Morgunblaðið - 14.06.2005, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 2005 41
DAGBÓK
BÍLALEIGAN AKA
Vagnhöfða 25 • 112 Reykjavík • Sími 567 44 55 • Fax 567 44 53
VIÐ HÖFUM
ALLAR
GERÐIR BÍLA
5-9 MANNA
Talstöðin og Saga
ÞEGAR Útvarp Saga leit dagsins
ljós var það mikið gleðiefni en nú ná
ekki allir þeirri stöð eftir að hún var
flutt. Var það mikill missir. Ég er
hætt að hlusta á Rás 1, þar er spiluð
of mikil tónlist, einnig í viðtals-
þáttum, þá er helmingurinn tónlist.
Það var því mikil himnasending þeg-
ar Talstöðin tók til starfa en nú er
hún einnig orðin tónlistarstöð og er
ég mjög ósátt við það.
Við sem vinnum t.d. á næturnar
og þeir sem vaka á næturnar hafa
hlustað mikið á þessar stöðvar en
það er ekki það sama þegar spilað er
mikið af tónlist.
Ég vil þakka Talstöðinni fyrir
góða dagskrá – þ.e. þegar þeir eru
ekki að spila tónlist.
Vaktakona.
Stytting á
sumarfríi grunnskólabarna
ÉG las í Velvakanda sl. föstudag
pistil um styttingu á sumarfríi
grunnskólabarna. Mér finnst þetta
vera út í hött því það sem við höfum
er varla hægt að kalla frí (tveir mán-
uðir)!
Ég er sjálfur í grunnskóla. Hvað
eigum við eiginlega að gera á þess-
um tveim mánuðum? Það er erfitt að
fá sér vinnu og vera í henni í aðeins
tvo mánuði.
Síðustu tvær vikurnar í skólanum
gerðum við ekki neitt. Við vorum bú-
in með námsefnið en þurftum samt
að mæta í skólann, samt fann ég ekki
fyrir að hratt væri farið yfir náms-
efnið.
Stytting á sumarfríinu hefur líka
fleiri vandamál sem ég hef tekið eft-
ir. Foreldrar mínir reka litla verslun
úti á landi og maður tekur eftir því
að ferðamannastraumurinn fer seint
af stað vegna skólans og því eiga
fleiri foreldrar erfitt með að fara
eitthvað í fríinu sínu. Nema auðvitað
að þau fari sjálf og skilji krakkana
sína eftir heima.
Oddur Bjarni.
Stafræn myndavél týndist
KODAK-MYNDAVÉL, stafræn,
týndist á bílastæðinu við Hjálp-
arfoss í Þjórsárdal sl. sunnudag.
Skilvís finnandi hafi samband í síma
896 7388.
Þrílit læða fannst
í Nauthólsvík
LÆÐA, þrílit, þ.e. hvít með svarta
og brúnlitaða bletti á skrokknum og
lítinn svartan blett á kjálka, er í
óskilum. Hún er spök og blíð keli-
rófa og hún fannst í Nauthólsvík sl.
föstudag. Þeir sem kannast við kött-
inn eru beðnir að hafa samband við
Ernu í síma 861 1022.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Hárgreiðslustofan
opin frá kl. 10, bað og fótsnyrting kl.
9, vinnustofan opin alla daga. Allir
velkomnir.
Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa-
vinna, böðun, hárgreiðsla, fótaað-
gerð.
Dalbraut 18–20 | Kl. 9–11 kaffi og
dagblöð, kl. 9–14 baðþjónusta, kl. 9–
16.45 hárgreiðslustofan opin, kl.
11.15–12.15 matur, kl. 14.30–15.30
kaffi.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ |
Lokað í Garðabergi. Opið hús í safn-
aðarheimilinu á vegum kirkjunnar kl.
13.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 13.30
hefst gróðursetning í Gæðareit. Upp-
lýsingar á staðnum og í síma
575 7720.
Hraunbær 105 | Kl. 9 postulínsmálun
og glerskurður, kl. 10 boccia og pútt,
kl. 12 hádegismatur, kl. 12.15 ferð í
Bónus, kl. 15 kaffi.
Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9.
Leikfimi kl. 11.30. Brids kl. 13. Pútt á
Hrafnistuvelli kl. 14–16.
Hvassaleiti 56–58 | Boccia kl. 9.30–
10.30. Böðun fyrir hádegi. Hádeg-
isverður. Helgistund kl. 13.30 í um-
sjón séra Ólafs Jóhannssonar. Fóta-
aðgerðir 588 2320. Hárgreiðsla
517 3005.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er
öllum opið. Betri stofa og Listasmiðja
kl. 9–16. Handverk og tréskurður.
Gönguhópurinn Sniglarnir kl. 10. Bón-
us kl. 12.40. Bókabíll kl. 14.15. Skrán-
ing í hópa og námskeið fyrir haust-
önn stendur yfir. Hárgreiðslust.
568 3139. Fótaaðgerðarstofa
897 9801. Nánari uppl. í síma
568 3132.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla
og fótaaðgerðir. Kl. 9–15.30 handa-
vinna. Kl. 13–16 postulínsmálun (júní).
Kl. 11.45–12.45 hádegisverður. Kl. 13–
16 frjáls spil. Kl. 14.30–15.45 kaffiveit-
ingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.45. Handmennt almenn kl. 9.30,
hárgreiðsla, fótaaðgerðir og böðun,
leikfimi kl. 10, félagsvist kl. 14.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Morgunsöngur kl.
9. Ritningarlestur, sálmasöngur og
bæn.
Áskirkja | Opið hús milli kl. 10 og 14 í
dag, kaffi og spjall. Bænastund kl. 12.
Boðið upp á léttan hádegisverð. Allir
velkomnir.
Garðasókn | Opið hús í sumar í
Kirkjuhvoli, Vídalínskirkju, á þriðju-
dögum kl. 13 til 16. Spilaður lomber,
vist og bridge. Röbbum saman og
njótum samverunnar. Kaffi á könn-
unni. Vettvangsferð í næstu viku, 21.
júní. Akstur fyrir þá sem vilja, upplýs-
ingar í síma 895 0169. Allir velkomn-
ir.
Hallgrímskirkja | Fyrirbænaguðs-
þjónusta þriðjudag kl. 10.30. Beðið
fyrir sjúkum.
Hjallakirkja | Bæna- og kyrrðarstund
er hvern þriðjudag kl. 18 í Hjallakirkju.
Krossinn | Almenn samkoma verður í
Krossinum Hlíðasmára 5–7 í kvöld kl.
20. Gunnar Þorsteinsson talar. Allir
eru velkomnir. Kaffi og meðlæti verð-
ur í boði eftir samkomu til styrktar
hjálparstarfi í Honduras.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Lista- og menningarhátíð Hafnarfjarðar 1.–16. júní
Kl. 19.30 Stuttmyndakvöld í Gamla bókasafninu við Mjósund. Sýndar
verða stuttmyndir ungra höfunda, m.a. Goðsögnin um Leifturfót og
ónefnd mynd eftir Inga Lárusson.
Kl. 20.00 „Dans úr ýmsum áttum“. Sýning Listdansskóla Hafn-
arfjarðar í húsnæði Hafnarfjarðarleikhússins, Strandgötu 50. Aðgangs-
eyrir 500 kr.
Kl. 20.00 Dýragarðssaga í uppsetningu Leikfélag Hafnarfjarðar.
Bjartir dagar
ÁRLEG sumarmessa
verður í kirkjunni á
Skálmarnesmúla í Múla-
sveit, Austur-Barða-
strandarsýslu, klukkan
14.00 laugardaginn 18.
júní nk.
Séra Bragi Benedikts-
son á Reykhólum messar,
um tónlist sér Atli Guð-
laugsson. Að guðsþjón-
ustu lokinni verður af-
hjúpað söguskilti og
legstaðaskrá í kirkju-
garðinum. Messukaffi
verður á Firði.
Messa á Skálmarnesmúla
1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bc4 Rf6 4. Rg5 d5
5. exd5 Rd4 6. c3 b5 7. Bf1 Rxd5 8. cxd4
Dxg5 9. Rc3 exd4 10. Bxb5+ Kd8 11.
Bc6 Rf4 12. Bxa8 Rxg2+ 13. Kf1 Bh3
14. d3 Rf4+ 15. Ke1 dxc3 16. bxc3 Bc5
17. d4 He8+ 18. Kd2 Rd5+ 19. f4
Dg2+ 20. Kd3 De4+ 21. Kc4 Rb6+ 22.
Kxc5 De7+ 23. Kb5 Bd7+ 24. Ka6 Dd6
25. Db3 Rxa8+ 26. Ka5 Bc8 27. c4 He6
28. Db5 Rb6 29. f5
Staðan kom upp á búlgarska meist-
aramótinu sem lauk fyrir skömmu.
Sigurvegari mótsins, Ivan Cheparinov
(2621), hafði svart gegn Nikolai Ninov
(2486). 29… Rxc4+! 30. Dxc4 Db6+
31. Ka4 Bd7+ 32. Ka3 Da5+ 33. Kb2
Hb6+ 34. Db3 hvítur hefði einnig tapað
drottningunni eftir 34. Kc2 Ba4+ 35.
Kd3 Bb5. 34... Ba4 35. f6 Bxb3 36.
axb3 Dd5 37. fxg7 Dxb3#. Lokastaða
mótsins varð þessi: 1. Ivan Cheparinov
(2621) 9½ vinning af 13 mögulegum. 2.
Nikolai Ninov (2486) 9 v. 3.–4. Dejan
Bojkov (2509) og Vladimir Petkov
(2463) 8½ v. 5. Krasimir Rusev (2427)
7½ v. 6. Valentin Iotov (2433) 7 v. 7.
Julian Radulski (2502) 6½ v. 8. Val-
entin Panbukchian (2340) 6 v. 9.–10.
Dimitar Dochev (2357) og Spas
Kozhuharov (2375) 5½ v. 11.–12. Grig-
or Grigorov (2361) og Sasho Nikolov
(2394) 5 v. 13. Boris Chatalbashev
(2499) 4 v. 14. Rastislav Raev (2338) 3½
v.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.
LEIÐIN heim, geislaplata Sigurðar
Flosasonar saxófónleikara, verður
gefin út í Japan innan skamms.
Dimma ehf., útgefandi plötunnar
hér á landi, hefur selt Alljos Ent-
ertainment í Japan réttinn til út-
gáfu þar í landi. Öll tónlistin á þess-
ari nýju plötu Sigurðar er
frumsamin, en með honum leika
Eyþór Gunnarsson á píanó, Valdi-
mar Kolbeinn Sigurjónsson á
kontrabassa og Pétur Östlund á
trommur. Japanska útgáfan verður
með tveimur aukalögum sem Að-
alsteinn Ásberg Sigurðsson hefur
samið djassljóð við og Kristjana
Stefánsdóttir syngur.
Auk þess að gefa Leiðina heim út
mun japanska fyrirtækið taka að
sér sölu og dreifingu þar í landi á
eldri plötum Sigurðar Flosasonar,
en áætlað er að sú fyrsta; tríóplatan
Himnastiginn frá 1999, verði gefin
út í Japan í nóvember. Kvartett Sig-
urðar Flosasonar ásamt söngkon-
unni Kristjönu Stefánsdóttur held-
ur til Japan í júlí og kemur fram á
tónleikum í Tókýó auk þess að leika
fyrir Íslands hönd á heimssýning-
unni í Aichi.
Morgunblaðið/Eyþór
Sigurður Flosason saxófónleikari.
Leiðin heim til Japans
Brúðkaup | Gefin voru saman 11. des-
ember 2004 í Stjørdal þau Hrafnkell
Halldórsson úr Kópavogi og Nina
Gangås.
Ljósmynd/Nils Henrik
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
SÉRSTÖK afmælissýning á verkum
listamannsins Sölva Helgasonar,
öðru nafni Sólon
Íslandus (1820-
1895), hefur verið
opnuð í galleríi
sem kennt er við
listamanninn í
Lónkoti í Skaga-
firði. Að sögn
Ólafs Jónssonar
staðarhaldara er
þetta gert í tilefni
af því að áratugur er liðinn frá af-
hjúpun minnisvarða um Sölva og
opnun veitingahússins Sölva-Bars á
ferðamannastaðnum Lónkoti. Verð-
ur sýningin opin í allt sumar en á
Sölva-Bar eru, að sögn Ólafs, ætíð til
sýnis myndverk eftir þennan sér-
stæða einfara í íslenskri myndlist.
Lónkot í Skagafirði. Fremst er minnisvarði um Sölva Helgason.
Verk Sölva
í Lónkoti
Sölvi Helgason