Morgunblaðið - 13.04.2005, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. APRÍL 2005 25
UMRÆÐAN
IÐNAÐARRÁÐHERRA fer nú
um héruð með áltrúboðið sitt.
Margur hélt að ráðherrann myndi
hafa hægt um sig þangað til sést
fyrir endann á framkvæmdunum
fyrir austan. Þar eiga sér nú stað
ein mestu náttúruspjöll Íslands-
sögunnar af manna völdum, gíf-
urleg félagsleg undirboð á vinnu-
markaði með ófyrirsjáanlegum
afleiðingum og langt í land að
þessar framkvæmdir komist í höfn.
Þeim fjölgar nú ört sem draga í
efa að álversframkvæmdirnar á
Austurlandi standi undir þeim
væntingum sem heimamönnum var
talin trú um þegar farið var af stað
með hervirkin.
Nú eru Norðlendingar spurðir
hvort þeir séu ekki til í að fórna
náttúruperlum sínum, jökulvötnum
og fossum fyrir álver í sinni heima-
byggð eða hjá nágrönnunum.
Nota á sömu aðferð gagnvart
Norðlendingum og gert var við
Austfirðinga: annaðhvort segið þið
já við álveri eða fáið ekki neitt. En
skoðanakönnun álráðherrans stað-
festir að Norðlendingum hugnast
engan veginn stórvirk óafturkræf
náttúruspjöll og álbræðslur.
Hvað um aðra valkosti?
Hvers vegna spurði ráðherrann
ekki um það sem brennur á íbúun-
um í dag:
„Ertu ánægður eða óánægður
með að fá að borga margfalt meira
fyrir rafmagnið eftir að það var
markaðsvætt?“
„Ertu reiðubúinn að borga tvö-
falt eða þrefalt hærra raforkuverð
til að greiða niður rafmagn til er-
lendrar stóriðju?“
„Hvort viltu heldur milljarð frá
ríkinu til uppbyggingar náttúru-
og menningartengdrar ferðaþjón-
ustu eða til stórvirkjana og ál-
vers?“
Það ætti að vera öllum ljóst að
slíkt fer ekki saman.
Ef litið er til Skagafjarðar er
ljóst að sókn og ímynd Hólaskóla
og héraðsins alls jafnt á innlendum
sem erlendum vettvangi á sviði
vistfræði, náttúru- og menning-
artengdrar ferðaþjónustu fer eng-
an veginn saman við stórvirk nátt-
úruspjöll og mengandi orkufreka
stóriðju. Nútíma hátækniiðnaður,
matvælaframleiðsla, markaðs-
setning á fegurð og reisn íslenska
hestsins, allt byggist þetta á ímynd
hreinnar náttúru landsins.
Framtíð Skagafjarðar og Norð-
urlands alls liggur í allt öðru en
úreltum hugmyndum um stóriðju
og umhverfisspjöll.
„Í takt við nýja tíma“
Í forystugrein Morgunblaðsins
8. apríl sl. er fjallað um skoð-
anakönnun iðnaðarráðuneytisins
og þá staðreynd að Norðlendingar
eru alls ekki reiðubúnir að fórna
náttúruperlum sínum og samfélagi
á altari erlendrar orkufrekrar
stóriðju. Og Skagfirðingar eru þar
sýnu andvígastir.
Látum leiðarahöfund Morg-
unblaðsins hafa orðið:
„Þessar niðurstöður hljóta að
vekja helstu formælendur stór-
iðjuframkvæmda til umhugsunar.
Ljóst virðist að stór hluti Norð-
lendinga líti frekar til annarra
kosta en stóriðju hvað varðar upp-
byggingu og þróun atvinnulífs í
landsfjórðungnum. Enda liggur
fyrir að stóriðja skapar fremur
einhæf störf og raunar til þessa
nær eingöngu fyrir annað kynið,
þótt hjá Reyðaráli séu nú uppi
metnaðarfull áform um jafnt
kynjahlutfall í störfum hjá nýju ál-
veri.
Margir hafa áhyggjur af að hin
nýju störf vegi ekki upp á móti
þeim miklu og oft óendurkræfu
umhverfisáhrifum sem stóriðja og
tilheyrandi ráðstafanir til raf-
orkuöflunar óneitanlega valda. Þá
benda talsmenn annarra atvinnu-
greina á hættuna á neikvæðum
áhrifum stóriðju og virkjana á
uppbyggingu annarra atvinnu-
greina á viðkomandi svæði ekki
síst ferðaþjónustu.
Niðurstöður þeirra kannana sem
gerðar hafa verið fyrir iðn-
aðarráðuneytið benda því ekki til
neinnar samstöðu á Norðurlandi
um stóriðjuframkvæmdir.
Niðurstöðurnar hljóta að vera
hvatning þeim sem vilja kanna
vandlega aðra atvinnukosti sem
væru meira í takt við nýja tíma
upplýsingasamfélags og hátækni-
iðnaðar.“ (Leturbr. J.B). Jón
Bjarnason
Vinstri – grænir sammála
Morgunblaðinu
Við í Vinstrihreyfingunni –
grænu framboði tökum heils hugar
undir þessi orð Morgunblaðsins.
Okkar tillögur í atvinnumálum lúta
í sama farveg.
Það væri óskandi að iðn-
aðarráðherra hætti áltrúboði sínu
og taki höndum saman við meg-
inþorra Skagfirðinga og annarra
Norðlendinga við að kanna aðra
atvinnukosti í takt við nýja tíma.
Ef ráðherra og aðrir stór-
iðjutrúboðar keyra áfram úrelta
ríkisrekna atvinnustefnu í formi ál-
vera og stórvirkjana er verið að
efna til grimmilegra átaka í fjórð-
ungnum og ljóst er að Skagfirð-
ingar munu aldrei fórna sínum
dýrustu perlum, Jökulánum og
Héraðsvötnum, baráttulaust.
Norðlendingar hafna álverum
Jón Bjarnason fjallar
um stóriðju
’Það væri óskandi aðiðnaðarráðherra hætti
áltrúboði sínu og tæki
höndum saman við meg-
inþorra Skagfirðinga og
annarra Norðlendinga
við að kanna aðra at-
vinnukosti í takt við
nýja tíma. ‘
Jón Bjarnason
Höfundur er alþingismaður
VG í Norðvesturkjördæmi.
Fyrirtækjatölvur með lága bilanatíðni og aukið öryggi
������� ��� � ���������� �� � ��� ��������� � ���� ��� ���� � ��������������
IBM ThinkCentre borðtölvur eru hannaðar með endingu og áreiðanleika að
leiðarljósi, og er um ræða tölvur sem búa ávallt yfir nýjustu tækni.
ThinkVantage tæknin er grunnurinn á bak við hönnun tölva frá IBM þar
sem lágur rekstrarkostnaður, lág bilanatíðni, einföld umsýsla og öryggi eru
í fyrirrúmi.
Gartner Group valdi IBM PC tölvur sem fyrstu þrjá valkosti fyrir fyrirtæki
þegar búið var að meta vöru, verð, þjónustu, hagkvæmni og framtíðarsýn
framleiðanda*.
Með kaupum á tölvum frá IBM eru fyrirtæki því að tryggja sér forystu í
samkeppni.
IBM borðtölvur í
fremstu röð hjá Gartner
IBM ThinkCentre A50 - Ultra Small Form Factor
Minnsta borðtölvan frá IBM
Pentium 4 3,0Ghz örgjörvi, 533MHz gagnabraut.
256MB PC 2700 vinnsluminni.
40GB harður diskur.
CD drif í Ultrabay Enhanced stæði.
10/100/1000 netkort.
Intel Extreme Graphics II skjákort.
Windows XP Pro.
Þriggja ára ábyrgð
Vörunúmer: VZF75IL.
Verð: 69.900 kr.
(Skjár ekki innifalinn í verði)
IBM ThinkCentre A51p turn
Öflug vél fyrir þá sem þurfa meiri afköst
Pentium 4 530 örgjörvi, 800MHz gagnabraut.
256MB DDR2 PC3200 vinnsluminni.
40GB Serial-ATA harður diskur.
Intel Graphics Media Accelerator 900 skjákort.
DVD drif.
10/100/1000 netkort.
Windows XP Pro.
Þriggja ára ábyrgð.
Vörunúmer: VLD71IL.
Verð: 79.900 kr.
(Skjár ekki innifalinn í verði)
IBM ThinkVision 17” flatur skjár
Hagkvæmur og vandaður skrifstofuskjár
Upplausn 1280x1024 punktar.
Birtumagn 300cd/m2.
Skerpa 450:1.
Svartími 16ms.
Þriggja ára ábyrgð.
Vörunúmer: T34N9EU.
Verð: 29.900 kr.
*Gartner Group (PCD0503), mars 2005
IBM ThinkCentre A51 - Small Form Factor
Nett borðtölva á skrifstofuna
Pentium 4 530 örgjörvi, 800MHz gagnabraut.
256MB PC2700 vinnsluminni.
Intel Graphics Media Accelerator 900 skjákort.
40GB Serial-ATA harður diskur.
DVD drif.
10/100/1000 netkort.
Windows XP Pro.
Þriggja ára ábyrgð.
Vörunúmer: VLE71IL.
Verð: 79.900 kr.
(Skjár ekki innifalinn í verði)
Hafðu samband við söluráðgjafa Nýherja sem veita þér faglega
ráðgjöf við val á réttu borðtölvunni.
Síminn er 569 7700 og netfangið er tolvulausnir@nyherji.is
Söluaðilar um land allt.
ThinkCentre borðtölvur