Morgunblaðið - 20.08.2005, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 2005 23
MINNSTAÐUR
Pósturinn er aðalstyrktaraðili kvennalandsliðsins
Íslenska kvennalandsliðið mætir Hvít-Rússum
í undankeppni HM, á Laugardalsvellinum,
sunnudaginn 21. ágúst, kl. 14:00.
Íslenska liðið er skipað margreyndum
kempum sem hafa náð góðum árangri á
undanförnum árum.
Frítt á völlinn.
Komið og hvetjið stelpurnar
í eina heimaleik ársins.
Í l l li i ti ít
í i , l lli ,
i . t, l. : .
Í l li i i
f i
f .
ítt lli .
i tji t l
í i i l i i .
Ísland – Hvíta-RússlandÍ l ít l
AKUREYRI
EIGENDUR ríflega 40 húsbíla frá
Noregi og Svíþjóð eru staddir hér á
landi en þeir komu til landsins á bíl-
um sínum með Norrænu frá Bergen
á dögunum. Húsbílafólkið hefur
ferðast um landið og m.a. skemmt
sér með húsbílaeigendum á höf-
uðborgarsvæðinu. Í fyrrakvöld
kom hópurinn saman í Blómaskál-
anum Vín í Eyjafjarðarsveit, ásamt
félögum í Flökkurum, félagi húsa-
bílaeigenda, og þar var glatt á
hjalla. Alls voru um 70 húsbílar á
stæðinu við Vín og á túni í næsta
nágrenni.
Hinir erlendu gestir komu til
landsins að tilstuðlan hjónanna Sig-
rúnar Haraldsdóttur og Jóns Gunn-
ars Þorkelssonar. Þau eiga lög-
heimili í Danmörku en hafa búið í
húsbílnum sínum undanfarin þrjú
ár og m.a. dvalið á Spáni yfir vetr-
artímann. Í fyrrasumar komu þau
Sigrún og Jón Gunnar með eig-
endur 114 húsbíla á Norðurlöndum
hingað til lands. „Það eru allir með-
limir í húsbílaklúbbum á Norð-
urlöndum velkomnir í þessar ferðir
og við Sigrún erum meðlimir í öll-
um klúbbunum,“ sagði Jón Gunnar.
Hann sagði það hafa verið draumur
sinn lengi að eignast húsbíl og geta
farið hvert sem hann vill. „Við lét-
um verða af því eftir að ég slasaðist
og gat ekki verið lengur á vinnu-
markaði. Við seldum húsið okkar
og ekki þarf maður því lengur að
slá garðinn.“ Sigrún tók undir með
manni sínum og sagði að með þessu
fyrirkomulagi gætu þau valið út-
sýnið áður en þau færu að sofa,
ekki þyrftu þau að hafa áhyggjur af
leiðinlegum nágrönnum og væru
alltaf heima hjá sér. „Það er ekki
spurning fyrir fólk sem hefur tök á
að fá sér húsbíl og sjálf ætlum við
að halda þessum lífsmáta áfram
eins lengi og við getum. Maður
kynnist fólki á allt annan og per-
sónulegri hátt og það er mikil sam-
heldni á meðal húsbílafólks,“ sagði
Sigrún. Hinir erlendu gestir voru
mjög ánægðir með þær móttökur
sem þeir fengu hjá húsbílaeigend-
um í Reykjavík og á Akureyri og
eins með veðrið á samkomunum
bæði sunnan og norðan heiða. Sig-
rún sagði að hugmyndin væri að
skipuleggja ferð húsbílafólks frá Ís-
landi erlendis í júní á næsta ári.
Sveinn Heiðar Jónsson, formaður
Flakkara, sagði að skemmtunin í
Vín hefði tekist einstaklega vel, þar
sem m.a. hefði verið spilað og sung-
ið af krafti. Hann sagði þetta hafa
verið kjörið tækifæri til að tengjast
fólki í húsbílaklúbbum á Norð-
urlöndunum og að vonandi yrði um
enn frekari heimsóknir á báða bóga
að ræða í framtíðinni. Sveinn Heið-
ar sagði að áhugi fyrir húsbílum
hefði aukist gríðarlega undanfarin
ár og samhliða því væri aðstaða
fyrir húsbílafólk stöðugt að batna á
tjaldsvæðum landsins.
Íslensk hjón í Danmörku hafa búið í húsbílnum sínum í þrjú ár og líkar vel
Morgunblaðið/Kristján
Flakkarar Sveinn Heiðar Jónsson til hægri og kona hans Erla Oddsdóttir
með þau Jón Gunnar Þorkelsson og Sigrúnu Haraldsdóttur á milli sín á
bílastæðinu við Blómaskálann Vín í Eyjafjarðarsveit.
Þurfa ekki að hafa
áhyggjur af leiðin-
legum nágrönnum
Skemmtidagskrá | Söngvaka verð-
ur haldin í Minjasafnskirkjunni á Ak-
ureyri í kvöld kl. 20.30. Dagskráin
hefur vakið verðskuldaða athygli
enda hvergi hægt að finna skemmti-
dagskrá af þessum toga. Í sérstakri
en viðeigandi umgjörð Minjasafns-
kirkjunnar eru áheyrendur leiddir í
söngferðalag í tali og tónum um ís-
lenska tónlistarsögu frá miðöldum til
okkar daga. Efnisskráin er afar fjöl-
breytt og spannar allt frá drótt-
kvæðum miðalda til söngva og þjóð-
laga frá nítjándu og tuttugustu öld.
Fram að 20. öld er íslensk tónlist-
arsaga nær einvörðungu saga söngs
og sá söngur var nátengdur orðsins
list sem ávallt hefur verið þungamiðja
íslenskrar menningar. Öðruvísi gat
tónlistin varla verið, þ.e. lengst af
voru nær engin hljóðfæri til í landinu.
Efniviður til að smíða hljóðfæri var
enginn til né heldur fjármunir til að
kaupa þau. Ekki var heldur til stétt
hefðarfólks sem í útlöndum hélt uppi
hljómsveitum og hljóðfæraleikurum,
segir í fréttatilkynningu. Flytjendur
eru þau Íris Ólöf Sigurjónsdóttir og
Hjörleifur Hjartarson.
Bifreiðastæðaklukkur | Bæj-
arráð Akureyrar samþykki á fundi
sínum í gær tillögu þess efnis að 26.
ágúst nk. verði bifreiðastæðaklukk-
ur teknar upp í miðbæ Akureyrar og
frá sama tíma verði rekstri stöðu-
mæla í miðbænum hætt. Ennfremur
er lagt til að bifreiðastæðaklukk-
urnar gildi frá kl. 10–16 mánudaga
til og með föstudaga. Þá er heimilt
að gera undantekningu á gildistíma
bifreiðastæðaklukkna við sérstakar
aðstæður.