Morgunblaðið - 13.04.2005, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 13.04.2005, Qupperneq 16
Akureyri | Þó ekki hafi þær ver- ið háar í loftinu, stúlkurnar sem öttu kappi á lokamóti 6. flokks kvenna var hart barist og greini- legt að margar þeirra bjuggu yf- ir ríkulegu keppnisskapi. Það voru „vinafélögin“ KA og Þór sem sameiginlega stóðu að mótinu og fór vel út hendi. Segja má að Fylkisstúlkur úr Árbæn- um í Reykjavík hafi gert góða ferð norður yfir heiðar, þær unnu til verðlauna í A-, B-, og C- flokki og fóru því hlaðnar verð- launapeningum heim. Morgunblaðið/Kristján Sigursælar Fylkisstúlkur Kappleikur Höfuðborgin | Suðurnes | Landið | Akureyri Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Fjölnota íþróttahús | Bæjarstjórn Akra- ness hefur samþykkt að ganga til samninga við Sveinbjörn Sigurðsson ehf. um bygg- ingu fjölnota íþróttahúss á Jaðarsbökkum. Gert verði ráð fyrir tilboði fyrirtækisins í óeinangrað og óupphitað hús með þeirri breytingu að burðarvirki verði öflugra líkt og fram kemur í frávikstilboði fyrirtæk- isins, enda má þannig síðar einangra húsið og hita það. Þá var samþykkt að gera ráð fyrir Ligoturf gervigrasi frá Polytan. Bæj- arstjóra var falið að ganga til samninga á ofangreindum forsendum og undirbúa stofnun framkvæmdasjóðs íþróttamann- virkja og félags sem myndi eiga og reka húsið.    Úr bæjarlífinu HÉÐAN OG ÞAÐAN Nonni í Die Zeit | Þýskur blaðamaður, Ulrich Greiner, var á ferð hér á landi fyrir skömmu ásamt fleiri blaðamönnum í tengslum við Food and Fun-hátíðina en hann er menning- arritstjóri Die Zeit. Hafði hann í æsku lesið Nonnabæk- urnar og heillast af landi og þjóð í kjöl- farið. Hann brá sér því norður til Ak- ureyrar á æskuslóðir Nonna. Ulrich heim- sótti Nonnahús og hitti þar konur úr Zonta- klúbbi Akureyrar sem reka safnið. Hann gekk síðan um Nonnaslóð í fylgd safnvarð- ar og heimsótti prestshjónin á Möðruvöll- um í Hörgárdal, en þar fæddist Nonni fyrir hartnær 150 árum. Nú fyrir nokkru birtist síðan löng grein í Die Zeit þar sem Ulrich fjallar um Nonna og heimkynni hans. Þrátt fyrir að 92 ár séu liðin frá því að fyrsta Nonnabókin kom út í Þýskalandi heldur Nonni áfram að kynna landið sitt og laða hingað fólk sem heillast hefur af landinu við lestur bókanna.    Bifhjólanámskeið | Almenni ökuskólinn ehf. ætlar að halda bifhjólanámskeið á Pat- reksfirði í byrjun maí en slíkt námskeið hef- ur ekki verið haldið í sveitarfélaginu í tutt- ugu ár. Námskeiðið skiptist í bóklegt og verklegt nám og verða þrjú svokölluð Chopper-hjól af stærðinni 250–800 kúbik notuð til verklegu kennslunnar. Að því er fram kemur á fréttavefnum Tíðis eru nokkrir nú þegar búnir að skrá sig og ef áhugi er fyrir hendi er möguleiki á að halda skellinöðrunámskeið samhliða. Málþing um íslensk-an fjölmiðla-markað á tíma- mótum verður haldið í Háskólanum á Akureyri, í dag, miðvikudag, í stofu L201 á Sólborg. Félags- vísindadeild Háskólans á Akureyri stendur fyrir ráð- stefnunni sem hefst kl. 12.10. „Sjaldan eða aldrei hafa málefni fjölmiðlanna verið í eins mikilli deiglu og einmitt nú,“ segir í tilkynn- ingu um málþingið. Miklar breytingar hafa orðið á stuttum tíma á stöðu og starfsumhverfi fjölmiðla og enn meiri breytingar eru rétt handan við hornið. Á málþinginu munu nokkrir helstu forustu- menn á íslenskum fjöl- miðlamarkaði reifa hug- myndir sínar og framtíðarsýn um stöðu ís- lenskra fjölmiðla. Fjölmiðlar Þrátt fyrir hríðarmuggu og vindsperring héldu 18ungir menn í félagsskapnum RT 5 á Akureyrisínu striki og flugu í óvissuferð út í nyrstu byggð, Grímsey. Hjálmar Hauksson, formaður RT 5, sagði að í þetta sinn hefðu þeir félagar ráðist í veglega ferð þar sem verið væri að kveðja þrjá góða Round Table-félaga. Það var Krían, veitingahúsið hér í Grímsey, sem hafði veg og vanda af móttöku RT 5. Það mátti sjá að ein- kunnarorðin að hafa það gaman væru í toppi, þar sem þeir félagar nutu grímseysks matar eftir skemmtilega göngu um Grímsey með viðkomu á heimskautsbaug. Morgunblaðið/Helga Mattína Óvissuferð Mikill vorhugur erí Akureyr-ingum, þó að kalsalegt sé um að litast, því víða er fáni dreginn að húni til heiðurs for- setahjónunum. Stefán Vil- hjálmsson notar auðvitað danskt viðhafnarmál, eins og tíðkaðist á tyllidögum á Akureyri hér áður fyrr, er hann lítur út í garð: Allt er hér bundið ís og snjó, ummerki vorsins ei lengur ég sé, en íslenska fánann má þekkja þó á Þórunnarstræti et hundred og tre. Davíð Hjálmar Haralds- son er líka búsettur á Ak- ureyri og yrkir: Nú lykill og laukur er sprottinn og lilja með blómaugu skær en fegurst og farsælust, Drottinn, er forsetaheimsóknin kær. Helga Frímannsdóttir, eiginkona Stefáns, heils- aði upp á forsetahjónin með skjólstæðingum sín- um á Dvalarheimilinu Hlíð. Stefán orti: Heilla ég þeim hjónum bið, af hjarta Davíð fagnar og konan hefur komið við kappann Ólaf Ragnar. Af forsetahjónum pebl@mbl.is Hólmavík | Fjölskyldan á Stað í Stein- grímsfirði sópaði að sér verðlaunum fyrir Strandamenn í Skíðastaðagöngunni sem fram fór í Meyjarskarði í Reykjaheiði í ná- grenni Húsavíkur um helgina. Gangan var önnur gangan í Íslandsgöngumótaröðinni. Sigvaldi Magnússon sigraði í 20 km göngu og var meðal annars þremur og hálfri mínútu á undan fimmföldum Íslands- meistara frá síðasta landsmóti, Jakobi E. Jakobssyni. Með sigrinum náði Sigvaldi forustu í stigakeppninni um Íslandsbikar- inn, en tvær göngur eru eftir í mótaröðinni; Strandagangan 16. apríl og Fossavatns- gangan 30. apríl. Faðir Sigvalda, Magnús Steingrímsson, varð í þriðja sæti í sínum aldursflokki. Mæðgurnar Guðrún Magnúsdóttir og Marta Sigvaldadóttir, systir Sigvalda og móðir hans, gengu einnig 20 km og urðu í fyrsta og öðru sæti. Áðurnefnd fjölskylda, sem er frá bænum Stað í Steingrímsfirði, hélt einnig uppi heiðri Strandamanna í stigakeppni héraða þar sem samanlagður fjöldi genginna kíló- metra gildir til stiga. Strandamenn eru þar í öðru sæti, fast á hæla Ísfirðinga. Fjölskylda heldur uppi heiðri Stranda- manna Eyjafjarðarsveit | Ábúendur í Holtseli í Eyjafjarðarsveit, Guðmundur Jón Guð- mundsson og Guðrún Eyjólfsdóttir, hafa sótt um leyfi til Umhverfisstofnunar til að koma sér upp ísgerð á bænum. Hafa þau farið til Hollands í því skyni að skoða ísgerðarvél, en um er að ræða eina sérstaka tegund að því er fram kemur í Bændablaðinu. Hún er einkaleyfisvernduð, en um tvö þúsund bændur í Evrópu fram- leiða ís undir merkinu Farmhouse ice- cream og er ákveðinn fjöldi véla leyfður á hverju svæði. Tvær slíkar vélar yrðu leyfð- ar á Íslandi samkvæmt reglum. Ísgerðar- vélin afkastar um 300 lítrum af ís á dag og ef af verður munu Holtselsbændur taka eigin mjólk til framleiðslunnar, enda fyrst og fremst um heimilisframleiðslu að ræða. Með vélinni er hægt að fá aðgang að 400 ís- uppskriftum. Sækja um leyfi til ísgerðar ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.