Morgunblaðið - 14.06.2005, Page 52
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 14. JÚNÍ 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
FJÁRVEITINGAR Landspítala – háskóla-
sjúkrahúss til tækjakaupa duga ekki til nauð-
synlegrar endurnýjunar og nýkaupa lækninga-
tækja. Til að mæta því hafa tæki undanfarin ár
verið leigð og greidd á afborgunum. Með því er
þó verið að ganga á fjárveitingar framtíðarinn-
ar.
Á síðasta ári fékk LSH 201 milljón á fjár-
lögum til meiri háttar tækjakaupa. Fjárveiting-
ar til tækjakaupa hafa minnkað frá sameiningu
sjúkrahúsanna árið 2000. Á sama tíma hefur eft-
irspurn eftir lækningatækjum aukist verulega.
Ef vel ætti að vera þyrfti að fjórfalda fjár-
framlögin til spítalans hvað þetta varðar, að
sögn Ingólfs Þórissonar, framkvæmdastjóra
tækni og eigna á LSH.
Á sjúkrahúsum á hinum Norðurlöndunum er
eðlileg viðmiðun að til tækjakaupa sé varið um
3–4% af rekstrarfé háskólasjúkrahúsa. Hér á
landi er hlutfallið í kringum 1%. Miðað við þetta
ætti Landspítalinn að fá einn milljarð árlega til
að endurnýja og kaupa ný tæki.
„Á síðasta ári gerðum við stórátak í tækja-
málum svo að spítalinn er betur settur núna
heldur en hann hefur verið um langt skeið,“ seg-
ir Ingólfur.
„Menn verða að hafa í huga að ný tæki geta
skilað heilmiklu í bættum rekstri og betri með-
ferð fyrir sjúklinga. Hvoru tveggja er mikill
ávinningur fyrir þjóðfélagið.“
Í fyrra voru leigð eða keypt tæki að andvirði
676 milljóna króna. Beiðnir sviðstjóra læknis-
fræðilegra sviða til tækjakaupa hljóðuðu við
upphaf síðasta árs upp á um 1.200 milljónir
króna. Því þurfti að forgangsraða verkefnum
með tilliti til fyrirliggjandi fjárveitinga.
„En það má aldrei slaka á í tækjakaupum,“
segir Ingólfur. „Talið er að lækningatæki endist
að meðaltali ekki nema fimm til sjö ár. Sá tími er
fljótur að líða.“
Fjárveiting til tækjakaupa
á LSH úr takti við þörfina
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
Þröngt húsnæði | 20–24
CLIFF Richard er ind-
ælismaður, vinalegur,
lætur lítið á sér bera og
er laus við alla stjörnu-
stæla, segir Erla Óla-
dóttir, veitingamaður og
meistarakokkur á Casa
Bitoque í smábænum
Guia í Portúgal, en hjá
Erlu er söngvarinn góð-
kunni orðinn fastagest-
ur. „Hann kemur alltaf inn í eldhúsið til mín
til að heilsa upp á mig og þakkar svo fyrir
sig með handabandi þegar hann kveður,“
segir Erla og bætir við að kálfalifrin og
bökurnar sínar séu í miklu uppáhaldi hjá
söngvaranum og hann velji sér gjarnan ís-
lenskar pönnsur og ávexti í eftirrétt.
Daglegt líf | 19
Íslenskar pönnsur
í eftirrétt
Cliff Richards
NIÐURSKURÐUR í ræstingum á Landspítala
– háskólasjúkrahúsi hefur m.a. valdið því að
erfiðara er að ráða við ákveðnar sýkingar
innan spítalans en áður. Stöðugur niður-
skurður hefur verið í ræstingum undanfarin
ár til að lækka rekstrarútgjöld. Starfsfólki í
ræstingum hefur fækkað m.a. vegna þess að
framkvæmdastjórn ákvað um áramótin 2003/
2004 að skera niður í ræstingum um 40 millj-
ónir króna.
Átak var gert í sýkingarvörnum á spítalan-
um á síðasta ári og stöðugt er unnið að leið-
beiningum fyrir starfsfólk. Sýkingafaraldrar
hafa komið upp en engu að síður eru Íslend-
ingar í óvenjulegri stöðu hvað varðar ýmsar
sýkingar. Sýkingar sem sjúkrahús erlendis
hafa misst tökin á hafa ekki enn náð fótfestu
hér. „En við þurfum sífellt að vera á tánum
hvað þetta varðar,“ segir Ólafur Guðlaugs-
son, yfirlæknir sýkingavarnadeildar LSH.
Minni þrif og meiri
sýkingarhætta
MARGIR notuðu góða veðrið í
gær til að viðra hunda sína. En
það eru fleiri dýr sem njóta þess
að spóka sig í sólinni og þeirra á
meðal er páfagaukurinn Bjartur.
Vakti það mikla athygli vegfar-
enda í Austurstræti að sjá Sonju
Georgsdóttur með Bjart á öxl-
inni. Aðspurð segist Sonja gjarn-
an nota matarpásuna sína til að
spássera með fuglinn, sem þyki
fátt betra en að sóla sig þegar á
því gefst færi. Að sögn Sonju
vekja göngutúrar hennar með
Bjart ávallt nokkra eftirtekt, en
enn meiri eftirtekt vekur það víst
þegar hún tekur kanínuna sína,
hana Vitu, með sér einnig. Segist
hún ganga með kanínuna í poka
en leyfa henni einnig að hlaupa
aðeins um á völdum stöðum. Það
vekur að sögn Sonju mikla hrifn-
ingu kattanna í hverfinu sem séu
forvitnir um þennan eyrnalanga
ferfætling. Greinilegt sé að þeim
þyki kanínan sérlega spennandi
leikfélagi í óþökk kanínunnar
sjálfrar.
Spóka sig í sólinni
Morgunblaðið/Eyþór
Morgunblaðið/Jim Smart
Kaffihúsin við Austurvöll voru þétt setin í hádeginu í gær, enda notuðu
margir tækifærið til að snæða hádegisverð sinn úti undir berum himni.
MARAN Seafood A/S, dótturfélag
Sigurðar Ágústssonar ehf. í Dan-
mörku, hefur keypt danska fyrir-
tækið Hevico A/S. Stefnt er að sam-
einingu fyrirtækjanna á næstunni,
en áætluð velta samstæðunnar mun
verða um 3,5 milljarðar ísl. kr. á ári.
Íslandsbanki sá um fjármögnun
kaupanna og veitti fyrirtækjaráðgjöf
bankans ráðgjöf í tengslum við kaup-
in. Í fréttatilkynningu segir að
Hevico sérhæfi sig í framleiðslu á
heitreyktum silungi og sé stærst á
sínu sviði í Evrópu.
Unnið úr lifandi fiski
Í samtali við Morgunblaðið sagði
Sigurður Ágústsson að ástæðan fyr-
ir kaupunum væri í raun tvíþætt.
„Annars vegar framleiðir þetta
fyrirtæki afurðir sem eiga mikla
samleið með því sem við erum að
gera í Danmörku og á Íslandi í dag
og þessar afurðir vinna hver upp
aðra inn á þá markaði sem við höfum
verið að einbeita okkur að,“ segir
Sigurður.
Hann segir hina ástæðuna vera þá
að um sé að ræða traust fyrirtæki
sem hefur verið vel rekið. „Við sjáum
mikla framtíðarmöguleika á fram-
leiðslu og heitreykingu á silungi, og
það sem þetta fyrirtæki hefur fram
yfir keppinauta sína í öðrum löndum
er mun betra aðgengi að hráefni.
Þannig vinnur það úr lifandi fiski all-
an ársins hring, sem flest önnur fyr-
irtæki geta ekki.“
Sigurður
Ágústsson
kaupir
Hevico A/S
RÁN var framið á bensínstöð Olís í
Hamraborg 12 í Kópavogi í gær. Til-
kynnt var um ránið til lögreglu kl.
17.39. Ræninginn kom einn síns liðs
inn á bensínstöðina, klæddur svartri
úlpu og með hettu dregna yfir höfuð.
Tveir starfsmenn voru þá við störf á
bensínstöðinni. Ræninginn ógnaði
starfsstúlku með skrúfjárni, spennti
upp sjóðsvélina, tók handfylli af pen-
ingum, hljóp síðan á brott og hvarf
sjónum inn í bifreiðageymslu
Hamraborgar. Ekki lá fyrir í gær-
kvöldi hve mikill ránsfengurinn var.
Samkvæmt upplýsingum lögregl-
unnar í Kópavogi er ránsmaðurinn
170–175 cm á hæð, grannur eða mjög
grannvaxinn, með ljóst eða ljósskol-
leitt hár, blá eða ljósgrá augu,
klæddur í svarta úlpu sem náði niður
á læri og með hettuna yfir höfðinu. Á
hettunni var loðkragi. Maðurinn var
íklæddur gallabuxum, líklega bláum,
og hélt á grárri hettupeysu þegar
hann framdi verknaðinn.
Lögreglan hóf strax leit að ræn-
ingjanum, ásamt því að gera rann-
sókn á vettvangi. Í gærkvöldi stóð
rannsókn enn yfir og var meðal ann-
ars verið að skoða myndbandsupp-
tökur af vettvangi og vinna úr öðrum
fyrirliggjandi gögnum.
Ógnaði starfsstúlku
með skrúfjárni
SVÍAR hafa hug á því að lengja fæð-
ingarorlof þar í landi úr tólf mánuð-
um upp í fimmtán mánuði en þetta
kemur fram hjá höfundi skýrslu um
fæðingarorlof sem unnin var að til-
stuðlan sænsku ríkisstjórnarinnar.
Höfundur skýrslunnar, Karl-Petter
Thorwaldsson, leggur til að tekið
verði upp þrískipt fyrirkomulag að
íslenskri fyrirmynd þannig að báðir
foreldrar muni eiga rétt á fimm
mánaða orlofi en geti ráðstafað þeim
fimm mánuðum sem eftir eru að
eigin vilja. Hann segir rök breyting-
anna fyrst og fremst þau að feður
þar í landi notfæra sér innan við
fimmtung af heildar fæðingarorlofi.
Niðurstöður skýrslunnar verða
kynntar í haust. Ragnhildur Arn-
ljótsdóttir, ráðuneytisstjóri félags-
málaráðuneytisins, segist hafa vitað
af áhuga Svía á því að taka upp sam-
bærilegt fyrirkomulag og er í gildi
hér á landi varðandi fæðingarorlof.
Þá hafi aðrar þjóðir einnig sýnt því
mikinn áhuga.
„Við höfum kynnt okkar fyrir-
komulag víða um heim og meðal
annars í Norðurlandasamstarfinu.
Það er ekki launungarmál að farið er
að tala um íslenska „módelið“ og við
höfum því orðið vör við athyglina
sem þetta hefur vakið,“ segir Ragn-
hildur en hún telur að fyrirkomulag
fæðingarorlofsins hafi gefið góða
raun hér á landi. „Það virðist koma á
óvart í öðrum löndum hve almenn
þátttaka íslenskra feðra er,“ segir
Ragnhildur.
Svíar íhuga að taka upp fæðingarorlof að íslenskri fyrirmynd
Íslenska „módelið“ er farið
að vekja athygli erlendis
HALLDÓR Ásgrímsson tilkynnti í upphafi
blaðamannafundar í Ráðherrabústaðnum í
gær að reglulegir fundir með fréttamönn-
um myndu hefjast í haust, sem áður hafa
verið boðaðir. Halldór sagði fulla ástæðu
vera til að fjalla um ýmis mál sem væru of-
arlega á baugi í þjóðfélaginu. Þannig hefði
hann í gærmorgun átt fund með forsvars-
mönnum Samtaka atvinnulífsins og ASÍ,
sem lýst höfðu áhyggjum sínum af vaxandi
skuldbindingum lífeyrissjóðanna. Sagðist
Halldór hins vegar reikna með að fjölmiðlar
hefðu ekki áhuga á þessu heldur niðurstöðu
Ríkisendurskoðunar sem hann var þá kom-
inn með í hendur.
Blaðamanna-
fundir haldnir
reglulega í haust
♦♦♦