Morgunblaðið - 07.09.2005, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 07.09.2005, Blaðsíða 9
FORSETI Alþingis, Halldór Blöndal, sækir 2. alþjóðaráð- stefnu þingforseta sem Al- þjóðaþingmannasambandið og Sameinuðu þjóðirnar standa fyrir í New York dagana 7.–9. september. Munu þing- forsetarnir m.a. ræða samstarf þjóðþinga og Samein- uðu þjóðanna og um hlutverk þjóðþinga til eflingar friðar, öryggis og lýðræðis í heimin- um. Fundurinn er haldinn í að- draganda leiðtogafundar Sam- einuðu þjóðanna og munu þingforsetarnir væntanlega samþykkja ályktun til leiðtoga- fundarins. Ýmsir aðrir fundir verða haldnir í tengslum við ráðstefnuna, t.d. mun forseti Alþingis sækja fund þingfor- seta Norðurlanda og Eystra- saltsríkja sem og fund þing- forseta smáríkja í Evrópu. Í för með forseta Alþingis eru, auk eiginkonu hans, Einar K. Guðfinnsson þingmaður ásamt skrifstofustjóra Alþingis og forstöðumanni alþjóðasviðs. Alþjóða- ráðstefna þingfor- seta í New York Halldór Blöndal MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2005 9 FRÉTTIR Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • sími 581 2141 Nýir samkvæmiskjólar Flauelsbuxurnar og betri buxur í þremur litum Laugavegi 84 ● sími 551 0756 H Æ Ð A S M Á R A 4 • S Í M I 5 4 4 5 9 5 9 H V E R A F O L D 1 - 3 , G R A F A R V O G I • S Í M I 5 7 7 4 9 4 9 NÝJAR HAUSTVÖRUR Í I , I Í I Innigallar - heimagallar fyrir konur á öllum aldri Ný sending af velúrgöllum Nokkir litir Stærðir 10-20 Verið velkomin Sími 568 5170 Hlíðasmára 11 • Kópavogi • sími 517 6460 • fax 517 6565 www.belladonna.is Bjóðum frábært tilboð til Costa del Sol. Þú bókar og tryggir þér síðustu sætin og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Stökktu til Costa del Sol 14. eða 21. sept. frá kr. 29.990 m.v. 2 Munið Mastercard ferðaávísunina Verð kr. 29.990 í viku Verð kr.39.990 í 2 vikur Netverð á mann, m.v. a.m.k. 2 í herbergi/stúdíó/ íbúð. Flug, gisting, skattar og íslensk fararstjórn. Stökktu tilboð 14. eða 21. sept. í viku. Lægsta verðið - síðustu sætin Síðumúla 34 - sími 568 6076 Ýmislegt áhugavert fyrir safnara EVRÓPSKA gervitunglið CryoSat sem skotið verður á loft á næstunni, mun meðal annars mæla þykkt jökla hér á landi. Gervitunglið verður sett á 720 kílómetra háa braut á milli póla jarðarinnar og mun mæla þykkt jökla og hafíss á Suðurskautsland- inu, Grænlandi, Íslandi og á heim- skautahafsvæðum. Það er Evrópska geimferðastofn- unin (ESA) sem stendur á bak við hönnun CryoSat. Með því hyggst hún rannsaka áhrif hækkunar á hita- stigi jarðar á bráðnun jökla. Breytingar greindar í sentimetrum CryoSat gervitunglið er sérstakt að því leyti að í því er fullkominn rad- ar sem senda mun frá sér merki til jarðar. Að sögn Halldórs Björnsson- ar, sérfræðings á Veðurstofu Ís- lands, er mikill munur á að nota slík- an radar og því að taka venjulegar myndir eins og flest veðurgervitungl gera. „Með radarnum má fylgjast með þykkt íssins. Þegar horft er á venju- legar myndir teknar af sömu svæð- um er aftur á móti erfitt að vita hvort og hvaða breyting hefur orðið á þykktinni,“ segir Halldór. Hann seg- ir radarinn í CryoSat gera vísinda- mönnum kleift að greina allar slíkar breytingar nákvæmlega. Radar- myndir frá tveimur mismunandi tím- um megi bera saman og greina allt niður í eins sentimetra mun á þykkt. „Þarna er um ákaflega sniðuga tækni að ræða, sem mun gera mönn- um kleift að fylgjast mjög náið með breytingum á yfirborðsþykkt jökla, meðal annars hér á landi,“ segir Halldór. Hann segir hana þó ekki auðvelda viðureignar og til dæmis sé hægara sagt en gert að koma rad- arnum út í geiminn. Meiri umhverfisvöktun en áður Að sögn Halldórs hefur komið á óvart hversu hratt stóru jökulhvelin geta breytt um þykkt. „Það er ein ástæða þess að rétt þykir að fylgjast mjög nákvæmlega með þessu. Í dag er almennt miklu meiri umhverfisvöktun en áður og mikið af henni fer fram í gegnum gervitungl. Radar eins og í CryoSat opnar þar nýjar leiðir,“ segir Hall- dór. Íslenskir jöklar mældir úr geimnum Með fullkominni tækni CryoSat- gervitunglsins verður fylgst með þykkt íslenskra jökla. Eftir Sigríði Víðis Jónsdóttur sigridurv@mbl.is Fréttasíminn 904 1100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.