Morgunblaðið - 20.08.2005, Síða 8
8 LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Meirihluti lands-manna telur aðinnflytjendur
hafi haft góð áhrif á efna-
hagslífið, en næstum fjór-
um sinnum fleiri en þeir
sem telja lífsgæði sín
hafa minnkað telja lífs-
gæði sín hafa aukist við
fjölgun innflytjenda á Ís-
landi. Þrátt fyrir almenna
ánægju með aukinn fjöl-
breytileika samfélagsins
segist hins vegar einn af
hverjum fimm Íslending-
um mundu vera mjög
ósáttur við að búa í
næstu íbúð við múslima. Þetta
kemur meðal annars fram í skoð-
anakönnun sem IMG Gallup
gerði fyrir Rauða kross Íslands
um viðhorf Íslendinga til minni-
hlutahópa. Könnuninn var unnin
í júlí og ágúst og var úrtakið
1.350 manns á öllu landinu á
aldrinum 16 til 75 ára. Svarhlut-
fall var 61,6 prósent.
Samkvæmt könnuninni minnka
fordómar gagnvart innflytjend-
um með aukinni menntun en hins
vegar er enginn munur á mennt-
unarstigi þegar kemur að nábýli
við geðfatlaða. Þannig vill einn af
hverjum sjö ekki búa í næstu
íbúð við geðfatlaðan einstakling
og gildir þá einu hvort hinn að-
spurði er langskólagenginn eða
ekki.
„Byggjum betra samfélag“
Þórir Guðmundsson, sviðs-
stjóri útbreiðslusviðs Rauða
krossins, segir niðurstöður könn-
unarinnar vera gleðilegar enda
hafi komið í ljós að flestir Íslend-
ingar séu mjög ánægðir með þá
þróun að hér er fjölbreyttara
samfélag en áður. Hins vegar
valdi viðhorf landsmanna til
múslima ákveðnum áhyggjum.
„Ég hef ekki orðið var við það
að múslimar sem hópur hafi
skapað einhvern vanda í íslensku
samfélagi og því sýnir þetta okk-
ur hvaða áhrif fréttir utan úr
heimi hafa á íslenskt þjóðfélag,“
segir Þórir og bendir á að ef til
vill hafi þeir, sem ekki þekkja
innflytjendur af eigin raun, fullan
vara á sér.
„Það er ekki hægt að alhæfa
út frá þessari könnun en það eru
einhverjir sem eru ósáttir og við
vitum það að útlendingar hafa
lent í erfiðleikum með að finna
húsnæði og fá á stundum verri
þjónustu. Þannig er oft stutt í
óþolinmæðina hjá Íslendingum ef
fólk talar ekki lýtalausa ís-
lensku.“
Könnunin var gerð í upphafi
vitundarvakningar sem félagið
hyggst standa fyrir undir kjör-
orðunum „Byggjum betra sam-
félag“. Átakið hefst í dag, á
menningarnótt í Reykjavík, með
fjöldagöngu niður Hverfisgötuna
og rokktónleikum í samvinnu við
Rás tvö og Íslandsbanka um
kvöldið. Með þessu vill Rauði
krossinn hvetja til umræðu í
samfélaginu um hvernig megi
gera gott samfélag betra á sama
tíma og margvíslegar þjóðfélags-
breytingar eru að verða, meðal
annars með fjölgun innflytjenda í
landinu.
Vilja koma í veg
fyrir ósætti
Niðurstöður rannsóknar sem
Rannsóknir og greining gerðu
fyrir Rauða kross Íslands og
birtar voru snemma á þessu ári
sýndu fram á töluverða fjölgun
ungs fólks í níunda og tíunda
bekk grunnskóla landsins sem
hafði neikvætt viðhorf til nýbúa.
Þórir segir að þær niðurstöður
hafi orðið til þess að ákveðið var
að hrinda átakinu í framkvæmd,
en verið sé að benda á að það sé
þess virði fyrir samfélagið allt að
taka því fólki sem hér vill búa
opnum örmum. „Það er mikil
hætta fólgin í því að fólk sem
hingað kemur finni fyrir mis-
munun. Hættan er sú að það fólk
einangrist og verði útskúfað en
það getur verið slæmt fyrir þjóð-
félagið allt og skapað mikil
vandamál. Þannig er það stór-
hættulegt fyrir þjóðfélagið þegar
ósætti verður milli minnihluta og
meirihluta og við viljum koma í
veg fyrir það.“
Fréttaskýring | Viðhorf Íslendinga
til minnihlutahópa kannað
Flestir með já-
kvætt viðhorf
Ósætti milli minnihluta og meirihluta
stórhættulegt fyrir þjóðfélagið
Samkynhneigðir hafa unnið ötullega gegn for-
dómum í sinn garð.
Fjölbreyttar spurningar í
könnun Rauða krossins
76% aðspurðra í könnun
Rauða krossins töldu að lífsgæði
sín hefðu hvorki batnað né
versnað við fjölgun innflytjenda.
19% sögðu þau hafa batnað
nokkuð eða verulega en 5%
sögðu þau hafa versnað. Um 52%
töldu að innflytjendur hefðu góð
áhrif á efnahagslífið en 16% að
áhrifin væru slæm. Þá segjast
57% mundu vera jákvæð gagn-
vart því að barn sitt giftist út-
lendingi en 16% neikvæð.
Eftir Þóri Júlíusson
thorirj@mbl.is
!"!
!
!
!
#
!!
!
#
$%
&'
()*%+',-'
!" #
#$ %&$&
!" #
! %' &
# '
$ &
# '
(!% (&
# '
SUMARÓPERAN æfir þessa dag-
ana Galdraskyttuna eftir Carl
Maria von Weber en frumsýnt
verður á Listahátíð í Reykjavík
næsta vor. Á Menningarnótt í dag
kl. 17 og aftur kl. 20 geta áhuga-
samir tekið forskot á sæluna og
litið inn á opna æfingu á verkinu í
Iðnó. Leikstjórinn, Jón Gunnar
Þórðarson, og hljómsveitarstjór-
inn, Gunnsteinn Ólafsson, munu þá
spjalla við gesti og gefin verða
tóndæmi. Með helstu hlutverk fara
Elísa Vilbergsdóttir, Hrólfur Sæ-
mundsson, Valgerður Guðnadóttir,
Guðmundur Jónsson og Kolbeinn
Ketilsson sem á myndinni virðist
kominn í hann krappan.
Morgunblaðið/Eggert
Galdraskyttan æfð í Iðnó
HARÐUR árekstur varð á Tryggva-
braut á Akureyri í gærmorgun þeg-
ar tveir bílar lentu þar saman. Ann-
ar bíllinn kastaðist á þann þriðja
sem skemmdist lítillega. Hinir bíl-
arnir tveir skemmdust hins vegar
talsvert. Alls voru þrír úr slysinu
fluttir á slysadeild og tveir þeirra
útskrifaðir samdægurs.
Sá þriðji hlaut höfuðáverka en
ekki var talið að um alvarleg meiðsl
hafi verið að ræða að sögn lögregl-
unnar.
Harður árekstur
á Akureyri
LÖGREGLAN á Blönduósi stöðvaði
ökumann innst í Langadal á 136 km
hraða í gær. Með í bílnum voru þrjú
börn. Engar haldbærar skýringar
voru gefnar á hraðakstrinum. Fyrir
hraðabrot af þessu tagi má búast
við 40 þúsund króna sekt og 3
punktum í ökuferilsskrá.
Tekinn á
136 km hraða
JEPPI fór út af veginum við Stokka-
læk á Rangárvöllum í gær og valt
nokkrar veltur. Fimm ungmenni
voru í jeppanum og hlutu fjögur
þeirra minniháttar skrámur.
Ein stúlka var flutt á heilsugæsl-
una á Selfossi til nánari skoðunar en
hún er ekki talin alvarlega slösuð.
Talið er að jeppinn hafi oltið um 30
metra niður hlíð áður en hann stöðv-
aðist, en tildrög slyssins eru í rann-
sókn að sögn lögreglunnar á Hvols-
velli. Jeppinn er talinn ónýtur.
Fimm í jeppa
sem valt
HALLDÓR Blöndal, forseti Alþingis,
sækir árlegan fund vestnorrænna
þingforseta 19.–22. ágúst. Í för með
honum eru eiginkona hans, Kristrún
Eymundsdóttir og Helgi Bernód-
usson, skrifstofustjóri Alþingis. Að
þessu sinni er fundurinn haldinn í
Þórshöfn í Færeyjum. Á fundinum
verður rætt um vestnorrænt sam-
starf, afstöðuna til Evrópusam-
bandsins og samstarf þinganna.
Fundur vestnor-
rænna þingfor-
seta í Færeyjum