Morgunblaðið - 18.08.2005, Blaðsíða 48
48 FIMMTUDAGUR 18. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
-Steinunn/
Blaðið
-S.V. Mbl.
HVAÐ MYNDIR ÞÚ GERA EF ÞÚ KÆMIST AÐ ÞVÍAÐ
ÞÚ VÆRIR AFRIT AF EINHVERJUM ÖÐRUM?
SUMAR RÁÐGÁTUR
BORGAR SIG
EKKI AÐ UPPLÝSA
Þrælskemmtileg rómantísk
gamanmynd um dóttur sem reynir að
finna draumaprinsinn fyrir mömmuna.
„The Island, virkilega
vel heppnuð pennumynd,
skelfileg en trúleg framtíðarsýn!!“
S.U.S XFM
„The Island er fyrirtaks afþreying.
Ekta popp og kók sumarsmellur. “
-Þ.Þ. Fréttablaðið.
l i i .
ll .
- . . r tt l i .
Frábær
Bjölluskemmtun
fyrir alla.
Herbie Fully Loaded kl. 5.15 - 7.10 - 9.15 og 11
The Island kl. 5.30 - 8 og 10.40 b.i. 16
Dark Water kl. 8 og 10.15 b.i. 16
Madagascar - enskt tal kl. 5.15 - 7 og 9
Batman Begins kl. 6 og 8.30 b.i. 12
Kicking and Screaming kl. 6
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
L†
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
L
YF
2
91
02
08
/2
00
5
www.lyfja.is
- Lifið heil
FRESHMINT
105 STK. 2 MG
FRESHMINT
105 STK. 4 MG
Nicorette
Ágústtilboð
10% afsláttur
FÆST ÁN LYFSEÐILS
Garðatorgi - Grindavík - Keflavík - Kringlunni - Lágmúla - Laugavegi - Setbergi - Smáralind - Smáratorgi - Spönginni -
Egilsstöðum - Höfn - Fáskrúðsfirði - Seyðisfirði - Neskaupstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Patreksfirði -
Borgarnesi - Grundarfirði - Stykkishólmi - Búðardal - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Sauðárkróki - Blönduósi -
Hvammstanga - Skagaströnd - Selfossi - Laugarási
Nicorette nikótínlyf eru fáanleg án lyfseðils og eru notuð þegar reykingum er hætt eða þegar dregið er úr
reykingum. Til að ná sem bestum árangri skal ávallt fylgja leiðbeiningum í fylgiseðli. Skammtar eru einstaklings-
bundnir eftir því hve mikið er reykt, hvort hætta á reykingum eða draga úr þeim. Því ber að kynna sér upplýsingar
um notkun í fylgiseðli. Í fylgiseðlinum eru upplýsingar um: verkun og notkun, varúðarreglur, mikilvægar upplýsingar
sem nauðsynlegt er að lesa áður en lyfin eru notuð, hugsanlegar aukaverkanir og aðrar upplýsingar. Leitið til læknis
eða lyfjafræðings ef þörf er á frekari upplýsingumumlyfin. Þeir sem fengið hafa ofnæmi fyrir nikótíni eða öðrum
innihaldsefnum lyfsins, nýlegt hjartaáfall, óstöðuga versnandi hjartaöng, alvarleg hjartsláttarglöp eða nýlegt
heilablóðfall eiga ekki að nota Nicorette nikótínlyf. Börn yngri en 15 ára, þungaðar konur og konur með barn á
brjósti eiga ekki að nota Nicorette nikótínlyf nema að ráði læknis. Lesið allan fylgiseðilinn vandlega áður en byrjað
er að nota lyfið. Geymið fylgiseðilinn. Nauðsynlegt getur verið að lesa hann síðar.
RAPPMÓGÚLLINN og fatahönn-
uðurinn P. Diddy er búinn að
breyta nafni sínu á ný, núna heitir
hann bara Diddy. Rapparinn, sem
áður kallaði sig Puff Daddy,
ákvað að sleppa stafnum P úr
gælunafninu því fólk vissi aldrei
hvort það ætti að kalla hann P
eða Diddy.
„Það vissi enginn hvað hann
ætti að kalla mig. Ég tók eftir því
að fólki leið illa með þetta þegar
ég hitti það fyrst. Svo spurði það
hvað það ætti að kalla mig. Jafn-
vel ég varð ringlaður, það tók mig
langan tíma að útskýra hver ég
væri,“ sagði Combs.
Diddy vonast til að nýja gælu-
nafnið greiði fyrir samskiptum.
„Þetta ætti að auðvelda hlutina.
Eitt orð. Fimm stafir. Punktur.“
Combs kemur fram í fyrsta sinn
opinberlega sem Diddy þegar
hann verður kynnir á MTV-
tónlistarhátíðinni í Miami síðar í
mánuðinum.
Fólk | Sean Combs breytir nafni sínu
Heitir núna bara Diddy
Reuters
Puff Daddy, nei, P. Diddy, nei, ég
meina Diddy.
Í kvöld fara fram tónleikar meðmöntrusöngvaranum ShriYogi Hari og tablaspilaranum
og trommuleikaranum Steingrími
Guðmundssyni í Jógamiðstöðinni.
Yogi Hari er fæddur í Guyana áIndlandi en hefur verið búsett-
ur í Flórída í Bandaríkjunum um
alllangt skeið. Hann starfrækir þar
svokallað ashram þar sem hann
býður upp á vist, kennaranám,
framhaldskennaranám og ýmis
námskeið. Jafnframt kennir hann
Sampoornajóga, sem sam-
anstendur af heimspeki, líkams-
æfingum og tónlist. Yogi Hari er
upphafsmaður þessarar tegundar
jóga en fyrir áhugasama er Sampo-
ornajóga sambland af Raja-,
Jnana-, Karma-, Bhakti-, Hatha- og
Nadajóga.
Yoga Hari hefur sjálfur stundað
jóga í rúmlega 30 ár. Hann er
meistari í Hathajóga og hefur full-
komnað allar 84 grunnjógastöðv-
arnar. Hann er jafnframt meistari í
Nadajóga. Hann kynntist jóga að
eigin sögn þegar konan hans gaf
honum bók sem nefndist Jóga og
heilsa, en Yogi Hari hafði átt við
erfið veikindi að stríða sem lækna-
vísindin höfðu greint ólæknanleg.
Hann segir að jóga hafi átt ein-
staklega vel við hann og hann hafi
fljótlega fengið bót meina sinna
með iðkun þess.
Yogi Hari nam möntrusöng,harmoniumleik og ta-
blatrommuleik hjá meistara sínum
Swami Nada-Brahmananda í 14 ár
og telst því vera meistari á sínu
sviði. Yogi Hari hefur gefið út yfir
30 geisladiska til að varðveita
þessa fornu tónlist og mun í kvöld
spila fjölbreytta tónlist.
Yogi Hari hefur einnig skrifað
og gefið út tvær bækur, Sampo-
orna Yoga og Hatha Yoga Pradi-
pika með sínum eigin útskýringum
á því sem fjallað er um.
Steingrímur Guðmundsson kem-ur fram með Yoga Hari í kvöld
en hann hefur meðal annars
trommað með Milljónamæring-
unum. Hann er jafnframt eini Ís-
lendingurinn sem hefur numið hinn
indverska tablatrommuleik. Til að-
stoðar Yogi Hari við sönginn verð-
ur eiginkona hans Tara en þau
Yogi Hari og Tara eru hér á landi
til námskeiðahalds hjá Jógamið-
stöðinni. Námskeiðin eru þrjú tals-
ins og hefjast á föstudaginn. Hægt
er að kaupa sig inn á námskeið hjá
Yoga Hari hér á landi hjá Jógamið-
stöðinni, eins til þriggja daga nám-
skeið, og eru tónleikarnir í kvöld
hluti af dagskránni. Allir tónlistar-
áhugamenn og unnendur aust-
rænnar menningar ættu að geta
víkkað sjóndeildarhring sinn við
það að hlýða á möntrusöng Yogi
Hari, sem þykir óviðjafnanlegur.
Yogi Hari er ekki eini erlendigestakennarinn sem komið
hefur hingað til lands á vegum
Jógamiðstöðvarinnar en meðal
þeirra sem komið hafa og kennt
hér á landi síðustu ár má nefna D.
Shanti Kumar Kamlesh, Yogi
Shanti Desai og Rahul Patel.
Tónleikarnir hefjast í Jógamið-
stöðinni, Ármúla 38 á 3. hæð í
kvöld klukkan 21. Miðaverð er
1.500 krónur og hleypt er inn með-
an húsrúm leyfir.
Möntrusöngur í
Jógamiðstöðinni
’Allir tónlistaráhugamenn og unnendur austrænn-ar menningar ættu að geta víkkað sjóndeildarhring
sinn við það að hlýða á möntrusöng Yogi Hari.‘
AF LISTUM
Birta Björnsdóttir
Yogi Hari hefur stundað jóga í rúmlega 30 ár.
birta@mbl.is