Morgunblaðið - 09.05.2005, Side 16
Sólin elskar okkur bara upp að vissumarki – eða bara í tiltekinn tíma. Hin-ir ósýnilegu útfjólubláu geislar sól-arinnar eru það sterkir að þeir geta
eyðilagt húðina.
Brúnka og bruni, fyrstu stig skemmdar
Margir eru hissa á því að hraustleg sól-
arbrúnkan eða ofurlítill bruni eru fyrstu stig
þess að húðin hefur skemmst.
Sólarbrúnka er afleiðing þess að ysta lag
húðarinnar skemmist. Húðin brúnkar þegar
útfjólubláu geislarnir hraða á framleiðslu
melanins, sem er dökka litarefnið í húðinni.
Brúnkan er því aðferð húðarinnar til að stöðva
geislana og koma í veg fyrir frekari skemmdir.
Sólbruni verður þegar útfjólubláu geislunum
tekst að brenna húðina. Jafnvel þótt að ein-
kenni brunans hverfi, sitja skemmdirnar eftir.
Sólarbruni getur eyðilegt DNA húðarinnar, og
seinna meir valdið húðkrabbameini.
Sólin gerir mann ellilegri
Útfjólubláu geislarnir valda því að eftirfar-
andi ellimerki húðarinnar koma mun fyrr í ljós:
Bandvefir í húðinni veikjast og húðin missir
teygjanleikann.
Húðin verður þynnri og gegnsærri.
Dýpri hrukkur.
Þurr og gróf húð.
Háræðar koma í ljós á kinnum, nefi og eyr-
um.
Stór brúnir blettir á andliti, handarbökum,
handleggjum, bringu og ofarlega á baki.
Hvítir blettir neðarlega á fótleggjum og
handleggjum.
Góð- og illkynja æxli
Mikil sólböð geta valdið bæði góð- og illkynja
húðæxlum.
Húðskemmdir sem eru mun algengari en
krabbamein eru góðkynja æxli sem tengjast
öldrun húðarinnar. Þetta eru brún- eða svart-
leitir blettir sem líkjast vörtum, eru jafnvel
vaxkenndir og geta verið mjög litlir en allt upp
í 2-3 cm í þvermál. Annars konar húðskemmdir
eru brúnir eða dökkbleikir blettir, hrjúfir og
hreistraðir sem tengjast án efa sólböðum, og
geta orðið að krabbameini.
Húðkrabbamein myndast oftast þar sem sól-
in nær mest að skína á húðina, þ.e. á höfuðleðri,
andliti, vörum, eyrum, hálsi, bringu, hand-
leggjum, höndum, og svo á fótleggjum kvenna.
Sumar tegundir húðkrabbameins birtast sem
lítill blettur eða sár sem grær illa. Þegar um
ræðir sortuæxli, getur fæðingarblettur breyst
eða nýr grunsamlegur myndast. Annars konar
sortuæxli myndast fyrst sem dökkir flatir
blettir, en verða síðan enn dekkri og stærra.
Sveinbjörn Kristjánsson doktor í krabba-
meinsforvörnum við Karolinska Institutet í
Stokkhólmi, segið húðkrabbamein mun alvar-
legra mál en fólk álítur.
„Fyrst og fremst er að passa sig að brenna
ekki og vera ekki of lengi í sólinni þegar hún er
Skuggahliðar
sólarinnar
SÓLARÁBURÐUR
Morgunblaðið/Ómar
16 MÁNUDAGUR 9. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF | HEILSA
Til að verja sig sem best fyrir
skaðlegum áhrifum sólarinnar er
best að byrja á börnunum, þau eru
viðkvæmust allra. Allir eiga samt
að gera eftirfarandi varúðarráð-
stafanir.
Forðist sólina þegar hún er
heitust, og geislarnir skaðleg-
astir. Á Íslandi á milli kl. 11 og
14 á daginn, í suðrænni löndum
frá kl. 10 til 16.
Sitjið í skugganum.
Verið í fötum. Verið í langerma
skyrtum, í síðum buxum með
barðastóra hatta. Fastofnari
efni verja betur fyrir sólinni en
lausofin efni.
Notið sólaráburð – og nóg af
honum. Berið hann á ykkur 20
mínútum áður en þið farið út.
Eftir það á 2ja klukkustunda
fresti og oftar ef þið farið ofan í
vatn eða svitnið. Oftast notar
fólk ekki nema ¼ af þeim sól-
aráburði sem til þarf til að hann
geri gagn. Fullorðin manneskja
þarf um 30–40 g af sólaráburði í
hvert skipti sem borið er á.
Hvað er til ráða?
Á VORIN hópast börnin okkar út á
hjólabretti, línuskauta, hlaupahjól og
reiðhjól.
Nú er því rétti tíminn til að fræða
börnin um það hversu mikilvægt er
að nota réttan öryggisbúnað – alltaf!
Við hönnun á hjólreiðahjálmi er tekið
tillit til þess að börn geti notað hann
á fleiri farartæki en reiðhjól. Hjól-
reiðahjálminn er því hægt að nota á
öllum þessum farartækjum og engin
ástæða til að fjárfesta í mörgum
gerðum hjálma.
Mjög mikilvægt er að nota ein-
ungis viðurkennda hjálma en þeir
bera merkinguna CE.
Hafi barnið ekki notað hjálminn
lengi þarf að byrja á því að kanna
hvort hann passi ennþá.
Einnig er mikilvægt að kanna
ástand hjálmsins; hvort hann sé
illa farinn eftir að hafa t.d. verið
hent oft í gólfið eða verið
skemmdur á annan hátt.
Nýr hjálmur keyptur
Við kaup á nýjum hjálmi er mik-
ilvægt að barnið komi með í versl-
unina. Best er að mæla ummál höf-
uðsins en það er gert yfir breiðasta
hluta þess. Stærðir hjálma hlaupa
alltaf á 5–6 cm. Miðstærð af hjálmi er
53–58 cm. og hann passar þá fyrir
barn sem er með höfuðmálið 54–56
cm.
Þegar börnin eru á hjólabrettum
og línuskautum er mikilvægt að þau
noti einnig úlnliðshlífar, hnéhlífar og
olnbogahlífar en þær koma í veg fyr-
ir að bein brotni. Þessi öryggisbún-
aður á einnig að vera CE merktur.
Á hlaupahjólinu er einnig gott að
nota oln-
bogahlífar og
hnéhlífar og úln-
liðshlífar ef hægt
er að koma því
við. Mikilvægt er
að hlaupahjólin
séu stillt í rétta
hæð fyrir barn-
ið. Stillingin er
rétt þegar
barnið er
með oln-
bogana
bogna í
mitt-
ishæð.
Það getur
verið hættu- legt
ef stýrið er of hátt,
sér í lagi ef barn-
ið fellur fram fyrir sig
og fær þá stýrið í mag-
ann.
Foreldrar þurfa að
fylgjast með ástandi
hlaupahjóla, reiðhjóla,
línuskauta og hjóla-
bretta því mörg
slæm slys má
rekja til þess að
búnaðurinn var
bilaður.
Afar mik-
ilvægt er að for-
eldrar brýni fyrir
börnum sínum að vera ekki
að leika sér á umferð-
argötum.
HOLLRÁÐ UM HEILSUNA|Lýðheilsustöð
Frekari upplýsingar um all-
an þennan búnað, ásamt
skýringarmyndum, eru á
heimasíðu Lýðheilsustöðvar:
www.lydheilsustod.is, undir
Árvekni-slysavarnir barna.
Herdís L. Storgaard, verk-
efnastjóri barnaslysavarna Ár-
vekni, Lýðheilsustöð.
Eftir Hildi Loftsdóttur
hilo@mbl.is
Við erum fljót að rífa okkur úr
hverri spjör um leið og blessuð
sólin lætur sjá sig. En elskar
hún okkur jafnmikið og segir í
ljóðinu?
sterkust. Þá fáum við 50% af geisluninni. Ef
maður er í sólinni utan þess tíma, þarf litlar
áhyggjur að hafa, varla nota sólaráburð, “ segir
Sveinbjörn.
Sveinbjörn vill að fólk á Íslandi og í Skandin-
avíu sé meðvitað um skaðsemi sól-
arinnar, þótt það sé jákvætt gagn-
vart henni.
„Hitinn og ljósið er mjög gott, en
geislunin eru bara neikvæð. Þegar
maður finnur hitann af sólinni í
húðinni, er maður þegar búinn að vera of lengi í
henni, og DNA-skemmdir hafnar í húðinni.“
Börnin eru langviðkvæmust
Sveinbjörn vill taka fram að börn eru sér-
staklega viðkvæm, og að brenna sig sem barn
eykur líkurnar á húðkrabbameini seinna.
„Ungbörn undir 2ja ára eiga alls ekki að vera
í sól, notið skugga, föt og hatta til að verja þau.
Og ekki á að nota sólaráburð á börn yngri en
eins árs,“ leggur hann áherslu á.
„Fólk stólar fyrst og fremst á sólaráburðinn
en notar hann vitlaust. Það
heldur að það geti verið mun
lengur í sólinni, en það hefur
komið í ljós að þeir sem nota
mest sólaráburð, fá frekar
húðkrabbamein, því þeir eru
mun lengur í sólinni.
„Húðkrabbamein er það krabbamein sem
auðveldast er að koma í veg fyrir. Einfaldlega
með því að vera skynsamur í sólinni og elta
ekki þennan brúna lit sem hverfur eftir nokkr-
ar vik- ur,“ segir Sveinbjörn að lokum.
Hvernig er best að
verjast skaðlegum
áhrifum sólarinnar?
línuskautar
fullorðins.
Margar gerðir.
H
ön
nu
n:
G
un
na
r
S
te
in
þ
ór
ss
on
/
M
ar
ki
ð
/
04
.2
00
4
Línuskautar
hlífarog hjálmar
Varahlutir og viðgerðaþjónusta
ORLANDO
stækkanlegir barna línuskautar.
Skautinn stækkar með barninu.
Mjúk dekk og APEC legur.
Stærðir 25-29, 30-35 og 36-40
fyrirtæki
í forystu í þróun
betri og þægilegri
línuskauta
Mikilvægt að börnin
okkar séu með hjálm
M
or
gu
nb
la
ði
ð/
Á
rn
i T
or
fa
so
n
MIKLAR reykingar, áfeng-
isdrykkja, offita og stress
getur allt haft áhrif á
frammistöðu karlmanna í
kynlífinu. Einn af hverjum
tíu karlmönnum þjáist af
getuleysi og hafa ofan-
greindir þættir oft mikið um
það að segja.
Margir karlmenn þjást af
getuleysi lengi áður en þeir
leita sér hjálpar, en mikill ár-
angur næst ef þeir leita sér
aðstoðar.
Karlmenn geta þó hjálpað
sér sjálfir með því að ræða
vandamálið við makann og
skoða lífsstíl sinn.
Ef að lífsstílsbreyting dug-
ar ekki til er þeim ráðlagt að
leita til læknis.
Breyttur
lífsstíll –
betra kynlíf
KARLMENN