Morgunblaðið - 14.06.2005, Side 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Stökktu til
Rimini
23. júní eða 30. júní
frá kr. 29.990
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð til Rimini í júní. Bókaðu sæti og
4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • Akureyri sími 461 1099 • www.heimsferdir.is
Síðustu sætin
Verð kr. 29.990
í viku 30. júní
Verð kr. 39.990
í 2 vikur, 23. eða 30. júní
Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn,
2-11 ára, í íbúð í 1 eða 2 vikur. Flug,
skattar, gisting og íslensk fararstjórn.
Verð kr. 39.990
í viku 30. júní
Verð kr. 49.990
í 2 vikur, 23. eða 30. júní
Netverð á mann, m.v. 2 í stúdíó/íbúð í 1
eða 2 vikur. Flug, skattar, gisting og ís-
lensk fararstjórn.
AMMONÍAK lak úr gámi um borð
í Lagarfossi vegna þess að krani á
rúmlega 500 lítra ammóníakskeri
hafði af einhverjum ástæðum opn-
ast meðan skipið var í hafi. Talið er
að á bilinu 300–350 lítrar hafi lekið
út. Mikill viðbúnaður var á Grund-
artanga þegar skipið lagðist þar að
bryggju í gærmorgun og biðu þar á
þriðja tug slökkviliðsmanna auk
lögreglu, hafnarstarfsmanna og
fjölmiðlamanna.
Lagarfoss er leiguskip og er
skipstjórinn rússneskur. Aðrir í
áhöfn eru Rússar og Filippseying-
ar auk eins Íslendings, Jóns
Guðnasonar löndunarstjóra. Skipið
var statt út af Aberdeen í Skot-
landi þegar lekinn kom í ljós en
gámurinn með ammóníakinu hafði
verið lestaður í Immingham í Eng-
landi nokkru áður. Í gámnum voru
fimm 525 kílóa ammóníakhylki og
48 minni hyllki sem hvert um sig
inniheldur um 66 kíló af efninu,
samkvæmt upplýsingum frá Eim-
skipi.
Í samtali við Morgunblaðið sagði
Jón að skipverjar hefðu orðið varir
við lekann seint á föstudagskvöld
þegar þeir voru í reglubundinni
eftirlitsferð með frystigámum.
Talsverð ammóníakslykt hefði bor-
ist frá gámnum og sökum þess að
ammóníak sem geymt er undir
þrýstingi verður gríðarkalt þegar
það kemur í snertingu við and-
rúmsloft, hefði gámurinn hrímað
að utan. Jón sagði að í kjölfarið
hefði verið haft samband við
strandgæsluna í Skotlandi sem
hefði sagt skipstjóranum að stöðva
skipið og bíða átekta.
Tíu eiturefnakafarar
á hafnarbakkanum
Að sögn Jóns varð enginn um
borð fyrir óþægindum af völdum
lekans, þó hefði örlítil lykt fundist í
vélarrúmi en til að koma í veg fyrir
að ammóníak bærist inn í skipið
var slökkt á loftræstikerfum. Eftir
um tíu klukkustunda stopp, um
klukkan 8 á laugardagsmorgun,
hefði lekinn stöðvast og var skipinu
þá siglt áfram áleiðis til Íslands.
Engin tilraun var gerð til að stöðva
lekann. „Þetta gekk yfir á tíu tím-
um,“ sagði Jón Guðnason löndun-
arstjóri.
Þó að skipverjar á Lagarfossi
sæju ekki lengur ummerki um lek-
ann var ekki talið óhætt að sigla
skipinu rakleiðis til Reykjavíkur,
enn var talin hætta á ammóníak-
leka og óvíst hvort að önnur hylki í
gámnum hefðu orðið fyrir
skemmdum, að sögn Birgis Finns-
sonar, sviðsstjóra hjá Slökkviliði
höfuðborgarsvæðisins. Í öryggis-
skyni var því ákveðið að Lagarfoss
myndi fyrst leggjast að bryggju á
Grundartanga þar sem gámurinn
með ammóníakinu yrði færður á
land. Grundartangi varð fyrir val-
inu þar sem þar er langt í þéttbýli
og þar var nokkur vindur af suð-
austri. Grundartangi er í umdæmi
Slökkviliðsins á Akranesi en að
sögn Birgis var ákveðið að Slökkvi-
lið höfuðborgarsvæðisins annaðist
aðgerðir á vettvangi, skipið hefði
upphaflega átt að leggjast þar að
bryggju auk þess sem það ræður
yfir meira af búnaði til að takast á
við eiturefnaslys. Slökkviliðið á
Akranesi sendi þó um tug manna
sem voru til reiðu ef þörf krefði.
Þegar Lagarfoss lagðist að
bryggju á ellefta tímanum voru tíu
eiturefnakafarar á hafnarbakkan-
um og öflugar vatnsdælur voru til
taks til að sprauta á ammóníaksský
en með því að bindast vatni verður
ammóníakið óvirkt. Tveir eitur-
efnakafarar opnuðu síðan gáminn
og kom þá í ljós að enn lak örlítið
ammóníak úr einu af 525 kíló
hylkjunum. Að sögn Birgis Finns-
sonar var ástæðan fyrir lekanum
einfaldlega sú að annar krani af
tveimur á hylkinu var opinn og
sagði Birgir að annaðhvort hefði
hann opnast meðan skipið var í
siglingu, hugsanlega vegna þess að
hlíf sem var yfir krananum var
laus, eða að honum hefði ekki verið
lokað nægjanlega vel þegar hylkið
var sett í gáminn. Þegar til kom
var því einfalt að loka fyrir amm-
óníaklekann. „Við bara skrúfuðum
fyrir kranann,“ sagði hann.
Að sögn Eyþórs H. Ólafssonar,
öryggisstjóra Eimskipa, tafðist
sigling Lagarfoss um 12–13 tíma.
Löndun hefði þó varla tafist um
meira en sjö klukkustundir. Síð-
degis í gær voru eigendur að farmi
í gámum sem voru við hliðina á
ammóníaksgámnum að aðgæta
hvort skemmdir hefðu orðið á
varningi en svo virtist ekki vera að
sögn Eyþórs.
Mikill viðbúnaður vegna ammóníakleka í gámi um borð í Lagarfossi
„Við bara skrúfuðum fyrir“
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Morgunblaðið/Júlíus
Eiturefnakafarar hreinsa gáminn sem ammóníakskútarnir voru í.
GERÐUR hefur verið samningur
milli menntamálaráðuneytis og
fjármálaráðuneytis annars vegar
og Fljótsdalshéraðs hins vegar um
byggingu kennslu- og stjórn-
unarálmu við Menntaskólann á Eg-
ilsstöðum. Er stefnt að því að ljúka
verkinu haustið 2006.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra og Soffía
Lárusdóttir, forseti bæjarstjórnar
Fljótsdalshéraðs, tóku fyrstu
skóflustunguna að hinni nýju bygg-
ingu í hádeginu í gær.
Álman verður um 1.067 fermetr-
ar að stærð og verður heildarstærð
skólahúsanna með þessari viðbót
hátt á sjötta þúsund fermetra.
Skiptist stofnkostnaður hennar
þannig að ríkissjóður greiðir 60%
en sveitarsjóður 40%. Á neðri hæð
nýbyggingarinnar verður fyr-
irlestrasalur með sætum fyrir 80
manns, fjarfundastofa og tölvustofa
auk tæknirýmis, geymsluherbergja
o.fl. Á efri hæð verður m.a. stjórn-
unar- og skrifstofurými og vinnuað-
staða kennara.
Byggja kennslu- og stjórnunarálmu við ME
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir og Soffía Lárusdóttir taka fyrstu skóflu-
stunguna að viðbyggingu Menntaskólans á Egilsstöðum.
Eitt þúsund
fermetra
álma byggð
við skólann
ICELANDAIR gaf 530 farþegum,
sem urðu fyrir miklum ferðatöfum til
og frá San Fransisco, farmiða að eigin
vali á flugleiðum félagsins. Að sögn
Guðjóns Arngrímssonar, upplýsinga-
fulltrúa Icelandair, orsakaðist töfin af
bilun sem varð í ventli í öðrum hreyfli
flugvélar sem átti að flytja farþega
héðan til San Fransisco í fyrradag og
var vélinni lagt meðan beðið var vara-
hlutar erlendis frá og að viðgerð lyki.
Um 260 manns fóru síðan í loftið
áleiðis til Bandaríkjanna um þrjúleyt-
ið í fyrrinótt. Ytra biðu 270 farþegar
þess að komast til Íslands. Vegna
þessa féll niður flug til Berlínar í gær-
morgun. Guðjón sagði flugfélagið
hafa þó komið farþegunum þangað á
áfangastað eftir öðrum leiðum. Fóru
þeir með vél félagsins fyrst til Kaup-
mannahafnar og Lundúna áður en
þeir komust til Berlínar.
Allir farþegarnir 530 sem töfðust
vegna bilunarinnar fengu flugmiða
frá Icelandair. Guðjón sagði í gær í
samtali við Fréttavef Morgunblaðsins
að um sárabætur væri að ræða vegna
þeirrar löngu og leiðinlegu tafar sem
þeir hefðu orðið fyrir vegna bilunar-
innar. „Við gerum þetta af góðum
vilja,“ sagði Guðjón. Um er að ræða
flugmiða báðar leiðir á öllum flugleið-
um Icelandair og gildir miðinn í tvö
ár.
Flugvél Icelandair fór síðdegis í
gær frá San Fransisco með 270 far-
þega innanborðs.
Farþegar
fengu far-
miða í
sárabætur
Miklar tafir vegna bil-
unar í flugvél Icelandair
LÖGREGLAN á Blönduósi tók í
fyrradag ökumann á 146 kílómetra
hraða á þjóðveginum í Langadal.
Þá tók hún annan ökumann á 132
km hraða sem reyndist vera með
útrunnið ökuskírteini. Ætlaði sá að
fá vin sinn til að sækja sig en leidd-
ist að bíða, fór aftur af stað og var
tekinn af lögreglunni í annað sinn.
Blönduóslögreglan tók 70 manns
fyrir hraðakstur um helgina.
Hraðakstur
í Húnaþingi
♦♦♦