Morgunblaðið - 21.07.2005, Side 18
18 FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF | NEYTENDUR
Krónan
Gildir 20.–26. júlí verð nú verð áður mælie. verð
Bautabúrið Dalapylsa........................... 89 119 222 kr. kg
Vestfiskur-Krónubitafiskur ..................... 399 499 3.990 kr. kg
SS Mexico svínahnakkasn., kryddl......... 895 1.098 895 kr. kg
SS Mexico grísakótilettur ...................... 998 1.548 998 kr. kg
Krónu skinka ....................................... 169 198 605 kr. kg
GM Cheerios, tvöfaldur ......................... 399 499 380 kr. kg
Maískorn............................................. 29 49 96 kr. kg
Náttúra safi, ACE/appelsínu/epla ......... 99 119 99 kr. ltr
Bautabúrið Bacon, bunki ...................... 799 1.349 799 kr. kg
Bónus
Gildir 21.–24. júlí verð nú verð áður mælie. verð
Kók í dós, 33 ml .................................. 49 69 148 kr. ltr
Einnota kolagrill................................... 95 199 95 kr. stk.
K.f. grill lambaframpartssneiðar ............ 699 999 699 kr. kg
K.f. hangiframpartur m/beini ................ 699 999 699 kr. kg
Frosinn túnfiskur á grillið, 250 g ............ 199 459 796 kr. kg
Bónus kaldar grillsósur, 270 ml............. 139 515 kr. ltr
Red devil orkudrykkur, 250 ml .............. 79 129 316 kr. ltr
Einnota borðbúnaður ........................... 99 179 99 kr. stk.
Bónus kaldar samlokur......................... 98 129 98 kr. stk.
Fjarðarkaup
Gildir 21.–23. júlí verð nú verð áður mælie. verð
Pepsi og appelsín, 500 ml. ................... 49 89 98 kr. kg
Vatnsmelónur ...................................... 89 109 89 kr. kg
Fjallalambs grillsneiðar......................... 798 1.299 798 kr. kg
Fjallalambs glóðarsteik, framp. ............. 1.148 1.615 1.148 kr. kg
SS Bratwurst pylsur.............................. 662 828 662 kr. kg
SS Grand Orange helgarsteik ................ 1.263 1.579 1.263 kr. kg
Matfugl ferskur kjúklingur, heill.............. 419 598 419 kr. kg
Matfugl fersk kjúklingalæri/leggir .......... 419 599 419 kr. kg
Hagkaup
Gildir 21.–24. júlí verð nú verð áður mælie. verð
Fiorucci Parma skinka .......................... 499 609 499 kr. pk.
Holta úrb. kjúklingalæri, tandoori .......... 1.105 1.699 1.105 kr. kg
Bezt ferskar svínakótilettur.................... 839 1.398 839 kr. kg
Holta kryddl. kjúklingalundir í west ........ 1.293 1.990 1.293 kr. kg
SS lambalærisneiðar, frosnar................ 1.098 1.458 1.098 kr. kg
Nóatún
Gildir 21.–25. júlí verð nú verð áður mælie. verð
Lambalæri .......................................... 799 1.298 799 kr. kg
Lambahryggur ..................................... 998 1.478 998 kr. kg
Laxaflök, beinhreinsuð ......................... 899 1.298 899 kr. kg
Ungnautalundir.................................... 1.998 3.998 1.998 kr. kg
Vínber, rauð/græn ............................... 299 399 299 kr. kg
Nóa súkkulaðibitar, 3 tegundir .............. 199 259 995 kr. kg
Goða nautahakk, UN-1 ......................... 937 1.338 937 kr. stk.
Ora Lúxussíld, marineruð ...................... 149 249 397 kr. kg
Kellogg’s bar, 2 tegundir....................... 199 299 33 kr. kg
Knorr bollasúpur, 4 tegundir ................. 149 189 2.159 kr. kg
Samkaup/Úrval
Gildir 21.–24. júlí verð nú verð áður mælie. verð
Helgargrís með pestó á ítalska vísu ....... 1.166 1.665 1.166 kr. kg
Ísfugl kjúklinga salatstrimlar ................. 1.183 1.690 1.183 kr. kg
Gourmet BBQ grísahnakkasneiðar ......... 1.077 1.539 1.077 kr. kg
Gourmet BBQ grísakótilettur ................. 1.398 1.998 1.398 kr. kg
Grísakótilettur mediterranean................ 1.000 1.429 1.000 kr. kg
Matf. piri piri læri/legg ......................... 374 499 374 kr. kg
7up Free 2 ltr....................................... 99 196 50 kr. ltr
Kjúlli steiktir hot wings.......................... 699 998 699 kr. kg
Lambaprime m.pestó ........................... 1.539 2.199 1.539 kr. kg
Spar, Bæjarlind
Gildir 20. –26. júlí verð nú verð áður mælie. verð
Lamba grill lærisneiðar, kyddaðar.......... 1.198 1.798 1.198 kr. kg
Lamba grill sirlonsneiðar, kryddaðar ...... 989 1.298 989 kr. kg
Dreitill 1 ltr., D-vítamínbætt mjólk .......... 59 79 59 kr. ltr
Stoðmjólk 500 ml................................ 18 75 36 kr. ltr
Lamba grill framhrsneiðar, kryddaðar..... 989 1.598 989 kr. kg
Pepsí Max, 2 ltr. ................................... 119 192 60 kr. ltr
Vatnsmelónur ...................................... 89 129 89 kr. kg
Vöffluduft 500 g, Katla ......................... 299 386 598 kr. kg
Lamba grillkótilettur, kryddað................ 1.098 1.698 1.098 kr. kg
Þín verslun
Gildir 21.–27. júlí verð nú verð áður mælie. verð
Hatting hvítlauksbrauð, 2 stk. ............... 189 269 94 kr. stk.
Neskaffi Gull, 100 g ............................. 309 398 3.090 kr. kg
Kjúklinga grillleggir............................... 350 699 350 kr. kg
Tex Mex kjúklingavængir ....................... 250 499 250 kr. kg
Mexico grísakótilettur ........................... 1.174 1.428 1.174 kr. kg
Kit Kat, 3 stk. ...................................... 129 177 64 kr. stk.
Hunt’s tómatsósa, 680 g...................... 109 139 152 kr. kg
Svínakjöt, lax og kjúklingur á grillið
HELGARTILBOÐIN | neytendur@mbl.is
Helstu nauðsynjar erukeyptar í Bónus á Lauga-vegi og sér maðurinnminn yfirleitt um þau
stórinnkaup. Ég nýt hins vegar betur
að fara í sælkerabúðirnar í mið-
bænum en þær eru í nágrenni okk-
ar,“ segir Rebekka Sigurðardóttir,
kynningarfulltrúi hjá Félagsstofnun
stúdenta.
Þegar hún er innt eftir eftirlætis-
búðunum nefnir hún m.a. Ostabúð-
ina, Yggdrasil, Heilsuhúsið, Te og
kaffi, Kolaportið og síðast en ekki síst
verslunina Filippseyjar, sem er á
horni Hverfisgötu og Barónsstígs.
Þar ráða ríkjum systurnar Priscilla
og Zenaida, sem miðla gjarnan aust-
urlenskri matargerð til viðskiptavina,
séu þær spurðar. Búðin var sett á
laggirnar 1996 og flytja þær systur
inn allt sitt úrval sjálfar, m.a. sjáv-
armeti og harðfisk frá fjarlægum
slóðum sem okkur var boðið að
smakka þegar inn var komið.
Rebekka tekur beina stefnu í átt að
pastahillunum þar sem hún krækir
sér í svokallaðan hrísgrjónapappír og
hrísgrjónanúðlur, sem hún notar í af-
ar vinsælan rétt á heimilinu. Upp-
skriftin, sem fylgir, er einmitt að
þeim rétti. „Ég dýfi pappírnum í heitt
vatn og set síðan hrísgrjónanúðlur
inn í ásamt léttsteiktum lauk, hvít-
lauk, engifer og því grænmeti, sem til
er í ísskápnum, svo sem salati, söx-
uðum gulrótum, baunaspírum og ag-
úrku, myntu, rækjum og hoi sin sósu.
Þessu rúllar maður upp og borðar
með höndunum. Öllum fjölskyldu-
meðlimum finnst þetta sérlega gott
enda hefur þetta verið uppáhalds-
matur heima hjá mér lengi,“ segir
Rebekka sem lærði að laga þennan
rétt hjá hjálpsömum afgreiðslumanni
í asískri matvöruverslun í Richmond í
Virginíufylki í Bandaríkjunum þar
sem hún stundaði nám í almanna-
tengslum. Hoi sin sósuna má líka
nota sem ídýfu og sömuleiðis er afar
ljúffengt að bæta hökkuðum cashew-
hnetum eða ósöltuðum hnetum út í
hana.
Vel geymt leyndarmál
Í ávaxtahillunni eru margir fram-
andi ávextir, sem þarfnast útskýringa
við, og ferskar kryddjurtir eru fjöl-
margar í kæliborðinu, sem Rebekka
sneiðir hjá að svo stöddu enda ræktar
hún bæði myntu og annað í garðinum
sínum sem dugir að sinni. Hún vekur
sérstaka athygli á sítrónugrasi, sem
er ómissandi í alls konar súpur og
bendir á kókosmjólkina í næstu hill-
um, sem líka þarf að vera tiltæk í
skápunum. „Þessi búð er að mínu
mati afar vel geymt leyndarmál, sem
ég vil að sem flestir fái að njóta.“
Rebekka og maður hennar Stefán
Jónsson, leikari og leikstjóri, þurfa að
vera svolítið skipulögð í innkaup-
unum því þau reka býsna stórt heim-
ili. „Yfirleitt erum við fjögur, oft er-
um við sex og stundum erum við sjö
því samtals eigum við fimm börn, á
aldrinum átta mánaða til fjórtán ára,“
segir Rebekka þegar hún útskýrir
heimilisbraginn fyrir blaðamanni. Sjö
manna stórfjölskyldan var þá nýkom-
in úr þriggja vikna fríi frá Englandi
þar sem dvalið var í tvær vikur í
Cotswolds, skammt frá fæðingarbæ
Shakespeares, og síðan í viku í Lund-
únum.
Toppgæði í Kolaportinu
Kolaportið er sömuleiðis fastur lið-
ur í innkaupaleiðöngrum fjölskyld-
unnar um helgar því þar segist hús-
móðirin fá allt sitt sjávarfang og
meira til. „Stemningin er fín og jafn-
vel hægt að prútta ef innkaupin eru
stórtæk. Mér finnst frábært að versla
í Kolaportinu. Þar kaupi ég meðal
annars ferskan og frosinn fisk,
hörpuskel, rækjur, hákarl, harðfisk,
reyktan og grafinn lax, svartfugl og
lunda að ógleymdum bestu flatkök-
um í heimi. Þarna eru toppgæði á frá-
bæru verði og persónuleg og góð
þjónusta.“
„Við reynum að vera heilsusamleg
í mataræðinu, en erum stundum full-
miklir sælkerar. Borðum mikið sjáv-
arfang auk grænmetis- og pastarétta,
en yfirleitt notum við ekki kjöt ef
undan er skilið fuglakjöt. Við njótum
þess að borða góðan mat og verjum
töluverðum tíma í eldhúsinu. Yfirleitt
sé ég þó um verkstjórnina við mat-
seldina en Stefán er öflugur við frá-
gang og uppvask.“
Fullorðinna manna vandamál
Rebekka segist vilja mælast til að
fólk komi í miðborg Reykjavíkur til
annars en að drekka sig fullt um
helgar. „Hér eru margar góðar búðir
með fjölbreyttu úrvali. Ég mæli því
með að menn komi í miðborgina til að
versla og njóta í stað þess að drekka
frá sér vitið, rífa blóm úr pottum og
brjóta flöskur á tröppunum hjá okk-
ur, sem hér búum. Því hið svokallaða
ástand í miðborginni er ekki ungling-
um að kenna, eins og sumir vilja
halda fram, heldur blindfullu full-
orðnu fólki. Þetta er nokkuð sem
maður upplifir hvergi annars staðar
og er þjóðinni til skammar.“
HVAÐ ER Í MATINN? | Rebekka Sigurðardóttir eldar austurlenskt
Morgunblaðið/Eyþór
Rebekka Sigurðardóttir
virðir fyrir sér úrvalið
í versluninni Filippseyjum.
„Skemmtilegast að
versla í miðborginni“
Stórt heimili þarfnast
skipulagðra innkaupa.
Jóhanna Ingvarsdóttir
mælti sér mót við Re-
bekku Sigurðardóttur í
versluninni Filipps-
eyjum, þar sem hún seg-
ist finna gott úrval af
austurlensku góðgæti.
Fjölskyldan er
mikið fyrir
sushi, sem búið
er til frá
grunni á heim-
ilinu, en hrá-
efnið fæst t.d. í
versluninni
Filippseyjum.
join@mbl.is
Garðrúllur
fyrir fjóra
20 hrísgrjónablöð
200 g hrísgrjónanúðlur
1 laukur
3–4 hvítlauksrif
smábiti engifer
200 g hörpuskel
200 g rækjur
3 vel fullar msk. Hoi Sin-sósa
1/2 bolli nýmjólk
4 stórar gulrætur
1 agúrka
hálfur brúskur lambhagasalat
mynta
cashew-hnetur
ólífuolía
Sneiðið og saxið fjórar stórar
gulrætur, eina agúrku, hálfan
brúsk af lambhaga- eða öðru
salati og myntu og setjið á
bakka. Myljið cashew-hnetur í
mortéli.
Saxið og steikið lauk, hvítlauk
og engifer í ólífuolíu. Bætið
hörpuskel út í og steikið í tvær
mín. Hrærið Hoi Sin-sósu og
nýmjólk saman við, bætið
rækjum við og slökkvið undir.
Setjið vatn í pott, látið suðu
koma upp, setjið u.þ.b. 200
grömm af örþunnum hrísgrjón-
anúðlum út í. Slökkvið undir
pottinum eftir 1–2 mín. og hellið
vatni af.
Setjið stóra skál með heitu
vatni á mitt borðið, raðið öðru
hráefni í kring. Hver og einn
sér um að gera sinn mat og set-
ur inn í það sem hann vill.
Bleytið hrísgrjónablaðið vel í
vatninu og leggið á disk, raðið
hráefninu í miðjuna, núðlunum
neðst, og rúllið upp eins og
mexíkóskri burrito.