftirsóttust var.
Úthlutunin verður staðfest á fundi
bæjarstjórnar í dag.
„Þessi mikla ásókn kemur okkur
verulega á óvart í ljósi þess hversu
treglega gekk með Lautarhverfið
enda héldum við að fyrri hluti hverf-
isins myndi anna eftirspurn í bili,“
segir Ólafur Örn. Ekki liggur fyrir
hvenær vesturhluti Hópshverfisins
verður byggingarhæfur því enn er
verið að hanna gatna- og lagnakerfið
í því.
Fjöldi heimafólks er meðal um-
sækjenda en Ólafur Örn segir að um-
sækjendur séu víða að, af höfuðborg-
arsvæðinu og utan af landi. Í
fullbyggðu hverfi gæti orðið um 400
manna byggð. Stefnt er að byggingu
nýs grunnskóla í hverfinu og er
reiknað með honum á næsta kjör-
tímabili.
Lóð undir einbýlishús kostar
innan við 2,5 milljónir
Við úthlutun lóðanna er miðað við
að bærinn fái fyrir kostnaði við að
skipuleggja hverfið og gera það
byggingarhæft. Áætlað er að kostn-
aður við gatnagerð og tengingar fyrir
þokkalega stórt einbýlishús verði 2,2
til 2,5 milljónir kr. og það þarf lóð-
arhafinn að greiða. Ólafur Örn segir
að lóðirnar séu ódýrari í Grindavík en
víðast hvar annars staðar.
Hjúkrunarheimilið Víðihlíð er í út-
jaðri Hópshverfis. Á lóð þess hafa
verið skipulagðar lóðir til að byggja
íbúðir fyrir aldraða. Byggingaverk-
taki hefur sótt um 10 lóðir þar sem
ætlunin er að húsnæðissamvinnu-
félagið Búmenn byggi og reki.
Úthluta lóðum fyrir 150
íbúðir á stuttum tíma
Morgunblaðið/RAX
Framkvæmdir Mikið verður byggt í Grindavík á þessu og næsta ári því bú-
ið er að úthluta lóðum undir 140 íbúðir og 10 verður úthlutað á næstunni.
Eftir Helga Bjarnason
helgi@mbl.is
SUÐURNES
Grindavík | Grindvíkingar hafa í at-
hugun að leita eftir umhverfisvottun
á starfsemi bæjarfélagsins og ferða-
þjónustufyrirtækja. Miðstöð sí-
menntunar á Suðurnesjum stóð fyr-
ir kynningu á vottunarkerfinu
Green Globe 21 í samstarfi við
starfsmenn bæjarins.
Hugmyndin að koma á umhverf-
isvottun kviknaði í tengslum við
áform hóps áhugafólks um að
breyta félagsheimilinu Festi í hótel
með áherslu á heilsutengda starf-
semi og að gera Grindavík að
heilsubæ.
Ólafur Örn Ólafsson bæjarstjóri
segir að Green Globe 21 umhverf-
isvottunarkerfið sé miðað við ferða-
þjónustufyrirtæki og fiskvinnslufyr-
irtæki geti til dæmis ekki fengið
vottun á starfsemi sinni. Segir hann
að mikill áhugi sé hjá ferðaþjónustu-
fyrirtækjum, meðal annars Bláa lón-
inu, að fá þessa vottun og ekki
standi til að Grindavíkurbær sjálfur
fari í slíka vinnu fyrir sig nema fyr-
irtækin séu með og það komi þeim
til góða. „Við teljum að þetta sé
framtíðin í ferðaþjónustunni og því
er æskilegt að sveitarfélagið leggi
sitt af mörkum í umhverfismálum
og styðji þannig við bakið á þeim
ferðaþjónustufyrirtækjum sem vilja
taka þátt.
Miðstöð símenntunar fékk Guð-
rúnu Bergmann, aðalverkefn-
isstjóra Green Globe 21 á Snæfells-
nesi, Stefán Gíslason verkefnisstjóra
Staðardagskrár 21 á Íslandi og
Kjartan Bollason verkefnisstjóra
Green Globe á Íslandi til að kynna
kerfið fyrir bæjarfulltrúum og for-
svarsmönnum fyrirtækjanna í bæn-
um. Ólafur Örn segir að í framhald-
inu verði athugað hvort áhugi sé á
því að hefja vinnu við verkefnið.
Kynning Þau kynntu Green globe umhverfisvottunina fyrir bæjarstjórn
Grindavíkur og stjórnendum fyrirtækja, f.v. Ólafur Örn Ólafsson, Stefán
Gíslason, Guðrún G. Bergmann, Kjartan Bollason og Lilja Samúelsdóttir.
Grindvík-
ingar huga
að umhverf-
isvottun
Morgunblaðið/Þorkell
Heilsa Stefnt er að því að Grinda-
vík verði heilsubær og gæti um-
hverfisvottun orðið hluti af því.