Morgunblaðið - 18.08.2005, Qupperneq 44
44 FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
9. sýn. sun. 21/8 kl. 14 nokkur sæti laus
10. sýn. sun. 28/8 kl. 16 sæti laus
11. sýn. fim. 1/9 kl. 19 sæti laus
Kabarett
í Íslensku óperunni
Næstu sýningar
Föstudaginn 19. ágúst - UPPSELT
Laugardaginn 20. ágúst kl. 20.00
Föstudaginn 26. ágúst kl. 20.00
Laugardaginn 27. ágúst kl. 20.00
Sunnudaginn 28. ágúst - Örfá sæti laus
Miðar í síma 511 4200, og á www.kabarett.is
Leikhópurinn Á senunni í samstarfi við SPRON
“Söngur Þórunnar
er í einu orði sagt
stórfenglegur...”
SH, Mbl.
SKÚLAGATA 61, - 105 REYKJAVÍK - ICELAND
TEL. +354 511 1616 - FAX: +354 5614564
GSM: 892-1474 TÖLVUP.: senson@senson.is
TIL SÖLU PAVILION hús
Stærð: Breidd 3.400 mm. Hæð 3.300 mm.
Sýningarhús staðsett í Klettagörðum 6.
Sjón er sögu ríkari.
Fjögur hús til afgreiðslu strax.
HINN 8. september næstkomandi
hefði tónlistarmaðurinn Karl Jóhann
Sighvatsson orðið 55 ára gamall.
Karl var mikilsmetinn tónlist-
armaður, fyrst í popptónlistarbrans-
anum og síðar sem organisti, en
hann lést sviplega í bílslysi á Hellis-
heiði árið 1991.
Karls og framlags hans til tónlist-
ar hefur oft verið minnst síðan hann
lést, með tónleikahaldi og ýmsum
uppákomum og sérstakur sjóður var
stofnaður til minningar um Karl árið
1992, sem veitir árlega styrk til org-
elnema og hljómborðsnema. Félagar
Karls úr tónlistarbransanum settu
einnig upp minnismerki um hann á
þeim stað sem hann lést, rétt fyrir
neðan Skíðaskálann í Hveradölum, á
sínum tíma.
Umhverfislistaverk reist
En margir af þeim sem þekktu
Karl vissu að hugur hans stóð ekki
einungis til tónlistar – heilnæmir
lífshættir og andleg sýn á tilveruna
skiptu hann jafnframt miklu máli.
Lífræn fæða og líkamleg hreysti,
eins og sund og hjólreiðar, voru stór
hluti af lífsstíl hans. Hugur Rósu
Bjargar Helgadóttur, fyrrverandi
eiginkonu Karls, stóð því til að reisa
um hann annars konar minnisvarða,
og stóð hún fyrir því að fá landslags-
arkitektinn og myndlistarmanninn
Johannes Mathiessen til að móta
umhverfislistaverk í minningu
Karls. „Við Johannes þróuðum hug-
myndina að baki þessu verki í sam-
einingu ásamt Úlrik Arthúrssyni og
Brigitte Koegler arkitektum,“ út-
skýrir hún en landslagslistaverkið,
sem ber nafnið Karlsminni, var full-
klárað í september í fyrra. „Lista-
verk af þessu tagi er tilraun til að
búa til stað í náttúrunni sem upp-
hefur og auðgar landslagið svo að
fólk geti leitað sér andlegrar vakn-
ingar og friðar. Johannes Matthies-
sen ferðast um allan heim í þeim til-
gangi að búa til heilaga staði í
náttúrunni. Hann notar oft staði sem
eru eyðilagðir af manna völdum og
umskapar og gæðir þá nýju lífi.
Hugmyndin er að gefa til náttúrunn-
ar í stað þess að taka frá henni. Sú
hugsun er mjög í anda Karls.“
Gjörningur á afmæli
Til að minnast 55 ára afmælis
Karls hinn 8. september mun hópur
þrettán listamanna frá Evrópu
koma hingað til lands og vinna með
íslenskum þátttakendum að ýmsum
uppákomum dagana kringum af-
mælið. Meðal annars verða haldnir
tónleikar í kirkjum í nágrenni Karls-
minnis; Þorlákskirkju, Kotstrand-
arkirkju og Hveragerðiskirkju, en
þar starfaði Karl einmitt sem org-
anisti síðustu ár ævi sinnar.
Á afmælinu sjálfu mun hópurinn,
sem skipaður er listamönnum á sviði
tónlistar, myndlistar, ljóðlistar og
hrynlistar, síðan standa fyrir ljós- og
hreyfigjörningi í minningu Karls í
Karlsminni. Vigdís Finnbogadóttir
mun setja dagskrána og Gunnar
Eyjólfsson leikari fara með kvæðið
Söknuður. „Með þessum gjörningi
vonumst við til að efla vitundina um
fegurra mannlíf, listina að lifa og
varðveislu náttúrunnar, og halda um
leið minningu Karls á lofti. Ég held
að honum hefði líkað þetta mjög
vel,“ segir Rósa Björg.
Í gjörningnum verður flutt tónlist,
hreyfilist, dansað, sungið og lesin
ljóð, þar á meðal ljóðið Snjóblóm eft-
ir Svan Gísla Þorkelsson. „Þetta ljóð
lýsir að mínu mati Kalla mjög vel –
hann var eins konar snjóblóm. Hann
lifði stutt og ákaft, og eins og margir
sem lifa þannig lýsti hann út í mann-
lífið ljóma, krafti og hugrekki. Hann
var mjög sérstakur persónuleiki.“
Karls J. Sighvats-
sonar minnst
Morgunblaðið/RAX
Karlsminni er umhverfislistaverk til minningar um Karl J. Sighvatsson.
SJÓNVARPSTÍMARIT Þorsteins
J. Vilhjálmssonar, sem ber heitið
Þetta líf. Þetta líf. og er sent út á
vefslóðinni
www.thorsteinn-
j.is, hefur verið
tilnefnt til Prix
Europa-
verðlaunanna í
Berlín í flokki
netmiðla.
Prix Europa
eru ein stærstu
verðlaun sinnar
tegundar í Evr-
ópu, sem voru
fyrst afhent 1987, og er þar keppt
á sviði sjónvarps, útvarps og net-
miðla. „Þetta er mjög skemmtileg
keppni, sem var sett á laggirnar af
miklum hugsuði í útvarpsfaginu
sérstaklega, sem heitir Peter
Leonard von-Braun,“ sagði Þor-
steinn í samtali við Morgunblaðið.
„Hans hugmyndafræði var að
draga saman allt það besta í út-
varpi, til að byrja með. Síðan bætt-
ist sjónvarpið við og nú á síðustu
árum netið.“
Þorsteinn segir að Prix Europa-
verðlaunin séu fyrst og fremst fag-
verðlaun, og það sé einmitt það
sem geri þau eftirsóknarverð.
„Þetta er mjög spennandi fyrir
mig, því þarna er verið að skoða
tímaritið mitt út frá faglegum for-
sendum; hversu gott innihaldið er,
hvernig það er sett fram og svo
framvegis,“ segir Þorsteinn sem
áður hefur sóst eftir þátttöku í
keppninni og þá með útvarpsþátt,
sem ekki komst í úrslit. Hann seg-
ir þátttakendur í úrslitunum á
sviði netmiðla nú koma frá fimm-
tán löndum. „Ég þekki ekkert til
þeirra sem eru með mér í úrslit-
unum, en hef hins vegar skoðað
síðuna sem sigraði í fyrra, sem er
öflug afþreyingarsíða. Ég held að
þessir netmiðlar séu eins ólíkir og
löndin eru mörg.“
Spennandi tími
Sjónvarpstímaritið Þetta líf.
Þetta líf kom fyrst út í janúar 2005
og byggist að mestu á lifandi
myndefni, en þema þess er lífið og
listin í stóru samhengi. Þorsteinn
er sjálfur höfundur alls myndefnis,
sem hann bæði tekur og klippir.
Pétur Grétarsson leggur til tónlist-
ina í tímaritið, en vefinn hannaði
Samúel Jónsson hjá vef- og hug-
búnaðarfyrirtækinu Caoz í Reykja-
vík.
Þorsteinn segir tímaritinu hafa
verið vel tekið á þeim sex mán-
uðum sem það hefur starfað.
„Þetta hefur verið mjög spennandi
tími. Áskrifendum fjölgar, sem
heldur þessu auðvitað gangandi,“
segir hann en bætir við að hann
verði seint efnaður af störfum sín-
um við tímaritið. „Áskriftartekj-
urnar duga fyrir rekstrarkostnaði
og litlum launum, en ég þurfti
vettvang fyrir eigið efni og það var
þess vegna sem ég ákvað að setja
tímaritið á laggirnar. Það hefur
verið gaman að sjá þessa hugmynd
verða að veruleika og nú er bara
að halda áfram og stækka hana.“
Prix Europa-hátíðin verður hald-
in dagana 16.–21. október, þar sem
þeir sem eru í úrslitum munu
kynna vefsvæði sitt og sitja fyrir
svörum dómnefndar. Úrslitin sjálf
verða svo kunngjörð í lokahófi há-
tíðarinnar að kvöldi 21. október, en
verðlaunaféð í flokki netmiðla er
6.000 evrur. Þorsteinn segist þó
ekki vera búinn að ráðstafa því fé í
huganum. „Mér finnst fyrst og
fremst skemmtilegt að fara til
Berlínar og sýna þetta efni mitt,
og hitta fagmenn og klárt fólk.
Verðlaunin sem slík eru ekkert að-
alatriði þótt maður vilji helst taka
þátt í allri keppni í því augnamiði
að vinna,“ segir hann að síðustu.
Fjölmiðlar | Sjónvarpstímarit Þorsteins J. tilnefnt til Prix
Europa-fjölmiðlaverðlaunanna
Eftirsóknarverð
fagverðlaun netmiðla
www.prix-europa.de
www.thorsteinnj.is
Þorsteinn J.
Vilhjálmsson
Sjónvarpstímaritið Þetta líf. Þetta líf. á slóðinni www.thorsteinnj.is er til-
nefnt til Prix Europa-verðlaunanna sem veitt verða í Berlín.
Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur
ingamaria@mbl.is
Fréttir
í tölvu-
pósti