Morgunblaðið - 18.08.2005, Blaðsíða 46
46 FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
400 kr. í bíó!*
Sýnd kl. 6
Miðasala opnar kl. 15.00
Sýnd kl. 8
Sýnd kl. 10.30 B.i 16 ára
kl. 5.40
kl. 3.40 og 5.50 Í þrívídd
VINCE VAUGHN OWEN WILSONVINCE VAUGHN OWEN WILSON
Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.30
Sýnd kl. 8 og 10.20Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 B.i 10 ára
KVIKMYNDIR.IS
I I .I
OFURHETJURNAR ERU MÆTTAR
Í EINNI STÆRSTU MYND ÁRSINS
WWW. XY. IS
WWW. XY. IS
FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA
OFURHETJURNAR ERU MÆTTAR
Í EINNI STÆRSTU MYND ÁRSINS
FÓR BEINT Á TOPPINN Í USA
ÞRIÐJA STÆRSTA
OPNUN ÁRSINS Í USA
Sýnd kl. 3.20, 4.20, 5.40, 6.40, 8, 9, 10.20 og 11.20 B.i 10 árawww.borgarbio.is
Sími 564 0000
KVIKMYNDIR.COM
RÁS 2 Ó.H.T
S.K. DV
KVIKMYNDIR.IS
KVIKMYNDIR.COM
S.K. DV
BESTA GRÍNMYND SUMARSINS
„FGG“ FBL.
BESTA GRÍNMYND
SUMARSINS
„FGG“ FBL.
kl. 8 og 10.30
ÞAÐ VAR greinilega mikill spenn-
ingur fyrir fyrri tónleikum Sonic
Youth í Nasa á þriðjudaginn. Undir-
ritaður mætti á slaginu átta en þá
voru tónleikagestir þegar byrjaðir
að streyma í húsið við Austurvöll.
Þó að Sonic Youth hafi mátt muna
sinn frægðarfífil fegurri, hefur heil-
mikill goðsagnablær verið yfir sveit-
inni allt frá áttunda áratugnum þeg-
ar hún gekk fram fyrir skjöldu
tilraunarokksins. Útgáfur sveit-
arinnar hafa þó ávallt vakið athygli
enda fáar sveitir jafn langt úti á
rokkjaðrinum og Sonic Youth en
það hefur heldur ekki skemmt fyrir
að sveitin hefur verið rómuð fyrir
óhefðbundna en stórskemmtileg
tónleika.
Brúðarbandinu hlotnaðist sá heið-
ur að hita mannskapinn upp. Sveitin
spilaði sex lög af plötu sinni Meira
en þar að auki eitt nýtt lag, „Vanda-
mál“, sem sver sig í ætt við græsku-
laust femínista-pönkið sem sveitin
er hvað þekktust fyrir. Það er mjög
erfitt að staðsetja Brúðarbandið
með öðrum pönkhljómsveitum í dag
því flestar aðrar hafa snúið sér að
vandaðri hljóðfæraleik en áður tíðk-
aðist. Með það í huga komst sveitin
mjög vel frá sínu þó að trommuleik-
urinn hafi stundum verið óþægilega
nálægt brúninni. Þá á Unnur María,
skilið sérstakt lof fyrir einkar
þroskaðan bassahljóm.
Það er ef til vill lýsandi fyrir tón-
list Sonic Youth að þegar fyrsta
bjögun (e. feedback) kvöldsins
heyrðist, upphófust mikil fagn-
aðarlæti þó að sviðið sjálft væri
ennþá autt. Stuttu seinna tíndust þó
hljómsveitarmeðlimir á sviðið einn
af öðrum og var hverjum þeirra sér-
staklega fagnað af tónleikagestum
sem voru greinilega ákveðnir í að
skemmta sér þetta kvöld.
Strax í fyrsta lagi var ljóst að hér
var frábær tónleikasveit á ferðinni;
krafturinn og spilagleðin skein úr
andlitum hljómsveitarmeðlima og til
að auka hughrifin, var mynd-
skeiðum ýmiss konar kastað á vegg-
inn fyrir aftan hljómsveitina. Hljóm-
burðurinn þetta kvöld var líka eins
og best verður á kosið og þegar slíkt
fer saman við reynda hljóðfæraleik-
ara og frábærar lagasmíðar er ekki
hægt að biðja um mikið meira.
Sonic Youth er ein fárra sveita
sem undirritaður hefur séð á tón-
leikum sem réttlæta þrjá gítarleik-
ara. Sjálfstæði hverrar gítarlínu er
alltaf auðheyranlegt og röklegt í
senn. Bassaleikurinn var einnig
lýtalaus og þegar bjögunin, gítar-
sargið og önnur óhljóð virðast keyra
úr hófi fram, virkar trommuleikur
Steve Shelley sem eins konar akkeri
fest í þetta dárafley.
Hljómsveitin lék nokkuð mörg lög
af síðustu breiðskífu sinni Sonic
Nurse og þó að eldri lög hafi mörg
virkað ágætlega, skáru nýju lögin
sig úr hvað gæði og spilamennsku
varðaði. „Pattern Recognition“, „I
Love You Golden Blue“, „Unmade
Bed“ og „Stones“ sanna að Sonic
Youth á enn í fórum sínum frábær
lög sem eiga fullt erindi við nútíma-
rokktónlist.
Þessir frábæru tónleikar enduðu
svo á því að tónleikagestir klöppuð
sveitina tvívegis upp á svið. Eftir
seinna uppklappið frumflutti Sonic
Youth lagið „Sleeping Around“ áður
en hún renndi í lagið „Expressway
To Yr. Scull“ af hljómplötunni Evol.
Því lagi lauk í einni allsherjar gítar-
bjögun sem fylgdi undirrituðum
heim í svefninn og skóp undirspilið
fyrir martröðina þá nóttina.
Spilagleði og kraftur
TÓNLIST
Tónleikar
Sonic Youth í Nasa 16. ágúst. Brúðar-
bandið hitaði upp.
Sonic Youth Höskuldur Ólafsson
ALÞJÓÐLEG kvikmyndahátíð í
Reykjavík stendur fyrir útibíói á
Menningarnótt nú um helgina.
Heimildarmyndinni Reykjavík
vorra daga eftir Óskar Gíslason
verður varpað á Héraðsdómshúsið
við Lækjartorg frá klukkan 21 til
23.
Sýndir verða valdir bútar úr
myndinni en hún er í tveimur hlut-
um. Fyrri hlutinn var frumsýndur
í febrúar 1947 í tilefni af 160 ára
afmæli Reykjavíkurborgar. Í
myndinni má sjá myndskot úr
bæjarlífinu lauslega tengd saman
með ferðum ungs pars um bæinn.
Viðtökurnar voru svo góðar að
öðrum hluta var bætt við og var
hann frumsýndur í október ári síð-
ar.
„Þessi yfirgripsmikla heimild-
armynd um Reykjavík er ómet-
anleg heimild um líf og störf borg-
arbúa á þessum árum. Óskar
Gíslason, ljósmyndari og kvik-
myndagerðamaður, var einn helsti
brautryðjandi íslenskrar kvik-
myndagerðar og eftir hann liggur
fjöldi kvikmynda sem varðveita
mikilvægar heimildir fyrir íslenska
menningu,“ segir í tilkynningu.
Myndin er án hljóðs, en tvær
ungar hljómsveitir voru fengnar til
þess að semja tónlist við hana.
Þær eru rokksveitin Bob og rafdú-
óið Atli & Leó sem hefur m.a.
samið tónlist við uppfærslu
LFMH á Lísu í Undralandi. Með-
alaldur sveitanna beggja er rétt
um tuttugu ár, svo hér er sann-
arlega um að ræða brúarsmíð milli
kynslóða.
Kvikmyndir | Alþjóðleg kvikmyndahátíð í Reykjavík með útibíó á Menningarnótt
Sagan er lauslega tengd saman með ferðum ungs pars um bæinn.
Reykjavík liðinna daga
UPPSELT var á tónleika Sonic
Youth á Nasa á þriðjudagskvöldið.
Sveitin lék gömul lög í bland við ný
og var það mál manna að hún hefði
sjaldan eða aldrei verið í betra
formi.
Tónleikagestir voru vel með á
nótunum og stemningin var mikil
enda sveitin goðsagnakennda
þekkt fyrir skemmtilega sviðs-
framkomu og kraftmikla spila-
mennsku.
Hljómsveitin Brúðarbandið sá
um upphitunina fyrra kvöldið en í
gær kom það í hlut Curver að hita
tónleikagesti upp fyrir seinni tón-
leika Sonic Youth.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sonic Youth á enn í fórum sínum frábær lög sem eiga fullt erindi við nútímarokktónlist, að mati gagnrýnanda.
Fullt
út úr
dyrum
Hin stórsnjalla Kim Gordon sýndi mikinn þokka á sviðinu á Nasa.