Morgunblaðið - 13.04.2005, Side 10
10 MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
HÉÐINSFJARÐARGÖNGIN eru
ein sú vitlausasta framkvæmd sem
ég hef heyrt um í langan tíma,
sagði Gunnar Birgisson, þingmaður
Sjálfstæðisflokks í Suðvesturkjör-
dæmi, í umræðum um tillögu sam-
gönguráðherra að samgönguáætlun
fyrir árin 2005 til 2008 á Alþingi í
gær.
Sturla Böðvarsson mælti fyrir til-
lögunni í upphafi þingfundar og
stóðu umræður um hana yfir í allan
gærdag og fram á kvöld. Í tillög-
unni er m.a. gert ráð fyrir því að
Héðinsfjarðargöng verði boðin út
síðar á þessu ári. Áætlað er að þau
kosti um sex milljarða. Samtals
gerir tillagan ráð fyrir því að tæp-
um sextíu milljörðum króna verði
varið til vegamála á næstu fjórum
árum.
Stjórnarþingmennirnir Gunnar
Birgisson, Sjálfstæðisflokki, og
Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður
Framsóknarflokks í Norðvestur-
kjördæmi, gagnrýndu ýmsa en þó
ólíka þætti áætlunarinnar harðlega.
Gunnar sagðist fagna þeim fjár-
munum sem verið væri að setja í
vegamál. Þeim fjármunum væri á
hinn bóginn misskipt milli lands-
byggðar og höfuðborgarsvæðisins.
Kristinn gagnrýndi hins vegar þau
áform að fresta framkvæmdum í
vegagerð á næstu árum. Hann
sagði að það gengi ekki lengur að
ríkisstjórnin lofaði framkvæmdum
fyrir kosningar en skæri þau loforð
niður eftir kosningar. Beindi hann
því til ríkisstjórnarinnar að hætta
slíkum skollaleik.
Ekki eftir flokkslínum
Þingmenn stjórnarandstöðunnar
átöldu einnig ýmis atriði í sam-
gönguáætluninni. Meðal annars
gagnrýndu þeir harðlega frestun
vegaframkvæmda. Björgvin G. Sig-
urðsson, þingmaður Samfylkingar-
innar, sagði m.a. að skv. áætluninni
væri ekki gert ráð fyrir því að hægt
yrði að ljúka við Suðurstrandarveg.
Sturla Böðvarsson svaraði því hins
vegar til að þingmaðurinn yrði að
hafa kjark til að gera upp á milli
verka. „Það er mat okkar,“ sagði
ráðherra, „að það sé mikilvægara
við þessar aðstæður að framkvæma
endurbætur á Hellisheiðinni og
ljúka tvöföldun Reykjanesbrautar
en að ljúka Suðurstrandarvegi.“
Steingrímur J. Sigfússon, for-
maður Vinstrihreyfingarinnar –
græns framboðs, sagði að auðvitað
væri „sá mikli niðurskurður eða
frestun [...] á framkvæmdum, eink-
um og sér í lagi til vegamála, á
þriggja ára tímabili, ákaflega til-
finnanlegur“. Og Guðjón A. Krist-
jánsson, formaður Frjálslynda
flokksins, sagði m.a. að ríkisstjórnin
hefði skorið niður í vegafram-
kvæmdum í kjördæmum, þar sem
sáralítið annað væri um að vera. Til
að mynda í Norðvesturkjördæmi og
Norðausturkjördæmi.Tekist var á
um fleiri atriði í samgöngumálum á
Alþingi í gær, s.s. um staðsetningu
Reykjavíkurflugvallar. Guðlaugur
Þór Þórðarson, þingmaður Sjálf-
stæðisflokks í Reykjavíkurkjör-
dæmi norður, talað t.d. fyrir því að
völlurinn yrði færður til Keflavíkur
en Arnbjörg Sveinsdóttir, þingmað-
ur Sjálfstæðisflokks í Norðaustur-
kjördæmi, taldi það ekki koma til
greina. Þannig fóru sjónarmið þing-
manna í umræðunum í gær fremur
eftir kjördæmum en flokkum. Var
tilhneigingin reyndar sú að þing-
menn teldu ekki nóg að gert í sam-
göngumálum í sínum eigin kjör-
dæmum. Eins og áður sagði
gagnrýndi Gunnar Birgisson skipt-
ingu fjármuna milli landsbyggðar-
innar og höfuðborgarsvæðisins í
vegamálum. Hann kvaðst hafa tekið
saman upplýsingar um fyrirhugað-
ar nýframkvæmdir í vegamálum á
næstu fjórum árum og skiptingu
þeirra milli landsbyggðarinnar og
höfuðborgarsvæðisins skv. áætlun-
inni. Niðurstaðan væri eftirfarandi:
„Í Suðurkjördæmi fara 4,2 millj-
arðar [í nýframkvæmdir] plús brýr
og fleira á þessum fjórum árum.
Þar búa 40 þúsund manns. Í Norð-
vesturkjördæmi, í kjördæmi ráð-
herrans, fara 6,5 milljarðar [í ný-
framkvæmdir], plús eitthvað annað.
Þar búa 30 þúsund manns. Í Norð-
austurkjördæmi búa 40 þúsund
manns, eða tæplega það. Þar fara
tíu milljarðar [í nýframkvæmdir]
með þessari vitlausu framkvæmd,
Héðinsfjarðargöngum.“ Bætti hann
því við að á sama tíma færu 6,6
milljarðar í nýframkvæmdir á höf-
uðborgarsvæðinu, en þar byggju
milli 180 til 190 þúsund manns.
Gunnar sagði að þessi skipting milli
landsbyggðar og höfuðborgarsvæð-
isins væri með ólíkindum og að
hann myndi aldrei leggja blessun
sína yfir hana.
Fjöldi þingmanna tók þátt í löngum umræðum um samgönguáætlun fyrir næstu fjögur árin
Þingmenn telja ekki
nóg að gert í sínum
eigin kjördæmum
Eftir Örnu Schram
arna@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Gunnar Birgisson ræðir málin við Björgvin G. Sigurðsson. Í forgrunni eru Jóhann Ársælsson og Guðmundur Hallvarðsson.
ÞINGFUNDUR hefst kl. 13. í
dag með umræðu utan dag-
skrár um stöðu íslenska kaup-
skipaflotans. Guðmundur Hall-
varðsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokks er málshefj-
andi umræðunnar. Geir H.
Haarde fjármálaráðherra verð-
ur til andsvara. Að því búnu
verða fyrirspurnir til ráðherra.
NOKKRAR umræður urðu í upphafi þingfundar
á Alþingi í gær um fyrirspurn, sem Helgi Hjörv-
ar, Samfylkingu, vill leggja fram á Alþingi og
beina til forsætisráðherra, Halldórs Ásgríms-
sonar. „[Spurningin] er á þá leið hvort forsætis-
ráðherra hyggist gera Alþingi grein fyrir hags-
munatengslum sínum, fjárhagslegum
samskiptum og flokks síns við væntanlega bjóð-
endur í hlutabréf ríkissjóðs í Landssímanum hf.,“
upplýsti Helgi Hjörvar, sem jafnframt var máls-
hefjandi umræðunnar. Sagði hann að forseti
þingsins, Halldór Blöndal, hefði neitað sér um að
leggja fram fyrirspurnina til forsætisráðherra, á
þeirri forsendu m.a. að þetta væri ekki opinbert
málefni.
Halldór Blöndal svaraði því til, eftir at-
hugasemdir Helga, að fyrirspurnin samræmdist
ekki eftirfarandi ákvæði í 49. gr. þingskapa. „Óski
alþingismaður upplýsinga ráðherra eða svars um
opinbert málefni eða einstakt atriði þess gerir
hann það með fyrirspurn er afhent skal forseta.
Fyrirspurn skal vera skýr, um afmörkuð atriði og
mál sem ráðherra ber ábyrgð á og sé við það mið-
að að hægt sé að svara henni í stuttu máli.“ Hall-
dór sagði að það lægi ekki fyrir hverjir byðu í
Símann og þar af leiðandi kæmi fyrirspurnin
fram á undarlegum tíma. Þá væri öldungis ljóst
að hún samræmdist ekki fyrrgreindu ákvæði
þingskapa.
Vill að ráðherra hreinsi andrúmsloftið
Helgi sagði hins vegar að einkavæðing Símans
væri opinbert málefni og að framkvæmd þeirrar
einkavæðingar væri á ábyrgð forsætisráðherra.
Gagnsæi þyrfti að ríkja um þá framkvæmd. „Hér
hafa ekki bara á Alþingi heldur úti í samfélaginu
hjá málsmetandi fólki, nú síðast Agnesi Braga-
dóttur, landskunnri blaðakonu, risið upp efa-
semdir um að vel sé að þessu staðið. Ég vildi gefa
hæstvirtum forsætisráðherra tækifæri til að
hreinsa andrúmsloftið og gefa út um það yfirlýs-
ingu að hér yrði allt uppi á borðinu vegna þess að í
skugga leyndarinnar þrífst spillingin best.“
Halldór Ásgrímsson blandaði sér í umræðuna
og sagði að það væri orðin föst regla hjá Samfylk-
ingunni að reyna að beina athygli fjölmiðla að
öðrum málum, þegar upp kæmu óvægin inn-
anflokksátök innan hennar. Hann sagði alveg
ljóst að Framsóknarflokkurinn hefði engin hags-
munatengsl við fyrirtækið og að hann ætti ekki
hlutabréf í neinu fyrirtæki. „Hins vegar vill svo til
að framsóknarmenn vinna í ýmsum fyrirtækjum í
landinu og ég vænti þess að hið sama eigi við um
flokksmenn úr öðrum flokkum.“
Hann bætti því við að hér væri enn ein gróu-
sagan frá Samfylkingunni borin inn á Alþingi.
„Ég tek ekki þátt í því,“ sagði hann. „Meðal ann-
ars gengur sú gróusaga í þjóðfélaginu að það séu
sterk hagsmunatengsl milli Samfylkingarinnar
og fyrirtækisins Baugs. Ég trúi því ekki enda hef-
ur engum þingmanni Framsóknarflokksins dottið
í hug að taka það upp á Alþingi.“
Hann ítrekaði að Síminn hefði verið auglýstur
til sölu og að engin tilboð hefðu borist. „Ég er hins
vegar viss um að margir lífeyrissjóðir munu taka
þátt. Það er áhugi fyrir því að stofna sérstakt fyr-
irtæki almennings til að bjóða í Símann. Ég vona
að það verði að veruleika og það munu áreið-
anlega koma mörg tilboð.“
Harðar umræður um fyrir-
spurn til forsætisráðherra
ER NEFIÐ STÍFLAÐ?
Fæst í apótekum
og lyfjaverslunum
STERIMAR
Skemmir ekki slímhimnu
er náttúrulegur
nefúði sem losar stíflur
og léttir öndun.
Fyrir 0-99 ára.
Skólavörðustíg 21, Reykjavík
sími 551 4050
Glæsileg
brúðarrúmföt
í úrvali