Morgunblaðið - 13.04.2005, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 13.04.2005, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2005 9 FRÉTTIR Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 Sumarbolir - ótal litir Yfirhafnir á hálfvirði þessa viku Mörkinni 6, sími 588 5518. Vattúlpur, ullarkápur, dúnúlpur, húfur og hattar Frábær buxnasnið Heimsferðir bjóða beint flug til Bologna alla fimmtudaga í sumar á hreint frábærum kjörum. Þú getur valið um flugsæti eingöngu, flug og bíl á frábærum kjörum eða eitt af okkar vinsælu hótelum á Rimini. Bókaðu núna og tryggðu þér bestu kjörin. Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Verð kr. 23.595 Flugsæti með sköttum m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, 7. júlí. Netverð. Bílaleigubíll frá kr. 2.400 Netverð á dag m.v. bíl í A-flokki í 7 daga eða meira með ótakmörkuðum akstri, kaskó- og þjófnaðartryggingu. Munið Mastercard ferðaávísunina Bologna Hjarta Ítalíu frá kr. 23.595 Alla fimmtudaga í sumar YFIRNEFND Mannréttinda- dómstólsins í Strassborg hefur hafnað beiðni íslenska ríkisins um að taka fyrir bótaþáttinn í dómi sem dómstólinn kvað upp í máli sem Kjartan Ásmundsson, fyrr- verandi sjómaður, höfðaði gegn ís- lenska ríkinu vegna ólögmætrar skerðingar á lífeyrisréttindum hans. Þar með hefur Kjartan unn- ið fullnaðarsigur í málinu en áður hafði bæði Héraðsdómur Reykja- víkur og Hæstiréttur Íslands dæmt honum í óhag. Upphaf málsins er að árið 1978 slasaðist Kjartan alvarlega á fæti við störf sín um borð í togara og var Kjartan, sem var þrautreynd- ur sjómaður, metinn til 100% ör- orku til fyrri starfa. Árið 1994 tóku gildi ný lög sem urðu til þess að allar bótagreiðslur til hans úr Lífeyrissjóði sjómanna féllu niður en alls urðu 54 sjóðfélagar fyrir skerðingu bóta vegna þessa. Laga- breytingin var gerð að frumkvæði lífeyrissjóðsins sem stóð illa á þessum árum. Kjartan undi ekki þessum breytingum og höfðaði mál, fyrst fyrir héraðsdómi, svo Hæstarétti og loks Mannréttinda- dómstóli Evrópu. Í október komst Mannréttinda- dómstóllinn að þeirri niðurstöðu að íslenska ríkið hefði brotið gegn ákvæðum Mannréttindasáttmála Evrópu með því að svipta hann bótalaust áunnum lífeyrisrétt- indum frá Lífeyrissjóði sjómanna. Voru honum dæmdar 75 þúsund evrur vegna fjárhagstjóns, 1.500 evrur vegna annars tjóns og 20 þúsund evrur í málskostnað. Þá samsvaraði upphæðin um átta milljónum íslenskra króna. Íslenska ríkið ákvað að vísa bótaþætti dómsins til yfirdeild- arinnar á þeim grundvelli að Kjartan hefði ekki orðið fyrir fjár- hagstjóni af völdum lagabreyting- arinnar. Stærstum hluta mála sem vísað er til yfirdeildarinnar er vís- að frá og, eins og fyrr segir, urðu það örlög áfrýjunar íslenska rík- isins. Fullnaðarsigur Niðurstaða Mannréttinda- dómstólsins er endanleg og því ber ríkinu nú að greiða Kjartani þær bætur sem honum voru dæmdar. Lilja Jónasdóttir hrl., lögmaður Kjartans, fagnar þessari niðurstöðu en sagði að hún hefði þó ekki komið sér á óvart. Það hefði á hinn bóginn komið henni verulega á óvart ef dómstóllinn hefði samþykkt áfrýjunarbeiðni ríkisins enda hafi málið ekki upp- fyllt skilyrði til meðferðar hjá yf- irdeild dómsins. Með þessari nið- urstöðu hefði unnist fullnaðarsigur, í niðurstöðunni fælist viðurkenning dómstólsins á því að ríkið hefði brotið gegn ákvæðum Mannréttindasáttmálans um friðhelgi eignaréttarins með lagabreytingunni árið 1994. Aðspurð sagði Lilja að vissulega geti dómurinn í máli Kjartans ver- ið fordæmisgefandi í málum þeirra 53 sem eru í sömu stöðu gagnvart Lífeyrissjóði sjómanna og Kjart- an. Einnig geti mál hans verið for- dæmisgefandi fyrir lífeyrisþega í öðrum lífeyrissjóðum sem svipað er ástatt fyrir. Hvert og eitt tilvik verði þó að skoða sérstaklega. Yfirnefnd Mannréttindadómstólsins hafnar áfrýjun ríkisins í máli sjómanns Endanlegur dómur um ólög- mæti lífeyrisskerðingarinnar Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is Kjartan Ásmundsson um borð í Harðbaki á áttunda áratugnum. Slysið sem varð til þess að hann varð að láta af sjómennsku varð árið 1978. Morgunblaðið/Kristinn Niðurstaða málsins kom Lilju Jón- asdóttur hrl. ekki á óvart. Í SAMTALI við Morgunblaðið sagðist Kjartan vera afar ánægð- ur með málalok- in. „Ég bjóst við þessari nið- urstöðu og hún var í samræmi við það sem við höfðum reiknað með. Það var bú- ið að kveða upp dóm sem var mjög skýr. Ég er afar ánægður með þessa niðurstöðu enda er tekið und- ir öll okkar sjónarmið. Þetta er fullnaðarsigur, ætli það sé ekki rétt að orða það þannig,“ sagði hann. Með því að yfirdeildin hafnaði að taka málið fyrir er lokið baráttu sem tekið hefur rúmlega tíu ár. Að- spurður hvernig það sé að standa í svo löngum málaferlum við ríkið sagði Kjartan að það væri í lagi ef málstaðurinn væri góður og lög- maðurinn fær. Sagði hann að lög- maður sinn, Lilja Jónasdóttir hrl., ætti allan heiðurinn af þessum málalokum. „Hún á allan heiðurinn af þessu hún Lilja, ég lagði bara til þverhausinn í þetta,“ sagði Kjartan Ásmundsson. „Lagði bara til þverhausinn“ Kjartan Ásmundsson SKORAÐ hefur verið á Ágúst Ólaf Ágústsson, alþingismann Samfylk- ingarinnar, af framkvæmdastjórn Ungra jafnaðar- manna, að gefa kost á sér sem varaformaður flokksins á lands- fundinum í næsta mánuði. Ágúst Ólafur segist vera þakk- látur fyrir þann stuðning sem þarna kemur fram og hann meti hann mikils. Hann kveðst hins vegar ekki hafa tekið ákvörðun um hvort hann verð- ur við áskoruninni og býður sig fram. Ætlar hann að hugsa sinn gang á næstunni en segist gera ráð fyrir að taka ákvörðun af eða á fljótlega. Í áskorun ungra jafnaðarmanna segir að ungir jafnaðarmenn telji að Ágúst Ólafur Ágústsson hafi sýnt með frammistöðu sinni á Alþingi að þar fari þroskaður stjórnmálamaður með mikið erindi inn á vettvang stjórnmálanna. Ágúst Ólafur hafi þrátt fyrir ungan aldur gegnt ýms- um trúnaðarstörfum innan flokksins og sé annálaður fyrir dugnað og af- bragðs samstarfshæfileika. Fengur yrði að slíkum manni í embætti vara- formanns sem meðal annars ber ábyrgð á innra starfinu í flokknum. Segjast Ungir jafnaðarmenn vona að Ágúst Ólafur svari kalli þeirra fjölmörgu sem vilja sjá hann bjóða sig fram á landsfundinum. Það sé kominn tími á nýja kynslóð í íslensk- um stjórnmálum. Eðlilegt að ungt fólk sé í forystusveitinni „Ég get alveg tekið undir það að forysta Samfylkingarinnar þurfi að hafa breiða skírskotun. Það má ekki gleyma því að meira en helmingur allra kjósenda er undir 35 ára aldri og það er því eðlilegt að ungt fólk sé þarna í forystusveit,“ segir Ágúst Ólafur. Spurður hvort formannskosningin á landsfundinum hafi einhver áhrif á mögulega ákvörðun hans um að bjóða sig fram til varaformanns seg- ir Ágúst Ólafur svo ekki vera. Hann muni taka sína ákvörðun á eigin for- sendum. Skorað á Ágúst Ólaf að gefa kost á sér til varaformennsku Ætlar að hugsa sinn gang Ágúst Ólafur Ágústsson Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.