Morgunblaðið - 18.08.2005, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
BAUGSMÁLIÐ ÞINGFEST
Hinir ákærðu í Baugsmálinu
komu fyrir dómara við þingfestingu
málsins í gær, hlýddu á ákæru-
atriðin og lýstu allir yfir sakleysi
sínu. Ákæruvaldið gerði ákærurnar
yfir sexmenningunum opinberar í
gær, þar með taldar töflur sem sak-
borningar gerðu ekki opinberar.
43 dóu í Bagdad
Að minnsta kosti 43 biðu bana í
þremur sprengjutilræðum í Bagdad
í Írak í gær. Meira en sjötíu manns
slösuðust. Ellefu til viðbótar féllu í
árásum annars staðar í Írak í gær.
Brunavarnir óviðunandi
Brunavarnir á dvalarheimilum
fyrir aldraða eru slæmar eða óvið-
unandi í 20% bygginga að mati
Brunamálastofnunar, en í leik-
skólum er ástandið svipað í 10%
bygginga. Ekkert öldrunarheimili
og enginn leikskóli telst hafa fram-
úrskarandi brunavarnir samkvæmt
einkunnakerfi stofnunarinnar.
Leki veldur usla í Bretlandi
Skjöl, sem lekið hafa úr rannsókn
á tildrögum andláts Brasilíumanns-
ins Jean Charles de Menezes í
London 22. júlí sl., benda ekki til að
hann hafi hagað sér grunsamlega
áður en hann fór inn í neðanjarðar-
lest og var þar skotinn til bana af
lögreglumönnum, sem töldu hann
hugsanlegan hryðjuverkamenn.
Móta hugmyndir
Stjórn fulltrúaráðs Samfylking-
arinnar var á fundi fulltrúaráðsins í
gærkvöldi falið að móta hugmyndir
um hvernig standa skuli að fram-
boðsmálum Samfylkingarinnar í
borginni.
Y f i r l i t
Í dag
Fréttaskýring 8 Umræðan 29/30
Úr verinu 13 Bréf 30
Erlent 18 Minningar 31/36
Minn staður 19 Myndasögur 40
Akureyri 22 Dagbók 40/44
Höfuðborgin 22 Staður og stund 42
Austurland 23 Víkverji 40
Landið 23 Menning 45/49
Neytendur 24/25 Bíó 46/49
Forystugrein 26 Ljósvakamiðlar 50
Viðhorf 28 Veður 51
Daglegt líf 28 Staksteinar 51
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%
&
'() *
+,,,
FLUGFÉLAG Íslands gæti bakað sér skaða-
bótaskyldu falli félagið frá tilboði í áætlunarflug,
en félagið segir að mistök hafi orðið til þess að
boðið var til eins árs, en í útboðslýsingu stendur
að boðið sé til þriggja ára.
Ríkið niðurgreiðir flug til ákveðinna áfanga-
staða þar sem talin er þörf á að halda uppi þjón-
ustu en flugfélög telja hana ekki bera sig. Til-
boðin voru opnuð hjá Ríkiskaupum á þriðjudag,
og var tilboð Flugfélags Íslands lægst í flestum
tilvikum. Falli Flugfélag Íslands frá tilboðinu
telst Landsflug hafa lægsta tilboðið á öllum leið-
um.
Júlíus S. Ólafsson, forstjóri Ríkiskaupa, segir
að farið hafi verið yfir málið í gær, og ákvörðun
Ríkiskaupa um framhaldið verði kynnt bjóðend-
um í dag. Hann vildi ekki gefa upp hvaða ákvörð-
un hefði verið tekin á fundum í gær, en sagði að
reglur kvæðu á um að tilboð sem bærust væru
bindandi. Félli bjóðandi frá tilboði gætu Ríkis-
kaup átt skaðabótakröfu á hann. Ekki hefur enn
verið tekin afstaða til tilboðanna.
Mistök afar sjaldgæf
Júlíus segir það afar sjaldgæft að gerð séu mis-
tök af þessu tagi þegar tilboðum er skilað inn, en
tilboðum sé skilað inn með þeim formerkjum að
þau séu gerð samkvæmt útboðslýsingu. „Ég veit
um eitt tilfelli [hjá Ríkiskaupum], og þar var farið
í skaðabótamál,“ segir Júlíus, en tekur fram að
það segi ekkert til um hver niðurstaðan verði í
máli Flugfélags Íslands.
Árni Gunnarsson, framkvæmdastjóri Flug-
félags Íslands, segir það rétt að mistök hafi verið
gerð, en útboðslýsing Ríkiskaupa hafi orkað tví-
mælis þar sem beðið var um rekstraráætlun til
eins árs, en tilboðið hafi átt að ná til þriggja ára.
Hann segir að ef það tilboð sem Flugfélag Íslands
skilaði inn sé þrefaldað sé það ekki lægst á neinni
leið, og því sé ekki mikið tap í því fyrir félagið að
falla frá tilboðinu þar sem aðrir hafi verið með
hagstæðari tilboð. Verði hins vegar tilboðinu, sem
félagið skilaði inn, haldið til streitu óbreyttu er
það með lægsta tilboðið á ákveðnum flugleiðum.
Ljóst er að starfsemi Flugfélags Íslands á Ak-
ureyrarflugvelli er í uppnámi ef félagið heldur
ekki áfram að fljúga þaðan til Grímseyjar, Þórs-
hafnar og Vopnafjarðar eins og verið hefur, en
Árni sagði að of snemmt væri að hugsa til þess
hvað yrði, fyrst þyrfti að fá niðurstöðu Ríkis-
kaupa.
Mistök við tilboðsgerð setja útboð á áætlunarflugi í uppnám
Gæti orðið skaðabótaskylt
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
SKAGFIRÐINGURINN Eyjólfur
Þórarinsson var nýverið á hrein-
dýraveiðum eystra ásamt aðstoð-
armanni sínum, Jóni Pétri Jónssyni
Suðurnesjamanni. Leiðsögumaður
var Hákon Aðalsteinsson, skóg-
arbóndi og hagyrðingur í Fljótsdal.
Segir á vef hreindýraráðs, hrein-
dyr.is, að veiðar þeirra hafi verið
óvenjulegar að nokkru leyti. Hákoni
hafði kvöldið áður borist beiðni frá
landeiganda um að fella tvo væna
tarfa sem gengu í skógræktarlandi
hans á veiðisvæði tvö, Fljótsdalshér-
aði. Þoka var á heiðum en léttara yfir
í byggð og var því haldið í tarfaleitina.
Veiðar gengu samkvæmt venju vel og
náðist 115 kg hornprúður tarfur upp
úr miðjum degi. Illt var að koma lög-
legum tækjum að til flutninga. Var
því brugðið á það ráð að fá Magnús
Guðmannsson verkfræðing og Þór-
unni Brynjólfsdóttur í Freysnesi til
að leggja til bát til flutnings eftir Lag-
arfljóti til Egilsstaða. Tóku þau þessu
vel og flutti Magnús farminn dýr-
mæta ásamt veiðimanni til hafnar á
Egilsstöðum. Að sögn Hákonar er
ekki vitað til þess að farmi sem þess-
um hafi áður verið landað í Egils-
staðahöfn.
Veiðst hafa rúmlega hundrað og
sjötíu hreindýr af 800 dýra kvóta
þetta veiðitímabil, en það er nú hálfn-
að. Best gefur á Fljótsdalshéraði þar
sem veiðst hafa 30 tarfar og 25 kýr.
Hreindýrstarfi land-
að í Egilsstaðahöfn
Ljósmynd/MG
Ekki er vitað til þess að farmi sem þessum hafi áður verið landað í Egils-
staðahöfn. Eyjólfur Þórarinsson fékk bráðina flutta fyrir sig á báti.
SJÁLFSAGT hafa margir rekið
augun í að málað var á dögunum yf-
ir skelina, hið vel þekkta Shell-
merki, á olíutönkunum í Örfirisey.
Gunnar Karl Guðmundsson, for-
stjóri Skeljungs, segir ástæðuna
vera nýlegar reglur Shell sem kveði
á um notkunina á vörumerkinu um
heim allan.
„Shell markaði þessa stefnu fyrir
fáeinum árum og við höfum í áföng-
um verið að laga okkur að henni.
Tankarnir í Örfirisey eru eitt af
lokaskrefunum í þá átt, nú þegar
höfum við málað yfir bróðurpartinn
af tönkunum úti á landi. Reglunum
er ætlað að samræma notkunina
um heiminn og kveða á um að
merkið verði fjarlægt af olíu-
tönkum, skipum og bílum, og verði
framvegis eingöngu sýnt við þjón-
ustustöðvar og á flutningstönkum,“
sagði Gunnar Karl.
Morgunblaðið/Jim Smart
Skelin
farin af
tönkunum
raun tekið þátt í fjármálastarfsemi
sem rúmist ekki innan starfsheim-
ilda hans. Þá telur Jóhannes að
lánasamningar Íbúðalánasjóðs við
fjármálafyrirtæki uppfylli ekki skil-
yrði laga og reglugerða um eigna-
og áhættustýringu.
„Ólögmætur ríkisstyrkur“
Kveðst hann telja að endurlán
sjóðsins til tiltekinna fjármálafyr-
irtækja á fjármunum, sem hann
JÓHANNES Sigurðsson, hæsta-
réttarlögmaður og prófessor við
Rannsóknastofnun í fjármálarétti
við Háskólann í Reykjavík, kemst
að þeirri niðurstöðu í álitsgerð sem
hann vann að beiðni Samtaka at-
vinnulífsins og Samtaka banka og
verðbréfafyrirtækja að Íbúðalána-
sjóði sé óheimilt að veita lán til
fjármálafyrirtækja með þeim hætti
sem sjóðurinn hefur gert.
Hann telur að sjóðurinn hafi í
hafi aflað sér í skjóli ríkisábyrgðar
á skuldbindingum, sé ólögmætur
ríkisstyrkur, sem brjóti í bága við
skuldbindingar íslenska ríkisins
samkvæmt EES-samningnum.
„Engin rök, hvorki félagsleg né
önnur, styðja slíkar lánveitingar til
tiltekinna fjármálafyrirtækja á
samkeppnismarkaði,“ segir Jóhann-
es.
Lögfræðiálit á heimildum Íbúðalánasjóðs
Óheimilt að veita lán til
fjármálafyrirtækja
Útvíkkun/11
BANDARÍSKA stúlkan úr flugliði
varnarliðsins, sem stungin var til
bana seinasta sunnudagskvöld, hét
Ashley Turner og var fædd í Fredrick
í Maryland-ríki í Bandaríkjunum 20.
mars árið 1985. Liðsmaður flugliðs
varnarliðsins, sem grunaður er um
verknaðinn, situr enn í gæsluvarð-
haldi vegna málsins.
Samkvæmt upplýsingum frá upp-
lýsingaskrifstofu varnarliðsins fannst
Ashley í setustofu íbúðarskála síns,
seinasta sunnudagskvöld, meðvitund-
arlaus, með áverka á höfði og hálsi.
Hún var flutt í skyndi á sjúkrahús en
úrskurðuð látin kl. 22.56. Glæparann-
sóknadeild flughers og flota, ásamt
herlögreglu og lögreglunni á Kefla-
víkurflugvelli, fara með rannsókn
málsins, og þeim til aðstoðar eru sér-
Rannsókn á láti varnar-
liðskonu enn í gangi
fræðingar í réttarrannsóknum sem
komu til landsins fyrir tveimur dög-
um.
Minningarathöfn
um hina látnu
Í tilkynningu varnarliðsins segir
um Ashley: „Hún gekk til liðs við
bandaríska flugherinn að loknu fram-
haldsnámi og að þjálfun lokinni kom
hún til starfa í tæknideild björgunar-
sveitar varnarliðsins. Hún lætur eftir
sig foreldra og bróður. Ferill hennar í
Bandaríkjaher var til fyrirmyndar og
verður minningarathöfn um hana
haldin á Keflavíkurflugvelli næst-
komandi miðvikudag, 24. ágúst. Hug-
ur liðsmanna varnarliðsins og íbúa
Keflavíkurflugvallar er hjá fjölskyldu
hennar, vinum og samstarfsfólki.“
EFSTU menn gerðu báðir
jafntefli á Skákþingi Íslands,
sem fram fer um þessar mund-
ir, og eru því Hannes Hlífar
Stefánsson og Stefán Krist-
jánsson enn efstir og jafnir, en
þeir eru með 51⁄2 vinning hvor.
Í áskorendaflokki er Tómas
Björnsson enn í efsta sæti, en
óvæntustu úrslitin voru eflaust
þau að hinn 12 ára gamli Hjörv-
ar Steinn Grétarsson náði jafn-
tefli gegn Bergsteini Einars-
syni, sem er stigahæstur í
flokknum.
Spenna
á Skák-
þingi
Íslands