Morgunblaðið - 21.07.2005, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 21.07.2005, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR VR MÓTIÐ Verðlaun (með og án forgjafar) 1. sæti: Evrópuferð fyrir tvo með Icelandair 2. sæti: 20.000 króna gjafakort frá Nevada Bob 3. sæti: 10.000 króna gjafakort frá Nevada Bob Mótsgjald er kr. 3.000 fyrir félagsmenn VR og kr. 3.500 fyrir aðra. Skráning hjá GR í síma 585 0210 og á www.golf.is. Opna VR mótið verður haldið laugardaginn 30. júlí á Grafarholtsvelli. Leikfyrirkomulag mótsins er punktakeppni. Hámarksforgjöf er 24 hjá körlum og 28 hjá konum. Veitt verða verðlaun fyrir 3 efstu sætin í punkta- keppni, einnig verða veitt verðlaun fyrir 3 efstu sætin í höggleik. Nándarverðlaun eru á öllum par 3 holum vallarins. Fyrir mót býður VR keppendum uppá bolta á æfingasvæðinu í Básum. Verðlaun fyrir flesta punkta kvenna: 20.000 króna gjafakort frá Nevada Bob. Nándarverðlaun 10.000 gjafakort frá Nevada Bob. F í t o n / S Í A ALÞJÓÐAGJALDEYRISSJÓÐURINN vill styrkja aðkomu Seðlabanka að fjármagnsmarkað- inum, einkum hvað varðar aðgengi að upplýsingum frá viðskiptastofnunum og vinnslu tölfræðilegra gagna fyrir markaðinn. Sjóðurinn hóf athugun sína í febrúar, þegar fulltrúar hans komu hingað til lands. Seðlabankinn féllst á að þessi athugun færi fram og hefur eftir fremsta megni reynt að útvega þau gögn sem sjóð- urinn krefst, er hefur verið tímafrekt og viðamikið verk að mörgu leyti að sögn Jakobs Gunnarssonar, deildarstjóra á tölfræðisviði Seðlabankans. Þykja of fáliðaðir Fyrsta bráðabirgðaskýrsla sjóðsins lá fyrir í apríl og brást bankinn við henni með ýmsum athuga- semdum. Önnur bráðabirgðaskýrsla sjóðsins lá síð- an fyrir í júní og bankinn hefur einnig brugðist við henni með skýringum og athugasemdum. Þriðji og seinasti liður athugunarinnar er nú í vinnslu, og þess að vænta að endanleg niðurstaða liggi fyrir á haustdögum. „Okkur hefur fundist umsögn sjóðsins heldur neikvæð og því reynt að árétta okkar sjónarmið, til að enginn misskilningur ríki,“ segir Jakob. „Við er- um m.a. gagnrýndir fyrir aðferðafræði og það að vera of fáliðaðir við að safna upplýsingum og vinna úr þeim. Það kostar fé að auka þennan þátt og kannski ýmsa aðra, sem þeir hnýta í og telja þarfn- ast úrbóta. En við tökum þetta alvarlega.“ Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn tók til við að kanna hagtölur í ýmsum ríkjum fyrir um fjórum árum, og gerir ítarlegar úttektir á tölulegum staðreyndum um þjóðarbúskapinn í viðkomandi löndum, aðkomu opinberra stofnana að þeim og hvernig ríkin upp- fylli tiltekin alþjóðleg skilyrði í efnahagslífi. Hag- kerfið og tölfræðilegar upplýsingar um það eru skoðuð í heild sinni og þannig hafa fulltrúar sjóðsins einnig gert úttekt á fjármálaráðuneytinu og Hag- stofu Íslands, í tengslum við úttektina nú. Búið að stíga ákveðin skref „Hjá okkur, þ.e. Seðlabankanum, tóku þeir eink- um fyrir þjóðhagsreikninga, neysluverðsvísitöluna, ríkisfjármál, peningamál og greiðslujöfnuð, þ.e. við- skiptin við útlönd og erlendu stöðuna. Sjóðurinn hefur búið til ákveðinn stuðul um birtingu upplýs- inga, sem við höfum verið aðilar að seinustu misseri, og því er búið að stíga ákveðin skref til móts við sjónarmið hans. Sjóðurinn telur brýnt að ganga úr skugga um að Seðlabankinn sé að gegna hlutverki sínu í samræmi við þeirra kröfur.“ Jakob segir að sjóðurinn leggi m.a. mikla áherslu á að bankinn veiti notendum þeirra gagna, sem bankinn tekur saman, auknar upplýsingar um að- ferðafræðina þar að baki og hugtakanotkun. Þá vilji sjóðurinn að notendur ráði meiru um framsetningu þeirra og innihald, í samræmi við það sem þeir vilja helst vita. Samkvæmt lögum um Seðlabankann frá 2001 getur bankinn milliliðalaust aflað upplýsinga frá þeim sem eru í viðskiptum við bankann, auk fyr- irtækja í greiðslumiðlun og annarra fyrirtækja eða aðila sem lúta opinberu eftirliti með starfsemi sinni, samanber lög um opinbert eftirlit með fjármála- starfsemi. Öllum er skylt að láta Seðlabankanum í té þær upplýsingar sem hann þarf á að halda til hagskýrslugerðar að viðlögðum viðurlögum. Þá gerir bankinn skýrslur og áætlanir um peningamál, greiðslujöfnuð, gengis- og gjaldeyrismál og annað sem hlutverk og stefnu bankans varðar. Jakob segir að bankinn mæli mjög ítarlega, og kannski um of, lántökur til landsins og skuldir þjóð- arinnar, en ekki takist að mæla nægilega vel fjár- festingar Íslendinga erlendis, sem þó geti skilað sér að einhverju leyti til baka, m.a. í arðgreiðslum. Efnahagsstaðan sé því ekki jafn slæm og mælingar geti gefið til kynna. Ekki of íþyngjandi kröfur Hann segir að bankinn hafi lagt á það áherslu að vera ekki með of íþyngjandi kröfur gagnvart við- skiptabönkunum, þannig að menn fái ekki á tilfinn- inguna að um gjaldeyriseftirlit sé að ræða, heldur aðeins að verið sé að mæla þjóðarhag og stöðuna út á við. „Aðrar þjóðir hafa glímt við sama vandamál og raunar má segja að vandinn sé ekki mestur hér- lendis,“ segir Jakob. „Hraðinn í þessum viðskiptum er slíkur að menn eiga fullt í fangi með að setja á þau mælistikur, meira að segja nafnabreyting á fyr- irtæki getur gert okkur erfitt fyrir og sömuleiðis tíðari starfsmannavelta. Fyrirtækin eru líka mis- jafnlega örlát á upplýsingar. Við verðum t.d. að vita af fjármagnsflæði úr landi, oft með fyrirspurnum eða í gegnum fjölmiðla, til að geta spurt um það, því við fáum ekkert sjálfkrafa í hús.“ Aðferðafræði gagnrýnd og of fámennt starfslið NÝ sjónvarpsstöð í eigu fjölmiðlafyr- irtækisins 365 prent- og ljósvaka- miðla tekur til starfa í haust og verð- ur dagskráin einkum fréttatengd. Róbert Marshall hefur verið ráðinn framkvæmdalegur forstöðumaður nýs fréttasviðs 365. Hann mun und- irbúa og stjórna rekstri nýju stöðv- arinnar. Sigmundur Ernir Rúnars- son verður fréttaritstjóri stöðvar- innar og jafnframt fréttastjóri Stöðvar 2. „Rekstrargrundvöllur fyrir stöð- inni er góður, eins og gildir um rekst- ur 365 almennt. Í þriggja mánaða uppgjöri í upphafi árs kom fram að rekstrarafgangur var nálægt tveimur og hálfri milljón á dag,“ segir Gunnar Smári Egilsson, framkvæmdastjóri 365. Sent verður út í opinni dagskrá frá kl. 07-23 og hefjast útsendingar eftir tvo til þrjá mánuði. „Ritstjórnirnar sjálfstæðar“ „Við ætlum að búa til fréttaveitu innan fyrirtækisins sem mun heita Fréttavaktin. Hún sinnir öllu því sem áður hefur fallið undir fréttasvið Bylgjunnar, Talstöðvarinnar og Vísi- s.is en einbeitir sér að vefnum. Einnig mun Fréttavaktin búa til efni fyrir nýju fréttastöðina. Til hliðar við þessa fréttaveitu eru síðan kvöld- fréttir kl. 18.30 og fréttastöðin, Vísir, Bylgjan og Talstöðin og að einhverju leyti Fréttablaðið,“ segir Róbert Marshall sem og að allt verði þetta sjálfstæðar ritstjórnir. „Við nýtum okkur samlegðaráhrif í fyrirtækinu til að að gera fréttaþjónustuna skil- virkari. Það er ekki verið að fella nið- ur eldveggi. Við erum að nýta þær bjargir sem eru til staðar í fyrirtæki sem býr yfir miðlum á öllum sviðum fjölmiðlunar þannig að fréttaþjónust- an verði betri.“ Róbert segist sjá fram á nýráðn- ingar og að stöðugildi verði færð til. „Meðan RÚV er að skera niður og fækka stöðugildum í fréttaþjónustu erum við að bæta við fólki. Markmiðið er augljóst, við ætlum að verða betri en RÚV og betri en mbl.is og gefa út betra Fréttablað en Morgunblaðið.“ Róbert segir sína stöðu ekki rit- stjórnarlega, hún sé á sviði rekstrar og þau svið aðskilin. „Menn sem taka ákvarðanir um rekstur hafa ekki ver- ið blaðamenn. Nú verður tryggt að maður með skilning á fréttum og fjöl- miðlum tekur þær,“ segir hann en enn fremur að hann líti ekki svo á að hann hafi yfirgefið blaðamennsku. „Ég verð í draumahlutverki, að end- urskilgreina fréttaþjónustu í landinu. Hver einasti blaðamaður yrði full- sæmdur af þessu starfi.“ „Endurheimti traustið strax“ Þar sem Róbert tekur nú við stjórnunarstarfi, mun hann segja af sér sem formaður Blaðamannafélags Íslands. „Það er mikil eftirsjá í Blaða- mannafélaginu sem ég hef lagt tíma og metnað í að gera að lifandi afli í þjóðfélagsumræðunni. Ég get nefnt stóra áfanga eins og fjölmiðlafrum- varpið og Blaðamannaverðlaunin, sem og stuðning við fréttamenn RÚV við ráðningu fréttastjóra í vor,“ segir hann, þótt vissulega séu mörg verk- efni líka framundan í félaginu, svo sem kjaramál. „Ég lít svo á að mér hafi boðist tækifæri til að vinna að fréttum og fréttamennsku sem ég er fæddur til að gera. Og ég veit að Arna Schram [varaformaður BÍ] er vel til þess fallin að taka við formennsku í félaginu og stjórnarmenn áhuga- samir. Ég er ekki ómissandi.“ Í janúar sagði Róbert af sér sem fréttamaður Stöðvar 2 í kjölfar rang- færslu í frétt. Telur hann sig hafa endurheimt traustið sem þarf til að gegna stjórnunarstarfi við fjölmiðil? „Mér finnst ég hafa gert það um leið og ég sagði starfi mínu lausu hjá Stöð 2. Daginn eftir að ég tók þessa ákvörðun fannst mér rækilega undir- strikað að þetta hefðu verið heiðarleg mistök og að ég hefði tekið ábyrgð á þeim mistökum og tekið afleiðingun- um.“ Nýtt fréttasjónvarp í haust Allir fjölmiðlar 365 tengdir sömu fréttaveitu Eftir Önnu Pálu Sverrisdóttur aps@mbl.is Morgunblaðið/Sverrir Frá húsnæði 365 fjölmiðlanna við Skaftahlíð í Reykjavík. „FYRIR mig er þetta eitt morðmál af mörgum, þótt hvert mál sé sérstakt og málin mismunandi flókin,“ segir Gísli Guðjónsson réttarsálfræðingur sem fenginn hefur verið til að meta Lars Grønnerød, 47 ára sakborning sem var dæmdur í 18 ára fangelsi fyrir þátt sinn í Orderud- morðmálinu, ein- hverju umtal- aðasta sakamáli Noregs í seinni tíð. Verjandi Grønnerød fékk Gísla til að meta skjólstæðing sinn í tengslum við vinnu sína við að fá mál ákæruvalds- ins gegn Grønnerød og Veronicu Orderud endurupptekið. Eins og fram hefur komið segist verjandinn hafa aflað nýrra sönnunargagna í málinu sem höfðað var gegn fjórum sakborningum fyrir morð á þremur fórnarlömbum á Orderud-býlinu skammt fyrir norðan Ósló hinn 22. maí árið 1999. Gísli tjáir sig ekki um málið að öðru leyti en því að hann staðfestir að hann sé kominn í málið og hafi rætt við Grønnerød. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Gísli kemur að Orderud-málinu því árið 2002 lagði hann sálfræðilegt mat á tvo sakborn- inga, hjónin Per og Veronica Orde- rud, og gaf vitnisburð fyrir dómi. „Hvert mál er sérstakt“ Gísli Guðjónsson Gísli Guðjónsson, réttarsálfræðingur í Orderud-morðmálinu Í GÆR hækkaði áskriftargjald að Stöð 2 um 7,4 prósent. Almennt áskriftarverð hækkar því úr 4.672 krónum í 5.045. Fyrir félaga í M12 klúbbnum var verðið 4.286 en verð- ur 4.626 krónur. Ellilífeyrisþegar og öryrkjar fá 5% afslátt af áskrift- argjöldum. Í fréttatilkynningu frá 365 segir að frá árinu 1998 hafi áskriftarverð Stöðvar 2 dregist aft- ur úr almennri verðlagsþróun, þrátt fyrir stóreflda innlenda dag- skrárgerð og bætta þjónustu. Stöð 2 hækkar áskriftargjald ♦♦♦ PÁLL Magnússon hefur sagt starfi sínu hjá fyrirtæk- inu 365 lausu, en hann starfaði sem frétta- og sjón- varpsstjóri Stöðv- ar 2. „Það er ekki komið á hreint en ég tel þó allar lík- ur á því að ég sæki um embætti útvarpsstjóra,“ sagði Páll í samtali við Morg- unblaðið. Hann segir að í sjálfu sér hefði ver- ið spennandi að taka þátt í uppbygg- ingarstarfi hjá 365. „En ég var í ákveðnum grundvallaratriðum ósammála þeirri stefnu sem fyr- irtækinu hafði verið mörkuð og gerði eigendum og stjórnendum 365 grein fyrir þeirri afstöðu um helgina og til- kynnti á mánudaginn þá ákvörðun að fara frá fyrirtækinu. Mér fannst mest hreinskiptni í því fólgin að fara af skútunni í staðinn fyrir að lufsast á henni í átt sem ég vildi ekki sigla. Páll segir að ákvörðunin varði ekki einstaklinga eða erfiðleika í samstarfi „heldur ærlegan, faglegan ágreining um hvert bæri að stefna.“ Páll segir að það verði sér ákvörð- un, sæki hann um embætti útvarps- stjóra. „Þetta fellur saman í tíma en á auðvitað ekki efnislega saman. Ég hætti af tilteknum og tilgreindum ástæðum hjá 365 en allt aðrar að- stæður lúta að því að ég hyggst sækja um starf hjá Ríkisútvarpinu. Páll segist telja sig vel hæfan til að gegna embættinu og gerir sér vonir um að hreppa hnossið. „En það er að sjálfsögðu ekki á vísan að róa með það.“ Sækist líklega eftir embætti útvarpsstjóra Páll Magnússon

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.