Morgunblaðið - 18.08.2005, Blaðsíða 19
Akureyri | Systkinin Bjarki
Gunnarsson og Líf Gunnarsson,
sem búsett eru í Bandaríkj-
unum, æfa af krafti með Nökkva
félagi siglingamanna á Ak-
ureyri, fyrir Íslandsmótið sem
framundan er í Hafnarfirði um
helgina. Bjarki hefur verið hjá
Nökkva undanfarin tvö sumur
sem aðstoðarþjálfari og við æf-
ingar en systir hans Líf er í
vikuheimsókn og fær að taka
þátt á Íslandsmótinu sem gest-
ur. Hún þykir feiknagóður sigl-
ari og er í B-landsliði Bandaríkj-
anna í flokki Optimist-seglbáta
og verður forvitnilegt að sjá
hvernig íslensku krökkunum
gengur að keppa við hana.
Starfsemi siglingaklúbbsins
hefur verið með mesta móti í
sumar, margir keppnissiglarar
að æfa og metþátttaka á sigl-
inganámskeiðum.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Æft fyrir Íslandsmót
Siglingakappar
Höfuðborgin | Akureyri | Austurland | Landið
Minnstaður
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Allir með strætó | Strætó bs. hvetur
íbúa höfuðborgarsvæðisins til að nýta sér
þjónustu strætisvagna ætli þeir að taka
þátt í viðburðum menningarnætur 20. ágúst
næstkomandi. Mikill mannfjöldi safnast
alla jafna saman í miðborg Reykjavíkur á
menningarnótt og getur verið erfitt um vik
að fá bílastæði og eins að komast áfram á
götunum þegar þúsundir stefna heim á
svipuðum tíma.
Fyrir farþega sem koma í miðbæinn
verður biðstöð á horni Skothúsvegar og
Fríkirkjuvegar (á móts við Hljómskálann).
Vagnar á leið út úr miðborginni fara frá bið-
stöðinni við Ráðhúsið í Vonarstræti. Strætó
er því afar hentugur ferðamáti þegar kom-
ast þarf til og frá miðborginni á skjótan og
öruggan hátt.
Á menningarnótt munu strætisvagnar á
almennum leiðum og hverfaleiðum aka
klukkutíma lengur eða til miðnættis og
vagnar á stofnleiðum munu aka til kl. 2.00
aðfaranótt sunnudags samkvæmt leiðabók.
Tafir við íþróttahús | Byggingu íþrótta-
hússins á Suðureyri sem upphaflega átti að
ljúka síðari hluta apríl er ekki ennþá lokið
nú fjórum mánuðum síðar. Verklokum var
frestað til loka maímánaðar og hinn 19. maí
sagði Björgmundur Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri Ágústs og Flosa að stefnt
væri að verklokum fyrir lok maí en gólfefni
hússins yrði lagt á síðar. Bryndís Birgis-
dóttir formaður byggingarnefndar hússins
segir ekki ljóst hvenær húsið verður tekið í
notkun því ennþá hafi ekki tekist að leggja
gólf íþróttasalarins og ennþá sé unnið að
ýmsum öðrum verkþáttum. Hún segir þó
ljóst að húsið verði ekki tekið í notkun fyrr
en í fyrsta lagi í lok október og ef til vill
ennþá síðar. Bryndís segir að töluvert sé
síðan byrjað var að reikna dagsektir á verk-
takann og þær gildi nema bæjarráð taki
ákvörðun um annað.
Einnig hafa orðið miklar tafir við bygg-
ingu 2. áfanga íþróttahússins á Patreksfirði.
Verktakafyrirtækið Lás ehf. hefur lofað
bæjarráði Vesturbyggðar að leggja nótt við
dag svo takast megi að ljúka öðrum áfanga
eigi síðar en 31. ágúst. Á fundi bæjarráðs í
vikunni var bókað að ráðið væri orðið lang-
eygt eftir verklokum. Upphaflega átti smíði
hússins að ljúka um síðustu áramót. Í maí
bókaði ráðið að það legði þunga áherslu á að
smíði hússins yrði lokið fyrir 31. maí og tek-
ið var fram að dagsektir yrðu innheimtar ef
verkinu yrði ekki lokið á þeim tíma. Þetta
kemur fram á vef Bæjarins besta.
Ólafsfjörður | Málefni Hitaveitu Ólafsfjarð-
ar voru til umfjöllunar á fundi bæjarstjórn-
ar í vikunni. Bæjarráð hefur mælt með því
við bæjarstjórn að gengið verði til samn-
ingaviðræðna við Norðurorku hf. um sölu
hitaveitunnar samkvæmt þeim drögum að
viðræðugrundvelli sem fyrir liggja. Á fundi
bæjarstjórnar í vikunni var lögð fram bókun
frá fulltrúum minnihluta K-lista, þess efnis
að þeir geti ekki fallist á samþykkt meiri-
hluta bæjarráðs, að gengið verði til samn-
ingaviðræðna um sölu hitaveitunnar.
Þeir benda á að bæjarstjórn Ólafsfjarðar
hafi aldrei á þessu kjörtímabili komið saman
og rætt málefni hitaveitunnar þrátt fyrir
margítrekaðar beiðnir K-listans að setjast
yfir þetta veigamikla mál og vilyrði kjörinna
fulltrúa Ó-listans þar að lútandi. Einnig er
það skoðun K-listans að halda þurfi almenn-
an borgarafund um þetta málefni til að
kynna bæjarbúum þá valkosti sem í stöð-
unni eru og eins fyrir sitjandi meirihluta að
gera grein fyrir viðsnúningi sínum varðandi
málefni hitaveitunnar og eignarhald á
henni.
Fulltrúi meirihluta Ó-lista lagði fram
bókun á fundi bæjarstjórnar, þar sem minnt
er á þær skuldbindingar sem felast í samn-
ingi sem gerður var við Eftirlitsnefnd með
fjármálum sveitarfélaga og var samþykktur
af öllum kjörnum bæjarfulltrúum þann 9.
maí sl. Með þeirri samþykkt sem liggi fyrir
sé verið að standa við þær skuldbindingar,
þ.e. að kanna til þrautar hvaða ávinningur í
bráð og lengd fyrir Ólafsfirðinga getur falist
í sölu hitaveitunnar. Að mati meirihlutans
eru fyrirliggjandi drög að viðræðugrund-
velli, sem bæjarstjóri og fulltrúar í stjórn
veitustofnana hafa unnið í samvinnu við full-
trúa Norðurorku, ásættanleg. Meirihlutinn
ítrekar fyrri afstöðu sína þess efnis að sala
hitaveitunnar er og verður neyðarúræði og
endanleg ákvörðun tekin þegar ljóst er
hverjir ávinningarnir fyrir íbúa í Ólafsfirði
geta orðið.
Sala hitaveit-
unnar neyð-
arúrræði
Hólakot skal deildin heita | Ný deild
við Krílakot var tekin formlega í notkun í
byrjun vikunnar en hún verður á annarri
hæð í Safnaðarheimili Dalvíkurkirkju. Á
þessari deild verða börn fædd árið 2000 og
eru því á síðasta ári í leikskóla. Búið er að
vinna að því hörðum höndum síðustu daga
að koma deildinni á fót. Fyrsta verkefnið
sem beið barnanna var að finna nafn á nýju
deildina og eftir miklar vangaveltur kom-
ust þau að þeirri niðurstöðu að nýja deildin
þeirra ætti að heita Hólakot. Þetta kemur
fram á vef Dalvíkurbyggðar.
♦♦♦
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
tittlingur, skógarþröstur,
heiðlóa, lóuþræll og
hrossagaukur.
Smyrlar eru alfriðaðir
en fyrir kemur að þeir séu
skotnir í leyfisleysi. Stund-
um er það gert í þeim til-
gangi að stoppa þá upp en
einnig til að koma í veg
fyrir að þeir veiði smá-
fugla í húsagörðum á
haustin.
Þessi skotmennska og
NÝLEGA gerðist það á
bænum Kálfafelli 2 í
Fljótshverfi í V-Skafta-
fellssýslu að bóndinn þar
Lárus Helgason heyrði
smáhögg á stofuglugg-
anum og strax á eftir all-
mikinn dynk. Fór hann að
gá hvers kyns var og kom
þá í ljós að þúfutittlingur
hafði á æsilegum flótta
undan smyrli dauðrotast á
rúðunni. Smyrillinn hafði
einnig í ákafanum að ná
bráðinni flogið á gluggann
og vankaðist nokkuð um
stund við áreksturinn.
Lárus gat því farið aftur
inní húsið og sótt mynda-
vél og gengið alveg að
fuglunum og náði þá þess-
ari fínu en örlítið sorglegu
mynd.
Í bók Ævars Petersens
Íslenskir fuglar segir:
„Smyrlar lifa nær einvörð-
ungu á fuglum og eru
ýmsar tegundir spör- og
vaðfugla þýðingarmestar í
fæðunni, til dæmis þúfu-
umhyggja fyrir smáfugl-
um er byggð á
misskilningi. Smyrlar
eru réttmætir þegnar
þessa lands þótt lífshættir
þeirra séu þannig að þeir
þurfi að veiða sér til við-
urværis. Smyrlar hafa um
aldaraðir lifað í sátt við
umhverfi sitt og því ólík-
legt að þeir hafi einhver
afgerandi áhrif á smá-
fuglastofna.“
Morgunblaðið/Lárus Helgason
Dauður þúfutittlingur og vankaður smyrill eftir árekst-
urinn við stofugluggann á bænum Kálfafelli 2.
Árekstur við stofugluggann
Konráð Erlendssoner staddur á Hól-um í Hjaltadal.
Þangað komu pílagrímar
gangandi úr Eyjafirði og
voru við aftansöng þar
sem sungið var úr Þorlák-
stíðum á latínu í dóm-
kirkjunni. Hann setti sig
inn í hugarheim pílagrím-
anna:
Hátt á grýttri heiðinni
harðan fæ ég skóla.
Lengi verð á leiðinni
langt er enn til Hóla.
Ég helgan Þorlák heiti á
að háttum þar ég nái,
svo blessun hljóti biskup hjá
og beina góðan fái.
Hreiðar Karlsson heyrði
af deilu knattspyrnu-
félaganna um svokallað
heiðursmannasam-
komulag og yrkir:
Væri því verðugt að kanna
í vísindatilgangi sönnum,
hvort hátterni heiðursmanna
henti knattspyrnumönnum.
Af píla-
grímum
pebl@mbl.is