Morgunblaðið - 21.07.2005, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2005 17
MINNSTAÐUR
AUSTURLAND
Egilsstaðir | Verktakafyrirtækið
Arnarfell og Björgunarsveitin Hér-
að hafa skrifað undir samstarfs-
samning vegna viðbragðsáætlunar
Arnarfells við jarðgangagerð og aðr-
ar framkvæmdir við Ufsarveitur,
austan Snæfells. Samningurinn er til
fjögurra ára eða allt til áætlaðra
verkloka.
Verkið er hluti af virkjunarfram-
kvæmdum við Kárahnjúka en Arn-
arfell er nú þegar búið að bora um
eins km göng sem munu tengjast að-
rennslisgöngunum frá Kárahnjúk-
um. Um 70 starfsmenn eru nú á veg-
um fyrirtækisins við rætur Snæfells
og er þar unnið á vöktum allan sólar-
hringinn.
Með samningnum skuldbindur
Björgunarsveitin Hérað sig til að
vera til taks með mannafla og tæki ef
óhöpp verða og tryggja að ávallt sé
til staðar sjúkrabifreið og björgun-
arbúnaður á vinnusvæðinu. Sökum
þess að björgunarsveitin þarf ávallt
að hafa ákveðinn búnað í byggð þá
færði Arnarfell sveitinni fullbúinn,
breyttan björgunarbíl að gjöf.
Kjartan Einarsson, formaður
Björgunarsveitarinnar Héraðs, seg-
ir samninginn vera mikla viðurkenn-
ingu á því starfi sem fer fram hjá
björgunarsveitum landsins og það sé
ánægjulegt að fyrirtæki skuli sjá sér
hag í því að nýta sér þá þekkingu og
tækjabúnað sem þar er til staðar.
Arnarfell og björgunarsveit
hafa samstarf um viðbragð
Borgarfjörður eystri | Undirbún-
ingur er nú á lokasprettinum á
Borgarfirði eystra fyrir menning-
arhátíðina ,,Þakka þér fyrir að
ég kom!“ sem haldin verður laug-
ardaginn 23. júlí næstkomandi.
Hátíðin er haldin í tilefni þess að
120 ár eru liðin frá fæðingu Jó-
hannesar Sveinssonar Kjarval en
hann ólst upp á Borgarfirði og
málaði þar margar af sínum
frægustu myndum, bæði af borg-
firsku landslagi og borgfirsku
fólki. Það er Kjarvalsstofa á
Borgarfirði sem stendur fyrir há-
tíðarhöldunum og meðal þess sem
í boði verður er opnun sýning-
arinnar ,,Vættir í verkum Kjar-
vals“ í Vinaminni og málþing um
listamanninn þar sem fram-
sögumenn verða meðal annars Ei-
ríkur Þorláksson forstöðumaður
Listasafns Reykjavíkur-Kjarvals-
staða, Einar Garibaldi myndlist-
armaður auk barnabarns og al-
nafna meistarans Jóhannesar
Sveinssonar Kjarval.
Emilíana á Borgarfirði í æsku
Hápunktur hátíðarhaldanna
eru svo tónleikar Emilíönu Torr-
ini og hljómsveitar hennar í
,,Bræðslunni“ sem er gamalt fisk-
verkunarhús sem hefur verið nýtt
sem geymsla síðustu áratugi.
Heimamaðurinn Áskell Heiðar
Ásgeirsson, sem hefur notað sum-
arfríið til að skipuleggja hátíðina,
segir að sú hugmynd af fá Emil-
íönu á staðinn sé tilkomin af því
að hún á það sameiginlegt með
meistara Kjarval að hafa dvalist
á Borgarfirði hluta af sinni æsku.
Hún hafi tekið ástfóstri við stað-
inn og því hafi henni strax litist
vel á að spila þar. Áskell Heiðar
þurfti svo ekki að leita langt eftir
listamanni til að hita upp fyrir
Emilíönu og hennar hljómsveit
því bróðir hans Magni Ásgeirs-
son, söngvari hljómsveitarinnar Á
móti sól, ætlar að gera það auk
þess að halda sérstaka tónleika
fyrir börn í tengslum við hátíðina
og spila sem trúbador í Fjarð-
arborg að loknum tónleikum Em-
ilíönu. Áskell Heiðar segir vonir
standa til að fjölmenni verði á
málþinginu og tónleikunum sem
boðið er upp á en sýningin
,,Vættir í verkum Kjarvals“
standi svo áfram til 15. ágúst.
Menningarhátíð haldin um helgina á Borgarfirði eystra
Morgunblaðið/Sigurður Jökull
Hátíð Magni Ásgeirsson heldur tónleika á hátíðinni á Borgarfirði eystra.
Ljósmynd/Kevin Westenberg
Emilíana Torrini heldur tónleika.
Þakka þér
fyrir að
ég kom
Er löggiltur fasteignasali
a› selja eignina flína?
sími 530 6500fax 530 6505www.heimili.isSkipholti 29A105 Reykjavík opi› mánudagatil föstudaga 9-17
Hjá Heimili fasteignasölu starfa
fjórir löggiltir fasteignasalar sem
hafa áralanga reynslu af fasteigna-
vi›skiptum. fia› er flví löggiltur
fasteignasali sem heldur utan um
allt ferli›, allt frá flví eignin er
sko›u› og flar til afsal er undirrita›.
Metna›ur okkar á Heimili er a›
vi›hafa vöndu› og fagleg vinnu-
brög› sem tryggja flér besta ver›i›
og ábyrga fljónustu í samræmi vi›
flau lög og reglur sem gilda um
fasteignavi›skipti.
Finbogi Hilmarsson
lögg. Fasteignasali
Einar Gu›mundsson
lögg. Fasteignasali
Anney Bæringsdóttir
lögg. Fasteignasali
Bogi Pétursson
lögg. Fasteignasali
Hafdís Björnsdóttir
Ritari
HÁGÆÐA GASGRILL
Grillið er úr ryðfríu stáli (304)
með þremur pottbrennarum
og bakbrennara
(stærð 161 x 68 x 126 cm).
Grillið er með rafknúnum
grillteini, elektrónískum
kveikjubúnaði, ásamt
yfirbreiðslu.
Upplýsingar í síma
517 2220.
Bakverk-heildsala ehf,
Krókhálsi 5f, 110 Reykjavík
ÓTR
ÚLE
GT
VER
Ð
kr.
68
.00
0