Morgunblaðið - 09.05.2005, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 09.05.2005, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 9. MAÍ 2005 15 DAGLEGT LÍF Verslanir Odda Borgartúni 29 • Sími 515 5170 Höfðabakka 3 • Sími 515 5105 www.oddi.is Bleksprautupappír 90 g 40%afsláttur 649kr Verð áður 1.090kr 500 blöð í pakka Verslanir Odda Borgartúni 29 • Sími 515 5170 Höfðabakka 3 • Sími 515 5105 www.oddi.is Límmiðaprentari 50%afsláttur 11.490kr Verð áður 22.990kr Verslanir Odda Borgartúni 29 • Sími 515 5170 Höfðabakka 3 • Sími 515 5105 www.oddi.is 50%afsláttur 4.990kr Verð áður 9.990kr Bleksprautuprentari 3845 Ýmist er það kallað oktett eðatvöfaldur kvartett, þegarátta syngja saman. Þeirfeðgar, bræður og frændur sem syngja saman í oktett sem kenn- ir sig við Breiðagerði hafa allir unun af söng og koma saman hvern mánu- dag til söngæfinga á heimili höf- uðpaursins og aldursforsetans í hópn- um, Ástvalds Magnússonar, sem er 83 ára og býr í Breiðagerði 8 í Reykjavík. „Þetta byrjaði allt þegar við sungum saman fyrir þremur ár- um við brúðkaup barnabarns míns og nafna sem nú er orðinn meðlimur í oktettinum. En við fórum ekki að gera þetta af neinni alvöru fyrr en í fyrravetur og enduðum þá á að koma fram á tónleikum á Hvolsvelli með fleiri kórum.“ Skilyrði að vera rétt ættaður Þeir Ástvaldur og synir hans, Þor- geir, Pétur og Magnús, ásamt frænd- um sínum og bræðrunum Sigurgeiri og Frosta Jóhannssonum, Halldóri Torfasyni og Ástvaldi yngri, sungu nýlega á söngskemmtun í Hveragerð- iskirkju en þeir segja þó engin plön vera hjá hópnum um að verða heims- frægir. „Við höfum bara svo gaman af þessu og tilvist oktettsins byggist fyrst og fremst á því hvað við erum öll náskyld. Börnin mín fjögur eru öll í hópnum því auk þriggja sona minna, sem syngja, leikur Dóra Steinunn dóttir mín undir hjá okkur og nafni minn sonur hennar er líka í flokknum og hinir þrír eru náfrændur okkar. Það kemst enginn í þennan hóp nema vera rétt ættaður,“ segir Ástvaldur stoltur af hópnum sínum þar sem tveir eru í hverri rödd og auk þess grípur Þorgeir til harmonikkunnar í sumum lögum. Ástvaldur segir að hann og Guð- björg kona sín hafi alist upp við mik- inn söng á æskuheimilum sínum í Dölum. Þau sungu um árabil í ýmsum kórum. Ástvaldur segist fyrst hafa sungið í karlakór 17 ára og nánast óslitið síðan. „Ég var í kvartettinum Leikbræðrum og söng þar annan ten- ór en með mér voru Torfi bróðir minn fyrsti bassi, mágur minn Friðjón Þórðarson, síðar sýslumaður, annar bassi og Gunnar Einarsson fyrsti ten- ór.“ Kvartettinn Leikbræður varð til þegar þeir félagar voru á siglingu á Jónsmessunótt út í Flatey á Breiða- firði árið 1945, en þá tóku þeir lagið saman og voru lengi eftir það ómiss- andi á hverri skemmtun Breiðfirð- ingafélagsins í Reykjavík og víðar. Þeir héldu fræga tónleika í Gamla bíói árið 1952. „Svo var ég í Karlakór Reykjavíkur í 25 ár og syng enn með „Old boys“, sem er kór eldri og fyrr- verandi félaga kórsins.“ Píanóið ofarlega í forgangsröð Ástvaldur segir að tónlistin hafi sem betur fer aldrei skilið við hann. Eftir að hann flutti að heiman varð tilvist píanós á heimili hans og konu hans, Guðbjargar Þórðardóttur, til þess að þar hittust Leikbræður oft til æfinga. „Þegar við Guðbjörg giftum okkur, 1945, átti ég ekki bót fyrir bor- una á mér, var bláfátækur sveitapilt- ur og hafði ekki efni á að kaupa mér hjónarúm. Ég smíðaði það sjálfur og það var fyrsta húsgagnið sem við eignuðumst ásamt píanói sem við keyptum frá Kaupmannahöfn. Guð- björg hafði lært á orgel og það gekk fyrir að fá hljóðfæri á heimilið. Hún spilaði áður í kirkjunni heima í sveit- inni vestur í Dölum. Hún lærði einn vetur hjá Páli Ísólfssyni og spilaði mikið í afmælum og við önnur tæki- færi og þá oftast lög úr Íslenska söngvasafninu sem allir kunnu í þá daga og við köllum stundum fjár- lögin. Þessi fjárlög eru þau bestu sem hafa komið fram hingað til og við í Breiðagerðisoktettinum syngjum oft úr þessum fjárlögum.“ Ástvaldur og Guðbjörg eiga saman fjögur börn sem öll hafa tekið tónlist- arbakteríuna og foreldrarnir eru að vonum ánægðir með það. „Börnin okkar spila öll meira og minna eftir eyranu og hafa lært það af mömmu sinni. Dóra og Ástvaldur sonur henn- ar eru bæði píanókennarar. Börnin okkar hafa öll verið í kórum og bæði sungið og spilað á hljóðfæri.“ Og systkinin rifja upp bernskuárin. „Í öllum afmælum var tekið lagið og mamma spilaði alltaf undir á píanóið. Á jólum komum við líka alltaf saman, okkar fjölskylda og fjölskylda Torfa bróður pabba, og sungum öll saman jólasálma. Hér var stundum mikill hljómur þegar sungið var í fjöl- skyldusamkvæmum og þá var gjarn- an opnað út á svalir. Þá komu ná- grannarnir út í garða sína til að hlusta,“ segir Pétur Ástvaldsson. Og enn hljómar heimilissöngur í Breiðagerðinu. Nú berast píanótónar og söngraddir frá oktettinum góða sem syngur um ástina og vorið. Heimilissöngur er orðinn nokkuð fátíður á gervihnattaöld þar sem tímaskortur hrjáir margan manninn. Blessunarlega má þó enn finna svo söngelskt fólk að það gefur sér tíma til slíkrar iðju. Kristín Heiða Kristinsdóttir rann á fagran söng sem barst frá húsi í Breiða- gerði og fann þar fyrir skyldmenni sem syngja saman í hverri viku. Enginn kemst í hópinn nema rétt ættaður Morgunblaðið/Árni Sæberg Oktettinn við æfingar heima í Breiðagerði. F.v.: Sigurgeir Jóhannsson, Frosti Jóhannsson, Halldór Torfason, Ást- valdur Magnússon, Pétur Ástvaldsson, Þorgeir Ástvaldsson, Ástvaldur Traustason og Magnús Ástvaldsson. Undir- leikari er Dóra Steinunn Ástvaldsdóttir. Ljósmynd/Vigfús Sigurgeirsson Kvartettinn Leikbræður. Myndin er tekin 13. nóvember 1952, daginn sem þeir héldu konsert í Gamla bíói. F.v.: Gunnar Einarsson, fyrsti tenór, Ástvaldur Magnússon, annar tenór, Torfi Magnússon, fyrsti bassi, og Friðjón Þórðarson, annar bassi. Við píanóið er Gunnar Sigurgeirsson.  ÁHUGAMÁL |Feðgar, bræður og frændur taka saman lagið alla mánudaga í Breiðagerðinu khk@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.