Morgunblaðið - 07.09.2005, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
FYRSTU tónleikar vetrarins í tón-
leikaröðinni Tíbrá verða haldnir í
Salnum í kvöld, á afmælisdegi Sig-
fúsar Halldórssonar tónskálds og
heiðursborgara Kópavogs sam-
kvæmt venju, og hefjast þeir kl. 20.
Æskan varð fyrir valinu
Þar sem þessir fyrstu tónleikar
vetrarins eru á fimmtugasta afmæl-
isári Kópavogs þótti við hæfi að kalla
til nokkra af þeim úrvals tónlist-
armönnum sem bæinn byggja til að
syngja og leika í Salnum, og verða
lög Sigfúsar sjálfs heldur ekki langt
undan á efnisskránni. „Við völdum
þessu sinni að biðja listamenn úr
Kópavogi að koma fram á opn-
unartónleikunum. Þar er auðvitað af
svo miklu að taka að það væri hægt
að halda röð tónleika bara með þeim!
En við völdum æskuna,“ segir Vigdís
Esradóttir, forstöðumaður Salarins í
Kópavogi, um opnunartónleikana í
ár.
Tónleikarnir hefjast með leik
Skólahljómsveitar Kópavogs undir
stjórn Össurar Geirssonar, sem er
nýsnúin heim úr tónleikaferðalagi
um Norðurlönd. Í ferðinni vann
sveitin meðal annars til fyrstu verð-
launa á hljómsveitamóti í Gautaborg,
í efsta styrkleikaflokki. Sveitin mun
spila tónlist í léttari kantinum.
Þá mun Ólafur Kjartan Sigurð-
arson baritón flytja einsöngslög og
aríur ásamt Peter Máté píanóleikara,
Guðrún Birgisdóttir og Martial
Nardeau flautuleikarar flytja Fant-
asíu við lög úr óperunni Rigoletto eft-
ir Giuseppe Verdi eftir þá Karl og
Franz Doppler og Jóhann Nardeau
trompetleikari og sonur Guðrúnar og
Martials flytja Tilbrigði við stef úr
óperunni Norma eftir Vincenzo Bell-
ini eftir Jean-Baptiste Arban. Peter
Máté leikur undir hjá Nardeau-
fjölskyldunni.
Skólakór Kársness undir stjórn
Þórunnar Björnsdóttur lýkur dag-
skránni með tónlist frá ýmsum
heimshornum; þar á meðal hluta af
efnisskrá sinni úr nýafstöðnu tón-
leikaferðalagi um Japan, en einnig
tveimur lögum eftir Ragnhildi Gísla-
dóttur við texta Sjóns. Þá flytur kór-
inn syrpu með vinsælum lögum Sig-
fúsar Halldórssonar ásamt
Jazzkvartett Reykjavíkur.
Skemmtilegt
upphaf að vetrinum
Tónleikunum í kvöld lýkur síðan
með flutningi lagsins Hér á ég heima
eftir Þóru Marteinsdóttur við texta
Steinunnar Sigurjónsdóttur, en lagið
bar sigur úr býtum í samkeppni sem
haldin var í tilefni 50 ára afmælis
Kópavogsbæjar í maí síðastliðnum.
„Þetta er óskaplega fallegt lag,“
segir Vigdís um þessa nýju tónsmíð
og bætir við að opnunartónleikarnir
verði án efa skemmtilegt upphaf að
tónleikaröðinni Tíbrá í vetur. „Dag-
skráin hefur sjaldan verið eins glæsi-
leg hjá okkur; þar munu meðal ann-
ars koma fram 15 einsöngvarar, á
annan tug píanóleikara og þunga-
vigtarfólk úr tónlistarheiminum á
borð við Erling Blöndal Bengtsson
og Ivan Klánský, svo dæmi séu
nefnd. Við erum því full tilhlökkunar
og vonum að fólk komi sem oftast í
Salinn og njóti þess sem fólk hefur
verið að undirbúa fyrir veturinn.“
Tónlist | Fyrstu tónleikar vetrarins í Tíbrár-röðinni í Salnum
Æskan varð fyrir valinu
Morgunblaðið/Golli
Skólahljómsveit Kópavogs undir stjórn Össurar Geirssonar leikur í kvöld.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skólakór Kársness undir stjórn
Þórunnar Björnsdóttur kemur
fram á opnunartónleikum Tíbrár-
raðarinnar í kvöld.
Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur
ingamaria@mbl.is
duate-gráðu frá Royal Academy of
Music í London í júní síðastliðnum.
Íslenskum áheyrendum gefst næst
tækifæri til að heyra Jónas syngja á
einsöngstónleikum í Salnum ásamt
Jónasi Ingimundarsyni píanóleik-
ara, sem haldnir verða 11. febrúar
næstkomandi.
Þetta er í fjórða sinn sem styrk-
urinn er afhentur í Salnum á fæðing-
ardegi Önnu, en sjóðnum er ætlað að
styrkja efnilega tónlistarnema í
„söng og fíólínspili“ eins og Anna
sjálf orðaði það. Áður hlutu styrkinn
þau Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir
mezzósópran árið 2002, Eyjólfur
Eyjólfsson tenór árið 2003 og Ari
Vilhjálmsson fiðluleikari árið 2004.
VEITT var viðurkenning úr Styrkt-
arsjóði Önnu Karólínu Nordal við
hátíðlega athöfn í Salnum í gær. Það
var Jónas Guðmundsson ten-
órsöngvari sem tók við styrknum að
upphæð 500.000 kr. og flutti við til-
efnið þrjú lög við lofsamlegar und-
irtektir áheyrenda.
Stjórn sjóðsins er skipuð þeim
Jónasi Ingimundarsyni, Vigdísi
Esradóttur og Þórði Júlíussyni og
hafði þetta um styrkþegann að
segja: „Jónas hefur háa, blæfagra
tenórrödd sem vekur athygli þá hún
heyrist. Hann syngur af smekkvísi
og kunnáttu, og er gæddur þeim eig-
inleikum sem gera honum mögulegt
að takast á við margvísleg viðfangs-
efni. Það er vissa sjóðsstjórnar
Styrktarsjóðs Önnu Karólínu Nordal
að hans bíði söngferill – vonandi far-
sæll.“
Í hlutverki Lindoro
Í samtali við Morgunblaðið sagðist
Jónas hissa en jafnframt ánægður að
hafa hlotið styrkinn. Aðspurður
hvers konar tónlist honum þætti
skemmtilegast að syngja, sagði hann
erfitt að svara, enda kæmi margt í
hugann. „En ætli ég nefni ekki fyrst
óperu, þá ítalska og franska helst.
Hún á hug minn og hjarta,“ sagði
hann, en hann hafði einmitt sungið
tvær aríur, eftir Lehár og Puccini,
við athöfnina.
Um þessar mundir tekur Jónas
þátt í masterklassa á Ítalíu, og snýr
því aftur þangað í dag til að syngja
með á lokatónleikum þeirra á föstu-
dag og laugardag. Næsta stóra verk-
efni hans verður ennfremur á Ítalíu,
en þá syngur hann hlutverk Lindo-
ros í uppfærslu á Ítölsku stúlkunni í
Alsír í Treviso á Norður-Ítalíu. Jón-
as hefur verið búsettur í Englandi
undanfarin tvö ár og lauk postgra-
Tónlist | Jónas Guðmundsson hlýtur
styrk úr sjóði Önnu Karólínu Nordal
„Hefur háa, blæ-
fagra tenórrödd“
Morgunblaðið/Golli
Jónas Guðmundsson tenórsöngvari
söng við styrkveitinguna við góðar
undirtektir áheyrenda í Salnum.
ÞEIR Gunnar Þórðarson, Jón Rafnsson og
Björn Thoroddsen, sem skipa tríóið Guitar
Islancio, eru nýkomnir heim úr Japansferð.
Tríóið lék á heimssýningunni, Expo 2005, og
hélt daglega tónleika í um vikutíma í nor-
ræna skálanum á norrænum dögum í borg-
inni Nagoya. Í ferðinni undirbjó tríóið einnig
útgáfu geisladisksins Scandinavian Songs í
Japan 27. september, en diskurinn kom út
hér heima í vor.
Gunnar Þórðarson segir að listamenn frá
öllum Norðurlöndunum hafi spilað í norræna
skálanum, og að þeir hafi þar verið fulltrúar
Íslands. Og Japanir tóku Guitar Islancio firna
vel. „Já, við vorum þarna eins og rokk-
stjörnur. Ég hef aldrei haft jafn mikið að
gera við að gefa eiginhandaráritanir. Annars
voru Japanirnir afskaplega kurteisir – ég
held að þetta sé kurteisasta þjóð sem ég hef
komið til.“ Búið var að prenta auglýs-
ingaspjöld um Guitar Islancio, og það var á
þau sem gestirnir vildu að tríóið kvittaði.
„Okkur var ótrúlega vel tekið. En ég hef
samt ekki hugmynd um hvað þetta hefur að
segja fyrir útgáfu plötunnar – og sennilega
borgar sig ekkert að vera með yfirlýsingar
um það.“
Gunnar segir að ef vel ætti að vera þyrfti
tríóið að vera á staðnum í lengri tíma til að
kynna plötuna. Þegar þeir heimsóttu Kína í
fyrra var þeim sagt, að þeir þyrftu að ferðast
og spila í ár til að eiga von um frama. „En það
væri gaman að fara aftur einhvern tíma, og
það gerist kannski.“
Björn Thoroddsen tekur undir það að ferð-
in til Japans hafi lukkast vonum framar.
„Þeir tóku okkur svo vel – og það kom mér á
óvart, að þótt menningarsamfélögin séu ólík,
þá virtumst við hitta á einhverja taug í Jap-
önunum. Ég er sammála Gunnari um að það
verði ekkert á vísan að róa með plötuna, en
eftir ferðina er ég miklu bjartsýnni en ég
var.“ Björn segir að munurinn á Japönum og
Kínverjum hafi verið sá að Japanirnir hafi
augljóslega þekkt músíkstefnu tríósins –
vesturevrópskan þjóðlagadjass. „Í eyrum
Kínverjana vorum við hins vegar framandi.
Það er meiri hefð fyrir vestrænni tónlist í
Japan. Fólk var að koma aftur og aftur alla
dagana að hlusta á okkur, og við vorum
myndaðir í bak og fyrir á vídeóvélar.“
Björn segir að ásóknin í eiginhandarárit-
anir hafi verið mjög sérstök uppákoma, og að
á endanum hafi þurft að taka frá sérstakan
tíma í dagskrá tríósins til að sinna því verki.
Jón Rafnsson segir að stefnan sé að fara út
aftur og fylgja plötunni eitthvað eftir þegar
hún kemur út. Hann er jafn ánægður með
túrinn og félagar hans, og segir að ein-
staklega vel hafi verið staðið að öllu skipu-
lagi, eins og með útgáfu kynningarefnisins
sem Japanirnir sóttu svo í að fá áritað. „En
aðsóknin var líka góð. Við spiluðum á hverj-
um degi frá fimmtudegi til sunnudags – bæði
í skálanum sjálfum, og svo að minnsta kosti
tvenna tónleika á dag að auki á svæðinu fyrir
utan. Það var að koma allt upp í tugi þúsunda
gesta á dag að skoða skálann, og oft allt að
hálftíma biðraðir við skálana að komast inn.
Þá var fínt að spila þar fyrir þá gesti sem
biðu. Á laugardaginn var svo metaðsókn á
svæðið, og mjög gaman að hafa verið þarna
þá. Við byrjuðum alltaf og enduðum hverja
tónleika á íslenskum þjóðlögum, en spiluðum
svo líka lög af diskinum, norræn þjóðlög, og
svo bara allt mögulegt annað – eigið efni þar
á meðal. Þetta féll allt í kramið, ferðin í alla
staði mjög ánægjuleg, og maturinn í Japan
góður,“ segir Jón og hlær.
Tónlist | Japanir kunnu vel að meta þjóðlagadjass tríósins Guitar Islancio
„Við vorum eins
og rokkstjörnur“
„Aldrei haft jafn mikið að gera við að gefa
eiginhandaráritanir,“ segja þeir félagar.
Japanirnir þekktu evrópska þjóðlagadjassinn og kunnu vel að meta hann. Gunnar Þórðarson,
Jón Rafnsson og Björn Thoroddsen á Expo 2005. „Okkur var ótrúlega vel tekið.“
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is