Morgunblaðið - 09.05.2005, Blaðsíða 18
18 MÁNUDAGUR 9. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
FASTEIGNASALAN
GIMLI Árni Stefánsson viðskiptafræðingur og lögg. fasteignasaliGRENSÁSVEGI 13, SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
TIL SÖLU
EIGNARLÓÐIR UNDIR HEILSÁRSHÚS ÚR LANDI MÝRARKOTS
Til sölu 30 eignarlóðir í landi Mýr-
arkots í næsta nágrenni við Kiðj-
aberg og á móti Hraunborgum.
Verð 1,8 millj. óháð stærð eða
staðsetningu lóðar. Kalt og heitt
vatn að lóðarmörkum. Stærð lóða
frá 0,75 hkt.-2,20 hkt. Heimilt að
byggja allt að 200 fm heilsárshús á
lóð. Frábær staðsetning í næsta
nágrenni við einn fallegasta 18
holu golfvöll landsins, golfvöllinn á
Kiðjabergi. Aðeins í 75 km fjarlægð
frá Reykjavík og um 25 km frá Sel-
fossi. Sparisjóður Reykjavíkur og
nágrennis (SPRON) er tilbúinn að
lána allt að 100% af kaupverði lóð-
ar og 65% af endanlegum bygg-
ingarkostnaði.
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
N
Selt
Selt
Selt
Selt
Selt
Fr
Fr
Fr
Fr
Fr
Fr
Fr
Allar nánari upplýsingar gefur fulltrúi seljenda, Ellert í síma 661 1121
Fr = Frátekið
HÚMOR í listum hefur, einhverra hluta
vegna, lítið átt upp á pallborð hér á landi.
Sérstaklega í yngstu greininni, sígildri tón-
list, sem til skamms tíma var sett á him-
inháan stall af þeim betur vitandi, svo hún
yrði örugglega ekki dregin í svaðið af fávís-
um almúga. En þeir tímar eru liðnir, þökk
sé auknum fjölda innlendra hljómlist-
armanna á heimsmælikvarða með Sinfón-
íuhljómsveitinni í broddi fylkingar. Við er-
um engir nýgræðingar lengur, og
höfuðgersemar vestrænnar tónsögu hafa nú
loks unnið sér öruggan sess.
Það var löngu kominn tími á að sprella
svolítið með djásnin dýru, vitanlega af ástúð
og umhyggju þess er veit hvað er í húfi. Því
var sannkallaður hvalreki að komu of-
antaldra kanadísku listamanna hingað sl.
föstudagskvöld. Að vísu kom sá reki trauðla
fram af hverfandi athygli fjölmiðla. En
kannski eru okkar tímar það breyttir frá
því fyrir hálfri öld að ekki einu sinni Victor
Borge myndi slá í gegn, hæfi hann ferilinn í
dag. Nú er minna ráðrúm en nokkru sinni
til að staldra við og skyggnast bak við tjöld-
in. En kannski hefur klassískri kunnáttu
líka hrakað frá því sem var, enda útheimtir
glens af þessu tagi óneitanlega ákveðna lág-
marksþekkingu hlustenda á innviðum tón-
listarheimsins, þó ekki væri nema helztu
klissjunum.
Hvað þær varðar er vandfundinn þakklát-
ari skotspónn en óperuprímadonnan. Ótald-
ir brandarar hafa verið sagðir um „the fat
lady“ og umhverfi hennar. Hitt er fágætara
að ósvikin díva gefi sig í hlutverk bæði
skyttu og skífu, þótt vitanlega væri allsend-
is ófyndið ef skemmtikrafturinn hefði enga
rödd. Hana hafði Mary Lou Fallis hins veg-
ar, og í þokkabót bráðflinkan undirleikara
af einmitt réttu virðulegu útliti, tilvalið „fo-
il“ fyrir háðfimar korðustungur söngkon-
unnar.
Og þær voru bæði margar og hugvits-
samlegar. Meðal þeirra kostulegri var
„prufusöngsatriðið“ í fyrsta hluta. Aldrei á
ævinni hef ég heyrt jafnfyndinn falskan
söng, að Mrs. Miller meðtaldri, er dró svo
hnitmiðað fram allt hið versta sem prófdóm-
arar og óperustjórar upplifa í starfi að nota
hefði mátt atriðið á myndbandi sem
kennsluvíti til varnaðar. Látbrögðin við
(upptekna) tilsögn söngkennslukonunnar
með rússneska hreiminn voru bráðfyndin,
og quodlibet-flétturnar í Gretchen am
Spinnrade Schuberts við Breiðvangsballöð-
urnar Begin The Beguine og I’ve Got You
Under My Skin komu manni til að veltast
innvortis um af hlátri. Raddfléttulistin náði
síðan listrænum hápunkti í 2. hálfleik með
þokkafullu samspili Clair de lune Debussys
og slagarans Blue Moon.
Hugvitið virtist eiga sér fá takmörk. Með
því skæðfyndnasta var illkvittin grillun
þeirra félaga á módernískri framúrstefnu í
„Homage to Canada“, og að sögn „nýfundið
stykki eftir Kurt Weill“ í kunnuglegum ka-
barett-mars-stíl. Heimilislegri var kímnin í
kanadísku aldamótalögunum í niðurlagi tón-
leikanna, þar sem sönkonan steig Snowshoe
Tramp á þrúgum og reri barkarkeipsár í
viðlagi Paddle your Own Canoe. Skondið
fróðleikskorn frá löngu horfnum tíma var
auglýsingalag fatalitunarfyrirtækis í Lond-
on, Ontario (kjörorð: „We Live to Dye“), er
útbýtt var á nótum til heimilisflutnings –
við gamalt hjálpræðishergöngulag! Gam-
ansönglagið kunna „I Want To Be A Prima-
donna-donna-donna“ lauk síðan kabar-
ettnum, en við tóku aukalög með fjöldasöng
eins og Home on the Range.
Að segja að allir hafi skemmt sér vel væri
vægt til orða tekið, enda var staðið upp og
klappað heitt og hraustlega í lok fyndnustu
tónleika í áratugi. Hér hefðu sjónvarps-
stöðvar okkar sennilega getað nælt sér í
margnota úrvalsefni, en þær voru að vanda
steinsofandi á verðinum.
Kemst annars nokkuð lengur að en bolta-
íþróttir og rokk?
Gæðagrín að gulli
og gersemum
TÓNLIST
Salurinn
Einsöngskabarettinn Primadonna. Mary Lou Fallis
sópran og Peter Tiefenbach píanó. Föstudaginn 6.
maí kl. 20.
Gamantónleikar
„Að segja að allir hafi skemmt sér vel væri
vægt til orða tekið, enda var staðið upp og
klappað heitt og hraustlega í lok fyndnustu
tónleika í áratugi,“ segir Ríkarður Ö. Páls-
son m.a. um tónleika Mary Lou Fallis.
Ríkarður Ö. Pálsson
LEIKSÝNINGIN Rauðu skórnir –
óhefðbundið leikhús fyrir unglinga
og annað fólk – er komin aftur á
fjalirnar en hún var frumsýnd í
fyrra. Sýningin er byggð á ævintýri
eftir H.C. Andersen, en í stað orða
er sagan sögð með tónlist eftir
Ragnhildi Gísladóttur og leik-
brúðum eftir tékkneska leik-
brúðumeistarann Petr Matásek.
Leikstjóri sýningarinnar er
Benedikt Erlingsson og leikendur
eru þrír: Hallveig Thorlacius,
Helga Arnalds og Jón Páll Eyjólfs-
son. Lýsing er í höndum Sigurðar
Kaiser.
Sýningin verður sýnd í Iðnó
næstu daga. Uppselt er á sjö sýn-
ingar fyrir 8. og 9. bekki grunn-
skóla fyrripart vikunnar.
Forvarnasjóður og Velferð-
arsjóður barna hafa styrkt þessar
skólasýningar.
Til heiðurs skáldinu, H.C. And-
ersen, á 200 ára afmælinu kemur út
diskur með tónlistinni sem Ragn-
hildur Gísladóttir samdi sér-
staklega fyrir þessa leiksýningu.
Af þessu tilefni verður opin
kvöldsýning í Iðnó á miðvikudaginn
kemur, 11. maí, kl. 20. Aðeins verð-
ur þessi eina opna sýning.
Morgunblaðið/Ásdís
Jón Páll Eyjólfsson og Helga Arnalds stjórna litlu stúlkunni í sýningunni
Rauðu skórnir. Opin kvöldsýning verður í Iðnó á miðvikudaginn kemur.
Rauðu skórnir
dansa á nýjan leik
UPPFÆRSLA á einu nafnkunnasta verki óp-
erubókmenntanna, Madama Butterfly eftir
Giacomo Puccini, verður frumsýnd í Maestr-
anza-leikhússins í borginni Sevilla á Spáni í
kvöld. Kínverska sópransöngkonana Sun
Xiuwei er hér í hlutverki sínu á æfingu á dög-
unum.
Reuters
Madama Butt-
erfly í Sevilla