Morgunblaðið - 07.09.2005, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Frábær vikuferð þar sem við kynnumst mörgum helstu perlum þessara tveggja
landa. Bæði eru þau einstök og bjóða upp á mikla fjölbreytni í upplifun.
Náttúrufegurðin er engu lík og fjölbreytileikinn er mikill. Borgir og bæir eru
töfrandi og í heild má segja að þessi lönd
skapi einstakan ramma utan um
stórkostlega ferðaupplifun.
Ferðatilhögun: Flogið er til Trieste og lent
um hádegi. Ekið til perlunnar Bled í
Slóveníu. Gist í 3 nætur. Á föstudegi er farið
í kynnisferð um Bled og að Bohinj vatni.
Á laugardegi er farið til Ljubljana, hinnar
fallegu höfuðborgar Slóveníu. Á sunnudegi
er ekin fögur fjallaleið um Vrsic skarð til hins
fallega
strandbæjar Izola við Adríahafið. Þar er gist í
fjórar nætur. Á mánudegi er í boði hálfsdags
bátsferð til Piran, á þriðjudegi dagsferð til
Króatíu; Ístríuskaginn Porec - Rovinj og
Limfjord, og á miðvikudegi er í boði hálfs
dags ferð til Trieste. Á fimmtudegi er flogið
heim.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Ævintýri í
Slóveníu og Króatíu
22. september
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Einstök ferð á frábæru verði kr. 59.990
• Bled
• Júlíönsku alparnir
• Ljubljana
• Izola
• Piran
• Porec
• Rovinj
• Trieste
Verð kr. 59.990
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli.
Aukagjald fyrir einbýli er kr. 10.000.
Innifalið: Flug, skattar, gisting á 3* hótelum, morgunverður og kvöldverður allan
tímann, ferðir milli staða, kynnisferðir 23. og 24. sept. og íslensk fararstjórn.
Ekki innifalið: Valfrjálsar kynnisferðir og aðgangseyrir.
Takmarkaður fjöldi sæta er í boði á þessu verði.
„NÚ eru komnar til umræðu raun-
hæfar lausnir þar sem hagsmunir
höfuðborgarinnar, innanlands-
flugsins og þar með landsbyggð-
arinnar geti farið saman. Vonandi
munu menn bera gæfu til þess að
vinna hratt og vel að útfærslu
þeirra hugmynda á næstunni,“
sagði Dagur B. Eggertsson, for-
maður skipulagsráðs, varðandi
framtíð Vatnsmýrarinnar á fundi
borgarstjórnar í gær. Hann sagði
fátt virðast benda til annars en að
í þessa vinnu verði farið og vísaði
til þess að Sturla Böðvarsson sam-
gönguráðherra hefði sagt að hann
útilokaði ekkert. Sömuleiðis hafi
minnihlutaframboðin í borg-
arstjórn lýst yfir
þeirri skoðun
sinni að Vatns-
mýrin verði tek-
in til annarra
nota en flug-
starfsemi í fram-
tíðinni.
Dagur sagði
umræðuna vera
komna upp úr
skotgröfunum og
nú væri leitað sameiginlegra
lausna. Þetta væri merkilegt í ljósi
þess að fyrir um þremur mánuðum
hefði umræðan í borgarstjórn ver-
ið í hnút.
„Það er mikilvægt að við áttum
okkur á því hér í borgarstjórn
hvar við erum stödd í ferlinu og
hvar ekki. Við höfum náð árangri í
því að leita raunhæfra lausna til
þess að höggva á þennan hnút og
það er orðið brýnt, og það eru allir
sammála um það,“ sagði Dagur og
bætti því við að það væri líka mik-
ilvægt að borgarbúar gætu komið
að framtíðarskipulagi Vatnsmýr-
arinnar. Það verði gert nk. föstu-
dag þegar sýning um skipulag í
borginni og sérstaklega skipulag í
Vatnsmýrinni verður opnuð í
Listasafni Reykjavíkur.
Hann sagði tillögu um hug-
myndasamkeppnina verða lagða
fram á morgun á fundi borgarráðs.
Formaður skipulagsráðs um framtíð Vatnsmýrarinnar
Umræðan komin
upp úr skotgröfunum
Dagur B.
Eggertsson
BJÖRN Bjarnason, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi á
fundi borgarstjórnar í gær þá
ákvörðun R-listans að halda hug-
myndasamkeppni um skipulag
Vatnsmýrarinnar, sem kosti á
bilinu 80–100 milljónir kr.
Hann sagði samkeppnina vera til-
gangslausa. Málið ætti eftir að
skoða vel og vandlega. Það ætti eft-
ir að fara í gegnum svipað ferli með
flugvöllinn líkt og gert var með
Sundabrautina. Hann sagði að þótt
þverpólitísk samstaða virtist vera
um það að flugvöllurinn færi þá
væri afstaðan
ekki hin sama
þegar litið sé til
hvert hann skuli
fara. Deilt sé um
stærð höfuðborg-
arsvæðisins.
Sumir segja að
hann megi ekki
fara lengra en á
Álftanes en aðrir
segi að hann
megi fara til Keflavíkur.
„Þetta er ákveðin viðleitni til
þess að segja sem svo að við séum
öll sammála um það að flugvöll-
urinn fari en við erum ekki sam-
mála um hvert hann skuli fara. Ef
hann á að fara eitthvað lengra held-
ur en út á Álftanes þá erum við
ekki sammála því að það fari fram
hér alþjóðleg samkeppni um það
sem formaður skipulagsráðs hefur
boðað,“ sagði Björn og vísaði til
ræðu sinnar frá 3. maí sl. varðandi
Vatnsmýrina þar sem hann sagði að
það sé nauðsynlegt að borgarstjórn
Reykjavíkur taki ákvörðun um hvað
felist í alþjóðlegri hugmynda-
samkeppni.
Björn Bjarnason, borgarfulltrúi sjálfstæðismanna
Menn ekki sammála hvert
fara eigi með flugvöllinn
Björn
Bjarnason
FYRSTI fundur borgarstjórnar Reykjavíkur að loknu sumarleyfi var í
Ráðhúsinu í gær. Steinunn Valdís Óskarsdóttir er hér í umræðu um sam-
einingu sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og með fylgist forseti borg-
arstjórnar, Alfreð Þorsteinsson.
Morgunblaðið/Þorkell
Borgarstjórn komin í
gang eftir sumarfrí
FULLTRÚAR Sjálfstæðisflokks í
borgarstjórn lögðu fram tillögu á
borgarstjórnarfundi í gær, þess efnis
að komið verði á fót gjaldfrjálsum bif-
reiðastæðum í miðborginni.
Lagt er til að stæðin verði gjald-
frjáls en notkun þeirra áfram stýrt
með tímatakmörkunum samkvæmt
svonefndu skífukerfi að erlendri fyr-
irmynd. Samkvæmt tillögunni á
starfshópur að endurskoða gjaldtöku
á bifreiðastæðum og koma með tillög-
ur að breyttu fyrirkomulagi.
Samþykkt var í einum róm tillaga
borgarstjóra um að borgarstjórn feli
framkvæmdaráði að kanna hvort
koma eigi á fót gjaldfrjálsum bifreiða-
stæðum í miðborginni. Stæðin verði
gjaldfrjáls en notkun þeirra áfram
stytt með tímatakmörkunum sam-
kvæmt svonefndu skífukerfi að er-
lendri fyrirmynd. Ráðið skipi starfs-
hóp með þátttöku hagsmunaaðila sem
muni kanna kosti og galla breytt fyr-
irkomulags.
Kaupmenn verið ósáttir
Í greinargerð með tillögunni segir,
að frá árinu 1994 hafi tekjur Bíla-
stæðasjóðs Reykjavíkur af bifreiða-
stæðum og stöðubrotum í miðborg-
inni vaxið gífurlega og sé áætlað að
þær muni nema um 450 milljónum
króna á þessu ári. Þessir fjármunir
komi úr vösum viðskiptavina í mið-
borginni og hljóta að hafa áhrif á að-
sóknina þar. Kaupmenn í miðborginni
séu flestir ósáttir við núverandi fyr-
irkomulag og bendi á ójafna sam-
keppnisstöðu þar sem viðskiptavinir
þeirra séu skattlagðir. Verslanir í öðr-
um hverfum auglýsi óspart að hjá
þeim séu næg ókeypis bílastæði og
engar sektir.
Þá kemur fram, að erlendis hafi
hins vegar verið ör þróun í bílastæða-
málum og þar hafi víða náðst góður
árangur við að samræma styrka stýr-
ingu og almenna ánægju viðskipta-
vina. Ein helsta breytingin felist í
upptöku svonefnds skífukerfis en með
því sé bíleigendum gert kleift að
leggja ókeypis í tiltekin stæði í ákveð-
inn tíma gegn því að þeir setji skífu
eða miða í framrúður bifreiða sinna
sem gefi til kynna komutíma þeirra á
viðkomandi stæði. Virði þeir ekki sett
tímatakmörk, eiga þeir á hættu á að
þurfa að greiða aukastöðugjald.
Í greinargerð sjálfstæðismanna
segir ennfremur að umrætt skífukerfi
hafi gefist vel á Norðurlöndunum,
Þýskalandi og víðar um heim. Fyrir
skömmu var slíkt kerfi tekið upp í
miðbæ Akureyrar og segir í greinar-
gerðinni, að viðtökurnar hafi verið
góðar. Tími sé til kominn að Reykja-
vík bætist í hóp framsækinna sveitar-
félaga og prófi slíkt kerfi.
Tillaga á borgarstjórnarfundi í gær
Bifreiðastæði
verði gjaldfrjáls
í miðborginni
Eftir Jón Pétur Jónsson
jonpetur@mbl.is
SAMÞYKKT var á fundi borgar-
stjórnar í gær tillaga borgarstjóra um
að tillaga Ólafs F. Magnússonar,
borgarfulltrúa Frjálslynda flokksins,
varðandi sameiningu sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu, verði kynnt fyr-
ir stjórn samtaka sveitarfélaga á höf-
uðborgarsvæðinu. Var tillagan sam-
þykkt með 14 af 15 borgarfulltrúum.
Ólafur sat hjá og fékk bókað að tillaga
borgarstjóra sé ekki til þess fallin að
fá fram þá umræðu sem þurfi til að
flýta nauðsynlegri sameiningu sveit-
arfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
Steinunn Valdís Óskarsdóttir borg-
arstjóri segir að hægt sé að taka undir
margt í tillögu Ólafs, t.d. að í samein-
ingunni geti falist mikið hagræði.
Hún benti jafnframt á að sveitarfélög-
in á svæðinu ættu nú þegar með sér
samstarf á mörgum sviðum. T.d. á
sviði almenningssamgangna, slökkvi-
liðsmála, svæðisskipulags, almanna-
varna, frárennslismála svo dæmi séu
tekin. „Ég er þeirrar skoðunar að það
sé ekki rétt að gera allt þetta svæði að
einu sveitarfélagi. Sumum þykir nóg
að í einu sveitarfélagi búi 40% ís-
lensku þjóðarinnar og að á höfuð-
borgarsvæðinu og að í Reykjavík búi
60% íbúa alls höfuðborgarsvæðisins,“
sagði Steinunn.
Ekki áhugi
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti
Sjálfstæðismanna í borgarstjórn,
sagðist ávallt vera hlynntur samein-
ingu sveitarfélaga enda hafi náðst
töluverður árangur á þeim vettvangi
sl. 13 ár. Hann sagði þó að hvað
Reykjavíkurborg varði þá lægi ljóst
fyrir að ekki væri áhugi til staðar hjá
forystumönnum sveitarfélaganna á
höfuðborgarsvæðinu á samruna.
Ekki
eitt sveit-
arfélag