Morgunblaðið - 18.08.2005, Side 1
SAKBORNINGARNIR í Baugsmálinu lýstu
allir yfir sakleysi sínu við þingfestingu málsins í
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Aðalsalur
dómsins var þéttsetinn af fjölmiðlafólki, auk
hinna sex ákærðu, verjenda þeirra og aðstand-
enda.
Jón H.B. Snorrason, saksóknari og yfirmað-
ur efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra,
fór yfir ákæruatriðin, og spurði dómari því
næst ákærðu um afstöðu þeirra til ákærunnar.
„Hún er algerlega röng og ég er saklaus,“ sagði
Jón Ásgeir Jóhannesson, einn sakborninga, og
svöruðu hinir fimm á sama veg og lýstu sig sak-
lausa með öllu.
Þinghaldið tók einungis um 20 mínútur og
var réttarhöldunum frestað til 20. október. Þá
mun gagnaöflun ljúka og dagsetning fyrir sjálfa
aðalmeðferðina ákveðin, en við aðalmeðferð
verða teknar skýrslur af ákærðu fyrir dómi.
Sannfærð um sakleysi okkar
Það var handagangur í öskjunni þegar blaða-
menn þyrptust að sakborningum þegar þeir
gengu út úr réttarsal, og sagði Jón Ásgeir m.a.
að hann reiknaði með löngum réttarhöldum
enda mikið af gögnum sem sakborningar og
verjendur þeirra mundu leggja fram, en gögn
ákæruvaldsins eru um 20 þúsund síður. „Þau
munu sýna og sanna sakleysi okkar,“ sagði Jón
Ásgeir áður en hann hvarf á braut. Jóhannes
Jónsson, annar ákærðu, tók í sama streng: „Við
erum sannfærð um sakleysi okkar og lifum
samkvæmt því. Þetta heldur ekki vöku fyrir
okkur.“
Eftir þingfestinguna fengu fjölmiðlar ákær-
una afhenta, en fjölmiðlar fengu aðgang að
henni hjá sakborningum um síðustu helgi. Þar
vantaði þó inn í töflur sem sýna m.a. greiðslu-
kortareikninga sem Jón Ásgeir er sakaður um
að hafa látið Baug greiða, skýringar í bókhaldi
Baugs á lánum o.fl. Töflurnar fylgdu ákærun-
um sem þingfestar voru í gær og eru þær birtar
í heild í Morgunblaðinu í dag með ákæruliðum.
Lögmaður eins ákærðu sagði í tölvupósti
með ákærunum að nokkrar töflur hefðu verið
felldar út „til styttingar og einföldunar“. Jón
Ásgeir var, á leið sinni úr réttarsal í gær, spurð-
ur um ástæður þess að töflurnar voru ekki birt-
ar með ákærunni, en hann svaraði því engu.
Í yfirlýsingu sem stjórn Baugs sendi fjölmiðl-
um í gær kemur fram að þrátt fyrir meint brot
gegn fyrirtækinu sé staða þess í dag sterkari en
nokkru sinni fyrr. Baugur velti 866 milljörðum
króna á ári, og hreinar eignir nemi 480 millj-
örðum króna. Þó hafi Baugur Group orðið fyrir
óhjákvæmilegri röskun vegna málsins.
Stjórnin leitaði til bresks lögfræðifyrirtækis,
Capcon-Argen Ltd., og kynnti fulltrúi fyrirtæk-
isins skýrslu um málið sem unnin var fyrir
stjórnina á fundi með fjölmiðlum í gær. Í
skýrslunni, sem ekki var afhent fjölmiðlum,
kemur fram að fyrirtækið telji eðlilegar skýr-
ingar á öllum ákæruatriðunum, og sagði fulltrúi
lögfræðifyrirtækisins að ekkert fyrirtæki af
svipaðri stærðargráðu og Baugur væri rekið
þannig að ekki kæmu upp mistök í bókhaldi.
Þessi mistök hefðu hins vegar öll verið leiðrétt.
Allir sakborningar í Baugsmálinu í réttarsal þegar málið var þingfest fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur
Sex ákærðir en neita sök
Töflur sem fylgja ákæru birtar í fyrsta skipti Réttarhöldin halda áfram
20. október Stjórn Baugs segir stöðuna sterkari en nokkru sinni fyrr
STOFNAÐ 1913 221. TBL. 93. ÁRG. FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Smaralind og Kringlunni
Skólafötin sem krakkarnir vilja!
Nýjar vörurSmáralind og Kringlu ni
Búðarölt á
Brick Lane
Lilja Dröfn Dagbjartsdóttir veit hvar
fötin fást í London | Daglegt líf
Lille. AFP. | Öfundin kann að grípa einhverja
þegar þeir heyra þetta og tölfræðin kann að
segja að þetta sé ekki mögulegt. En það er
eigi að síður staðreynd: fjölskylda ein í Frakk-
landi hefur nú unnið stóra vinninginn öðru
sinni í franska lottóinu – með sömu tölurnar!
Frá þessu var greint í gær en fjölskyldan
býr í Lille. Þessi heppna fjölskylda datt í
lukkupottinn í lottóútdrættinum 3. ágúst sl. og
nemur vinningur hennar 1,5 milljónum evra;
eða sem samsvarar 120 milljónum ísl. króna.
Og samkvæmt Beatrice Vandersype, eig-
inkonu sjoppueigandans, sem seldi vinnings-
miðann, þá kom vinningurinn á tölurnar sem
hin heppna fjölskylda notar í hverri viku.
Bætti Vandersype því við að þessar sömu
tölur hefðu áður reynst fólkinu happadrjúg-
ar. Lottófjölskyldan góða fékk nefnilega
vinning á þær í útdrætti fyrir tuttugu og sjö
árum, árið 1978, og nam vinningurinn þá um
500.000 evrum á núvirði, eða um fjörutíu
milljónum íslenskra króna.
Ótrúleg lottóheppni franskrar fjölskyldu
Unnu aftur, með sömu tölum
Viðskipti | Byggjum ekki skýjaborgir Væntingar og upplýsingar
Menntun | Nám fyrir börn og unglinga Sinnir fræðslu fanga Málið | Bond-
stúlkur Menning og ómenning Íþróttir | Góður sigur Íslands á S-Afríku
Viðskipti, Menntun, Málið, Íþróttir
HIN ákærðu komu öll saman í Héraðsdóm Reykjavíkur eftir hádegi í
gær ásamt lögmönnum sínum, og mættu miklum fjölda fjölmiðla-
manna, ljósmyndara, sjónvarpstökumanna og fréttamanna. Aðalsalur
dómsins var troðinn og komust færri að en vildu. Þingfestingin sjálf
tók einungis um 20 mínútur en Jón H. Snorrason saksóknari gerði þá
grein fyrir ákæruatriðum og sakborningar lýstu sakleysi sínu.
Morgunblaðið/RAX
Gengu öll saman inn í réttarsalinn
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
Baugsmál 14–16 | miðopna