Morgunblaðið - 14.06.2005, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 14.06.2005, Qupperneq 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Washington. AP, AFP. | Dick Cheney, varaforseti Bandaríkjanna, segir að fangabúðum Bandaríkja- hers við Guantanamo-flóa á Kúbu verði ekki lokað þrátt fyrir þráláta gagnrýni á aðbúnað fanganna og þær yfirheyrsluaðferðir sem notaðar hafa verið í búðunum. „Það er mikilvægt að menn geri sér grein fyrir að fangarnir í Guantanamo eru vont fólk. Ég meina, þetta eru hryðjuverkamenn upp til hópa. Þetta er fólk sem var tekið höndum á átakasvæð- um í Afganistan eða vegna tengsla sinna við al- Qaeda,“ sagði Cheney í viðtali við Fox-sjónvarps- stöðina á sunnudagskvöld að staðartíma. „Við höf- um nú þegar skimað yfir hópinn, sent marga til heimkynna sinna og þeir sem eftir sitja eru harð- svíraðir hryðjuverkamenn.“ George W. Bush Bandaríkjaforseti sagði í síð- ustu viku að hann væri tilbúinn til þess að íhuga aðra möguleika varðandi þá 540 fanga sem nú eru vistaðir í Guantanamo. Það sagði hann eftir að Jimmy Carter, fyrrverandi forseti landsins, gekk í lið með þeim sem vilja láta loka fangabúðunum. Bush segir Bandaríkjamenn fylgja Genfar-sátt- málanum um meðferð stríðsfanga. Mannréttindasamtök og nokkrir þingmenn, flestir demókratar, vilja að búðunum verði lokað. Nokkrir repúblikanar hafa jafnvel snúist á þeirra band. Öldungadeildarþingmaðurinn Chuck Hagel hefur þannig lýst yfir að fangabúðirnar við Guant- anamo-flóa komi óorði á Bandaríkjamenn og bar- áttu þeirra gegn hryðjuverkum. Mel Martinez, sem einnig situr fyrir repúblikana í öldungadeild þingsins, tekur undir með Hagel og segir að eins og staðan er nú hljóti ríkisstjórnin að þurfa að meta kosti og galla þess að halda fangabúðunum gangandi. Berháttaður og látinn gelta Á sunnudag birti tímaritið Time yfirheyrsludag- bækur bandarískra hermanna í Guantanamo-fang- elsinu. Þar er því lýst hvernig þremur og hálfum poka af vökva var sprautað í æð sádi-arabísks fanga gegn vilja hans, hvernig hann var yfirheyrð- ur í þaula í viðurvist sérþjálfaðra hunda og hvernig kvenkyns hermaður settist klofvega á fangann, en það er sérlega niðurlægjandi fyrir múslima. Mohammed al-Qahtani var tekinn höndum í Afganistan í desember árið 2001 og fluttur til Gu- antanamo þar sem hann sætti yfirheyrslum frá byrjun nóvember 2002 til janúar 2003. Bandarísk yfirvöld höfðu þá komist að því að hann hefði reynt að komast inn í Bandaríkin í ágúst 2001 en ekki fengið. Mohamed Atta, sá sem fór fyrir hryðju- verkamönnunum 11. september 2001, var á sama flugvelli á sama tíma. Við yfirheyrslu var vatni hellt yfir höfuð al-Qaht- ani, skegg hans og höfuðhár var rakað af og hann neyddur til að standa upp er þjóðsöngur Banda- ríkjanna var leikinn. Auk þess kemur fram í dag- bókunum að hann hafi verið berháttaður og látinn gelta eins og hundur og að um háls hans hafi verið hengdar myndir af fáklæddum konum. Líkamlegt ástand hans varð brátt svo slæmt að hann þurfti læknisaðstoð. Í fyrrnefndum dagbókum kemur fram að hann hafi sagst vilja fremja sjálfsmorð. Tilkynning barst fjölmiðlum frá bandaríska varnarmálaráðuneytinu þar sem segir að starfs- menn Guantanamo-búðanna noti yfirheyrsluað- ferðir sem séu „samþykktar og undir eftirliti“. Í til- kynningunni stendur: „… yfirheyrslurnar yfir al-Qahtani voru framkvæmdar eftir mjög ná- kvæmri áætlun sem miðaði að því að ná mikilvæg- um upplýsingum sem hægt væri að nota til að koma í veg fyrir frekari árásir á Bandaríkin.“ Chuck Hagel sagði það ekki einungis heimsku- legt heldur hreint og beint stórhættulegt og lýsa heilmikilli skammsýni ef þannig væri í raun farið með fanga á vegum Bandaríkjahers. Guantanamo ekki lokað BIRT hefur verið myndband þar sem sjá má Saddam Hussein, fyrr- verandi forseta Íraks, en þetta eru fyrstu myndirnar sem birtar eru af honum í tæpt ár. Á myndbandinu sést dómari yfirheyra þennan fyrr- um einræðisherra. Myndbandið var birt án tals og ekki kemur fram hvar eða hvenær það var tekið upp. Á myndbandinu er Saddam reffi- legur en þungbúinn, í dökkum jakkafötum og fráhnepptri hvítri skyrtu. Hann strýkur fingri yfir vel snyrt skegg sitt. Myndbandið sýnir hann svara spurningum um morð á fjölda manna í sjítaþorpi norður af Bagdad árið 1982. Líkur hafa verið leiddar að því að það sé dómarinn Raid Juhi sem sést yfirheyra hann. Saksóknarar vonast til að hægt verði að hefja réttarhöld yfir Sadd- am sem fyrst en hann er ákærður fyrir glæpi gegn mannkyni. AP Myndband með Saddam Hussein birt Ahvaz. AFP. | Stjórnvöld í Íran lýstu yfir því í gær að forsetakosningar færu fram samkvæmt áætlun á föstu- dag, 17. júní. Manna sem stóðu fyrir sprengjutilræðum í Íran um liðna helgi er nú ákaft leitað. Í yfirlýsingu frá innanríkisráðu- neyti Írans í gær segir að öfgamenn frá Írak hafi staðið fyrir sprengju- tilræðunum á sunnudag. Þá týndu átta menn lífi í fjórum sprengjuárás- um. Afar fátítt er að fregnir berist af slíkum ódæðisverkum í Íran. Þykir sýnt að tilræðismennirnir hafi viljað trufla forsetakosningarnar sem fram fara síðar í vikunni. Í yfirlýsingu innanríkisráðuneytis- ins sagði að Mohammad Khatami, fráfarandi forseti, hefði falið örygg- issveitum og leyniþjónustu Írans að finna tilræðismennina. Sagði einn heimildarmaður að næðust þeir yrðu þeir teknir af lífi. Mohammad Jafar-Sarrahmi, ráða- maður í Ahvaz, höfuðstað Khuzestan- héraðs þar sem sex féllu í sprengju- tilræðum, sagði í samtali við AFP- fréttastofuna að tilræðismennirnir „tengdust óvinum Írana erlendis“. Taldi hann að íranskir útlagahópar í Írak bæru ábyrgð á sprengjutilræð- unum. Með þessu vildu þeir draga úr þátttöku í forsetakosningunum á föstudag. „Þeir vilja skapa ótta í sam- félaginu,“ sagði hann. Kosningarnar myndu hins vegar fara fram og ör- yggi kjósenda yrði tryggt. Vitað er að stjórnvöld í Íran óttast mjög að kjörsókn verði lítil líkt og gerðist þegar þingkosningar fóru fram í fyrra. Líklegt þykir að margir hafi ekki fyrir því að mæta á kjörstað, einkum þeir sem telja að gera beri grundvallarbreytingar á flestum sviðum samfélagsins í Íran þar sem afar íhaldssöm klerkastjórn fer með völdin. Tilræðismennirnir sagðir tengjast óvinum Írans Reuters Stuðningsmenn íranska forsetaframbjóðandans Mehdi Karroubi á fundi í Laleh-garði í höfuðborginni Teheran í gær. Fólkið fordæmdi nokkur sprengjutilræði sem urðu minnst átta manns að bana á föstudag. BRESKIR ráðherrar voru upplýstir um það í júlímánuði 2002 að stjórn- völd hefðu skuldbundið sig til að taka þátt í innrás Bandaríkjamanna í Írak. Jafnframt var ráðherrum í ríkisstjórn Tonys Blair forsætisráð- herra tjáð að finna yrði leið til að tryggja að innrásin yrði lögleg. Þetta kemur fram í minnispunkt- um sem lagðir voru fyrir ráðherra- fund 23. júlí 2002. The Sunday Times birti minnisblað þetta um liðna helgi. Þar kemur fram að Blair hafi sam- þykkt að styðja hernað Bandaríkja- manna gegn stjórn Saddams Huss- eins Íraksforseta. Þessu hafi hann lýst yfir við George W. Bush forseta þremur mánuðum áður þ.e. í apríl- mánuði 2002. Fram kemur að það að þvinga fram stjórnarskipti í Írak teljist ólög- legt. Því þurfi „nauðsynlega að skapa forsendur“ fyrir því að slíkar aðgerð- ir geti talist löglegar. Þetta sé nauð- synlegt jafnvel þótt Bretar taki ekki beinan þátt í innrásinni. Ljóst sé að Bandaríkjamenn muni fá afnot af breskum herstöðvum og þannig verði Bretar jafnframt ábyrgir fyrir ólög- legum aðgerðum Bandaríkjamanna. Vísað er til þess að Bandaríkjamenn muni leita eftir leyfi til að nýta her- stöðvar Breta á Kýpur og á Diego Garcia-eyju. Á fundinum voru auk Blair, Geoff Hoon, þáverandi varnarmálaráð- herra, Jack Straw, utanríkisráð- herra, og Sir Douglas Dearlove, þá- verandi yfirmaður bresku leyniþjón- ustunnar, MI6. Höfundur minnispunktanna full- yrðir að aðgerðir gegn stjórn Sadd- ams Husseins verði aðeins réttlættar með tilvísun til þess að hann hafi hundsað eða hafnað úrslitakostum af hálfu Sameinuðu þjóðanna. Þá er vís- að til þess að setja beri honum úr- slitakosti um að heimili hann ekki vopnaeftirlitsmönnum Sameinuðu þjóðanna að starfa í landinu verði blásið til hernaðar gegn stjórn hans. Segir í plagginu að þetta geti reynst erfitt. „Hugsanlega er unnt að setja fram úrslitakosti á þann veg að Sadd- am hafni þeim,“ segir í minnispunkt- unum. Færi hins vegar svo að hann samþykkti úrslitakostina og réðist ekki gegn bandamönnum væri „mjög ólíklegt“ að fást myndi fram sú rétt- læting fyrir innrás sem þörf væri á. Innrásin átti að vera lögleg Ráðherrum Blairs var tjáð árið 2002 að ráðist yrði á Írak Róm. AFP. | Þjóðaratkvæðagreiðsla um tilslökun frjósemislaga á Ítalíu var dæmd ómerk vegna slakrar þátt- töku í gær og fyrradag. Krafist hafði verið þátttöku helmings kosninga- bærra manna til að þjóðaratkvæða- greiðslan hefði áhrif, en einungis tæp 30% mættu á kjörstað. Þetta er ákveðinn sigur fyrir kaþólsku kirkj- una sem hafði hvatt Ítali til að snið- ganga atkvæðagreiðsluna af „sið- ferðislegum ástæðum“. Aðrir kenna almennu áhugaleysi um og enn aðrir því að Ítalir séu orðnir of þreyttir á að ganga til þjóðaratkvæðagreiðslu en þær hafa verið fjölmargar í land- inu síðastliðinn áratug. Lögin sem kosið var um voru sett af ríkisstjórn Silvios Berlusconis for- sætisráðherra í fyrra en þá þótti honum Ítalir helst til frjálslyndir í frjósemismálum, enda bárust oft fréttir af því að konur á sjötugsaldri hefðu farið í tæknifrjóvgun og bæru barn undir belti. Nú er hins vegar svo komið að frjósemislög Ítalíu eru með þeim ströngustu í heimi. Eggja- og sæðisgjafir bannaðar Samkvæmt lögunum má aðeins frjóvga þrjú egg fyrir hvert par og þeim verður öllum að koma fyrir í konunni í einu. Einnig eru eggja- og sæðisgjafir bannaðar. Í þjóðaratkvæðagreiðslunni voru Ítalir beðnir að gefa álit sitt á því hvort slaka bæri á lögunum og hvort taka ætti upp fósturrannsóknir, sér- staklega í þeim tilfellum þar sem for- eldrar búa við erfðasjúkdóm. Ómerk þjóðarat- kvæðagreiðsla á Ítalíu Moskvu. AP. | Vladímír Pútín, forseti Rússlands, sagði í gær að Rússar og vestrænar þjóðir ættu að vinna sam- an að því að greiða fyrir framförum í fyrrum sovétlýðveldum en ekki berj- ast um áhrif í ríkjum þessum. Pútín lét þessi orð falla á blaða- mannafundi með Tony Blair, for- sætisráðherra Bretlands, sem sótti hann heim í Moskvu. Pútín sagði að margar fátækar þjóðir, sem tilheyra Samveldi sjálf- stæðra ríkja, samstarfsvettvangi 12 fyrrum sovétlýðvelda, þyrftu á að- stoð alþjóðasamfélagsins að halda. „Við þurfum því ekki á því að halda að Samveldisríkjunum sé breytt í vígvöll. Þvert á móti ættum við að breyta þessu landsvæði í vett- vang samstarfs til að þessum ríkjum auðnist að þróa fram lýðræðisskipu- lag sitt,“ sagði forsetinn. Ummæli Pútíns einkenndust því af sáttfýsi en í fyrra skarst í odda með Rússum annars vegar og Vest- urveldunum hins vegar þegar fram fóru forsetakosningar í Úkraínu. Þá skiptust ráðamenn í Rússlandi og leiðtogar Vesturlanda á hörðum skeytum þar sem fram komu gagn- kvæmar ásakanir um óeðlileg af- skipti af málefnum Úkraínu. Pútín vill samvinnu ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.