Morgunblaðið - 20.08.2005, Side 18
18 LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI
HAGNAÐUR Kögunar á fyrri hluta
ársins nam ríflega 223 milljónum
króna og jókst hann um tæplega 50
milljónir frá sama tíma í fyrra.
Þessi afkoma er lítillega undir
væntingum greiningardeilda bank-
anna en meðalspá þeirra hljóðaði
upp á 245 milljóna króna hagnað.
Kögun hefur tekið miklum breyt-
ingum á undanförnum misserum og
hafa Opin Kerfi Group og Skýrr
meðal annars verið sameinuð fyrir-
tækinu. Merki þess má glöggt sjá í
uppgjörinu en sala fyrirtækisins
jókst um 443% á milli ára. Að sama
skapi jókst kostnaður um 464% sem
bendir til þess að sameiningin hafi
falið í sér aukinn kostnað fyrir fyr-
irtækið. Þannig hefur kostnaður sem
hlutfall af sölu aukist og er nú 91,9%
en var 88,4% í fyrra. Jafnframt hafa
afskriftir aukist um 1.203% frá fyrra
ári en líklegt er að þar sé um að ræða
lið sem mun ekki há fyrirtækinu í
framtíðinni.
Eignir samstæðunnar hafa ekki
aukist umtalsvert frá áramótum en
tekist hefur að endurfjármagna
skuldir og breyta hluta þeirra úr
skammtímaskuldum í langtíma-
skuldir.
Aukinn hagn-
aður Kögunar
Uppgjör
Kögun hf.
sverrirth@mbl.is
" !
-
!
. /!*
% 0
(12342
251647
896749
+7'342
648
+(64(
#
0
!
3561
77862
!
: !* ) #
!* ) .
!*
743
81;
6;
719'4(
78246
7'1148
+649
5
!
+8341
1'''
772('
746
13;
'7;
!"#$%! "#
"&'()(%! $#
"
"$
"''*$+,%! "# "
STARFSEMI Mjólkurfélags
Reykjavíkur tengist ekki mjólk á
nokkurn hátt, heldur er félagið um-
svifamikið í fóðurgerð og innflutningi
á hvers konar tækjum og búnaði fyrir
bændur.
Eins og fram kom í Morgunblaðinu
í gær hafa tvær fylkingar, Geri ehf. og
Sláturfélag Suðurlands, að undan-
förnu falast eftir hlutabréfum í Mjólk-
urfélagi Reykjavíkur. Starfsemi fé-
lagsins tengist hins vegar ekki mjólk,
eins og nafn þess gefur til kynna, og
hefur ekki gert í áratugi. Þegar félag-
ið var stofnað árið 1917 annaðist það
flutning og sölu á mjólk frá bændum í
kringum Reykjavík. Mjólkursamsal-
an tók hins vegar við þeirri starfsemi
á 4. áratug síðustu aldar en þá hóf MR
að flytja inn vörur fyrir bændur og
búalið og hefur gert allt til dagsins í
dag. Í dag er fóðurframleiðsla stærsti
hluti starfsemi MR, félagið flytur inn
hráefni til fóðurgerðar, sér um fóð-
urblöndun og dreifir fóðri á sérútbún-
um bílum til bænda. Einnig flytur
MR inn hvers konar vörur, svo sem
girðingarefni, bætiefni fyrir búfénað,
sáðvörur o.fl. MR-búðin er í eigu MR
og þar eru seldar flestar vörur sem fé-
lagið flytur inn. MR-búðin hefur sér-
hæft sig í sölu á vörum til hestamanna
og ýmsum smávarningi til bænda.
Aðspurður hvort að aldrei hafi stað-
ið til að breyta nafni félagsins segir
Þórir Haraldsson, framkvæmdastjóri
MR, að hugmyndin hafi vissulega
komið upp. „Á þeim tveimur árum sem
ég hef starfað fyrir félagið hefur það
komið upp hvort nafnið sé hentugt.
Það verður að segjast eins og er að það
átta sig ekki allir á því hvað Mjólk-
urfélag Reykjavíkur stendur fyrir. Það
eru svo sem fordæmi fyrir því að fyr-
irtæki skipti um nafn við breytingar og
þetta er mál sem þarf að skoða,“ segir
Þórir.
Ekkert í mjólkinni
Morgunblaðið/Þorkell
● VERÐBÓLGA mælist aðeins 0,5%
á Íslandi og er það minnsta verð-
bólga innan ríkja Evrópska efna-
hagssvæðisins samkvæmt sam-
ræmdri vísitölu neysluverðs sem
Hagstofan birti í morgun. Í Morg-
unkorni greiningardeildar Íslands-
banka segir að mikið hafi dregið úr
verðbólgu á Íslandi á síðustu miss-
erum samkvæmt þessum mæli-
kvarða og samanburður við önnur
lönd veki sérstaka athygli í ljósi
þess hve háir skammtímavextir
séu hér á landi. Samræmd vísitala
neysluverðs gefur þó ekki góða
mynd af verðbólguþrýstingi um
þessar mundir þar sem íbúðaverð
er ekki meðtalið í vísitölunni. Verð-
bólga hér á landi hefur að und-
anförnu einkum verið drifin áfram
af hækkun íbúðaverðs og eldsneyt-
isverðs.
Verðbólgan er að meðaltali 2,2%
í ríkjum EES en mesta verðbólgan
reyndist 6,3% í Lettlandi og 4% í
Lúxemborg. Minnsta verðbólgan
mælist hins vegar eins og áður
sagði hér á landi en næst kemur
Svíþjóð með 0,7% og Finnland með
0,9%. Verðbólga er nú 3,2% í
Bandaríkjunum en í Japan er 0,5%
verðhjöðnun.
Verðbólga hér
minnst í Evrópu
NORSKI olíurisinn Norsk Hydro
hefur fundið stóra gaslind norð-
arlega í Norðursjó. Er talið að í
henni séu um 30 milljarðar rúm-
metra af gasi. Telur norska dag-
blaðið Aftenposten að verðmæti
auðlindarinnar sé um 30 milljarðar
norskra króna, um 200 milljarðar
íslenskra króna. Í tilkynningu frá
fyrirtækinu segir að gaslindin sé á
687 metra dýpi undir sjávarbotni
sem er á 384 metra dýpi. Olíu- og
gaslindir Norðmanna eru jafnan á
meira en þúsund metra dýpi undir
sjávarbotni og er þetta víst
grynnsta gaslind sem fundist hef-
ur á norsku hafsvæði til þessa.
Nýtingarmöguleikar eru þar af
leiðandi góðir. Segja sérfræðingar
að um sé að ræða merkustu upp-
götvun sem gerð hefur verið á
norsku hafvæði í mörg ár. Gas-
lindin fannst á fremur lítt könn-
uðu svæði og gefur því væntingar
um enn frekari uppgötvanir á
svæðinu. Norsk Hydro á um 60%
hlut í nýtingarrétti gaslindarinnar,
en norska fyrirtækið Petoro og
japanska fyrirtækið Idemitsu
Petoleum afganginn.
Verið er að vinna úr rann-
sóknagögnum þessa dagana og er
gert ráð fyrir að ráðist verði í
frekari rannsóknir á gaslindinni á
næsta ári. Verð á hlutabréfum í
Norsk Hydro hækkaði um 3% í
kauphöllinni í Osló þegar fregnin
spurðist út. Norsk Hydro er eitt
af stærstu fyrirtækjum Noregs,
með um 35 þúsund starfsmenn í
40 löndum.
Noregur er þriðja stærsta olíu-
ríki heims, næst á eftir Saudi Ar-
abíu og Rússlandi.
Norsk Hydro
finnur stóra gaslind
● HEILDARVELTA í Kauphöll Ís-
lands í gær nam tæplega 9,6 millj-
örðum króna, þar af var velta með
hlutabréf fyrir tæplega 4,7 millj-
arða. Mest viðskipti voru með bréf
KB banka, 1,1 milljarður króna.
Mest hækkun varð á bréfum
Actavis Group, 3,7%, en mest
lækkun varð á bréfum Flögu, 1,4%.
Úrvalsvísitala aðallista hækkaði
um 0,68% og var lokagildi hennar
4.521,27 stig og hefur það aldrei
verið hærra. Hæsta gildi dagsins
var 4.536,32 stig en þar er þó
ekki um met að ræða. Hæsta gildi
vísitölunnar frá upphafi er
4.562,15 sem náðist 5. ágúst síð-
astliðinn.
Hæsta lokagildi
vísitölunnar
● VELTA í dagvöruverslun var
10,2% meiri í júlí síðastliðnum en í
sama mánuði árið 2004, að teknu
tilliti til verðlagsbreytinga, sam-
kvæmt mælingum Rannsóknaset-
urs verslunarinnar. Sala á áfengi í
júlí jókst um 6,9% á milli ára og
velta lyfjaverslana um 1,8%. Yfir
sama tímabil hefur verð dagvöru
lækkað um 5,1% á meðan verð á
áfengi hefur staðið í stað. Verð-
hækkanir í lyfjasmásölu síðustu 12
mánuði nema 1,1%.
Þó veltuaukning, í þeim þremur
geirum sem smásöluvísitalan nær
til, sé nokkuð minni í júlí en hún
var í júní er hún samt sem áður
veruleg, að því er fram kemur í til-
kynningu frá Rannsóknasetri versl-
unarinnar. Meðalvelta síðustu
þriggja mánaða er ennfremur um-
talsvert meiri en meðalvelta sömu
mánaða í fyrra. Þessi blómlega
verslun skýrist annars vegar af afar
mikilli þenslu sem er engu síður
drifin áfram af mikilli eftirspurn
heimilanna í landinu en stóriðju-
fjárfestingu. Hins vegar er verðlag
tiltölulega hagstætt neytendum,
sérstaklega í dagvöruverslun, en
samkvæmt mælingu Hagstofunnar
var verð á dagvöru í júlí 5,1% lægra
en í sama mánuði árið áður.
Ríflega 10% veltu-
aukning í smásölu
HAGNAÐUR á rekstri Íbúða-
lánasjóðs vegna fyrri hluta ársins
2005 nam 576 milljónum króna. Á
sama tímabili í fyrra var hagn-
aður Íbúðalánasjóðs 574 milljónir
króna. Aðrar rekstrartekjur á
tímabilinu námu 477 milljónum en
þær voru 550 milljónir á sama
tímabili árið áður. Eigið fé sjóðs-
ins í júnílok nam 13 milljörðum
króna, eða 2,8% af heildareignum
sjóðsins.
Í júnílok námu útlán um 390
milljörðum og höfðu lækkað um
42 milljarða króna á tímabilinu.
Lántaka nam 470 milljörðum og
lækkaði um 15 milljarða á tíma-
bilinu. Uppgreiðslur á fyrri hluta
ársins voru um 76 milljarðar
króna en á árinu 2004 námu upp-
greiðslur um 83 milljörðum
króna.
Hreinar vaxtatekjur á tíma-
bilinu voru um 780 milljónir
króna, en voru um 920 á sama
tímabili í fyrra, og aðrar rekstr-
artekjur minnkuðu úr 550 millj-
ónum króna fyrstu sex mánuði
ársins 2004 í 480 á sama tíma í ár.
Hagnaður á
rekstri ÍLS
SAMNORRÆNA flugfélagið
SAS hefur tekið nýja stefnu í
verðlagningu sinni og mun nú
bjóða sæti í flugi innan Evrópu á
verði sem er sambærilegt við það
sem lággjaldaflugfélög bjóða.
Þetta segir Andris Zvejnieks, fjöl-
miðlafulltrúi SAS í Svíþjóð, í sam-
tali við Morgunblaðið en að hans
sögn er SAS fyrsta stóra evrópska
flugfélagið sem býður slík kjör.
Að hans sögn verða ódýrustu
sæti frá Svíþjóð seld á 650 sænsk-
ar krónur og ódýrustu sæti frá
Danmörku verða seld á 595
danskar krónur. SAS í Noregi
hefur ekki gefið upp lægsta verð
enn, en að sögn Zvejnieks mun
verð á miðum lækka um allt af
23% hjá SAS í Noregi.
Jafnframt mun SAS nú taka
upp sölu á farmiðum aðra leiðina
líkt og lággjaldafélög gera en
hingað til hefur félagið alltaf selt
miða báðar leiðir.
Alls flugu um 8 milljónir manns
með SAS innan Evrópu á síðasta
ári.
SAS í samkeppni
við lággjaldafélög
!
"
?@%, &0 !A
3,2& &0 !A
3&(&1 !A
4 &0 !A
4) &0 !A
3 & !A
> # !A
B&(#0&& !A
.C 3 !A
.2 !A
) # > !A
& !A
+>4 !A
+%&& 4'1&!% &# !A
D& !A
?%0& &0 !A
4&(& > !A
(' !A
)/!%6'"(& !A
0@ 40 !A
8E&' !A
; !'&% !A
FG4 ?% %@ F%&0
+2 (%2( &(!&%A !A
5& (%2( !A
= %2( !A
!"#
4 H'!'&(& !A
) / > !A
+ 1%&!9 +(& ,!A
56!6& !A
"$% &'
IHJ
+/(%
,(A,&(
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
3&% !&1
!&& ,(A,&(
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
K L
K
L
K
L
K *L
K *
L
K
L
K L
*
K
L
*
K *
L
K *
L
*
K
L
K L
K
L
*
*
*
*
K
L
*
K
L
*
*
*
*
*
*
*
K
L
&,(%
5 #0( / 0
. +
A A A A A A
A
A A
A
A A A A
A
A *
*
*
A *
A
*
*
*
A
*
*
A
=(% / C$A &A
?5
A M ?% & % 4'2
,(%
*
*
*
*
*
*
*
*
*
?5
A* = !&&,& !'1&2 !9 A
?5
A* = !&& (&& !&1 &A
?5
A* 4&& (& &A
O
7 8
P
8 8
;P
8 8
8 7
P
Q
8 8