Morgunblaðið - 20.08.2005, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. ÁGÚST 2005 51
DAGBÓK
80 ÁRA afmæli. Á morgun, 21.ágúst, verður áttræður Guð-
mundur Einarsson, Bjarkarheiði 27,
Hveragerði. Hann tekur á móti gest-
um á afmælisdaginn milli kl. 16 og 19 í
Safnaðarheimili Vídalínskirkju í
Garðabæ.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
60 ÁRA afmæli. 21. ágúst verðursextug Fríða Einarsdóttir, ljós-
móðir, Ásgarði 2, Garðabæ. Fríða
fagnar afmælinu á menningarnótt.
60 ÁRA afmæli. Í dag, 20. ágúst,er sextugur Bjarki Viðar
Hjaltason, flugstjóri. Hann og eig-
inkona hans, Dýrleif Kristín Stein-
dórsdóttir, taka á móti ættingjum, vin-
um og samstarfsmönnum á heimili sínu
Lækjarhjalla 24, Kópavogi, í dag milli
kl. 18 og 21.
HM ungmenna.
Norður
♠10
♥Á942 N/Enginn
♦93
♣KG8765
Vestur Austur
♠KG965 ♠D43
♥D83 ♥KG765
♦86 ♦107
♣Á103 ♣D42
Suður
♠Á872
♥10
♦ÁKDG542
♣9
Pólverjar höfðu gott forskot (122-
77) eftir þrjár lotur af sex í úrslita-
leiknum við Bandaríkjamenn á HM
ungmenna, en vindáttin snerist í
fjórðu lotu, sem Bandaríkjamenn
unnu með 40 stiga mun. Ellefu stig
komu í spilinu að ofan.
Vestur Norður Austur Suður
Wooldridge Kalita Hurd Kotorowicz
-- Pass Pass 1 tígull
1 spaði 1 grand * 2 spaðar 3 grönd
Pass Pass Pass
* yfirfærsla í lauf
Út kom hjarta og Kalita tók sína
upplögðu níu slagi: 400 í NS.
Á hinu borðinu tók Justin Lall af
skarið með spil suðurs og keyrði í
slemmu:
Vestur Norður Austur Suður
Buras Greenberg Araskiewicz Lall
-- Pass Pass 1 tígull
1 spaði Dobl * 2 spaðar 4 grönd
Pass 5 lauf Pass 6 tíglar
Pass Pass Pass
Lall sá fyrir sér stuttan spaða hjá
makker og treysti á að fá einhvern
stuðning við tígulinn. Trompútspil er
best fyrir vörnina, en Buras kom út
með spaða.
Lall tók drottningu austurs með ás
og spilaði laufi. Buras dúkkaði fum-
laust, en Lall hitti á að stinga upp
kóng. Hann gat svo trompað tvo spaða
í borði og það dugði í tólf slagi.
Það hefði engu breytt um niðurstöð-
una þótt Buras hefði farið upp með
laufás og spilað trompi. Sagnhafi get-
ur þá fríað laufið með einni stungu og
á hjartaásinn eftir sem innkomu.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
1. e4 c5 2. c3 d5 3. exd5 Dxd5 4. d4 Rf6
5. Rf3 e6 6. Be3 cxd4 7. cxd4 Bb4+ 8.
Rc3 O-O 9. a3 Bxc3+ 10. bxc3 b6 11.
Bd3 Ba6 12. O-O Bxd3 13. Dxd3 Rbd7
14. Hfd1 Hfc8 15. Hac1 b5 16. Db1 Re4
17. Hd3 Hc4 18. Rd2 Rxd2 19. Bxd2
Hac8 20. Hh3 Rf6 21. He1 a6 22. Dd3
Df5 23. De2 Dc2 24. Hg3 Re4
Staðan kom upp í kvennaflokki í
Evrópukeppni landsliða sem lauk fyrir
skömmu í Gautaborg í Svíþjóð. Inna
Agrest (1984) hafði hvítt gegn Guðfríði
Lilju Grétarsdóttur (2046). 25. Hxg7+!
Kh8 svartur hefði tapað drottningunni
eftir 25. …Kxg7 26. Bh6+. 26. Hxf7
Dxd2 27. Dxe4 Dh6 28. De5+ Kg8 29.
Hf6 Dg7 30. Dxe6+ Kh8 31. De8+
Hxe8 32. Hxe8+ Dg8 33. Hxg8+ Kxg8
34. Hxa6 Hxc3 35. g3 Hd3 36. Ha5 og
svartur gafst upp enda er hann þrem
peðum undir í hróksendatafli.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Hlutavelta | Þessar duglegu stúlkur á Akureyri tóku sig til á dögunum og söfn-
uðu flöskum sem þær svo seldu og fengu 1.700 krónur fyrir. Peningana gáfu þær
Rauða krossinum á Akureyri. Þær heita Bryndís Móna Róbertsdóttir og Sigríður
Hannesdóttir.
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Félagsstarf
Félag eldri borgara Kópavogi,
ferðanefnd | Berjaferð „út í bláinn“
fimmtudaginn 25. ágúst. Brottför
frá Gullsmára kl. 13.15 og Gjábakka
kl. 13.30. Ekin Krísuvíkurleið í Selvog
en þar mun vera gott berjaland.
Kaffihlaðborð á „Hafinu bláa“. Ekin
leiðin Alviðra – Nesjavellir. Gefi ekki
til berja verður farið í skemmtilega
útsýnisferð „út í bláinn“ Skráning-
arlistar í félagsmiðstöðvunum.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Dagsferð 25. ágúst – Reykjanes-
skagi: Ekið um Vatnsleysuströnd og
Voga, Jarðfræðisafnið í Gjánni í
Svartsengi skoðað, og Saltfisksetrið
í Grindavík, síðan ekið að Reykjanes-
vita,að Garðskagavita og til Sand-
gerðis, Hvalneskirkja skoðuð. Uppl.
og skráning í síma 588 2111.
Félag eldri borgara, Reykjavík |
Dansleikur sunnudagskvöld kl. 20.
Klassík leikur fyrir dansi í Stangarhyl
4. Dagsferð 30. ágúst Krýsuvík, Sel-
vogur, Flóinn. Komið við í Krýsuvík,
Herdísarvík, Strandarkirkju og Þor-
lákshafnarkirkju, söfnin og kirkjan á
Eyrarbakka skoðuð. Uppl. og skrán-
ing í síma 588 2111.
Félag kennara á eftirlaunum | Ferð-
in í Fjörður og Flateyjardal miðviku-
daginn 24. ágúst kl. 9 frá Umferð-
armiðstöðinni á Akureyri. Skráning
hjá KÍ í 595 1111.
Félagsstarf Gerðubergs | Alla virka
daga er opið frá 9–16.30. Unnið er að
gerð vetrardagskrár, óskir og ábend-
ingar vel þegnar. Nýtt leiðakerfi
Strætó verður kynnt bráðlega, nán-
ar kynnt síðar. Postulínsnámskeið
byrjar mánud. 5. sept. kl. 13, umsjón
Sigurbjörg Sigurjónsdóttir, skráning
stendur yfir. Allar uppl. á staðnum
og í síma 575 7720.
Hraunsel | Pútt á Vallarvelli kl. 10–
13.30.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið í Fé-
lagsmiðstöðinni Hæðargarði 31 er
öllum opið. Gönguferð í dag árdegis
kl. 10. Gangan heitir Út í bláinn og er
fjölskylduganga Laugardals- og Háa-
leitishverfis. Að lokinni göngu er
boðið upp á teygjuæfingar og ís-
lenskt vatn. Gengið er í u.þ.b. klukku-
stund. Allir velkomnir.
Laugardagur 20. ágúst
16.00: Setning Kirkjulistahátíðar
2005. Tónlistardagskrá og ávörp.
Opnun sýningar á verkum eftir
Rúrí, borgarlistamann Reykjavík-
ur 2005, í forkirkju og kirkjuskipi.
18.00-
22.00: Unglistahátíð á Menningarnótt
í Hallgrímskirkju. Ungir listamenn
fá frjálsar hendur um listsköpun og
listflutning, m.a. í formi innsetn-
inga og gjörninga sem fara fram í
turnrýmunum tveimur.
18.00: Matteusarguðspjall, upplestur
úr nýrri Biblíuþýðingu
19.00: Nýstárlegir hljómar. Simon
Jermyn frá Írlandi leikur á gítar og
skapar djúpa og breiða hljóðheima
inni í kirkjurýminu. Steindór G.
Kristinsson flytur rafverk í kirkj-
unni, spilað í gegnum hulda og sýni-
lega hátalara.
20.00: Barokksveifla. Félagar úr Al-
þjóðlegu barokksveitinni Den Haag
ásamt sópransöngkonunni Ragn-
heiði Árnadóttur flytja verk eftir
Bach, Händel, Purcell o.fl.
21.00: Tónskáld framtíðarinnar. Fyrr-
verandi og núverandi nemendur í
Listaháskóla Íslands flytja verk
eftir tónsmíðanemendur skólans.
22.00: Helgistund með ungu tónlist-
arfólki í umsjón sr. Jóns Dalbú
Hróbjartssonar
Aðgangur er ókeypis að öllum
dagskrárliðum.
Dagskrá Kirkjulistahátíðar
Í SKAFTFELLI á Seyðisfirði
verða í dag opnaðar einkasýn-
ingar Carls Boutards og Doddu
Maggýjar.
Carl, sem sýnir í aðalsalnum,
nefnir sýningu sína „Hills and
drawings“.
Sýning Doddu nefnist „Verk
19“ og er síðasta sýningin í röð-
inni listabrall/atmuck á vest-
urveggnum.
Carl og Dodda hafa dvalið á
Seyðisfirði í sumar og fengist við
list sína og ýmis tengd störf, m.a. í
veitingastofu Skaftfells, en sú
veitingastofa hefur þá sérstöðu að
þar starfa einkum myndlist-
armenn yfir sumartímann.
Sýningarnar verða opnaðar
með viðhöfn kl. 16 og gestum og
gangandi boðið upp á veitingar kl.
17. Tónlistarmaðurinn Borkó mun
skemmta á meðan. Sýningar
Carls og Doddu standa til 18.
september en þá hefst haustsýn-
ingardagskrá Skaftfells.
Eitt verkanna sem sýnt verður
í Skaftfelli.
Nýjar
sýningar í
Skaftfelli
SÝNINGUM Dieter Roth lýkur á
morgun. Þær fara fram í Listasafni
Reykjavíkur, Listasafni Íslands og
Galleríi 100°. Sýningarnar voru
haldnar í tengslum við Listahátíð
en listamaðurinn svissnesk-þýski
hafði aðsetur á Íslandi frá sjötta
áratugnum. Þetta er fyrsta stórsýn-
ing hans hér á landi en sýning-
arstjóri er Björn Roth, sonur hans.
Dieter Roth lýkur