Morgunblaðið - 14.06.2005, Page 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ÚR VERINU
„Æ oftar
beðinn um
línufisk“
Úr verinu á morgun
UNDIRRITAÐUR hefur verið
samningur um kaup TrackWell á
lausnum og rekstri SeaData.
Helstu lausnir SeaData eru Raf-
ræn afladagbók, Útgerðarstjórinn
og Afurðabók. SeaData-kerfið
skráir upplýsingar um ferðir og
veiðar fiskiskipa og sendir rafræn-
ar upplýsingar til útgerða og
Fiskistofu. Kerfið hefur náð út-
breiðslu hjá útgerðum á Íslandi og
erlendis. Meðal viðskiptavina eru
Brim hf., Síldarvinnslan, Þor-
björn-Fiskanes, Vísir hf. og Samherji.
Sérhæfing TrackWell liggur í gagnaskrán-
ingum og ferilvöktun á forðum fyrirtækja, s.s.
bílum, skipum og fólki. Meðal lausna TrackWell
á þessu sviði eru TracScape-flotastýring-
arkerfið og Tímon, tíma- og viðverukerfið sem
er í notkun hjá yfir 100 fyrirtækjum hérlendis.
Þar má nefna að TracScape hefur frá upphafi
verið notað við sjálfvirka tilkynningarskyldu
skipa sem og fyrir Fjareftirlitskerfi Landhelg-
isgæslu og Fiskistofu.
Auk þess nota NAFO og NEAFC, sem eru
eftirlitsstofnanir með veiðum á úthöfunum,
kerfi TrackWell fyrir sína starfsemi. Með sam-
þættingu SeaData-lausnanna við kerfi Track-
Well opnast ný tækifæri til markaðssetningar
SeaData-lausnanna á erlendum vettvangi.
Að sögn Jóns Inga Björnssonar, fram-
kvæmdastjóra TrackWell, eru kaupin liður í að
styrkja sókn TrackWell á forða- og flotastjórn-
unarkerfum fyrir fyrirtækjamarkað hér á landi
og erlendis. „TrackWell hefur að mestu unnið
fyrir ríkisstjórnir, stofnanir og símafélög um
allan heim en á síðasta ári hófum við sókn inn á
fyrirtækjamarkað. Með samruna við Grunn-
Gagnalausnir í fyrra erum við komnir með öfl-
ugar lausnir sem snúa að almennri forð-
astjórnun og nú með samningi við SeaData get-
um við boðið útgerðinni mjög góðar
aflaskráningar- og staðsetningarlausnir,“ segir
Jón Ingi. Garðar Rafn Eyjólfsson, fram-
kvæmdastjóri SeaData, segir að með því að
færa rekstur SeaData til TrackWell sé þjónusta
við núverandi viðskiptavini aukin, auk þess sem
hægt verði að setja meiri kraft í markaðssókn
hérlendis og erlendis á lausnum fyrirtækisins.
Stjórnendur TrackWell ásamt starfsmönnum SeaData.
TrackWell kaupir
rekstur SeaData
NORSK-ÍSLENSKA síldin veiðist nú um 100
mílur frá landi og er hún á hraðri leið suð-
austur og veiðist í mjög köldum sjó. Vilhelm
Þorsteinsson var í gær inni á Seyðisfirði í af-
fermingu og síðan að umskipa afla sínum í
flutningaskip.
Þeir voru þá með 620 til 640 tonn af fryst-
um flökum og 150 til 160 tonn af óunninni
síld í móttökunni, sem þeir voru í óða önn að
vinna fyrir löndunina í flutningaskipið. Birk-
ir Hreinsson, skipstjóri, sagði að veiðarnar
hefðu gengið vel, en vinnslugetan réði því
hve mikið væri tekið hverju sinni. Vinnslan í
þessum túr hefði verið stöðug og gengið vel.
Síldin væri nú í mjög köldum sjó, um 3 gráð-
ur við yfirborðið og nálægt núllinu dýpra.
Það væri mjög gott að taka hana úr svona
köldum sjó, því þá gengi betur að halda
henni kaldri um borð.
Samkvæmt upplýsingum Samtaka fisk-
vinnslustöðva hefur 8.400 tonnum af síld
verið landað til vinnslu í landi. Mestu hefur
verið landað í Vinnslustöðinni í Vest-
mannaeyjum, 2.650 tonnum. Til Neskaup-
staðar hafa borist 2.500 tonn, tæp 1.600 tonn
til Ísfélagsins í Vestmannaeyjum, rúm 1.000
tonn til Loðnuvinnslunnar á Fáskrúðsfirði,
465 tonn til HB Granda á Vopnafirði og 80
tonn til Djúpavogs.
Samkvæmt upplýsingum á vef Fiskistofu
hafa alls veiðst 19.800 tonn það sem af er
vertíð, en leyfilegur afli er 157.700 tonn.
Nokkur skip eru komin yfir þúsund tonnin,
en 17 skip hafa landað síld til þessa.
Sex skip með kolmunna
Kolmunnaveiðarnar ganga þokkalega og
síðustu daga lönduðu fimm íslensk skip afla
sínum og eitt færeyskt. Afli íslensku skip-
anna er orðinn 160.000 tonn, en leyfilegur
afli er 345.000 tonn. Erlend skip hafa landað
87.000 tonnum og hafa íslensku verksmiðj-
urnar því tekið á móti nærri 250.000 tonn-
um. Mestu hefur verið landað hjá Síld-
arvinnslunni á Seyðisfirði, ríflega 58.000
tonnum. Næst kemur Eskja á Eskifirði með
54.000 tonn, þá Síldarvinnslan í Neskaupstað
með 32.700 tonn, Loðnuvinnslan á Fáskrúðs-
firði er með 30.000 tonn, Ísfélag Vest-
mannaeyja með 28.600 tonn, HB Grandi á
Vopnafirði er með 19.500 tonn, Nordic Fact-
ory á Djúpavogi er með 11.400 tonn, Ísfélag
Vestmannaeyja er með 9.800 tonn og Hrað-
frystistöð Þórshafnar er með 3.400 tonn.
Fimm skip eru komin með meira en
10.000 tonn af kolmunna samkvæmt upplýs-
ingum á vef Fiskistofu. Ingunn AK er afla-
hæst með 15.700 tonn. Næstur kemur Jón
Kjartansson SU með 13.900 tonn, þá Hólma-
borg SU með 13.850 tonn, Börkur NK er
með 13.100 tonn og Faxi RE er með 11.400
tonn.
Síldin veiðist í
mjög köldum sjó
JEFF Tunks matreiðslumeistari státar af
mörgum viðurkenningum fyrir matargerð-
arlist sína. Hann á og rekur þrjú virt veit-
ingahús í Washington DC. Elst þeirra er DC
Coast sem býður upp á nútímalegan banda-
rískan mat, TenPenh hefur yfirbragð Suð-
austur-Asíu og maturinn á Ceiba ber keim af
mið- og suðuramerískri matargerð. Tunks
og meðeigendur hans undirbúa nú opnun
fjórða veitingahússins í Washington DC.
Jeff Tunks segist hafa kynnst Íslandi fyrir
fjórum til fimm árum. Honum var boðið að
taka þátt í fyrstu Food and Fun hátíðinni og
hefur verið með síðan, síðustu tvö skiptin
sem dómari. Kynni hans af landinu leiddu til
þess að hann var fenginn til að vera að-
alstjarnan í þætti Chefs A’Field þáttarað-
arinnar um íslenska þorskinn og lambið. Jeff
afneitar raunar stjörnuhlutverkinu fyrir sína
hönd, en segir að íslenski maturinn hafi
gegnt því hlutverki.
Mikil athygli
„Fyrir þremur árum fór ég í göngur og réttir á Íslandi,“
sagði Jeff. „Ég heillaðist af því hvernig bændurnir sækja
féð upp í fjöllin. Fólk frá PBS sjónvarpsstöðinni leitaði til
mín og bað mig að vera með í þættinum vegna þess að ég
átti að baki Íslandsferðir og þekkti orðið marga á Íslandi.
Tilgangurinn var að sýna bandarískum áhorfendum hve
hreinar afurðir þið eigið; fiskinn, vatnið og lambið.
Í þættinum er reynt að sýna fólki með augum mat-
reiðslumeistarans hvaðan maturinn kemur. Síðan eru
þessar stórkostlegu afurðir teknar og gerðar að neyslu-
vöru og enda á diski neytandans. Síðasta daginn var kvik-
myndað á Óðinsvéum, veitingahúsi Sigga Hall. Þar not-
uðum við þorskinn sem við veiddum og kjöt af lambi sem
smalað var af fjallinu. Við elduðum tvo rétti úr þessu hrá-
efni. Þættirnir fá mikið áhorf og ég þekki fólk sem bíður í
ofvæni eftir að fá að sjá þetta stórkostlega landslag. Ég
trúi að þátturinn muni vekja mikla athygli á Íslandi og ís-
lenskum afurðum. Eins á mér og Washington DC svo
þetta er beggja hagur.“
Búinn að fá æfingu
Jeff Tunks segir að réttarstemningin hafi ekki komið
sér mjög á óvart. „Ég var búinn að fara í nokkrar æfing-
arferðir til Íslands og hafði fengið tilsögn í að drekka ís-
lenskt brennivín. Þetta var í fyrsta skipti sem ég fór á
hestbak. Ég er fremur stórvaxinn og hestarnir ekki svo
stórir. En þeir höfðu þetta af og ég líka. Sigurgeir Þor-
geirsson, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna, sagði
mér til í reiðmennsku. Hann veitti mér miklar upplýsingar
um íslenska sauðféð og menningarlegan bakgrunn gangna
og rétta. Það var mjög gagnlegt. Sama má segja um Krist-
in Aðalsteinsson sjómann sem fór með mig á þorskveiðar
frá Eskifirði. Ég hafði frábæra leiðsögumenn.“
Jeff Tunks telur íslenska matargerðarlist vera mitt á
milli evrópskrar og bandarískrar hefðar. „Norðurevrópsk
áhrif eru sterk. Skammtastærðirnar eru miklu minni en
okkar, sem ég tel að sé gott. Mikil áhersla er lögð á fallega
framsetningu matarins. Ég varð mjög hrifinn af kokka-
skólanum ykkar (Hótel- og matvælaskólanum). Miðað við
stærð landsins er þetta frábær skóli. Á Food and Fun hef
ég unnið með nemendum og útskrifuðu fagfólki úr skól-
anum. Ég var hrifinn af færni þess og þjálfun.
Íslenskir matreiðslumenn njóta þeirra forréttinda að fá
að vinna með hreint og gott hráefni. Það er lykillinn að vel-
gengni hvers matreiðslumeistara. Helsti vandi okkar hér í
Bandaríkjunum er að finna besta hráefnið hverju sinni.
Fiskurinn ykkar og lambið eru það besta sem fæst.“
Hlakkar til að fá mjólkurvörurnar
Jeff Tunks segist vera einkar heillaður af skyri og ís-
lenskum mjólkurvörum og hlakka til þegar farið verður að
flytja þær til Bandaríkjanna. Heilsusamlegt líferni og holl-
usta í mataræði verður fólki æ hugleiknara og það mun
leiða til meiri fiskneyslu, að mati Jeffs Tunks. „Íslenski
þorskurinn og bleikjan eru toppvara. Bleikjan er svo
fersk. Það eru lítil bein í flökunum sem næstum bráðna
þegar íslenska bleikjan er elduð. Þegar maður eldar silung
úr öðrum heimshlutum verður að tína beinin burt.“
Veitingastaðurinn DC Coast hefur boðið upp á íslenska
rétti undanfarin haust þegar mikil matarsýning er haldin í
Washington DC (The National Food Show). Hún er haldin
að hausti þegar íslenskt lamb fæst ófrosið vestra. „Við
buðum fólki að smakka ýmsa rétti úr íslensku hráefni á
föstu verði. Vorum með íslenska osta, fiskrétt, lambakjöt
og síðan eftirrétt úr íslensku skyri. Þetta seldist mjög vel
og var vinsælt.
Heillaðist af að fara
í göngur og réttir
Jeff Tunks matreiðslumeistari tók þátt í gerð sjónvarpsþáttar um ís-
lenska lambið og þorskinn.
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
TENGLAR
..................................................................................
www.dccoast.com
Morgunblaðið/Guðni