Morgunblaðið - 21.07.2005, Page 14

Morgunblaðið - 21.07.2005, Page 14
www.flugger.com Notaðu rakamælir og fáðu svarið Verð aðeins 998 kr. 10 28 61 Er tréverkið þurrt? Viðarvörn Stórhöfða 44 110 Reykjavik Sími 567 4400 Grundarfjörður | Ásgeir Valdi- marsson, skipstjóri í Grunda- firði, stóðst ekki mátið og faðm- aði þessa ungu snót, sem hefur verið sett upp við höfnina í Grundarfirði, þegar hann var að landa. Brúðan setur skemmti- legan svip á mannlífið við höfn- ina. Hafa til dæmis margir ferða- menn látið taka af sér mynd við þessarar hlédrægu fyrirsætu. Hitt er svo annað mál að þrátt fyrir nokkrar fyrirspurnir veit enginn hver hefur ráðið þennan nýja starfsmann hafnarinnar í vinnu. Hvorki bæjarstjórinn né hafnarverðirnir kannast við að hún sé á launaskrá. Morgunblaðið/Alfons Nýr starfsmaður við höfnina Vinahót Höfuðborgin | Akureyri | Landið | Austurland Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust- urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Fyrri sláttur er víðast hvar að verða búinn hér nema eitthvað alveg sérstakt sé. Það verður ákaflega góð heyskapartíð hér fyrir austan Mýrdalsjökulinn en sýnilega verri þegar vestar dregur. Við erum á góðu svæði gagnvart heyskap og víðast hvar heyjast nokkuð vel þrátt fyrir kalt vor. Í vor var mikill þurrkur og viðraði vel á grasmaðkinn. Hann hefur verið hér af- skaplega víða, eiginlega alls staðar á svæð- inu milli Mýrdalssands og Skeiðarársands, en þetta er fyrsta vorið í nokkuð langan tíma þar sem hann er mikill. Það virðist hafa farið þannig að þetta mikla ryk sem kom austan af Skeiðarársandi eftir eldgosið 1996 hafi vond áhrif á grasmaðkinn. Hann byrjaði að koma í fyrra eftir nokkur ár en nú er hann kominn í öllu sínu veldi. Í rykinu voru einhver eiturefni sem sköðuðu maðk- inn.    Þetta svæði er dálítið undirlagt af ryki frá jökulhlaupum og ekki síður frá Skaft- ársvæðinu eftir að sá hluti Skaftár sem hlaupin koma í hætti að fara í Langasjó. Fyrsta Skaftárhlaupið í þessum hefð- bundna stíl kom árið 1956 og þá rann þetta ekki lengur í Langasjó. Hann tók við svo miklu að hlaupin tolldu frekar í árfarvegum á eftir. Þetta var vatnsmiðlun og satt að segja tel ég að það hafi verið af hinu illa þegar Skaftá fór ekki lengur í Langasjó. Við myndum mörg hér gráta þurrum tárum ef Langisjórinn breyttist í jökulvatn aftur.    Það er búið að lengja malbikið suður Landbrotið nokkuð og er komið suður und- ir hraun. Það átti nú að fara alveg í gegnum Landbrotið en einhverra hluta vegna var það ekki gert og það verður nú enn þá dálít- ill spotti eftir. Þetta er samt strax til bóta, þetta eru þó alltaf fimm kílómetrar eða ör- lítið meira sem verður malbikað á þessu vori. Vegagerð er einnig í gangi fyrir austan Teygingalæk þar sem verið er að leggja nýjan veg yfir Eldvatnstangann. Það er erfitt að gera veg þar yfir og voru allt of miklar beygjur á gamla veginum. Úr sveitinni HNAUSAR Í MEÐALLANDI EFTIR VILHJÁLM EYJÓLFSSON FRÉTTARITARA Húsdýrin okkarog aðrir vættirer heiti sýn- ingar sem opðnuð verð- ur í dag í gallerí Undir stiganum á bæjar- bókasafninu í Þorláks- höfn. Það er leirlista- konan Rósanna Ingólfsdóttir Welding sem sýnir leirmuni sem hún hefur útbúið á síð- ustu dögum og brennt í raku-ofni. Rósanna hefur búið í Svíþjóð í tuttugu ár, en er fædd og uppalin í Vestmannaeyjum. Rós- anna rekur vinnustofu fyrir norðan Gautaborg og hefur þróað list sína, sérstaklega brennslu leirmuna í raku-ofni og gerð skúlptúra. Í sumar hélt hún lista- smiðju fyrir börn á leikjanámskeiði í Þorlákshöfn, þar sem hún kenndi þeim að móta bát og farm hans í grófan leir. Börnin fengu svo að aðstoða við að búa til ofn og fylgjast með brennslu leirmunanna. Sýning Rósönnu stendur til 30. júlí. Húsdýrin okkar og aðrir vættir Hreiðar Karlssonsegir faglegtfréttamat fjöl- miðlanna ekki bregðast fremur en venjulega; helstu tíðindi dagsins að Kári Stefánsson mæti til vinnu á LSH. Hreiðar yrkir: Kannske verður Kári að gagni, kannske hans sé þörf. Það er von að þjóðin fagni, þegar hann byrjar störf. Magnús Ólafsson frá Sveinsstöðum yrkir: Eflaust telst það alveg rétt ýmsu nær að sinna. En hverjum myndi finnast frétt færi ég að vinna. Þá Friðrik Stein- grímsson: Kára strax ég kem til varna karlinn er nú vinur minn. Vitiði að hann vinni þarna? Var hann ekki lagður inn? Loks Davíð Hjálmar Haraldsson: Óttast skaltu ei um hann, þeir aldrei held ég tími að leggja inn svo langan mann í löngu fylltu rými. Kári í vinnu pebl@mbl.is Grundarfjörður | Á góðri stund, bæjarhá- tíð Grundfirðinga verður haldin í áttunda sinn nú um helgina. Félag atvinnulífsins í Grundarfirði sér um umsjón og undirbún- ing, en hefur fengið fjöllistamanninn Örn Inga til liðs við sig . Hátíðin hefst í kvöld, fimmtudagskvöld með orgeltónleikum, dansleik og hverfa- skreytingum. Bænum er skipt upp í fjögur hverfi sem hvert fær sinn lit til að skreyta sig með. Árviss grillveisla Samkaupa og veitingahússins Kaffi 59 er einnig á dag- skrá. Af öðrum liðum má nefna tónleika, kvöldvöku með brennu og dansleiki en Sál- in hans Jóns míns leikur í samkomuhúsi Grundarfjarðar. Víðavangshlaup er á laug- ardag, Hálandaleikar, bryggjuball, leik- tæki verða sett upp fyrir börnin og þá verða veglegar hverfahátíðir sem enda með skrúðgöngum og heimatilbúnum skemmtiatriðum en hersingar munu mæt- ast á hátíðarsvæði við höfnina. Bæjarhátíðin Á góðri stund um helgina Ísafjörður | Endurnýja þarf síupoka í reyk- hreinsibúnaði sorpendurvinnslunnar Funa í botni Skutulsfjarðar og er áætlaður kostn- aður um ein milljón króna. Ástæðan er sú að dregið hefur úr virkni síubúnaðar sem tek- inn var í notkun fyrir rúmu ári síðan. Á vef bæjarins besta segir að ástæðan sé sú að göt séu komin á hluta þeirra sextíu sía sem búnaðurinn samanstendur af. Ekki var gert ráð fyrir því í fjárhagsáætlun að til end- urnýjunar kæmi svo fljótt. Bæjarráð sam- þykkti beiðni og vísaði fjármögnun til end- urskoðunar á fjárhagsáætlun þessa árs. Endurnýja þarf síu ♦♦♦ ♦♦♦ Grindavík | Ferðamálafélag Grindavíkur hefur gefið út upplýsingarit um Húshólma í Ögmundarhrauni en þar eru ævafornar mannvistarleifar. Í tilefni þess býður félagið íbúum Grindavíkur og öðrum í ferð í Hús- hólma á laugardag. Menn geta mætt við bæjarskrifstofuna í Grindavík klukkan 13 á laugardag og þegið rútuferð á staðinn í boði Ferðamálafélags Grindavíkur eða mætt á Ísólfsskálavegi undir Krýsuvíkur-Mælifelli kl 13:30. Leiðsögumaður er Grindvíkingur- inn Ómar Smári Ármannsson Ferð í Húshólma

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.