Morgunblaðið - 21.07.2005, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2005 11
FRÉTTIR
S M Á R A L I N D
Sími 517 7007
ÚTSALA
Enn meiri verðlækkun
40-75%
afsláttur
Áður Nú
Haldari 3.490 kr. 1.745 kr.
Strengur 1.790 kr. 1.074 kr.
Bikini 6.580 kr. 1.595 kr.
Sundbolur 6.990 kr. 4.194 kr.
Heimagallar 6.990 kr. 2.796 kr.
ÚTSALA
NÝTT KO
RTATÍMAB
ÍL
H Æ Ð A S M Á R A 4 • S Í M I 5 4 4 5 9 5 9
H V E R A F O L D 1 - 3 , G R A F A R V O G I • S Í M I 5 7 7 4 9 4 9
Í I
- , I Í I
500
1000
1500
2000
www.feminin.is
Bæjarlind 12, Kópavogi • sími 544 2222
Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 10-16.
Str. 36-56
Þau
gerast
ekki
betri
verðin á
útsölum!
Kringlunni, sími 553 2888
Mustang
Kúrekastígvélin
komin aftur
Margar gerðir og litir
póstsendum
Opið til kl. 21.00 í kvöld
Opnum
kl. 9.00
virka daga
Laugavegi 34, sími 551 4301
Tilboðsdagar
JÓN Sigurðsson seðlabankastjóri
segir að það sem mestu máli
skipti varðandi útlán Seðlabank-
ans séu vextirnir á útlánunum, en
ekki þær upphæðir sem bankinn
láni út. Í Morgunblaðinu í gær
var haft eftir Guðmundi Bjarna-
syni, framkvæmdastjóra Íbúða-
lánasjóðs, að þegar sjóðurinn
legði inn fé í Seðlabankann,
sæktu aðrir bankar sér einfald-
lega meira fé þangað. Jón segir
Seðlabanka Íslands ekki loka inni
peninga. „En með stýrivöxtum
sínum leitast hann við að hafa
áhrif á þróun heildarumsvifa í
hagkerfinu í því skyni að sækja
að markmiði sínu, sem er 2,5%
verðbólga á ári. Það er misskiln-
ingur ef menn halda að það skipti
öllu máli hvort útlán hér eða út-
lán þar aukist, minnki eða standi
í stað. Meginmáli skiptir að heild-
aráhrif stýrivaxta Seðlabanka Ís-
lands séu sem mest og það verður
best tryggt með því að þessu fjár-
magni sem við erum hér að fjalla
um, sé miðlað í gegnum Seðla-
bankann.“
Hlutverk Seðlabankans
Hann segir mikilvægt að hafa í
huga að Seðlabanki Íslands hafi
ekki það hlutverk að blanda sér í
umræður eða
ákvarðanir á
stjórnmálavett-
vangi umfram
það sem snerti
beinlínis mark-
mið bankans,
sem er annars
vegar verð-
bólgumarkmiðið
um stöðugleika í
verðlagsþróun
og hins vegar öryggi fjármála-
kerfisins í landinu. „Allar athuga-
semdir, yfirlýsingar og ummæli
af hálfu Seðlabankans varðandi
málefni Íbúðalánasjóðs hafa tak-
markast við þetta,“ segir Jón.
Í viðtalinu í gær sagði Guð-
mundur að Seðlabankinn byði upp
á lægri vexti en bankarnir. Jón
segir að sé hugsað til þess að
stýrivextir Seðlabankans hafi
fyllstu áhrif á verðlagsþróunina í
hagkerfinu verði að hafa það í
huga að þar með breytist for-
sendur vaxtamismunarins, sem
um hefur verið rætt. „Þar með
veldur stöðugleiki í verðlagsþró-
uninni því að mismunur á vöxtum
og vaxtatilboðum reiknast allt
öðruvísi að raungildi heldur en
þegar verðbólguþróun verður á
aðra leið,“ sagði Jón.
Jón Sigurðsson seðlabankastjóri
Vextirnir skipta máli,
ekki magn útlána
Jón
Sigurðsson
ÍBÚÐALÁNASJÓÐUR hefur brugðist rétt við
þeim aðstæðum sem upp komu í kjölfar mikilla upp-
greiðslna húsnæðislána, að mati Eddu Rósar Karls-
dóttur, forstöðumanns greiningardeildar Lands-
bankans. Sú staða sem upp er komin valdi því hins
vegar að umræða um hlutverk hans og framtíð hljóti
að halda áfram og þá geti hugsast að hann færist í
auknum mæli út í hlutverk heildsölubanka, að mati
Eddu og Guðjóns Rúnarssonar, framkvæmdastjóra
Samtaka banka og verðbréfafyrirtækja, sem telur að
það geti verið einn af möguleikunum til þess að
bjarga sjóðnum að hann yrði heildsölubanki og bend-
ir á að sú hugmynd hafi raunar komið upp áður.
Edda Rós segir ljóst að staða sjóðsins sé erfið eftir
þær breytingar sem urðu í fyrra. „Með allar þessar
uppgreiðslur sem eru að koma situr sjóðurinn uppi
með skuldbindingar til allt að 40 ára. Miðað við
hvernig umgjörðin um sjóðinn er í dag held ég að
sjóðurinn hafi gert það besta í stöðunni til að áhættu-
verja sig og ég held að það hafi verið skynsamlega
tekið á því hvað það varðar,“ segir Edda en bætir við
að það sé spurning hvort sjóðurinn geti haldið áfram
að starfa í þessu umhverfi og hvort ekki þurfi að end-
urskoða bæði hlutverk og markmið sjóðsins.
Spurð hvort sjóðurinn gæti þróast út í að hafa auk-
ið félagslegt hlutverk segist hún telja að þörf sé á
slíku. „Hlutverk sjóðsins getur orðið breiðara, sem
getur á móti aðstoðað hann í þessum félagslegu þátt-
um. Ég sé fyrir mér að hann geti tekið að sér heild-
söluhlutverk, svipað og við sjáum í Bandaríkjunum,
þ.e. banki sem tekur þátt í fjármögnun án ríkis-
ábyrgðar. Ástæðan er sú að það getur skilað almenn-
ingi betri kjörum,“ segir Edda.
Atli B. Guðmundsson hjá greiningardeild Íslands-
banka segir að sú staða sem upp hafi komið muni
sennilega ekki vara mjög lengi og bendir hann á
þann möguleika að bankarnir muni í framtíðinni að-
skilja húsnæðislán sín frá annarri starfsemi og fjár-
magna útlán með útgáfu skuldabréfa, svokallaðri
verðbréfun. Íbúðalánasjóður gæti hins vegar komið
að fjármögnun slíkra útlána.
Hugmyndin kynnt
Í viðtali við Morgunblaðið í gær setti Guðmundur
Bjarnason, framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, fram
þá hugmynd að hlutverk sjóðsins gæti þróast út í að
gerðir yrðu samningar við bankana þar sem Íbúða-
lánasjóði yrði falið hlutverk í fjármögnun þeirra lána.
Að sögn Guðjóns Rúnarssonar er þessi hugmynd
ekki ný af nálinni og var raunar fyrst sett fram af
SBV árið 2003.
„Þá sendum við bréf til félagsmálaráðherra með
þessari svokölluðu heildsöluleið, sem Guðmundur
nefnir núna. Við fórum fram á að skoðað yrði hvort
breyta ætti hlutverki sjóðsins úr beinum lánveitanda
til einstaklinga í endurfjármögnunarsjóð í líkingu við
það sem það þekkist erlendis,“ segir Guðjón og bætir
við að það sé jákvætt að þetta sé nefnt núna enda
væri þetta ein af mögulegum leiðum til þess að hjálpa
sjóðnum úr þeim vanda sem hann er í staddur. Með
heildsölubanka er átt við fjármálastofnun sem sér
um að afla fjármagns og lána bönkum, en er ekki í
beinum viðskiptum við viðskipavinina.
Ásgeir Jónsson, hagfræðingur á greiningardeild
KB banka, telur ástandið á íbúðalánamarkaði vera
alvarlegt. Í kjölfar vaxtalækkana viðskiptabank-
annahafa uppgreiðslur eldri húsbréfalána aukist
verulega. „Vandamálið er hins vegar það að nýju
íbúðalánin sem voru gefin út á síðasta ári í stað hús-
bréfanna eru ekki með uppgreiðsluákvæði. Þannig
getur Íbúðalánasjóður ekki brugðist við upp-
greiðslum almennings með uppgreiðslu á sínum eig-
in skuldbindingum, Íbúðabréfum, sem eru nú úti-
standandi á mun hærri vöxtum en gerist og gengur á
fjármálamarkaði.“ Af þeim sökum hafi uppgreiðslur
almennings leitt til þess að Íbúðalánasjóður situr
uppi með töluvert tap vegna þess að innlánsvextir
sjóðsins eru raunverulega orðnir hærri en útlána-
vextir sjóðsins. „Til þess að bregðast við þessu hefur
sjóðurinn síðan hafið lánveitingar til banka og spari-
sjóða með skilmálum sem verða að teljast varasamir
bæði fyrir fjárhag íslenska ríkisins sem hefur gengist
í ábyrgð fyrir sjóðinn og efnahagslegan stöðugleika í
landinu eins og Seðlabankinn hefur bent á.“
Íbúðalánasjóður gæti farið út
í hlutverk heildsölubanka
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111