Morgunblaðið - 07.09.2005, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.09.2005, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 241. TBL. 93. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Japansför Guitar Islancio Var fagnað eins og rokkstjörnur væru þar á ferð | Menning Úr verinu og Íþróttir í dag Úr verinu | Sjávarútvegssýningin hefst í dag  Kostnaður meira en 100 milljónir Íþróttir | Góður sigur hjá ungmennalandsliðinu  Byrjaðir að undirbúa næstu keppni  Ólafur Már í feikna formi Sameinuðu þjóðunum. AFP. | Ljóst er að Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna (SÞ), er ekki sekur um siðferð- isleg brot í tengslum við áætlun Sameinuðu þjóð- anna um sölu á íraskri ol- íu fyrir mat í tíð Sadd- ams Husseins í Írak, að því er fram kemur í skýrslu um spillingu í málinu. Sonur Annans, Kojo, hefur verið sakað- ur um að hafa misnotað tengslin við föðurinn til að hagnast á áætluninni. Óháð rannsóknanefnd undir formennsku Paul Volckers, fyrrverandi seðlabanka- stjóra Bandaríkjanna, gerði skýrsluna að beiðni Annans og var formáli að henni birt- ur í gær en sjálf skýrslan verður opinber- lega afhent öryggisráði SÞ í dag. Yfirmaður olíusöluáætlunarinnar, Benon Sevan, er tal- inn hafa þegið mútur frá Írökum. Í formál- anum segir að Annan hafi ekki brotið siða- reglur en gert alvarleg stjórnunarmistök. „Óumflýjanleg niðurstaða starfs nefndar- innar er að Sameinuðu þjóðirnar þurfa á róttækum umbótum að halda – og þörfin er afar brýn,“ segir í formálanum. Annan gerði slæm mistök Kofi Annan LÖGREGLAN í New Orleans í Bandaríkjunum sagðist í gær vera búin að fara í um 75% allra íbúðarhúsa til að leita að fólki sem varð innlyksa og hefur stundum þurft að þvinga fólk til að yfir- gefa húsin. Hætta er nú talin á miklu umhverfis- tjóni á New Orleans-svæðinu. Þar er enn fjöldi líka á götunum, einnig húsasorp, brak og eitur- efni úr verksmiðjum. Sagt er að rotnandi úr- gangur og olía liggi yfir öllu eins og slikja í hit- anum sem oft fer yfir 30 stig. Dæla þarf menguðu vatninu af götum borgarinnar yfir í Pontchartr- ain-stöðuvatnið og Mississippi-fljót næstu mán- uði og er óttast að ýmis eiturefni geti valdið þar stórtjóni á lífríkinu. George W. Bush Bandaríkjaforseti, sem sætt hefur harðri gagnrýni vegna seinna viðbragða al- ríkisyfirvalda við náttúruhamförunum, hét því í gær að hann myndi sjálfur hafa umsjón með ít- arlegri rannsókn á því hvað hefði farið úrskeiðis við björgunaraðgerðir. Yfir 90 ríki hafa boðið Bandaríkjamönnum að- stoð vegna hamfaranna. Hafa Þjóðverjar að sögn AP-fréttastofunnar boðist til að senda hraðvirkar dælur til að fjarlægja vatn af götum New Orleans og var boðinu tekið með þökkum. Þyrlur frá Singapúr og Kanada eru þegar að störfum á flóðasvæðinu, Mexíkó sendi í gær af stað lest 15 herbíla með hjálpargögn yfir landamærin til grannans í norðri. Enn er óljóst hve margir létu lífið í fellibylnum og flóðunum en óttast að um þúsundir manna sé að ræða. Talið er að allt að 160.000 íbúðarhús á New Orleans-svæðinu hafi gereyðilagst, útvega þarf heimilislausu fólkinu nýjan samastað. Fjöldi fólks um öll Bandaríkin hefur boðist til að hýsa fólk af hamfarasvæðinu. „Allir eiga rétt á öruggum stað til að sofa, fólk á ekki að þurfa að búa við þessar aðstæður,“ sagði Beth Blanch, 34 ára kona í Virginíu. Hún sendi út skilaboð á Net- inu og bauðst til að taka við heimilislausum. Hætta á miklu um- hverfistjóni vofir yfir Reuters Slökkviliðsmaður hjálpar New Orleans-búa við að komast á brott, í baksýn brennandi íbúðarhús. Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is  Hjara innan um rústirnar | 14 Strassborg. AFP. | Hart var deilt á þingi Evrópusambandsins (ESB) í Strassborg í gær um tillögur fram- kvæmdastjórn- arinnar í Brussel sem miða að því að draga úr tíðni húðkrabba með því að setja reglur um klæðaburð starfsmanna sem geta sólbrunnið í vinnunni. Andstæðingar tillagnanna segja að um ofstjórn- aráráttu sé að ræða og svo geti farið að þrýstnum afgreiðslustúlkum á bjórkrám í Bæjaralandi verði bann- að að ganga í flegnum kjólum sem af- hjúpa brjóstaskoruna. Bresk dagblöð hafa gert gys að því að með nýju lög- unum verði verkamönnum þar í landi bannað að vinna berir að ofan. „Ættu vinnuveitendur að útvega [starfsmönnum] sólarolíu? Ættu þeir að útvega þeim sólgleraugu? Þetta er ekki eitthvað sem ESB á að fást við,“ sagði Liz Lynne sem er bresk og þingmaður frjálslyndra demókrata. Stuðningsmenn, sem flestir eru úr röðum vinstriflokka, benda á að tíðni húðkrabba fari ört vaxandi í sumum löndum ESB. Breski þingmaðurinn Roger Helmer sagði að þingið héldi áfram að láta hlæja að sér fyrir að samþykkja öfgafullar tillögur. „Hve- nær förum við að meðhöndla evr- ópska borgara eins og fullorðið fólk sem getur sjálft tekið ákvarðanir?“ spurði Helmer. Holdið verði varið fyrir sól Þýsk þjónustustúlka með bjór. RÍKISSTJÓRNIN hefur ákveðið að leggja fram frumvarp á Alþingi í haust, þar sem m.a. verður gert ráð fyrir því að 18 milljörðum af söluandvirði Símans verði varið til fyrstu áfanga hátæknisjúkrahúss á Landspítalalóðinni við Hringbraut árin 2008 til 2012 og að 15 millj- örðum verði varið til vegafram- kvæmda á árunum 2007 til 2010, m.a. til Sundabrautar. Ríkissjóði barst í gær 66,7 millj- arða króna greiðsla frá Skipti ehf. fyrir Landssíma Íslands hf. Þar af voru 34,5 milljarðar greiddir í ís- lenskum krónum en 32,2 milljarðar í erlendri mynt. Ríkisstjórnin hef- ur ákveðið að þeim hluta, sem greiddur var í erlendri mynt, verði varið til þess að greiða niður er- lendar skuldir ríkissjóðs á þessu ári. Fyrrnefndi hlutinn verður að mestu lagður inn á reikning í Seðlabanka Íslands fram til ársins 2007. Hann muni skila ríkissjóði umtalsverðum vaxtatekjum og koma í veg fyrir þensluáhrif á sama tíma og stóriðjuframkvæmdirnar eru í hámarki. Halldór Ásgrímsson forsætis- ráðherra segir að erlendar skuldir ríkisins hafi verið um 160 milljarð- ar í árslok 2004 en þær verði 100 til 110 milljarðar í lok þessa árs. Það hefði aldrei fyrr gerst í sögu þjóð- arinnar að erlendar skuldir ríkisins væru borgaðar niður með öðrum eins hætti og nú. Davíð Oddsson utanríkisráð- herra segir að 25 milljarða afgang- ur verði á fjárlögum þessa árs í stað tíu, eins og áður var spáð. Það þýði að hægt verði að greiða niður erlendar skuldir á þessu ári um samtals 50–60 milljarða. „Þegar því verður lokið verðum við skuld- laus við útlönd, [sem ríki], þegar við tökum á móti eign Seðlabank- ans í gjaldeyrisvarasjóði“. Formenn stjórnarandstöðu- flokkanna eru ánægðir með margt í hugmyndum stjórnvalda. Þeir gagnrýna þó ýmislegt. Steingrím- ur J. Sigfússon, formaður VG, sagði m.a. gagnrýnisvert að fram- kvæmdavaldið skyldi taka að sér að tilkynna hvernig söluandvirði Símans yrði ráðstafað mörg ár fram í tímann. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, tók í sama streng. „Mér finnst dálítið verið að strá silfrinu um landið áð- ur en það er tímabært,“ sagði hún. Þá sagði Guðjón A. Kristjáns- son, formaður Frjálslynda flokks- ins, m.a. nauðsynlegt að skoða mál- efni Hvalfjarðarganganna ef fara ætti með Sundabraut í einkafram- kvæmd með tilheyrandi gjaldtöku. 18 milljörðum varið í nýtt hátæknisjúkrahús Morgunblaðið/Þorkell Forystumenn stjórnarflokkanna kynntu ákvörðun ríkisstjórnarinnar.  Erlendar skuldir | 24–25 Eftir Örnu Schram og Svavar Knút Kristinsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.