Morgunblaðið - 21.07.2005, Page 38

Morgunblaðið - 21.07.2005, Page 38
38 FIMMTUDAGUR 21. JÚLÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ Atvinnuauglýsingar Starf í tölvuverslun Tölvuverslun óskar eftir starfsmanni með þekk- ingu og áhuga á tölvum. Skriflegar umsóknir skal leggja inn á auglýs- ingadeild Mbl. merktar: „TX — 17410“. Gott aukastarf Snyrtileg, vandvirk og heiðarleg dama óskast einn dag í viku frá 1. sept. til heimilisstarfa í fallegu húsið í Reykjavík. Tilvalið fyrir heima- vinnandi eða nema í framhaldsnámi. Vinnutími samkomulag. Upplýsingar í síma 861 5602. Aðalbókari Oddi hf. fiskvinnsla og útgerð á Patreksfirði óskar eftir að ráða til starfa aðalbókara og launafulltrúa. Viðskiptafræðigráða eða sam- bærileg menntun áskilin og er reynsla af bók- haldi æskileg. Oddi hf. er stærsta sjávarútvegsfyrirtækið á sunnanverðum Vestfjörðum og starfa hjá því um 65 starfsmenn. Félagið hefur það að mark- miði að vera í fremstu röð í sjávarútvegi og vinnur að því að styrkja stöðu sína enn frekar á því sviði. Umsóknir skal senda framkvæmdastjóra fél- agsins, Sigurði Viggóssyni, eða í tölvupósti á oddi@oddihf.is, ásamt upplýsingum um menntun og starfsferil. Nánari upplýsingar í símum 450 2100 og 892 3968. Oddi hf. Eyrargötu 1, 450 Patreksfirði Tilkynningar BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SÍMI 411 3000 • MYNDSENDIR 411 3090 Reykjavíkurborg Skipulags- og byggingarsvið Auglýsing um nýtt deiliskipulag í Reykjavík Í samræmi við 25. gr. skipulags- og bygg- ingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með auglýst til kynningar tillaga að deiliskipulagi í Reykjavík. Reitur 1.184.0. Tillaga að deiliskipulagi reits sem afmarkast af Spítalastíg, Óðinsgötu, Bjargarstíg og Berg- staðastræti. Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að heimilt verði að gera minniháttar breytingar á húsum á reitnum s.s. gera skyggni, svalir, minni kvisti og lag- færingar án þess að breyta þurfi deiliskipulagi. Ofantaldar minniháttar breytingar skulu vera í samræmi við ákvæði Þróunaráætlunar Reykja- víkur varðandi hönnun breytinga og viðbygg- inga á miðborgarsvæði Reykjavíkur svo og ákvæði skipulags þessa um hverfisvernd. Vakin er sérstök athygli á því að auglýsingatími er frá 21. júlí til og með 15. september 2005 sem eru 8 vikur í stað lögboðinna 6 vikna. Um nánari útlistun á heimildum til breytinga á einstökum húsum og til skilmála almennt vísast til kynningargagn. Tillagan liggur frammi í upplýsingaskála skipulags- og byggingarsviðs Reykjavíkur- borgar í Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15, frá 21. júlí til og með 15. septem- ber 2005. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega eða á net- fangið skipulag@rvk.is, til skipulags- og byggingarsviðs (merkt skipulagsfulltrúa) eigi síðar en 15. september 2005. Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskil- ins frests, teljast samþykkja tillöguna. Reykjavík, 21. júlí 2005 Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur Félagslíf Fimmtudagur 21. júlí 2005 Almenn samkoma í Þríbúðum, Hverfisgötu 42, kl. 20:00. Predikun: Heiðar Guðnason. Mikill söngur og vitnisburðir. Allir velkomnir. www.samhjalp.is. Ferðamannakirkja. Opin dag- lega milli kl. 10.00 og 23.00. Í kvöld kl. 20.30 Samkoma. Sýnd verður myndasyrpa frá Íslandi. Föstudag kl. 20.30. Alþjóðlegt kvöld. Allir velkomnir. Raðauglýsingar 569 1100 FRÉTTIR ÚT er komið Almanak fyrir Ís- land 2006, sem Háskóli Íslands gefur út. Þetta er 170. árgang- ur ritsins. Dr. Þorsteinn Sæ- mundsson, stjörnufræðingur hjá Raunvísindastofnun Há- skólans, hefur reiknað alman- akið og búið það til prentunar. Ritið er 96 blaðsíður. Auk dagatals gefur alman- akið margvíslegar upplýsing- ar, svo sem um sjávarföll og gang himintungla. Lýst er helstu fyrirbærum á himni, sem frá Íslandi sjást. Í alman- akinu eru stjörnukort, kort sem sýnir áttavitastefnur á Ís- landi og kort sem sýnir tíma- belti heimsins. Þar er að finna yfirlit um hnetti himingeims- ins, mælieiningar, veðurfar, stærð og mannfjölda allra sjálfstæðra ríkja og tímann í höfuðborgum þeirra. Í þetta sinn er sérstaklega fjallað um miðtíma Greenwich og sam- ræmdan heimstíma, endur- tekningar í göngu reikistjarna og reglur um ritun talna og tímasetninga. Loks eru í almanakinu upplýsingar um helstu merkisdaga fjögur ár fram í tímann. Á heimasíðu almanaksins (almanak.hi.is) geta menn fundið ýmiss konar fróðleik til viðbótar, þar á meðal upplýs- ingar sem borist hafa eftir að almanakið fór í prentun. Háskólaútgáfan annast sölu almanaksins og dreifingu þess til bóksala. Almanakið kemur nú út í 4500 eintökum, en auk þess eru prentuð 1700 eintök sem Þjóðvina-félagið gefur út sem hluta af almanaki sínu með leyfi Háskólans. Almanak Háskóla Íslands komið út HÓPVINNUKERFI ehf. hefur gefið út nýja útgáfu af FOCAL Gæða- handbók en fyrirtækið hefur um árabil þróað FOCAL hugbún- aðarlausnir fyrir stofnanir og fyr- irtæki sem gera miklar kröfur til gæðastjórnunar og stjórnunar innri ferla, segir í fréttatilkynningu. FOCAL Gæðahandbók inniheldur öfluga rit- og útgáfustýringu skjala frá því að til þeirra er stofnað og þar til þau eru orðin að fullgildum gæða- skjölum hvort sem um er að ræða gæðastefnu og lýsingar á ábyrgð- arsviði, skilgreiningar, verklags- reglur, uppskriftir, leiðbeiningar, starfslýsingar, lýsingar á gæða- skrám eða önnur skjöl. Hægt er að ákveða hvaða skjöl eiga að birtast til að mynda á innra neti eða heimasíðu viðkomandi aðila ef það á við. Í nýju útgáfunni hefur nýtt útlit verið sett á kerfið og útgáfa gæða- skjala fyrir vefskoðara hefur verið stórlega endurbætt, segir í tilkynn- ingu. Þar kemur einnig fram að vef- útgáfa inniheldur nú einnig nýjan leitarreit þannig að auðvelt er að leita að skjölum sem innihalda ákveðinn texta. Ennfremur er búið að gera endurbætur á krækjum og bæta eftirlit á breytingarsögu skjala. Ný gæðahandbók haldsskólastigi er þetta hópur nem- enda sem af einhverjum ástæðum gerðu hlé á námi. Brottfall úr fram- haldsskólum er talið einn helsti veik- leiki í íslensku skólastarfi, en svo þegar unga fólkið vill snúa til baka er undir hælinn lagt hvort það kemst inn. Formaður Skólameistarafélags Íslands segir í Morgunblaðinu 30. júní sl., að „sig gruni að þetta sé stór hópur“. Menntamálaráðuneytið sem þó ber ábyrgð á þessu skilar auðu í sama blaði: „Það veit enginn hvað þetta eru margir nemendur.“ Allt fram á síðasta ár gátu nem- endur sem ekki höfðu lokið stúdents- prófi, en gátu lagt fram margvíslegt annað nám og árangur í starfi sótt um námsvist í Háskóla Íslands. Í fyrra var með öllu lokað á umsóknir þeirra vegna fjárskorts skólans. Menntun er ein mikilvægasta fjár- festing hvers einstaklings,“ segir í ályktun Heimdallar. „ÞAÐ er krafa stjórnar Heimdallar að menntamálaráðherra og fjár- málaráðherra leiti leiða til að tryggja að allir sem til þess hafa getu og áhuga fái skólavist næsta vetur í framhaldsskólum eða háskólum,“ segir í ályktun stjórnar Heimdallar. „Á hátíðastundum er talað um unga fólkið sem framtíðarauð þjóð- arinnar, talað um Ísland sem þekk- ingarþjóðfélag og sagt að á sviði mennta stöndum við jafnfætis því sem best gerist. Því miður stöndum við ekki fyllilega undir þessu. Enn gerist það á einu mesta hagvaxtar- skeiði í sögu Íslands að ungt fólk sem vill stunda nám í framhaldsskólum og háskólum á Íslandi er vísað frá skóla vegna ónógra fjárframlaga rík- isins. Þessa dagana er hópur ungs fólks, enginn veit hversu margir, sem ekki kemst inn í framhaldsskóla og ekki í háskóla landsins í haust. Á fram- Ályktun frá stjórn Heimdallar Skorað á ráðherra að tryggja öllu ungu fólki skólavist Anton Ófeigur Antonsson Í FYRIRSÖGN minningargreina um Anton Ófeig Antonsson í blaðinu 17. júlí er hann sagður Eiríksson. Útför Antons var gerð frá Hvíta- sunnukirkjunni á Akureyri 27. júní, en ekki 28. júní, eins og misritaðist í blaðinu og Stefán Rúnar Árnason er fæddur 9. apríl 1986, en ekki 9. maí, eins og misritað var. Beðist er vel- virðingar á þessum mistökum. LEIÐRÉTT FYRSTI heimsfundur menningar- ráðherra úr röðum kvenna verður haldinn í Reykjavík dagana 29.-30. ágúst. Til fundarins er boðað í til- efni 75 ára afmælis Vigdísar Finn- bogadóttur fyrrverandi forseta í apríl sl. Að fundinum standa ís- lensk stjórnvöld í samstarfi við Heimsráð kvenleiðtoga (Council of Women World Leaders) en Vigdís var einn stofnenda og fyrsti for- maður ráðsins. Markmið fundarins er að skapa vettvang þar sem ráðherrarnir og alþjóðlegir gestir ræða áskoran- ir heima fyrir og á alþjóðavett- vangi. Á fundinum verða fjórir megin- fyrirlestrar: Kynnt verður skýrslan „Wom- en’s Empowerment: Measuring the Global Gender Gap“ sem World Economic Forum stóð að en þar er gerður samanburður á menntun, efna- hag og völdum kvenna í ýmsum ríkjum heims. Tilkynnt verður síð- ar um fyrirlesara. Íranska baráttukonan Mahnaz Afkhami ræðir um menningarleg réttindi kvenna. Afkhami var ráð- herra í Íran áður en klerkastjórnin komst til valda en hefur verið í útlegð í aldarfjórðung. Dr. Annette Pritchard fjallar um menningu og ferðamennsku. Þar mun hún víkja að því að fáar konur eru við stjórnvölinn í ferðaþjónstu þótt þær séu áberandi í auglýsing- um sem eiga að laða að ferðamenn. Asma Khader, fyrrverandi menningarráðherra Jórdaníu, fjallar um áhrif fjölmiðla á lýðræð- isþróun og stöðu kvenna í Miðaust- urlöndum. Á fundinn koma kvenráðherrar og sérfræðingar hvaðanæva úr heiminum. Því gefst einstakt tæki- færi til að kynna sér sjónarmið þeirra og heyra hverju þær hafa fengið áorkað. Nánari upplýsingar er að finna á vef fundarins: http://womenminis- ters.government.is undir fyrir- sögninni: Press Room. Menningarráðherrar úr röð- um kvenna funda í Reykjavík

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.