Morgunblaðið - 13.04.2005, Page 21

Morgunblaðið - 13.04.2005, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2005 21 DAGLEGT LÍF VERÐ á fatnaði hefur farið lækkandi á síðustu árum og margir sérfræðingar telja að það muni lækka enn frekar. Líklegt sé að lágvöruverðs- verslunum með fatnað fjölgi en að neytendur muni jafnframt huga frekar að gæðum og upp- runa fatnaðarins þegar kemur að því að velja, að því er m.a. kemur fram á vef Aftenposten. Fram kemur að neytendur séu í ríkari mæli meðvitaðir um hvar og hvernig fatnaður er bú- inn til og úr hvernig efni hann er. Þrýst er á fataframleiðendur að standast umhverfisstaðla og búa vel að starfsfólki sem býr fötin til. Skv. danskri greiningarstofu, PEJ, er líklegt að fatn- aður verði í auknum mæli til sölu í mat- vöruverslunum á næstu árum og þær taki þar með stærri hluta af fatamarkaðnum. Í Dan- mörku eru 50% barnafatnaðar og 35% kven- fatnaðar seld utan venjulegra fataverslana. PEJ telur að lágvöruverðsverslunum með fatn- að fjölgi á næstunni. Slíkar verslanir sem eru blanda af lagersölu og fataverslun hafa notið velgengni þrátt fyrir lágt þjónustustig og jafn- vel óaðlaðandi húsnæði. Lágt verð virðist skipta meira máli. Ingun Grimstad Klepp starfar við neytenda- rannsóknir og hún segir í samtali við Aftenpost- en að erfitt sé að útskýra hví fólk í Noregi, þar sem velmegun er mikil, kaupi ódýran fatnað sem jafnframt er ekki vandaður. „Það getur verið auðveldara að réttlæta kaup á fötum sem passa kannski ekki alveg með því að þau hafi verið svo ódýr,“ segir hún og bætir við að oft sé samhengi á milli þess að kaupa ódýrt og gera lé- leg kaup. Grimstad Klepp bendir á að það er óumhverfisvænt að fjöldaframleiða og dreifa fatnaði. Þrýstingur á að bjóða lágt verð geri það líka að verkum að margir fataframleiðendur hugsi ekki um vinnuvernd.  NEYTENDUR Líklegt að lágvöru- verðsverslunum með fatnað fjölgi Morgunblaðið/ÞÖK Talið er sennilegt að fatnaður verði í auknum mæli til sölu í matvöruverslunum á næstu árum og þær búðir taki þar með stærri hluta af fatamarkaðnum. MENNT er máttur, segir mál- tækið, og nemendur Kossaskól- ans í Seattle í Bandaríkjunum taka sannarlega undir það ef marka má umsagnir þeirra á heimasíðu skólans kissingschool.- com. Þar lýsir hluti af þeim hundruðum para sem sótt hafa skólann undanfarin ár hvernig það að læra að kyssa í þar til gerðum skóla hefur auðgað líf þeirra og fært þau nær hvort öðru. „Það er ekkert verra en stein- dauður koss sem felur ekkert í sér nema skyldurækni,“ brýnir Cherie Byrd, stofnandi og að- alleiðbeinandi skólans, fyrir nem- endum sínum og bætir því við að slíkir kossar leiði af sér fjarlægð og stigvaxandi gremju í sam- böndum. En slíku er hægt að kippa í liðinn, segir Byrd og vill meina að hægt sé að kenna pör- um hvernig eigi að kyssa vel og innilega þannig að þau finni til aukinnar nándar og heitari ástar. Jafnvel fyrir platónska vini Öll pör eru velkomin í Kossaskól- ann, hvort sem um er að ræða hjón til áratuga eða glæný kær- ustupör. Þar sitja gagnkyn- hneigðir og samkynhneigðir við sama borð og er jafnvel mælt með því að platónskir vinir sæki svona nám- skeið saman enda sé þetta „yndisleg hug- mynd fyrir vini sem vilja gera eitthvað eftirminnilegt saman, og deila með sér kær- leika og góðum tilfinningum“ eins og Byrd orðar það. En þarf virkilega að kenna fólki að kyssa? „Svo sannarlega,“ segir hún og bætir því við að þó flestir geti kysst þá skorti mjög marga það næmi, þá dýpt, nánd og ástríðu sem athöfnin bjóði upp á sé hún framkvæmd eftir kúnstarinnar reglum. Hún segir rangt að álykta að það að kyssa sé eitthvað sem lærist af sjálfu sér, því eins og með alla aðra færni, hvort sem um er að ræða í íþróttum eða eldhúsinu, þá snúist þetta um að tileinka sér ákveðna list og til þess þurfi bæði leiðbeiningar og þjálfun.  SKONDIÐ Kenndu mér að kyssa rétt Reuters Hjónin Gary Getz og Lorrie Clemens, frá Palo Alto í Kali- forníu, eru meðal þeirra sem hafa sótt Kossaskólann með góðum árangri. Hér sjást þau við heimalærdóminn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.