Morgunblaðið - 18.08.2005, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2005 27
laus. „98% þjóðarinnar eru okkur
sammála í því,“ sagði hann og
sagðist byggja það á viðtölum við
fólk. „Ég veit hvað þarna býr að
baki,“ bætti hann við og vísaði þar
til aðdraganda ákærunnar.
Spurður af Morgunblaðinu
hvort hann liti á þennan dag sem
tækifæri til að hreinsa sig af
ákærunum eða hvort hann væri að
upplifa vondan dag, sagði hann
daginn hafa verið ágætan. „Það er
ágætt að þetta sé komið fram,“
sagði hann. „Það hefur verið
þriggja ára píning að eiga þetta
yfir höfði sér. Það er því ágætt að
þetta skuli vera komið fram og að
við vitum hvað þetta er í dag.
Þetta tekur væntanlega fimm ár
úr ævi okkar en ókei, það er allt í
lagi að lifa með því. Við erum
sannfærð um sakleysi okkar og lif-
um samkvæmt því. Þetta heldur
ekki vöku fyrir okkur,“ sagði Jó-
hannes.
Segir gögn sanna sakleysi
Jón Ásgeir svaraði nokkrum
spurningum fjölmiðlamanna á leið
sinni út úr héraðsdómi, og sagðist
algerlega viss um að hann yrði
sýknaður. Hann var m.a. spurður
hvort hann ætti von á löngum og
ströngum réttarhöldum. „Ég
hugsa það […] við erum með mik-
ið af gögnum sem við eigum eftir
að leggja fram og þess vegna
verður þetta langt og strangt.“
Spurður hvort eitthvað nýtt
muni koma í ljós, eitthvað sem
komið geti á óvart, sagði Jón Ás-
geir: „Við eigum eftir að leggja
fram okkar gögn. Ákæruvaldið er
bara búið að leggja fram gögn. Nú
koma gögn frá okkur. […] Þau
munu sýna og sanna sakleysi okk-
ar.“
Fegin að réttarhald sé hafið
„Við erum hálffegin að þetta
skuli vera komið hingað. Rann-
sókn ríkislögreglustjóra hefur
staðið í þrjú ár, sem er langur
tími. Við höfum trú á að við fáum
sanngjarna og réttláta meðferð
hjá dómstólnum,“ sagði Kristín
Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri
Fjárfestingafélagsins Gaums.
mara við þingfestingu ákæranna í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær
er algerlega
g er saklaus“
Morgunblaðið/RAX
var meðal áhorfenda í dómsal í gær og bíður hér eftir upphafi þinghaldsins.
réttarsal. Fulltrúar ákæruvalds, frá efnahagsbrotadeild, Jón H. Snorrason og Sveinn Magnússon við þinghaldið.
Jóhannes Jónsson komu ásamt verjendum, meðákærðum og fleiri gangandi eftir Aust-
ðsdóms Reykjavíkur skömmu áður en þingfesting ákæranna fór fram kl. 13:30.
MORGUNBLAÐINU hefur
borist eftirfarandi yfirlýsing
frá stjórn Baugs Group hf.,
vegna Baugsmálsins, og er hún
birt hér á eftir í heild sinni.
Fyrirsögn og millifyrirsagnir
eru blaðsins.
„Í tilefni þingfestingar á
máli ákæruvaldsins gegn
stjórnendum og fyrrverandi
stjórnendum Baugs Group hf.
vill stjórn félagsins koma eft-
irfarandi á framfæri:
Þó að Baugur Group sé þol-
andi hinna meintu brota hefur
félagið, því miður, orðið fyrir
óhjákvæmilegri röskun á starf-
semi sinni.
Eigi að síður hefur Baugur
Group, í samstarfi við aðra,
tekið yfir rekstur samtals 13
fyrirtækja erlendis frá því að
lögregluyfirvöld hófu rannsókn
sína í ágúst 2002. Nemur heild-
arverðmæti þeirra viðskipta
25.900 milljónum ISK. Þar að
auki hefur félagið fjárfest fyrir
50.400 milljónir ISK í Bret-
landi, Íslandi og Danmörku. Í
samstarfi við stjórnendur,
helstu fagfjárfesta og stóra al-
þjóðlega banka hefur Baugur
átt þátt í yfirtökum á Hamleys,
Big Food Group, Oasis, Gold-
smith’s, Julian Graves, Karen
Millen, MK One, Rubicon, Jane
Norman og Woodward í Bret-
landi og á Magasin du Nord,
Illum og Keops í Danmörku.
Heildarvelta
866 milljarðar
Í dag er Baugur Group leið-
andi á smásölumarkaði á Ís-
landi, leiðandi fjárfestir og
söluaðili þekktra vörumerkja í
Bretlandi og framsækinn fjár-
festir á smásölumarkaðnum í
Danmörku.
Staða Baugs Group er sterk-
ari en nokkru sinni fyrr. Hjá
félaginu og tengdum fyrirtækj-
um starfa um það bil 51.000
starfsmenn í nokkrum löndum,
hreinar eignir þess nema 480
milljörðum ISK hinn 31. des-
ember 2004 og heildarvelta
nemur 866 milljörðum ISK.
Stjórn Baugs Group hefur
leitað eftir álitsgerðum óháðra
aðila, lögfræðinga, endurskoð-
enda og annarra rannsóknar-
aðila, til að skýra þau atvik
sem leiddu til ákærunnar.
Meðal niðurstaðna þessara
rannsókna er að forstjóri fé-
lagsins átti á öllum stundum
innstæðu hjá félaginu á móti
úttektum hans. Í ljósi niður-
staðna þessara aðila ítrekar
stjórn félagsins stuðning sinn
við forstjóra félagsins og aðra
sakborninga.
Nýjar
fjárfestingar
Baugur Group mun ekki
víkja frá þeirri stefnu sinni að
fjárfesta í framsæknum og
þekktum fyrirtækjum.
Stjórn Baugs Group þakkar
þann stuðning sem samstarfs-
aðilar félagsins, starfsmenn
þess og einkanlega æðstu
stjórnendur, sem hafa orðið að
axla aukna byrði vegna þessa
máls, hafa sýnt félaginu.
Nú þegar málið er loks kom-
ið til meðferðar dómstóla
væntir Baugur Group þess að
geta einbeitt sér að því að
byggja enn frekar upp rekstur
fyrirtækja sinna og taka þátt í
nýjum fjárfestingum.“
Yfirlýsing stjórnar Baugs Group
vegna Baugsmálsins
Staða Baugs
sterkari en
nokkru sinni
BJÖRN Bjarnason dómsmálaráð-
herra leggur áherslu á það varð-
andi allar umræður um Baugs-
málið, að farið sé að
gildandi lögum og
ekki gert neitt, sem
spilli eðlilegum og
lögmætum gangi
málsins aðspurður
hvort eðlilegt sé að
málsskjöl í slíku máli
verði ekki birt al-
menningi. Björn
bendir á að ríkissak-
sóknari og yfirmaður
efnahagsbrotadeildar
ríkislögreglustjóra
hafi látið réttarhags-
muni ráða ferð sinni
varðandi aðgang og
birtingu gagna eins
og aðra þætti.
„Dómarar dæma í þessu máli
eins og öðrum en ekki almenn-
ingur, þótt málið varði hann
miklu. Þegar rætt er um aðgang
almennings að öllum málsskjölum
er ekki aðeins verið að ræða um
þetta mál heldur væntanlega öll
mál í höndum ákæruvaldsins, sem
lögð eru fyrir dómara. Veigamikil
rök hafa verið talin fyrir því af
löggjafanum að hafa þá skipan,
sem nú ríkir,“ segir hann. Að-
spurður hvort til greina komi að
breyta reglum um að-
gengi almennings í
þeirri vinnu, sem nú
stendur yfir hjá rétt-
arfarsnefnd við end-
urskoðun laga um
meðferð opinberra
mála, segir Björn að
eðlilegt sé að líta til
þessa þáttar eins og
annarra með hliðsjón
af viðhorfum hér og
annars staðar. „Ég
treysti réttar-
farsnefnd til að gera
það. Á meðan hún er
með málið til með-
ferðar í umboði
dómsmálaráðuneytis-
ins ætla ég ekki að taka af skarið
um einstök álitamál. Ég geri það
þegar nefndin leggur þau á mitt
borð, en Alþingi á að sjálfsögðu
síðasta orðið.“
Markús Sigurbjörnsson er for-
maður réttarfarsnefndar en ekki
refsiréttarnefndar eins og sagði í
blaðinu í gær. Beðist er velvirð-
ingar á mistökunum.
Dómarar dæma
í málinu en ekki
almenningur
Björn Bjarnason