Morgunblaðið - 06.05.2005, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 06.05.2005, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. MAÍ 2005 51 DAGBÓK Rannsóknarsjóður Listasafns Háskóla Íslands auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum. Rannsóknarsjóður Listasafns Háskóla Íslands var stofnaður árið 1999 af Sverri Sigurðssyni. Hlutverk sjóðsins er að efla rannsóknir á íslenskri myndlist að fornu og nýju. Í því skyni skulu árlega veittir styrkir af ráðstöfunarfé sjóðsins til rannsókna á sviði íslenskrar myndlistar, myndlistarsögu og forvörslu myndverka svo og til birtingar á niðurstöðum slíkra rannsókna. Umsóknir berist fyrir föstudaginn 27. maí næstkomandi merktar: Listasafn Háskóla Íslands, Rannsóknarsjóður, Oddi, 101 Reykjavík. Nánari upplýsingar veitir Auður Ólafsdóttir í síma 525 4411. Úthlutað verður úr sjóðnum í júní 2005. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Félagsstarf Aflagrandi 40 | Bingó kl. 14 auka um- ferðir eftir sparikaffið kl.15 Allir vel- komnir alla daga að Aflagranda 40. Árskógar 4 | Bað kl. 8–14, handa- vinna kl. 9–12, smíði/útskurður kl. 13– 16.30. Dalbraut 18 – 20 | Kl. 9–11 kaffi og dagblöð, kl. 9–12 baðþjónusta, kl. 9– 16.45 hárgreiðslustofan opin, kl. 11.15– 12.15 matur, kl. 13.45–14.45 söng- stund, kl. 14.30–15.30 kaffi. Félag eldri borgara í Kópavogi | Fé- lagsvist er spiluð í kvöld kl 20.30 í Gjábakka. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Slökunarjóga og teygjur kl. 10.30 og kl. 11.30. Opið í Garðabergi frá kl. 12.30 til kl. 16.30. Félagsstarf Gerðubergs | Fjölbreytt dagskrá á vegum F.Á.Í.A., kl. 9 morg- unsöngur, kl. 9.30 hreyfing og heilsa, kl. 10 leiktæki í sal og fl, kl. 11 göngu- ferð um nágrennið, sem enda í Fella- og Hólakirkju þar sem boðin er hress- ing, kl. 13.30 danshátíð í Hólabrekku- skóla, kl. 14.30 pútt og fl., kl.15.30 sund og vatnsleikfimi í Breiðholts- laug. Félagsþjónustan Hraunbæ 105 | Kl. 9 almenn handavinna – bútasaumur, útskurður, hárgreiðsla og bað, kl. 10 fótaaðgerð, kl. 12 hádegismatur, kl. 14 bingó, kl. 15 kaffi. Furugerði 1 | Kl. 9, aðstoð við böðun, smíðar og útskurður, kl. 14.15 verður Aðalheiður Þorsteinsdóttir við píanó- ið, fram að kaffi. Hraunbær 105 | Bingóið fellur niður í dag vegna handverkssýningarinnar sem verður 8. og 9. maí. Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa – frjáls aðgangur, postulínsmálning. Böðun virka daga fyrir hádegi. Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er öll- um opið. Betri stofa og Listasmiðja kl. 9–16. Vorsýning dagana 20., 21., 22. maí. Upplýsingar í síma 568–3132. Norðurbrún 1, | Kl. 9 smíði og opin– hárgreiðslustofa, kl. 9–12 myndlist, kl. 10 boccia, kl. 14 leikfimi. Vesturgata 7 | Flóamarkaður verður föstudaginn 6. maí frá kl. 13–16. Kl. 9–16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir, kl. 9.15–14.30 hannyrðir, kl. 11.45– 12.45 hádegisverður, kl. 13.30 sungið við flygilinn við undirleik Sigurgeirs, kl. 14.30–16 dansað við lagaval Sig- urgeirs, pönnukökur með rjóma í kaffitímanum. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.45, leirmótun og hárgreiðsla kl. 9, morgunstund og fótaaðgerðir kl. 9.30 leikfimi kl. 10. Bingó kl. 13.30. Kirkjustarf Akureyrarkirkja | Aðalsafn- aðarfundur verður haldinn í safn- aðarheimilinu strax að lokinni guðs- þjónustu kl. 11. Venjuleg aðalfundarstörf, kosningar. Breiðholtskirkja | Foreldramorgunn kl. 10–12. Kaffi og létt spjall. Grafarvogskirkja | Barnamessuferð Grafarvogskirkju laugardaginn 7. maí. Lagt af stað frá Grafarvogskirkju og Borgarholtsskóla kl.10. Farið að Hraungerðiskirkju nálægt Selfossi, borðið upp á grillaðar pylsur og gos í félagsheimili sveitarinnar. Komið verður til baka kl. 14 Hallgrímskirkja | Starf með öldr- uðum alla þriðjudaga og föstudaga kl. 11 – 15. Súpa, leikfimi, kaffi og spjall. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Kirkja unga fólksins samkoma kl 20, bæna- stund kl. 19.30. www.filo.is. Verslunin Krónan TIL hamingju með að vera með lægra verð en Bónus, skv. könnun í Morgunblaðinu laugardaginn 30. apríl. Nú versla ég bara í Krónunni og segi skilið við Bónus, svo lengi sem þið keppið við lægra verðið. Þetta er svo sannarlega kaupauki hjá lítilmagnanum. Áfram Krónan! Ánægður kaupandi. Um hátíðis- og almenna frídaga SÚ SPURNING hefur lengi verið í huga mínum hvers vegna vinnandi fólki er ekki veittur aukalegur frí- dagur þegar frídaga, samkvæmt fyrirfram ákveðnu dagatali, ber upp á laugardaga eða sunnudaga, sbr. 1. maí núna og einnig mundi 17. júní falla undir þessa skilgrein- ingu. Í augnablikinu man ég ekki eftir fleiri slíkum dögum. – Þetta er gert í allflestum nágrannalönd- um okkar og hef ég lengi beðið eft- ir forystu hinna vinnandi manna að gera úrbætur á þessu sviði og kröfu um að þetta verði tekið upp hér. Kona. Bílnúmeri stolið SUNNUDAGINN 1. maí á tíma- bilinu frá kl. 14 til 19 var bílnúm- erinu „KATLA 1“ stolið af bíl á bílastæðinu við Rauðavatn fyrir of- an Reykjavík. Númerið var rifið af ásamt festingum. Þeir sem geta gef- ið upplýsingar um málið eru beðnir um að snúa sér til Lögreglunnar í Reykjavík eða hringja í síma 561- 7550. Fundarlaun 10.000 kr. Týnd íþróttataska ÍÞRÓTTATASKA 11 ára sonar míns var tekin úr búningsklefa Laugardalslaugar sunnudaginn 1. maí milli kl. 13 og 16.30. Hann var þar á sundmóti og hafði skilið hana eftir ofan á fatakörfu sinni. Taskan er auðþekkjanleg, frekar stór, gul, ljósblá og grá. Hún er merkt „HAG- ER“ utan á. Finnandi er vinsamlega beðinn að skila henni í afgreiðsluna í Laugardalslaug eða hafa samband við mig með tölvupósti á aleks- @strik.is. Sigurður Sigurðarson. Áfram Margrét skólastýra! ÉG VIL koma á framfæri ánægju minni með þættina Allt í drasli sem sýndir hafa verið á Skjá einum að undanförnu. Heiðar stendur sig ágætlega en Margrét skólastýra er alveg frábær svo halda mætti að hún hefði að baki áratuga reynslu af vinnu í sjónvarpi. Í mínum huga er gildi þáttanna ekki fólgið í því að velta sér upp úr ástandi þeirra heimila sem heimsótt eru heldur þeim ráðleggingum sem Margrét gefur og mættu svo gjarnan vera fleiri. Helst mundi ég vilja sjá Mar- gréti stjórna þætti sem fjallaði um hagræðingu og vinnureglur á heim- ilum, hvernig betur megi stjórna þessum veltumiklu fyrirtækjum sem stærri og minni heimili eru í raun og veru. Fjölmiðlar keppast við að bjóða upp á efni um hvernig gera megi heimilin og matseldina glæsi- lega en það vantar eitthvað buddu- vænna fyrir okkur sem ekki viljum sökkva okkur í skuldasúpu. Olga P. Nóri er týndur NÓRI er ljósgrár síamsköttur, dökkbrönd- óttur á höfði, skotti og lopp- um, (blue tabby point) Hann hvarf frá Dalalandi 10 á þriðju- dagskvöldið 3. maí. Hann er tattóveraður í eyra, en á hálsól stendur að hann búi í Brekkubæ 15. Vinsamlegast kíkið í geymslur eða annars staðar þar sem hann gæti hafa lokast inni. Hans er sárt saknað. Uppl. í síma 866-2901 eða 847-4066. Velvakandi Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is EINLEIKUR Eddu Björgvins- dóttur Alveg brilljant skiln- aður hefur nú verið sýndur sl. tvo mánuði í Borgarleikhús- inu. Að sögn að- standenda hefur verið uppselt á allar sýningar fram að þessu og iðulega sýnt fimm til sex sinnum í viku sem er fágætt í leikhúsi hérlendis. Í dag verður þrítugasta sýningin á einleiknum og af því tilefni mun höfundur verksins, Geraldine Aron, koma í heimsókn til Íslands og verða viðstödd sýninguna. Gerald- ine Aron er írsk að uppruna hefur unnið til ótal verðlauna og við- Alveg brilljant skilnaður í þrítugasta sinn Edda Björgvinsdóttir urkenninga. Hún hefur m.a. skrif- að leikrit fyrir svið, sjónvarp og útvarp, auk kvik- myndahandrita, og verk hennar hafa verið þýdd á fjölmörg tungu- mál og nokkur þau helstu eru nú til sýningar í þremur álfum samtímis. Þórhildur Þorleifsdóttir færði verkið á svið og Gísli Rúnar Jóns- son þýddi og staðfærði. Uppselt er orðið á nær allar sýningar í maí, segja aðstandendur, en ósóttar pantanir seldar daglega. Hafin er sala á sýningar júnímánaðar en til stendur að flytja Alveg brilljant skilnað yfir í stærri sal innan tíðar. Geraldine Aron SUNGIN verða ljóðalög og flutt raftónlist í Borg- arneskirkju á laugardag. Kall- ast tónleikarnir Ljóð og hljóð. Þeir voru áður fluttir á Kirkju- bæjarklaustri um páskahelgina. Höfundur tónlist- arinnar er Guðmundur Óli Sig- urgeirsson, og hefur hann samið hana við ljóð eftir Finn Torfa Hjör- leifsson. Söngkonurnar Anna Þ. Hafberg og Oddný Sigurðardóttir, báðar messósópranar, ásamt Gunnari P. Sigmarssyni baríton flytja laga- flokkinn Einferli, saminn við 25 ljóð í samnefndri ljóðabók. Flest lögin í flokknum eru einsöngslög, en fáein fyrir dúett. Söngkonurnar syngja einnig þrjá örstutta dúetta við önn- ur ljóð í sömu ljóðabók. Undirleik- ari á píanó og selló verður Brian Haroldsson. Einnig verða flutt raf- verk eftir Guðmund Óla sem hann hefur samið við nokkur ljóð í ljóða- bókinni Dalvísum eftir Finn Torfa. Tónleikarnir hefjast kl. 16:00. Finnur Torfi Hjörleifsson Ljóð og hljóð í Borgarnesi GÍTARLEIKARINN Símon H. Ívarsson mun halda tónleika í Þrúðvangi, Álafoss- vegi 20 í Mosfellsbæ á sunnudaginn kl. 16:00. Yfirskrift tón- leikanna er „Glíman við Glám“ sem er samheiti á geisladiski sem Símon gaf út ný- lega í samvinnu við Smekkleysu. Á tón- leikunum spilar Sím- on einleiksverk af diskinum sem inni- heldur heildarútgáfu af gítarverkum Gunn- ars Reynis Sveinssonar. Jafn- framt eru tónleikarnir útgáfu- tónleikar fyrir diskinn. Þessi verk eru afrakstur sam- vinnu Gunnars Reynis og Sím- onar til margra ára. Sum þessara verka hafa heyrst leikin af Sím- oni í heimildarmynd Ríkissjón- varpsins, sem hét Svartur sjór af síld. Diskurinn var m.a. tilnefndur til Íslensku tónlistarverðlaunanna á sl. vetri. Gunnar Reynir Sveinsson tón- skáld er einn af áhrifamönnum íslenskrar tónlistar síðustu hálfr- ar aldar. Gunnar Reynir hefur samið fjölda verka af ólíkum stærðum og gerðum, sem mörg hver hafa orðið vel þekkt meðal þjóðarinnar. Verk Gunnars þykja einstaklega fjölbreytt og hér koma fram mjög ólíkar tón- smíðagerðir. Gítarinn nýtur sín einstaklega vel í tónsmíðum hans, að mati Símonar, en þar koma fram hin ýmsu blæbrigði hljóð- færisins. Á tónleikunum leikur Símon eftirtalin verk: Undir regnbog- anum, Íslensk rapsódía, Hom- mage a Django Reinhardt og Ölerindi. Símon glímir við Glám Gunnar Reynir Sveinsson Símon H. Ívarsson Fréttir á SMS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.